Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981
San Francisco. 7. júní.
S'
Iskuggsælum norð-
urhlíðum Bel-
mont-hæða, sunnan
San Francisco, situr
Hebette Theresa
Murnane á svölum
einbýlishúss síns og
horfir yfir San
Francisco-flóa, þar
sem seglskútur líða
áfram í kvöldblæn-
um. Handan flóans í
austri eru ljósin í
Oakland að kvikna
meðan sólin hnígur
til viðar bak við
Sawyer-hæðahrygg-
inn í norðvestri.
Yfir austurfjöllun-
um teygir Djöflatind-
ur (Mount Diablo) sig
til himins.
Hebetta Theresa Murnane. hét
Hrafnhildur Valdimarsdúttir,
þe^ar hún kynntist ungum
íistamanni á Kirkjubæjar-
klaustri. Hann býr nú i París
u(í kallar sijf Erro, en hún býr i
San Francisco og huKsar heim
til ævintýra ok æskuáranna.
Systkinin á IIornhjarKsvita áúur en ÓKæfan skall yfir.
Frá Reykjavík
að Ilornbjarjísvita
Húmið fellur yfir. Augu He-
bette verða fjarræn og með lágri
þíðri röddu byrjar hún söguna af
eins árs stúlku, sem fluttist með
foreldrum sínum og systkinum
frá Reykjavík norður að Horn-
bjargsvita, árið 1931. Foreldrar
hennar, Guðrún Vilhjálmsdóttir
og Valdimar Stefánsson, gáfu
henni nafnið Hrafnhildur, fal-
legt nafn en í algjörri mótsögn
við útlit þessarar gullinhærðu
bláeygðu hnátu.
I þrjú ár bjuggu þau í fátækt
og einangrun, en hamingjusöm,
sem útverðir mannlífsins á
nyrsta og kaldasta byggða bóli á
íslandi, í Látravík austan Horn-
bjargs. Vorið 1934 stækkaði
systkinahópurinn heldur betur
þegar tvíburar fæddust á vita-
varðarheimilinu. Sumarið leið
við leik og gleði hjá bórnunum,
en um haustið fengu þau öll
kíghóstann. Eldri börnin lifðu af
veikina, en tvíburarnir dóu báð-
ir. Fáum dögum seinna varð svo
móðirin bráðkvödd þar sem hún
var við gegningar úti. Maður
hennar fann hana þar örenda og
bar hana inn, þar sem hann varð
að leggja hana við hlið barna
sinna tveggja sem enn voru
ógrafin. Á heimilinu voru þá
ekki aðrir eftir, en hann og
börnin fimm. Hann setti elsta
son sinn, Hörð 10 ára, til að gæta
yngri systkina sinna, en lagði
sjálfur á fjallið til að sækja
aðstoð. I Hornvík fékk hann
mann til að fara yfir í Látravík
til barnanna, en sjálfur hélt
hann áfram til Hesteyrar, til að
sækja lækni og koma skilaboð-
um um að fá líkið flutt til
greftrunar.
Fáum dögum síðar kom vita-
skipið og sótti líkin, eftir stóð
heimilisfaðirinn með börnin sín,
sem horfðu skilningsvana aug-
um á eftir kistu móður sinnar og
systkina. Fjölskyldan bjó saman
um veturinn í vitanum, en næsta
Litla stúlkan
frá Hornbjargsvita
sem varð sumarstúlkan
hans Gúnda á Klaustri
Þessa mynd málaði Gúndi fyrir
Hrafnhildi Valdimarsdóttur og
gaf henni i afmælisgjöf. Gúndi.
sem fullu nafni heitir Guð-
mundur Guðmundsson, býr nú i
París og hefur tekið sér lista-
mannsnafnið ERRÓ.
vor fluttu þau í burtu og heimilið
leystist upp.
Sumarið á Klaustri
Árin liðu og Hrafnhildur var
komin á táningsaldurinn þegar
einn bróðir hennar, sem þá var
orðinn kaupfélagsstjóri á
Kirkjubæjarklaustri, útvegaði
henni sumarvinnu við hótelið
þar.
„Þar var þessi hái, granni,
svarthærði strákur. Hann var
svo sérstæður, með þessi dökku
hlæjandi augu, sem heilluðu
mig. Fólkið sagði að hann væri
hálf skrítinn og þau kölluðu
hann Gúnda. Hann átti stóran
bragga, þar sem hann málaði.
