Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
173. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
9.IRA
skærulið-
inn látinn
Iklfast. 8. áKÚst. AP.
THOMAS Mcllwee. sem hefur
verið í mótma'lasvclti í Maze-
fannelsinu í Belfast i fi2 daKa.
lést í morgun. Hann er níundi
IRA-ska'ruliðinn. sem látist hef-
ur eftir mótmælasvelti.
Mcllwee afplánaði ævilangan
fanelsisdóm fyrir sprennjutil-
ræði. Hann var handtekinn 1976.
Skæruliðar IRA hófu mótmæla-
svelti í fangelsum N-írlands
[>ann 1. marz síðastliðinn. Þeir
fara fram á „mannúðlegri" með-
ferð í fangelsi en brezk stjórn-
völd segja kröfuna í raun rétt-
indi pólitískra fanga og slíkt
komi ekki til greina, þar sem í
hlut eigi glæpamenn.
Síðustu dægrin hafa umfangsmiklar og fjölmennar mótmælaaðgerðir farið fram í Póllandi þar sem athygli hefur verið vakin á miklum
matvælaskorti í landinu. Ekki sér fyrir endann á matvælaskortinum né þessum mótmælaaðgerðum, og meðfylgjandi mynd var tekin í Lodz
fyrir skömmu er konur fylktu liði á götum úti. Húsmæður tóku börn sín með sér eins og sjá má.
Saudi-Arabar leggja
fram friðartillögur
Vilja stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna með hinn arabiska
hluta Jerúsalem sem höfuðborg - reiðubúnir að viðurkenna ísrael
Veita ekki
flugtaks-
heimild
París. 8. áKÚst. AP.
STJÓRN stærstu samtaka
franskra Nugumfcrðarstjóra, en
þau eru fimm samtals, skipuðu
félagsmönnum i dag að veita ekki
flugvélum er væru á leið til
Handaríkjanna flugtaksheimild.
Formaður samtakanna sagði.
að flugumferðarstjórarnir
myndu ekki leyfa flugvélum ann-
ars staðar frá, er væru á leið til
Handarikjanna. að fara um
franskt flugstjórnarsvæði.
Um 45% franskra flugumferð-
arstjóra eru i viðkomandi sam-
tökum. og kemur ákvörðun
stjórnarinnar til framkva-mda
síðar í dag. Akvörðunin var tekin
til að styðja haráttu handarískra
flugumferðarstjóra. sem eru i
verkfalli. en samtökin frönsku
lýstu því yfir, að það fyrirkomu-
lag sem nú væri á flugumferðar-
stjórnun í Bandaríkjunum, væri
ha'ttulegt að þeirra mati.
Engar tafir urðu á áætlunar-
flugi til Bandaríkjanna frá
Ileathrow í dag, og aðeins
smávægilegar tafir frá öðrum
helztu flugvöllum í Evrópu. For-
stoðumenn brezkra flugfélaga,
þar á meðal Sir Freddy Laker,
lýstu því yfir í dag, að fylgst væri
mjög náið með framvindu flug-
umferðarstjórnunar i Bandarikj-
unum. og að óhætt væri að segja,
að fyllsta öryggis væri gætt, og
öryggi farþega og flugvéla ekki i
neinni ha ttu.
Kivadh. Saudi-Arahíu. 8. avrust. AP.
FAÍID KRÓNPRINS í Saudi
Arabíu hefur lagt fram friðar-
áætlun í Mið-Austurlöndum í sjö
liðum. í tillögum sinum gerir
krónprinsinn ráð fyrir stofnun
sjálfstæðs ríkis Palestinumanna
og að höfuðhorg þess verði gamli
hluti Jerúsalem. l>á gerir krón-
prinsinn að tillögu sinni, að öll
ríki fyrir botni Miðjarðarhafs
verði viðurkennd. Með tillögu
sinni er talið, að krónprinsinn sé
að hvetia riki araha til að viður-
kenna ísrael, gegn því að ísrael-
ar fallist á tillögur Saudi-Araba.
Almennt er talið að krónprins-
inn sé áhrifamesti maður stjórn-
arinnar í Riyadh. Hann ásakaði
gyðinga í Bandaríkjunum um að
reyna að koma í veg fyrir sölu
AWACS-ratsjárflugvéla til
Saudi-Arabíu. „Það fyllir mælinn
ef þingið í Washington stöðvar
sölu vélanna. Aðrar dyr eru okkur
opnar," sagði krónprinsinn án
þess að skýra nánar hvað hann
átti við. Tillögum Fahds var dreift
af fréttastofu Saudi-Arabíu í
morgun.
