Morgunblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ1981 Einar Hannesson: Leirvogsá í Kjósarsýslu Myndin er tekin við útrennsli Leirvogsár í ósi Leirvogsvatns. Á myndinni sjást stólpar vatnsmiðlunarstiflunnar. (Ljósm. Einar Hannesson.) Esjan og nærliggjandi fjöll leggja ýmsum ám til vatn, auk Laxeldisstöðvar ríkisins í Kolla- firði. Þannig nýtur Leirvogsá þess að eiga mestan hluta aðrennslis- svæðis síns þar, Bleikdalsá á Kjalarnesi, Kiðafellsá og vatna- svæði Laxár í Kjós. Leirvogsá sem hér er ætlunin að gera að umtals- efni, er vinsæl laxveiðiá, sem leigð hefur verið til stangveiði í rúm- lega 40 ár. Stangveiðifélag Reykjavíkur, elsta og fjölmenn- asta félag stangveiðimanna, hefur haft ána á leigu í tæplega 20 ár. Laxinn kemst að Tröllafossi Leirvogsá fellur í sjó í Leirvogi, sem er inn af Kollafirði, rétt við Geldinganes. Áin á hins vegar upptök sín í Leirvogsvatni, sem er í 12 km fjarlægð eftir ánni frá sjó. Laxinn kemst lengst upp ána 8 km að Tröliafossi. Aðrennslissvæði árinnar er 85 km' í sjávarósi, en hjá Tröliafossi er það 44 km2 (Vatnamælingar, Orkustofnun). Tröllafoss er 14 m á hæð og er í 150 m hæð yfir sjó og neðan hans rennur áin um sinn í djúpu gljúfri. Á leið sinni til sjávar bætist ánni vatn úr tveimur ám, er falla úr Esjunni norðan árinnar auk smærri lækja beggja megin árinn- ar. Ár þessar eru Þverá, er kemur úr samnefndum dal og úr Svína- skarði og Grafará sem einnig kemur úr samnefndum dal. Mikil flóð koma í Leirvogsá enda fellur nær allt vatn til hennar úr fjalllendi. FólaKsleg starfsemi í 40 ár Talið er sr lax hafi alltaf verið í Leirvogsá. Samtök veiðieigenda við ána voru stofnuð árið 1940 og eiga 14 jarðir aðild að félaginu, sem annast útleigu svæðisins og sinnir fiskrækt, eins og venja er um veiðifélag. Áin hefur alla tíð félagsins verið leigð til stangveiði. Fyrir daga félagsins hafði verið veitt á svæðinu með netum og á stöng, auk þess sem laxalagnir voru við ósa árinnar í sjó, en þessi veiðiaðstaða öll fluttist á hendur félagsins og fékk þar sinn arðs- hlut, eins og önnur veiði á svæð- inu. Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur haft ána á leigu á hverju sumri frá árinu 1964 og leigir veiðina í sumar. Lengst af var veitt með 2 stöngum samtímis, en nú eru notaðar 2—3 stengur um veiðitímann. Meðalveiði í ánni á ári sl. 10 ár er 446 laxar. Um 20 veiðistaðir eru í Leirvogsá og dreifast nokkuð jafnt um ána. Áin fellur sem svarar 17 sm á hverja 100 metra frá Tröllafossi að sjáv- arósi. Veiðihús er við ána hjá Helguhyl, 25 fermetra að flatar- máli, og er miðsvæðis. Flestir veiðimenn hagnýta sér ekki gistiaðstöðuna í húsinu enda er áin í aðeins um 20 km fjarlægð frá Reykjavík, en þaðan koma lang- flestir sem veiða í ánni. Hefðbundin fiskirækt Fiskirækt hefur töluvert verið stunduð í Leirvogsá, fyrst og fremst með sleppingu seiða í ána og veiðieftirliti. Framan af voru notuð kviðpokaseiði, sem sleppt var víðsvegar um svæðið, svo sem í ána ofan Tröllafoss og í ána Bugðu sem fellur í Leirvogsvatn. Síðar komu til sögunnar sumaral- in seiði og gönguseiði af laxi, en síðustu ár hefur gönguseiðum ver- ið sleppt úr sleppitjörn. Um 1950 var vatnsmiðlun tekin í notkun í ósi úr Leirvogsvatni. Var hún hagnýtt í mörg ár eða fram yfir 1970, að þessu var hætt. Um skeið var efsti hluti laxgenga svæðisins friðaður fyrir allri veiði. Virkjað var á sínum tíma á tveimur stöðum í Leirvogsá um skeið til raforkuframleiðslu til einkanota. Önnur rafstöðin var í Varmadal. en hin hjá Skeggja- stöðum, nokkru fyrir neðan Tröllafoss. Við rafstíflu í ánni þar var byggður laxastigi. Þessi starfsemi hætti og nú