Hann sýndi mér myndirnar sín-
ar og við fórum í langar göngu-
ferðir saman.
Við sátum oft við Systrastapa
og hann sagði mér sögur af
munkunum og nunnunum. Þá
varð ég stundum hrædd við
hann. Hann sagði að munkarnir
og nunnurnar, þessar kristnu
sálir, væru saman og þau notuðu
altarið til þess. Hann var svo
villtur í huganum, en pkki í
verki. Hann var svo rómantískur
og blíður, svo mikill „gentleman"
við mig. Ég var mjög veik þetta
sumar, en hann kom alltaf með
blóm til mín, þegar ég var
rúmföst. Seinna málaði hann
mynd og gaf mér. Hann útskýrði
hana fyrir mér. Hann sagði að
hún væri af okkur og fólkinu á
Klaustri, sem var alltaf að horfa
á okkur ganga saman og af
kjaftakerlingunum, sem voru að
tala um okkur. Svo voru nunn-
urnar og munkarnir og þjóðsag-
an. Þar sem við erum að labba
saman inn í hið ókomna, skrifaði
hann: „Gleðilegt afmæli, Gúndi."
Við hittumst eitthvað eftir þetta
sumar, en það gat aldrei orðið
meira. Hann hræddi mig, þótt
hann væri góður og skynsamur
og hann þurfti að fara út í hinn
stóra heim og verða frægur og
þekkja mennina.
Með kaþólskri trú
kom nýtt nafn
Seinna kynntist ég bandarísk-
um flugmanni, Edward Mur-
nane. Ég giftist honum, en áður
tók ég kaþólska trú, þá varð ég
að láta skíra mig aftur og
þessvegna heiti ég Hebette Ther-
esa. Við höfum nú ferðast mikið
og víða búið. Hann gerðist þyrlu-
flugmaður og átti sem slíkur
þátt í að fá þyrlur af bandaríska
ísbrjótnum West Wind til að
sýna á flugsýningu á Islandi
fyrir nokkrum árum. Þá hefur
hann leiðbeint Islendingum við
kaup á þyrlum. Hann er nú
starfsmaður bandarísku flug-
málastjórnarinnar. Við skildum
fyrir tveim árum. Nú bý ég ein
með öðrum sona okkar, Val, og
tveim hundum í húsi sem við
byggðum okkur fyrir u.þ.b. tutt-
ugu árum. Hér er dásamlegt að
vera, en hugurinn leitar alltaf
heim til íslands.
Heim í sumar
Ég er á heimleið núna. Hörður
bróðir minn og Erla kona hans
eru hérna hjá mér núna. Við
ætlum saman heim, þar sem ég
ætla að vera í sumar. Ég hef nóg
fyrir mig að leggja hér í Bel-
mont, en ef aðstæður leyfa, þá
flyt ég ef til vill heim aftur.
Hver veit.
I fjarska blika ljósin í San
Fransisco og iðandi mannlífið
streymir áfram. Hér er allt til
alls og lífið áhyggjulítið fyrir
sæmilega efnað fólk. En römm
er sú taug, sem rekka dregur
föðurtúna til. _ úlfar.
Olíusparnaðar-
tæki frá Danmörku
FÆREYINGAR hafa að und-
anfbrnu notað til reynslu í
skipum sínum olíusparnað-
artæki frá danska fyrirtæk-
inu Licanic og hefur það
reynzt mjbg vel og olíunotk-
un hefur minnkað um allt að
25%.
Að sögn Annfinns Hansen,
umboðsmanns Licanic í Fær-
eyjum og á íslandi, hefur
tækið verið notað bæði í
dönskum og færeyskum skip-
um, einkum fiskiskipum í
rúmt ár með verulega góðum
árangri. Tækið er notað við
dieselvélar allt upp í 4.000
hestöfl og er mjög einfalt í
notkun og uppsetningu. Það
stýrir olíunotkun vélarinnar
og á meðfylgjandi mæli er
hægt að lesa olíueyðsluna á
hverjum tíma og haga
keyrslu vélarinnar eftir því.
Verð tækisins mun nema um
25.000 króna.
Olíusparnað-
artækið Lican-
ic, scm sparað
hefur færeysk-
um og dönsk-
um skipum
allt að 25% i
olíukostnaði.