Morgunblaðið - 20.08.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1981
15
Smámyndir í Djúpinu
Vel fannst mér það tilfundið
að stofna til smámyndasýningar
í Gallerí Djúpinu. Þannig sýn-
ingar hef ég oft á tíðum séð víða
erlendis, en ekki man ég eftir, að
nokkrum hafi dottið þetta í hug
hér hjá okkur. Nú er sem sagt
slík sýning í Djúpinu og þátttaka
ekkert smáraeði, nær þrjátíu
manns. Þarna kemur fram mikið
af fólki, sem ég man ekki eftir að
hafa séð verk eftir á sýningum
áður, og satt að segja varð mér
um og ó, er ég las nöfn þessa
hóps í dagblaði og kannaðist
aðeins við örfáa þátttakendur.
Það er frísklegur blær yfir
þessari sýningu, en heldur er
hún ósamstæð, enda vart við
öðru að búast, þar sem aðeins
tvö og þrjú verk eru eftir flesta,
og ég held, að enginn sé með
fleiri en fimm. Þetta er nú samt
snoturt, en hvergi stórbrotið,
það er eins og vanti einhverja
festu í hlutina, og þetta leikur
allt frekar í lausu lofti. Þarna
eru að sjálfsögðu eftirtektar-
verðir hlutir, og eru þeir unnir í
mjög mismunandi efni, og á
stundum er manni næst að
halda, að ekkert af þessu fólki
vinni í olíulitum, því að þeir eru
þarna í miklum minnihluta. Það
er og einkennandi fyrir þessa
fyrstu sýningu af þessu tagi, að
kvenþjóðin virðist hafa þar tögl
og hagldir. Það gæti verið, að
MÞað er frísklegur
blær yfir þessari sýn-
ingu, en heldur er hún
ósamstæð, enda vart
við öðru að búast, þar
sem aðeins tvö og þrjú
verk eru eftir flesta, og
ég held að enginn sé
með fleiri en fimm.
Þetta er nú samt snot-
urt, en hvergi stórbrot-
ið.. .44
smámyndagerð ætti miklu betur
við það kynið, en ekki dettur mér
til hugar að slá slíku fram í
alvöru.
Þeir, er mér urðu minnistæð-
astir af þessum stóra hóp, eru:
Valtíngojer, sem á þarna mjög
ágæt verk, Sigurþór Jakobsson,
Guðmundur W. Vilhjálmsson,
Guðbergur Auðunsson, Sigrún
Eldjárn og Rúna Gísladóttir.
Það eru vafalítið fleiri, sem
mætti nefna, en það er eldraun
að muna öll þessi nöfn, þegar svo
engin sýningarskrá er til að hafa
heim með sér.
Þessi sýning er mjög virð-
ingarverð tilraun hjá Gallerí
Djúpinu, og vonandi verður
framhaldið sem horfir. Ég verð
að játa, að mér fannst vanta
þarna eldri kynslóð myndlist-
armanna, og hefði verið
skemmtilegt að sjá svolitla
eítir VALTÝ
PÉTURSSON
blöndu af yngra og eldra fólki.
Það hefði gefið slíkri sýningu
enn aukið gildi og verið fróðlegt
að sjá, hver hefði þar betur. En
það mun ekki við neinn að sakast
nema myndlistarmenn sjálfa,
eftir þátttöku þeirra var auglýst,
en þeir virðast ekki hafa tekið
við sér, þeir eldri. Vonum, að
þessi sýning verði endurtekin og
þá standi allt til bóta.
Valtýr Pétursson.
Ný bók eftir
Jónas H. Haralz
NÚ UM mánaðamótin kemur út
bók eftir Jónas H. Ilaralz banka-
stjóra, Velferðarríki á villigöt-
um, sem Félag frjálshyggju-
manna gefur út. Er þar um að
ræða úrval greina og erinda
Jónasar frá áttunda áratugnum,
sem sumt hcfur ekki birst áður á
íslensku. en einnig skrifar Jónas
inngang.
Bókin er um 160 bls. og skiptist
í þrjá hluta. í fyrsta hlutanum er
fjallað um Velferðarríkið og þá
stefnu, sem það hefur tekið á
þessum áratug, um hagvöxt og um
hag atvinnurekenda í verðbólgu-
þjóðfélagi. í öðrum hlutanum er
rætt um stefnumörkun stjórnála-
flokkanna við þessar aðstæður,
m.a. um tvær stefnuskrár Sjálf-
stæðisflokksins, Endurreisn í
anda frjálshyggju og Leiftursókn
gegn verðbólgu. í þriðja hlutanum
er rætt um hagstjórn, orsakir og
afleiðingar verðbólgu og þann
lærdóm, sem draga megi af
reynslunni um baráttuna gegn
verðbólgunni, og setur Jónas fram
kenningar um það, sem vafalaust
munu þykja nýstárlegar og ekki
hafa birst áður frá hans hendi.
Þess má geta, að af ritinu verða
gefin út 50 eintök árituð af
höfundi, tölusett og innbundin (en
að öðru leyti er hún pappírskilja).
Þegar hafa verið pöntuð um 25
eintök af hinni árituðu útgáfu að
söfn Skafta Harðarsonar í Félagi
frjálshyggjumanna, en þeir, sem
hafa áhuga á því að tryggja sér
slíkt eintak, geta skrifað Félagi
frjálshyggjumanna í pósthólfi
1334, 121 Reykjavík.
Afmælissýning á verk-
um Jóns Stefánsson-
ar á Sauðárkróki
Saurtárkróki. 17. áKÚst.
NÚ stendur yfir í Safnahúsi Skag-
firðinga sýning á 25 málverkum
eftir Jón Stefánsson, listmálara.
Þetta er afmælissýning þvi á þessu
ári eru liðin 100 ár frá fæðingu
listamannsins, en Jón var fæddur
hér á Sauðárkróki, sem kunnugt
er.
Það er Listasafn íslands og Lista-
safn Skagfirðinga, sem standa að
sýningunni, og er hún hin vegleg-
asta. Má þar sjá nokkur af kunn-
ustu verkum Jóns, auk ljósmynda
og fleira er varða uppruna hans og
störf. Vönduð sýningarskrá með
litmynd af málverki Jóns, „Úti-
gangshestar", er til sölu á sýning-
unni, en aðgangur er ókeypis. í
skrána rita Selma Jónsdóttir, for-
stöðumaður Listasafns íslands og
Kristmundur Bjarnason, rithöfund-
ur á Sjávarborg. Sá síðarnefndi
hefur tekið saman stuttan æviþátt
um listamanninn, sem sýningar-
gestir fá endurgjaldslaust.
Aðsókn að sýningunni, sem opnuð
var 9. þ.m. hefur verið góð. Hún er
opin daglega kl. 20—22 og um
helgar kl. 14—18. Henni lýkur 30.
þ.m.
Kári
Notið tækifærið, komið við og gerið
góð kaup.
Opið alla daga til klukkan 21.
Nú stendur yfir hin árlega
haustútsala okkar á
pottaplöntum. Við setjum allar
pottaplöntur á útsölu og bjóðum
15-50% afslátt. Héreru dæmi
um nokkur verð:
Áður kr. Núkr.
Bergflétta 88 44
Cordylina 163 80
Yuccur25 cm. 130 104
Hawairós 94 66
Heimilisfriður 35 24
Sverðburknar 105 89
Gúmmítré 119 89
Silfurfjöður 119 74
Pottachrysanthenum 45 25
Drekatré 68 48
Kóngavínviður 62 41
Rússavínviður 62 41