rennur áin óbeisluð til sjávar. Skemmtileg gönguleið Margir leggja leið sína til að skoða Tröllafoss og gljúfrin neðan við fossinn, því þar er skemmti- legt að koma. Mönnum þykir gönguleið frá vegi hjá Hrafnhól- um eða Skeggjastöðum að fossin- um hæfileg. Betra er að fara að norðanverðu upp með ánni því að með því móti blasir fossinn beint við göngufólki. Einnig getur dug- iegt göngufólk lagt upp frá Hrafn- hólum eða Þverárkoti til lengri ferðar eða um Svínaskarð niður í Kjósina, að Möðruvöllum. Af kunnugum er þessi leið talin vera um 3 klst. ganga. Einnig má hugsa sér öfuga göngu, er hæfist hjá Möðruvöllum og lyki hjá Hrafn- hólum. Fyrr á tímum var fjölfarin leið um Svínaskarð, sem er austan Móskarðshnjúka, milli þeirra og Skálafells, eins og kunnugt er. Hér að framan er farið út í aðra sálma en að fjalla beint um Leirvogsá, eins og ætlunin var upphaflega að gera eingöngu. Vissulega tengist ýmislegt ánnað náttúrulegs eðlis og á sviði útivist- ar spjalli um árnar og það sem þeim fylgir og umhverfi þeirra, sem árnar hafa myndað um árþús- undir, eins og fossa og gljúfur, og eru stöðugt að umskapa landið. Mengunarmál uíar- lega á baugi Síðustu ár hefur mengun og meint tjón af völdum hennar og flugvargs valdið mönnum við vatnasvæði Leirvogsár vaxandi áhyggjum. Þar á hlut að máli hin þétta byggð í Mosfellssveit með sitt afrennsli og mergð svartbaks á ósasvæði árinnar. Hefur verið reynt að sporna við þessu ófremd- arástandi og leggur veiðifélagið þunga áherslu á að lífríki svæðis- ins verði verndað gegn mengun- inni og tjóni af völdum meinfugls- ins. Pétur Pálmason, Norður-Gröf, formaður Fyrr var greint frá stofnun veiðifélagsins um Leirvogsá. Fimm menn hafa gegnt for- mennsku í félaginu. Fyrsti for- maður þess var Stefán Þorláksson, Reykjahlíð, þá Magnús Sveinsson, Leirvogsstungu, Pétur Pálmason, Norður-Gröf, Guðmundur Magn- ússon, Leirvogstungu, Hlynur Þór Magnússon, Leirvogstungu og Pét- ur Pálmason, Norður-Gröf, núver- andi formaður félagsins. Starf- semi veiðifélagsins hefur gengið ágætlega og það hefur skilað drjúgum tekjum fyrir veiðina. Myndin sýnir Tröllafoss, sem er 14 m á hæð, og næsta umhverfi. Á myndinni sést, að þó nokkur snjór er rétt við fossinn. Myndin er tekin 20. apríl 1981. (Ljósm. Einar Hannesson.) VILT ÞU BETRI Ef þú setur LUMENITION í bíllnn þlnn þá er þaö eins og betri bíl, aöeins miklu ódýrari, því búnaöurinn iö eittþúsund krónur^----------------- Isiswtw* - LUW£N'T'° garUp'atÍ0Um 'eýS O an heU* •*£* JJ Þar 1 sér o9,fhsí9oorú.. eÖaft ftur í iágteark' ^ cinevösia veröur garl SSt**11*- ^ Fngiee _ : <öí>r'»n9* 9 íSSfí-i <**'”• -: tóörir'9' jtum °9 benSín- am óger- * í,V" umenition HABERGhf 3e-Simi 84788 Húnvetningar hittast á Hveravöllum Á SÍÐUSTU árum hefur það tiðkast að Ilúnvetningar hittust á Hveravollum, að forgöngu Hún- vetningafélagsins i Reykjavik. Koma þá heimamenn suður til Hveravalla en sunnanmenn fara norður. Að þessu sinni er þessi ferð ráðgerð héðan föstudaginn 17. júlí nk. Lagt verður af stað frá félags- heimili Húnvetningafélagsins að Laufásvegi 25, og ekið í einum áfanga til Hveravalla. Á laugar- dag verður efnt til gönguferða í Þjófadal og gengið verður á Rauð- koll ef skyggni verður gott, og einnig verða eldstöðvarnar í Strýtum skoðaðar. Um kvöldið skemmta menn sér svo eftir því sem hver vill. Á sunnudag verður síðan lagt af stað heimleiðis með viðkomu í Hvítárnesi, og komið til Reykja- víkur á sunnudagskvöld. Undir- búning ferðarinnar annast þeir Jón Snæbjörnsson, Aðalsteinn Helgason og Steingrimur Björns- son. (Úr fréttatilkynningu.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.