Morgunblaðið - 01.07.1981, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JULI 1981
Smíðalýsing strand-
f erðaskipa gagnrýnd
- og rætt um misrétti í samgöngum
eftir Guðjón
F. Teitsson
Nú er boðin út á vegum Inn-
kaupastofnunar ríkisins smíði
strandferðaskipa en vitað er, að
tilætlun forstjóra útgerðarinnar
er sú, að smíðuð verði 3 skip eftir
einni og sömu smíðalýsingu, sem
barin hefur verið saman á 3 árum
af ýmsum mönnum, sumpart með
litla eða enga reynslu í slíku
starfi, enda frá upphafi verið
ýmsar kollsteypur í málinu. — Er
álitið, að hönnunarkostnaður sé að
núvirði þegar yfir 1 milljón nýkr.
og feli í sér algert kostnaðarmet í
sambandi við skipasmíðar á veg-
um Islendinga fyrr og síðar, en
hér á eftir skal ræða nokkru
nánar um smíðalýsinguna.
BúnaÖur til
lestunar og losunar
Stærð venjulegra farmopa á
þilfari með vélknúnum hlerum er
ákveðin tvisvar sinnum 12,45 m að
lengd og 10 m breið (af 12 m
miðskipsbreidd). Skyldu menn því
ætla að þetta væri stílað upp á þá
fyrirætlun að lesta og losa allan
farm með krönum, en þá væri að
vísu ónógur aðeins einn 35 tonna
góður og fullkominn krani, sem
gert er ráð fyrir, og yrði væntan-
lega að bæta við a.m.k. öðrum
krana, sem þyrfti þó varla að hafa
meira en svo sem 5 tonna lyfti-
getu.
En í viðbót við ofangreindan
búnað, sem lítið virðist vanta á að
tryggt geti yfirleitt fáanlega hag-
kvæmni í lestun og losun farms,
miðað við margþætt skilyrði í
strandsiglingum hér við land, er
gert ráð fyrir öðrum gífurlega
dýrum.
Á hlið eiga að vera 6—7 metra
breiðar farmdyr með vélknúnum
lokum, og á lokunarhurð á sigl-
ingu að notast sem ökupallur á
bryggjum í höfnum, en innan við
nefndar hliðardyr verði 2 fastar
4ra tonna farmlyftur.
Á skut verði 6 m breitt skutop
með 16 m langri skutbrú, sem
sveigja megi að hluta 40 gráður til
stjórnborðs. Hluti skutbrúar loki
skutdyrum á siglingu.
Aftanvert á milliþilfari verði
hleri, sem fella megi niður til að
aka lyfturum og minniháttar bíl-
um niður í botnlest.
Allur hinn áðurgreindi búnaður
til lestunar og losunar á aðeins
1200 burðartonna skipum, og við
þau hafnar- og veðurskilyrði, sem
hér eru fyrir hendi, virðist alger-
lega hóflaus í stofnkostnaði miðað
við líklega hagnýtingu, og mun
auk þess hafa í för með sér aukinn
viðgerðakostnað og stundum sigl-
ingaúrföll.
Má því telja, að hin víðu lestaop
á þilfari, sem áður eru nefnd,
ásamt nokkru fyllri kranabúnaði
en smíðalýsing gerir ráð fyrir,
ætti að tryggja einna hagstæðast-
an búnað, bæði í fjárfestingu og á
annan hátt til lestunar og losunar,
enda myndu skipin án farmdyra á
hlið og skut geta siglt sem lokuð
hlífðarþilfarskip með meiri djúp-
ristu og svo sem 50% meiri
farmþunga, sem myndi í ýmsum
tilvikum reynast til mikils rekstr-
arlegs ávinnings.
Nokkuð um véla-
búnaðinn
Umrædd hönnun gerir ráð fyrir
litlu bolstærri skipum en Esju og
Heklu, sem hvorri hefir farnast
vel með eina 1600 hestafla aðalvél,
eina skiptiskrúfu, eitt stýri og
eina 200 hestafla bógskrúfu (sem
ekki er skiptiskrúfa), en hinum
fyrirhuguðu skipum er ætlað að
hafa 2x1200 hestafla aðalvélar, 2
skiptiskrúfur til framdriftar, 2
stýri og 450 hestafla bóg-skipti-
skrúfu.