Ronald Reagan, forseti Banda-
ríkjanna hefur mælt með sölu
AWACS-véla til Saudi-Arabíu en
meirihluti öldungardeildarinnar
er andvígur sölunni. Fréttaskýr-
endur benda á, að um 20% af
innfiuttri olíu til Bandaríkjanna
komi frá Saudi-Arabíu og einnig
að Saudi-Arabar hafa staðið fast
gegn olíuhækkunum í OPEC, sam-
tökum olíuframleiðsluríkja.
Krónprinsinn hvatti stjórn
Bandaríkjanna til að viðurkenna
frelsissamtök Palestínu, PLO, þó
samtökin hafi ekki beinlínis verið
nefnd á nafn. Þá hvatti hann
Reagan til að leggja Camp David-
samkomulagið á hilluna. Hann
sagði reynsluna sanna að sam-
komulagið væri aðeins dautt
pappírsplagg.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Saudi-Arabar leggja fram áætlun
um lausn deilunnar fyrir botni
Miðjarðarhafs. Hún er í sjö liðum:
1. ísr ælsmenn dragi allt herlið
sitt til baka frá svæðum sem
hertekin voru í sex daga stríðinu
1967 þar með talinn hinn arab-
íska hluta Jerúsalem.
2. Israelsmenn leggi niður land-
nám gyðinga frá 1967; á vestur-
bakka Jórdanár, Gaza-svæðinu og
Golan-hæðum.
3. Trúfrelsi verði viðurkennt í
Landinu helga; gyðingatrú, isl-
ömsk trú og kristin trú.
4. Réttur 2 milljón Palestínu-
manna verði viðurkenndur. Þeim
verði heimilt að snúa aftur til
heimalands síns og bætur verði
greiddar þeim, sem kjósa að snúa
ekki til baka.
5. Vesturbakki Jórdanár verði
settur undir stjórn Sameinuðu
þjóðanna á meðan breytingar
þessar standa yfir.
6. Ríki Palestínumanna verði
stofnað og að hinn arabíski hluti
Jerúsalem verði höfuðborg ríkis-
ins.
7. Öll ríki fyrir botni Miðjarðar-
hafs verði viðurkennd, þar með
talið Israel.
Samið í
Bólivíu
l.a Paz. 8. ánúsl. AP.
LEIÐTOGI uppreisnarinnar í
Bóliviu og þriggja manna herfor-
ingjastjórn landsins tilkynnti í
morgun að samkomulag hefði
náðst um áa'tlun til lausnar deilu
uppreisnarmanna og stjórnar-
innar og um útnefningu nýs
forseta í stað Luis Gareia Meza.
Uppreisnarmennirnir hafa við-
urkennt völd þriggja manna her-
foringjastjórnarinnar og snúið
aftur til búða sinna. Til að koma á
móts við uppreisnarmenn, hefur
herforingjastjórnin fallist á að
kalla brottvikna liðsforingja aftur
til starfa og leyfa útlægum liðs-
foringjum að flytjast aftur til
landsins. Jafnframt varð að sam-
komulagi, að herforingjastjórnin
kallaði alla ráðamenn í her lands-
ins til fundar til að kjósa nýjan
forseta.
Fyrrverandi hermaður í Rauða hernum:
Brezhnev st jórnaði
töku Wallenbergs
Stokkhólmi. 8. ágúst. AP.
LEONID Brezhnev, forseti Sov-
étríkjanna. stjórnaði sérþjálf-
aðri sveit. sem árið 1945 hand-
tók sænska diplómatinn Raoul
Wallenberg í Búdapest.
Yaakov Menaker, fyrrum yfir-
maður í Rauða hernum, sem var
i Búdapest 1945, heldur þessu
fram í viðtali við sænska blaðið
Aftonbladet í dag. Wallenberg
aðstoðaði tugi þúsunda gyðinga
frá klóm nazista í síðari heims-
styrjöldinni.
Menaker er nú búsettur í
ísrael, en hann fékk heimild til
að yfirgefa Sovétríkin árið 1979.
Hann heldur því fram í viðtal-
inu, að Brezhnev, sem var ofursti
í 18. herdeildinni, hafi stjórnað
handtökunni. Því er haldið fram,
að Sovétmenn hafi grunað Wall-
enberg um að vera bandarískan
njósnara og því hafi hann verið
handtekinn.