Morgunblaðið - 20.08.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1981
Samgönguráðherra um Atlantshafsflugið:
Sé ekki grundvöll til
að styrkja það óbreytt
FLUGLEIÐAMÁLIÐ verður lagt
fyrir rikisistjórnarfund í dag. en
ekki er búist við þvi að ákvarðanir
verði teknar á fundinum. að því er
Steingrímur Hermannsson, sam-
gónguráðherra tjáði Morgunhlað-
inu í gær. Kvaðst hann hafa rætt
málið við stjórnendur Flugleiða. en
það væri flókið og þyrfti ýmislegt
að upplýsa betur. „Ég er ekki búinn
að skoða málið nægilega vel til að
kveða upp dóm um fjárþórf Flug-
Helga Guðmunds-
dóttir keypt
til Eskif jarðar
STJÓRN Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar hefur nú gengið frá kaupum á
nótaskipinu Ilelgu Guðmundsdótt-
ur BA 77 frá Patreksfirði og er
kaupverðið 13 milljónir, en skipið
verður afhent í febrúar á næsta ári.
Að sögn Aðalsteins Jónssonar,
framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss
Eskifjarðar voru þessi kaup ákveðin
til þess að afla fiskimjölsverksmiðju
fyrirtækisins aukins hráefnis og
hefðu þau verið nauðsynleg vegna
þess að fyrri hugmyndir um að
kaupa hlut í Júpíter hefðu ekki orðið
að veruleika.
leiða. en samkvæmt áætlun sem
þeir hafa gert. er tap á ýmsum
þáttum starfseminnar. m.a. á inn-
anlandsfluginu og hótelrekstrin-
um. Þetta eru þættir sem þarf að
skoða. en ég tel að ekki komi til
greina að styrkja hótelreksturinn.
en mér finnst vel koma til greina að
endurskoða fargjöld innanlands-
flugsins og fyrirkumuiag þeirra
mála." sagði Steingrimur.
„Þá þarf að bæta þjónustuna og ég
er þeirrar skoðunar að það þurfi að
hækka fargjöldin til þess að það sé
unnt,“ sagði Steingrímur. Þá sagði
hann að Flugleiðir byggðu áætlanir
sínar, að því er virtist, á framreikn-
ingi þess sem verið hefði, en spurn-
ing væri hvort ekki væri ætlunin að
gera átak til þess að Norður-
Atlantshafsflugið mætti njóta þess
bata sem þar væri talinn framund-
an, „en ég sé ekki grundvöll til þess
að styrkja Atlantshafsflugið
óbreytt," sagði Steingrímur.
Steingrímur sagði að í skýrslu
bandarísks ráðgjafafyrirtækis, sem
gert hefði athuganir á rekstri Flug-
leiða, væri lagt til að Flugleiðir
útveguðu breiðþotu, „og ég held að
það hljóti að vera rétt að útvega
breiðþotu. Allir sem til þekkja eru
þeirrar skoðunar," sagði Steingrím-
ur Hermannsson.
Geysileg áhugavakning á
gönguferðmn um hálendið
GÖNGUFERÐIR þar sem fólk
ferðast með allan sinn farangur á
hakinu um óbyggðir eiga mjög
vaxandi vinsældum að fagna. svo
mjög að nú er eins og hafi orðið
hylting i þessu. að þvi er einn
ferðalangurinn sem var að koma
úr slíkri ferð orðaði það. Þórunn
Þórðardóttir hjá Ferðafélagi fs-
lands staðfesti þetta, sagði að
vísu ætti þetta nokkurn aðdrag-
anda. en í sumar hefði Ferðafé-
lagið fyrst verulega fundið þessa
miklu breytingu. Fullbókað hcfði
verið i allar slíkar ferðir ug færri
komist að en vildu í sumar.