Er hér um að ræða mjög
óvenjulega dýran búnað skipa
nefndrar stærðar, sem nær ein-
göngu eru ætluð til vöruflutninga.
Að vísu er hugmyndin að spara
hjálparvélar með því að láta
aðalvélarnar knýja tvo 400 kw
rafala, en ósannað er, að slíkt leiði
til nokkurs sparnaðar.
Framdriftarskrúfur
3030 m/m í þvermál
Af margs konar nýlegum til-
raunum til að spara olíu, hefur ein
verið sú að hægkeyra framdrift-
arskrúfur skipa, en fá hina æski-
legur framdriftarorku með því að
hafa skrúfurnar óvenjulega stórar
og átakamiklar, og virðist farið
inn á þessa braut í umræddri
smíðalýsingu.
Gert er ráð fyrir að snúnings-
hraði aðalvélanna verði faststillt-
ur á 750 snúninga á mínútu, en
gíraður niður I 140 eða 135 snún-
inga á mínútu á skrúfum, sem
verði hver rúmlega 3 metrar í
þvermál.
Eins og ástand hefur verið frá
1965, verður að reikna með því, að
umrædd skip lendi sum ár í meiri
eða minni langaðarhafís við land-
ið, auk þess að brjóta stundum
lagnaðarís á höfnum svo sem t.d. á
ísafirði og Akureyri, og sýnist því
hrein fávizka að hafa svo stórar
hliðarsettar skrúfur, sem ráð er
fyrir gert í umræddri smíðalýs-
ingu, enda kemur fleira til en ís,
sem umræddum skrúfum ásamt
fylgjandi búnaði, gírum og 11
metra skrúfuásum, stafar hætta
af, einkum á hinum misjöfnu
höfnum.
Við þetta er svo því að bæta, að
talið'' er, að þegar á s.l. ári hafi
verið pantaðar aðalvélar og skrúf-
ur fyrir 3 skip samkvæmt um-
ræddri smíðalýsingu, þ.e. 6x1200
hestafla vélar og 6 skiptiskrúfur
3030 m/m að þvermáli og þetta
gert án nokkurs samþykkis ríkis-
stjórarinnar í heild eða Alþingis,
vafalaust til þess að síður yrði
hægt að stöðva þessi óviturlegu
fjárfestingaráform.
Sala Heklu misfórst
Af sama toga virtist spunnin
tilraun til að selja núverandi
strandferðaskip, Heklu, og leigja í
staðinn erlent skip með erlendri
áhöfn, sennilega til tveggja ára, í
viðbót við annað erlent leiguskip,
sem þegar hefur verið hér í
strandferðum í 2 ár með erlenda
áhöfn.
Má fullyrða, að flestum lands-
mönnum hafi blöskrað sú ráðs-
mennska sem hér er rætt um, og
munu samtök farmanna m.a. hafa
tilkynnt samgönguráðuneytinu, að
þau myndu ekki þola frekari
leiguskiparekstur með erlendum
áhöfnum hér við land.
Hafði þó þegar verið gengið
skjallega frá sölu skipsins af
íslands hálfu, samanber frétt í
Morgunblaðinu 10. apríl s.l., en
hinir erlendu viðsemjendur í
Ecuador hættu við kaupin á síð-
ustu stundu og komu þannig í veg
fyrir að hneykslið næði fram að
ganga.
íbúðir áhafnar
Samkvæmt smíðalýsingu er
gert ráð fyrir herbergjum fyrir
aðeins 9 skipverja á hinum fyrir-
huguðu strandferðaskipum, skip-
stjóra, 2 stýrimönnum, 2 vélstjór-
um, matsveini og 3 hásetum, en
ekki er ljóst að þetta samrýmist
íslenzkum lögum og samningum
við stéttarfélög, og virðist óvar-
legt að láta smíða dýr skip án þess
fullkomlega sé frá þessu gengið.
