Morgunblaðið - 01.07.1981, Side 11

Morgunblaðið - 01.07.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ1981 43 bendir því eindregið til þess, að varla sé raunhæft að taka ákvörð- un um næstu stórvirkjun á þessu eða næsta ári, nema unnt verði á þeim tíma að ákveða stækkun annað hvort Grundartangaverk- smiðjunnar eða Álbræðslunnar í Straumsvík. Satt að segja benda þær áætlanir, sem fram koma á mynd 5, til þess að nægileg raforka geti verið fyrir hendi til þess að stækka Grundartanga- verksmiðjuna um einn ofn, jafnvel þótt ný virkjun komi ekki fyrr en undir lok þessa áratugs. Allt ber þetta að sama brunni. Næg orka á að verða fyrir hendi a.m.k. næsta áratuginn frá þeim orkuverum, sem þegar eru fyrir eða í byggingu, til þess að mæta almennri raforkueftirspurn í landinu. Ákvarðanir um nýjar virkjanir er því varla réttlætan- legt að taka, fyrr en traustar áætlanir liggja fyrir um nýjan orkufrekan iðnað. Rétt er að skýra frá því, að unnið hefur verið að því á vegum Landsvirkjunar að gera áætlanir um byggingu og rekstur mann- virkja á Þjórsársvæðinu með til- liti til mismunandi þróunar orkufreks iðnaðar. Þær benda eindregið til þess, að það sé fjárhagslega hagkvæmt að nýta það svigrúm til aukinnar sölu á orku til stóriðju, sem fyrir hendi verður, þegar lokið er byggingu Hrauneyjafossvirkjunar. Einnig virðist hagkvæmt að stefna að því að ljúka virkjun við Sultartanga fyrir árslok 1985, ef markaður verður þá fyrir hendi. í samræmi við þau lög, sem nýlega voru sett um raforkuframkvæmdir, mun Landsvirkjun á næstunni leitast við að gera samsvarandi áætlanir um rekstur kerfisins, ef ráðizt verður í virkjun Blöndu eða Fljótsdalsvirkjun. Ég ætla því ekki á þessu stigi málsins að blanda mér í deilur manna um það, hvar næsta stór- virkjun skuli vera, eða hvernig raða skuli þeim þremur virkjun- um, sem brátt eru tilbúnar til verkhönnunar. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að mikið verk er enn óunnið, áður en unnt sé að gera traustar áætlanir um rekstur og hagkvæmni þessara virkjana. Með því að taka hér til umræðu ýmis vandamál, sem fjalla þarf um, áður en traustar ákvarðanir verða teknar í þessum efnum, vakir sízt fyrir mér að draga úr mönnum kjark eða letja þá, sem vilja nýta orku islenzkra fallvatna til auk- innar hagsældar í landinu. En kapp er bezt með forsjá, og ör uppbygging orkuvers er því aðeins réttlætanleg, að hægt sé að sýna fram á, að hver áfangi um sig sé fjárhagslega hagkvæmur og skili þjóðarbúinu eðlilegum arði. Þótt langtíma áætlanir séu góðra gjalda verðar og gagnlegar til þess að átta sig á meginstefnu og tækifærum, geta þær eðli málsins samkvæmt aldrei sagt okkur mik- ið um hagkvæmni einstakra fram- kvæmda. I þessum efnum eins og öðrum þurfum við að byggja af kostgæfni og vandvirkni stein fyrir stein, en undirstaðan er heilbrigður rekstur þess raforku- kerfis, sem þegar er fyrir í land- inu. SKULDASTAÐA RAFORKUGEIRANS 31.12.1980 LANQTÍMALÁN SKULDIR mutlirn Mfkf. BORNAR AF REKSTRI UTAN VIÐ REKSTUR LANDSVIRKJUN 1900 1900 1400 1900 1900 I 100 1000 000 000 ' 700 000 900 400 900 900 100 — 0 — HRAUNEYJAFOSS BYQOOALINUR REKSTUR RAFORKUQEIRANS 1980 TEKJUR QJÖLD Mllljóft Nýkr. VERÐJÖFNUNARQJALD AORAR TEKJUR OLIA RAFORKUSALA »9770) SÖLUSKATTUR ANNAR BEINN REKSTRARKOSTN FJARUAGNS KOSTN. HAQNAOUR REKSTUR RAFORKUQEIRANS 1980 FJÁRNAQNSKOSTNADUR OQ AFSKRIFTIR KRÖFLU OQ BYGGOALÍNA UEOTALIN TEKJUR GJÖLD Hllllon Nýkr. VEROJÖFNUNARQJALD AORAR TEKJUR ANNAR BEINN REKSTRARKOSTN. RAFORKUSALA (M97TO) FJARHAGNS KOSTN. ARÐQJÖF RAFORKUQEIRANS ÁRID 1980 A/tOQJÖF - T-F-A E T ’TEKJUR 40S m.kr. R’BEINN REK STRARK OSTN. 168 •• A-AF3KAIFTIRIBÓKFMAOAR) M •• T-K-A-HKIWAK KtKSTKAKTtKJUK Í.S m.kL t.AFSKKIFUO tIQM 1 KIKSTKI 6000 •• AKOOJÖF ÁKIO ft*0- 1.4% ATH: NÚVIROI ALLRA EIONA RAFORKUQEIRANS SEH fKU 1 KfKSTKI ÁKID 1110 EK MtTIO Á 7000 M.ti IVtKOLAQ ÁKAMÓT 10/11) HKAUMtYJAFOSS OQ KRAFLA EKKI HEOTALIN. jr Urval sunnlenskra hesta á Hellu Fjórðungsmót Sunnlenskra hestamanna verður haldið dagana 2.