Þórunn nefndi sem dæmi að í
sumar var fullbókað í allar göngu-
ferðirnar milli Landmannalauga
og Þórsmarkar þar sem farið er úr
bænum í Landmannalaugar á
föstudögum og komið úr Þórsmörk
á miðvikudögum, en verið á göngu
í 4 daga með farangur, en gist í
gönguskálum. 10 daga erfið göngu-
ferð á Snæfell og suður um
Lónsöræfi var fullbókuð strax í
vor, en þá leið gengu 25 manns
með tjöld og allan annan farang-
ur. Þá hafa Hornstrandaferðir
félagsins aldrei verið eins vel
sóttar, í 8 daga ferð í júlí gengu 32
í fjóra daga með farangurinn á
bakinu frá Aðalvík í Hornvík, en
nú var í fyrsta skipti bætt við
annarri ferð, 8. ágúst, og var fullt
í hana, yfir 50 manns, þá er
ætlunin að þeir sem vilja geti farið
2ja—3ja daga göngur. Sömu sögu
er að segja um gönguferð frá
Hveravöllum í Þverbrekkumúla,
þar sem gist var í skála, en borinn
matur og svefnpokar, þá varð að
takmarka hópinn við 18. í sömu
Hveravallaferð var boðið upp á
fleiri valkosti, en þessi hafði
langmest aðdráttarafl og komust
færri en vildu.
Þórunn sagði að gönguferðir
hefðu á undanförnum árum verið
kynntar markvisst og er áberandi
vaxandi aðsókn að dagsgönguferð-
unum um helgar. Þar byrja marg-
ir á að prófa getu sína og færa sig
svo upp á skaftið. En í margra
daga hálendisgöngur með farang-
ur þyrfti fólk auðvitað að vera
heilsuhraust. Það hefði líka sjálf-
sagt sitt að segja að útbúnað-
ur væri nú orðinn svo miklu betri,
en það skipti sköpum að vera vel
búinn, með vatnsgalla, góða
gönguskó og góðan bakpoka.
Þyrla sótti sjúkan
sjómann um borð
í sovéskan togara
Göngufólk leggur upp i Þórsmerkurferð.
ÞYRLA frá varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli sótti sjúkan sjó-
mann um borð í sovéskan vcrk-
smiðjutogara í ga>r. en togarinn
var staddur um 350 mílur suðvest-
ur af Reykjanesi. Þyrlan tók elds-
neyti úr Hercules-vél á lciðinni. en
hún lenti á þyrlupallinum við
Borgarspítalann um kl. 18.
„Skipadeild Sambandsins, sem er
umboðsaðili fyrir rússnesku skipin
sem hingað leita, í samvinnu við
rússneska sendiráðið, bað Slysa-
varnarfélag Islands um að hafa
milligöngu um að sóttur yrði veikur
sjómaður um borð í rússneska
verksmiðjutogarann Bionier Latvis,
en álitið var að hann væri með
bráða botnlangabólgu. Var óskað
eftir því að manninum yrði komið á
spítala í Reykjavík," sagði Hannes
Hafstein, framkvæmdastjóri Slysa-
varnarfélags Islands í samtali við
Morgunblaðið í gær. Sagði Hannes
að langan tíma hefði tekið að ná
sambandi við togarann, en skipið
var statt um 350 sjómílur suðvestur
af Reykjanesi. „Þyrla frá varnarlið-
inu fór um klukkan 13 frá Keflavík-
urflugvelli, með lækni frá sjúkra-
húsinu þar innanborðs, og þá var
einnig Hercules-vél, sem var á leið
frá Woodbridge á Englandi, snúið
til móts við þyrluna og verksmiðju-
togarann. Um klukkan 13.30 fór svo
Hercules-vél frá Keflavíkurflugvelli
með eldsneyti á eftir þyrlunni,"
sagði Hannes.
Hannes sagði að veðrið hefði verið
hagstætt, skyggni gott og vindur
hægur, en þó hefði gengið á með
skúrum. Klukkan 15.05 sagði Hann-
es þyrluna hafa verið komna yfir
skipið og sjúklingurinn kominn þar
um borð um hálftíma síðar. Þyrlan
þurfti að taka eldsneyti frá Herc-
ules-vélunum á heimleiðinni, en hún
kom að Borgarspítalanum um
klukkan 18, eins og áður sagði.
væri komin út á islensku.
Trofimov blaðafulltrúi var
spurður að því, hvernig á því stæði,
ef Alix Agargov, sem er forstöðu-
maður fréttastofunnar APN eða
Novosti á Islandi, væri sá eini, sem
sendi héðan fréttir til Tass, að
fréttaskeytið með ummælum
Hauks Más Haraldssonar væri
dagsett í Reykjavík eftir að Agar-
gov fór af landi brott í sumarleyfi.