Engin frystilest
Ekki er gert ráð fyrir neinum
frystilestum í hinum fyrirhuguðu
strandferðaskipum, og virðist
hugmyndin að leysa alla frysti-
vöruflutninga með gámum, 8x8x20
eða jafnvel 40 feta, en hvort sem
er, þá er um að ræða mjög dýra
hluti, sem óvíða á landi eru nokkur
tæki til að lyfta með hleðslu til
flutnings, og sem í mörgum tilvik-
um er hætt við skemmdum. ,
Sýnist mjög óviturlegt að hafa
ekki töluverð fasta-frystirúm í
strandferðaskipum, sem sigla eiga
kringum land, enda þótt hagstætt
kunni að vera að geta stundum
tekið frystigáma, sem t.d. eiga að
Guðjón Tcitsson
„Af sama toga virðist
spunnin tilraun til að
selja núverandi
strandferðaskip,
Heklu, og leigja í stað-
inn erlent skip með
erlendri áhöfn, senni-
lega til tveggja ára, í
viðbót við annað er-
lent leiguskip, sem
þegar hefur verið hér
í strandferðum í 2 ár
með erlendri áhöfn. —
Má fullyrða að flest-
um landsmönnum
hafi blöskrað sú ráðs-
mennska ...
fara með útflutningsvörum í milli-
landaskip.
Coaster-skipin munu fyrirmynd
að því að hafa ekki frystilestir í
hinum fyrirhuguðu strandferða-
skipum, en til fróðleiks skal benda
á, að um síðustu mánaðamót
keypti útgerðarfélag í Færeyjum
eitt af Coaster-skipunum (Coaster
Conny) til siglinga milli Færeyja,
Noregs, Svíþjóðar og Finnlands,
m.a. með frosinn fiskúrgang tii
minnkafóðurs, og lætur færeyska
Notkun jarðhita til sveppa-
ræktar í stórum stíl
eftir Bjöm
Friðfinnsson
Svepparækt
Neyzla ræktaðra sveppa, bæði
ferskra, þurrkaðra og niðursoð-
inna hefur aukizt mikið á síðustu
árum. Þannig hefur framleiðsla
sveppa í Bandaríkjunum vaxið úr
75 þús. tonnum árið 1967 í 180 þús.
tonn 1978 eða um 140%. Á sama
tíma hefur meðalverð til ræktenda
hækkað um 120%.
Hér á landi hefur neyzla niður-
soðinna sveppa aukizt að sama
skapi og að Varmalandi í Borgar-
firði og í jarðhúsunum við Elliða-
ár er nú vaxandi framleiðsla á
ferskum sveppum fyrir innan-
landsmarkað.
í Bandaríkjunum hafa nú stór-
fyrirtæki í matvælaframleiðslu,
svo sem Ralston Purina, Heinz og
Castle & Cooke, sett á fót sveppa-
ræktarstöðvar, þar sem fram-
leiðslan getur orðið allt að 4500
tonn á ári í einstakri stöð. í
tengslum við það er síðan súpufr-
amleiðsla og önnur vinnsla fram-
leiðslunnar. Stærstu svepparækt-
arstöðvarnar eru í ríkjunum Utah
og Kaliforníu. Fyrirtæki sem heit-
ir „Alamosa Mushroom Farm Inc.,
er nú að undirbúa rekstur nýrrar
„Hér á landi hefur
neysla niðursoÖinna
sveppa aukizt að sama
skapi og að Varma-
landi í Borgarfirði og
í jarðhúsunum við Ell-
iðaár er nú vaxandi
framleiðsla á ferskum
sveppum á innan-
landsmarkað.“
svepparæktarstöðvar við bæinn
Alamosa í Colorado í Bandaríkj-
unum. Byggingarframkvæmdir
hófust haustið 1980 og reiknað er
með því að framleiðslan hefjist nú
í haust. Um er að ræða stöð með
28 þús. fermetra gólffleti og reikn-
að er með því, að starfsmenn verði
á bilinu 200 til 240. Áætluð
framleiðsla er 3 til 4 þús. tonn á
ári.
