Morgunblaðið - 26.06.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1981
19
Vorið kom
Staðarbakka. MiðfirAi. 25. júni.
MJÖG gott veður hefur verið
hér síðustu viku, en segja má
að þá hafi vorið komið. Hér
sprettur oftast fljótt um leið
og tíð batnar og eru tún nú
farin að spretta ágætlega.
Víða er mikið kal og á
nokkrum stöðum er unnið að
því að græða upp skemmd
tún.
Túnin eru þá plægð upp og
sáð í þau grænfóðri, en slíkt
krefst mikillar vinnu. Vegna
kuldans er ekki alls staðar
búið að láta út kýr, en það er
nokkuð óvenjulegt miðað við
að komið sé fram í lok
júnímánaðar.
Af félagslífi er það helst að
segja að kirkjukórar hér í
nágrenninu eru nú sem óðast
að undirbúa sig fyrir mikið
fyrir viku
kóramót, sem haldið verður á
Akureyri um næstu helgi.
Ennfremur er ráðgert að
halda samkomu á Stóru-Giljá
seinna í sumar, en þá verður
afhjúpaður minnisvarði um
fyrstu kristniboðana, sem
hingað komu til landsins.
Um þessar mundir eru
fjögur einbýlishús í byggingu
á Laugarbakka, en þar er nú
að myndast þéttbýliskjarni.
Astand vega hefur verið
nokkuð sæmilegt það sem af
er, en nú er unnið að því að
leggja nýjan veg á milli
Hrútafjarðar og Miðfjarðar
og er ráðgert að hann komi í
gagnið í vetur. Með tilkomu
hins nýja vegar styttist leiðin
þarna á milli nokkuð og
verður auk þess öruggari yfir
vetrarmánuðina.
— Benedikt.
í gær gekkst Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar fyrir ferðalagi fyrir aldraða á Njáluslóðir og
var þessi mynd tekin er lagt var upp í ferðina frá Austurvelli.
Rolf Karlsson á íslandi
Rolf Karlsson talar á einni af
samkomunum sem hann hélt i
Rcykjavik í september sl.
SÆNSKI trúboðinn Rolf Karls-
son, höfundur bókarinnar „I.jós í
myrkri“. kemur til landsins i
das. föstudag. Rolf kom hingað i
september sl. og hélt þá 6 sam-
komur i Filadelfiukirkjunni i
Reykjavik fyrir fullu húsi.
Fyrsta samkoma Rolfs hér á
landi að þessu sinni verður í
íþróttaskemmunni á Akureyri í
kvöld kl. 20.30. Á laugardag og
sunnudag 27. og 28. júní, verða
einnig samkomur á sama stað og
sama tíma.
Frá Akureyri fer Rolf til Vest-
mannaeyja þar sem hann tekur
þátt í 60 ára afmælismóti Hvíta-
sunnumanna hér á landi. Fyrsta
samkoma Rolfs í Vestmannaeyj-
um verður í íþróttahöllinni þriðju-
daginn 30. júni kl. 20.30. Síðan
verða samkomur haldnar á sama
tíma og sama stað fram eftir
vikunni.
Til Reykjavíkur kemur Rolf frá
Vestmannaeyjum og heldur þar
samkomur á vegum Fíladelfíu-
safnaðarins allt þar til hann fer
13. júlí nk.
Trúboðsstofnun Rolfs Karlsson-
ar hefur gefið stór upplög af
bókinni „Ljós í myrkri" til dreif-
ingar hér á landi.
Aðalfundur Samvinnutrygginga:
Iögjaldatekjur jukust um nær 50%
AÐALFUNDIR Samvinnutrygg-
inga g.t., Liftryggingafélagsins
Andvöku og Endurtryggingafé-
lags Samvinnutrygginga hf. voru
haldnir í Reykjavik 23. júni. Fund-
irnir voru haldnir i nýjum fundar-
sal á 5. hæð í Ármúla 3 sem þar
með var notaður i fyrsta sinn.
Fundarstjóri var Jón Helgason
alþm. í Seglbúðum. Erlendur Ein-
arsson stjórnarformaður flutti
skýrslu stjórnar fyrir árið 1980.
Ilallgrímur Sigurðsson fór yfir og
skýrði reikninga Samvinnutrygg-
inga, og Jón Rafn Guðmundsson
greindi frá afkomu Andvöku og
Endurtryggingafélagsins.
Iðgjaldatekjur Samvinnutrygg-
inga jukust um 49,9% og urðu
7.352,3 millj. gkr. Tjón hækkuðu
hins vegar um 69,4%, og tjónapró-
senta félagsins varð 75,9%. Hagn-
aður á rekstrarreikningi varð tæp-
Frá aðalfundi Samvinnutrvgginira.
ar 2,2 millj. en eigið fé, að viðbætt-
um duldum sjóðum, jókst um 60,7%
og nam í árslokin 3.573,1 millj.
Hagnaður varð af bruna-, sjó-,
ábyrgðar- og slysatryggingu, en á
bifreiða- og endurtryggingum varð
tap. Tapið á bílatryggingum varð
192.4 millj., þar af 28,0 millj. á
ábyrgðartryggingum, 99,3 millj. á
kaskótryggingum og 80,7 millj. á
framrúðutryggingum.
Iðgjöld Andvöku jukust um
46,3% og urðu 403,8 millj. Iðgjöld
Endurtryggingafélagsins urðu
2.557.4 millj. og hækkuðu milli ára
um 99,1%. Samtals voru því ið-
gjaldatekjur allra félaganna
þriggja 10.313,5 millj. og jukust um
59,5%.
I tilefni af ári fatlaðra var
samþykkt að Samvinnutryggingar
legðu fram 75 þús. nýkr. til Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra,
og Andvaka 25 þús. kr., eða samtals
100 þús. kr.
í stjórn félaganna eiga nú sæti
þeir Erlendur Einarsson forstjóri,
formaður, Valur Arnþórsson kfstj.,
varaformaður, Ingólfur Ólafsson
kfstj., Ragnar Guðleifsson kennari
og Karvel Ögmundsson frkvstj.
Fulltrúi starfsmanna í stjórninni er
Þórir E. Gunnarsson fulltrúi.
Grillsteik
Bógsteik
T-bonesteik
Roast Beef
Snitchel
Hakk
10 kg nautahakk
Innanlæri
Hamborgarar stk
49.50 prl
113.00
4.70
Ath: Lambarifin marineruöu tilbúin á grillið
aöeins kr. 28.60 pr kg.
Ódýra baconið kr. 43.00.
Ath. þetta góða verð.
Opið í hádeginu á föstudögum.
Lokað á laugardögum.
L AUGALÆK 2.
Sími 86511.
^©TjWDDö^
vörukynning
ss
í SS búóinni
Laugavegi 116 í dag kl 2-7
Komið og bragðið á