-5. júlí næstkom- andi. Fer mótið fram á Félags- svæði Geysis á Hellu. Á dagskrá mótsins verður gæð- ingakeppni. unglingakeppni i yngri og eldri flokk. kynbóta- sýning, kappreiðar og tölt- keppni. Einnig verður sérstök sýning hrossaræktarbænda, þar sem sýndir verða hópar frá nokkrum ræktendum. Hestar Dagskráin hefst á fimmtu- dag kl. 10.00 á dómum á kynbótahrossum. Kl. 16.00 hefst töltkeppni sem íþróttad- eildir þátttökufélaga sjá um. Á sama tíma verða gæðingar vilj- aprófaðir. Á föstudag kl. 10.00—18.00 verður framhald á kynbótadómum. Frá kl. 10.00-15.00 verða B flokks gæðingar dæmdir og 15.00— 19.00 verða A flokks gæðingar dæmdir. Kl. 18.00 hefjast svo undanrásir kappreiða og kl. 21.00 hefst svo kvöldvaka. Á laugardag hefst dagskráin kl. 9.00 með unglingakeppni 10—12 ára og kl. 10.30 keppa unglingar 13-15 ára. K1 13.00 verður mótið sett. Kl. 13.15 hefst sýning á kynbótahrossum. Kl. 16.00 verða gæðingar sýndir. Sýning hrossaræktarbænda hefst síðan kl. 15.00. Kappreið- ar hefjast síðan kl. 18.00 með milliriðlum í 350 og 800 m stökki, einnig verða fyrri sprettir í 250 m stökki, 150 og 250 m skeiði og 800 m brokki. Úrslit í töltkeppni hefst kl. 20.30 Dagskránni þann daginn lýkur svo með kvöldvöku kl. 21.00. Á sunnudeginum hefst dagskráin með hópreið, helgi- stund og ávörpum. Sýning kyn- bótahrossa hefst kl. 13.00 og verður þá dómum lýst. Úrslit gæðinga í B flokki hefst kl. 15.30 og í A flokki kl. 16.00. Verðlaunaafhending fyrir tölt og unglingakeppni fer fram kl. 16.30. Úrslit kappreiða hefjast kl. 17.00. Að því loknu verður mótinu slitið. Endurbætur hafa verið gerð- ar á mótssvæðinu frá síðasta fjórðungsmóti sem einnig var haldið á Rangárvöllum. Má þar helst nefna byggingu veglegs veitingahúss efst á áhorf- endasvæðinu. Þar er einnig snyrting, starfsaðstaða fyrir dómnefndir og starfsmenn mótsins. Gerðir hafa verið þrír nýir hringvellir og er einn þeirra eingöngu ætlaður sem upphitunarvöllur fyrir keppnis- hross. Bíla- og tjaldstæði hafa verið stækkuð. Forráðamenn mótsins telja að þeir geti auðveldlega tekið á móti 10.000 manns eftir áður taldar endurbætur. Stóðhestahús sem tekur 44 hesta er á staðnum. Beitargirð- ingar eru á staðnum fyrir keppnishross, en ferðahross verða höfð vestan Rangár í landi Ægissíðu. Samtals eru 123 hross skráð í kynbótasýningu mótsins. Eru það 28 stóðhestar og 55 hryssur og 40 afkvæmi í afkvæmasýn- ingar. Einnig verða sýndir 3 ræktunarhópar, eru þeir frá Laugarvatni, Kirkjubæ og Ant- oni Guðlaugssyni í Vík í Mýr- dal. Fimm stóðhestar verða afkvæmasýndir en þeir eru Kolbakur 730 frá Gufunesi, Mosi 773 frá Presthúsum, Hrafnkell 858 frá Ólafsvöllum allir í eigu Hrossaræktunar- sambands Suðurlands, Svipur 874 frá Rauðsbakka í eigu sr. Halldórs Gunnarssonar, Holti og Kolbakur frá Egilsstöðum í eigu Guðna Kristinssonar í Skarði. Þrjár hryssur verða afkvæmasýndar. Að sögn Þor- kels Bjarnasonar, hrossarækt- arráðunauts voru skoðuð 430 hross í forskoðun og kvaðst hann óánægður með það hversu mikið sé til af verulega lélegum hrossum. Einnig sagði hann að topphrossin mættu gjarnan vera fleiri, en þó væru öll þau hross er á mótið koma skínandi góð hross og kvaðst hann bjartsýnn á góða sýningu. V.K. Frá hestamóti á Hellu. í baksýn sést hluti hins nýja húss Geysismanna. Ljósm. Mbl. VK. Fjórðungsmótið hefst á morgun:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.