Notkun jarðhita
Það sem gerir þetta fréttnæmt
fyrir okkur íslendinga er, að í
Alamosa er ætlunin að nota jarð-
hita til ræktunarinnar á sama
hátt og nú er gert í smáum stíl hér
á landi.
Svepparækt er að mörgu leyti
hagkvæmur kostur á ylrækt hér á
Iandi. Andstætt þeim ylræktar-
vershugmyndum, sem mest hefur
verið fjallað um, þarfnast sveppa-
ráektin ekki birtu og því sparast
mikill kostnaður í að losna við
framleiðslu „gervisólskins" með
dýrri raforku.
Hægt er að nota jarðvarmann
til þess að halda tilskildum rækt-
unarhita 10—16 stig á Celcíus, til
gerilsneyðingar á jarðvegi og til
að þurrka eða frysta sveppina.
Aðstaða, þekking,
hrossatað og hálmur
Auk aðstöðu til ræktunarinnar
þarf þekkingu, hrossatað og hálm.
Sveppagróin hafa verið flutt inn
en sjálfsagt mætti einnig annast
þann þátt hérlendis, ef um stór-
ræktun væri að ræða.
Erlendis fer hrossaeign minnk-
andi og hefur því orðið skortur á
hrossastaði í hinum stóru sveppa-
ræktunarstöðvum. Sökum þess
hafa menn þar nú þróað sérstaka
næringarblöndu, sem gerir sama
gagn, en framleiðsluna nokkru
dýrari.
Björn Friðfinnsson
Svepparækt til
útflutnings
í fljótu bragði virðist sem
svepparækt í stórum stíl til út-
flutnings sé áhugaverð fyrir yl-
ræktarbændur og aðra þá sem
aðgang hafa að landi og jarðhita í
hrossaræktarhéruðum. Sam-
keppnisstaða íslendinga á þessu
sviði umfram aðra er fólgin í
jarðhita og svölu loftslagi, en
erlendis þarf víða að kæla sveppa-
ræktarsalina, þar sem hitastigið
má ekki fara yfir tiltölulega lágt
mark.
Heildsöluverðmæti ferskra
sveppa á Bandaríkjamarkaði er nú
líklega um 1 dollari pundið eða
2,20$ pr. kíló.
Framleiðsluverðmæli 3000
tonna, sem tækist að selja á
Bandaríkjamarkaði, væri þannig
6,6 milljónir doilara CIF eða 48
milljónir króna á núverandi gengi.
Verð til iðnaðarframleiðslu er
15—20% lægra, en hugsanlegt
væri að setja upp niðursuðu eða
frostþurrkunarverksmiðju í
tengslum við svepparæktina.
Svepparækt og stein-
ullarframleiðsla
Hér hefur verið stuðst við grein
úr bandaríska tímaritinu Geo-
Heat Center Quarterly Bulletin,
sem gefið er út í Klamath Falls í
Oregon1* og sjálfur hefur höfund-
ur þessara lína enga þekkingu á
svepparækt umfram það sem í
greininni stendur. Málið er því
vafalaust um of einfaldað og e.t.v.
kæmi í ljós við athugun fram-
takssamari manna með sérþekk-
ingu á sviði verzlunar og ylræktar
að hér sé ekki um hagkvæman
kost að ræða. En þess vegna er
þetta ritað, að hvarflað hefur að
ýmsum mönnum við fréttir af
steinullarkapphlaupi þeirra
Sauðkræklinga og Sunnlendinga,
að e.t.v. gætu þeir nýtt náttúru-
lindir sínar, fjármagn og mann-
afla á mun hagkvæmari hátt við
svepparæktun en steinullarfram-
leiðslu.
12.6.1981.
1) Geo-IIeat Center Quarterly
Kulletin. desember 1980.