Trofimov blaðafulltrúi sagði, að sú
skýring væri á þessu, að Agargov
hefði skrifað fréttina, áður en hann
fór í sumarleyfi (9. ágúst) hins
vegar hefði hún ekki verið send
fyrr en 11. ágúst.
Trofimov sagði sendiráðið ekki
vita um samtöl Agargov við Hauk
Má Haraldsson og æskilegt væri að
ná tali af Agargov til að fá þann
þátt málsins á hreint.
Þá var Viktor Trofimov spurður
að því, hvort einhver tengsl væru á
milli birtingar umræddar fréttar á
forsíðu Prövdu og dvalar Svavars
Gestssonar formanns Alþýðu-
bandalagsins í Moskvu um sömu
mundir. Sagðist Trofimov ekki sjá
nein tengsl þar á milli. Agargov
hefði skrifað frétt sína þegar
skýrsla Brezhnevs kom út á ís-
lensku fyrir tveimur vikum eða þar
um bil. Það sé venjulegt, að slíkar
fréttir birtist á forsíðu Prövdu, því
að ekki sé nema hálft ár liðið frá
þingi Kommúnistaflokksins og
áhugi á því enn mjög mikill.
Að lokum spurði Morgunblaðið,
hvað yrði gert við hina íslensku
þýðingu á skýrslu Brezhnevs, hún
hefði til dæmis ekki borist blaðinu.
Taldi Trofimov þess ekki langt að
bíða, að skýrslunni yrði dreift.
Óskar Bjarni Brynjólfsson
Pilturinn látinn
PILTURINN sem lenti með höf-
uðið á steinvegg, þegar hann datt
í Bankastræti fyrir skömmu. lést
á Borgarspitalanum í gær.
Hann hét Óskar Bjarni Brynj-
ólfsson og var fæddur 14. nóvem-
ber 1963. Óskar heitinn var til
heimilis að Bergþórugötu 45 í
Reykjavík.
Sjómaðurinn fluttur í sjúkrabifreið.
Ljósm. Mbl. Kristján.
VII) IIÖFUM ekki getað haft
samband við AIix Agargov, þar
sem hann dvclst á sumarleyfisstað
utan Moskvu, sagði Viktor Trofi-
mov blaðafulltrúi sovéska sendi-
ráðsins í gær, þegar Morgunblað-
ið hafði samband við hann og
spurðist fyrir um rannsókn sendi-
ráðsstarfsmanna á málsatvikum
vegna þeirrar fullyrðingar Hauks
Más Ilaraldssonar. að Tass-frétta-
stofan hefði haft eftir honum
ummadi. sem hann hefði aldrei
viðhaft. Ummælin hirtust i
Provdu og Isvestíu 12. og 13.
ágúst og lýstu fognuði yfir því, að
skýrsla Leonid Brezhnevs á 26.
fiokksþingi sovéska kommúnista
Sovéska sendiráðið:
Höfundur Tass-frétt-
arinnar ekki í Moskvu
Getur ekkert sagt um samtöl hans við Hauk Má Haraldsson
Um 2 kíló af kannabis fund-
ust hjá Bandaríkjamanni
Áætlað söluverðmæti 12-15.000 kr
BANDARÍKJAMAÐUR af Kefla
víkurflugvelli var á þriðjudag
úrskurðaður í 15 daga gæslu-
varðhald vegna gruns um aðild
að umfangsmiklu fíkniefnamáli.
en hann var handtekinn á mánu-
dag. Maðurinn, sem er 18 ára
gamall, er ekki hermaður á
Keflavíkurflugvelli. en starfar
þar sem verkstjóri.
Við húsleit heima hjá honum
fundust u.þ.b. 2 kíló af kannabis-
efni. Maður j)essi er talinn tengj-
ast tveimur Islendingum úr Kefla-
vík sem úrskurðaðir voru í 10 og 7
daga gæsluvarðhald á sunnudag-
inn, en annar mannanna er um
tvítugt en hinn á þrítugsaldri,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Óskari
Þórmundssyni hjá fíkniefnalög-
reglunni á Suðurnesjum og fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykja-
vík.
Að sögn Óskars er talið að enn
séu ekki öll kurl í málinu til grafar
komin og því málið enn í rann-
sókn. Aðspurður sagði hann að
áætlað söluverðmæti kannabis-
efnisins sem fannst við húsleit hjá
Bandaríkjamanninum, væri á bil-
inu 12—15000 krónur.