Morgunblaðið - 20.08.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1981
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 10—11
FRÁ MANUDEGI
Gasprarar eða heiðarlegir stjórnmálamenn:
„Minni menn hefðu
brotnað undan farginu“
Kæri Velvakandi!
Eg tek undir það sem „gamall
krati“ sagði í bréfi sínu sl. fimmtu-
dag, að þjóðin er ekki heillum
horfin á meðan hún á stjórnmála-
leiðtoga á borð við Geir Hall-
grímsson, formann Sjálfstæðis-
flokksins. Kostir þess prúða og
trausta manns verða æ augljósari
eftir því sem gasprararnir verða
meira áberandi í hinum flokkunum
og í ríkisstjórn. Fólk er orðið
þreytt á þessum eilífu upphlaupum
og öskrum sem koma úr hálsi
manna sem teljast í forystu meðal
þjóðarinnar. Hver man ekki eftir
óhljóðum Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, Baldurs Óskarsson, Ragnars
Arnaids, Svavars Gestssonar,
Hjörleifs Guttormssonar og Guð-
rúnar Helgadóttur um Flugleiðir,
ÍSAL og Gervasoni með undirspili
Steingríms Hermannssonar. Nú
síðast er það söngurinn um atóm-
vopnin og framundan er frekara
sjónarspil um Flugleiðir og ÍSAL.
Nokkrir ógæfumenn í Sjálfstæð-
isflokknum töidu virðingu Alþingis
borgið með því að leiða þessa menn
til valda í landinu.
Alþýðublaðsævintýrið að undan-
förnu hefur gert að engu vonir
manna um, að í Alþýðuflokknum sé
að finna mótvægi gegn gösprurun-
um í Framsóknarflokki og Alþýðu-
bandalagi. Vilmundur ákallar guð
og biður þess að forystumenn
flokksins fái hagsmunamál þjóðar-
innar ekki í hendur. Hann ætti að
vita það, því hann sat með þessum
mönnum í minnihlutastjórn Al-
þýðuflokksins.
Rangt
föðurnafn
Þegar litið er yfir stjórnmála-
sviðið blasir við upplausn, þar sem
litlir kallar brjótast um til að
fullnægja persónulegum metnaði
sínum og valdafíkn.
Það er aðeins einn forystumaður,
sem stendur upp úr feninu. Það er
Geir Hallgrímsson. Hann hefur
borið byrðarnar, sem á hann og
flokk hans hafa verið lagðar, með
mikilli reisn og staðfestu. Minni
gjg »**■■ I
r.jyg".J!"
menn hefðu brotnað undan farg-
inu.
Ég tek því undir það með „göml-
um krata“, að vonandi beri Sjálf-
stæðisflokkurinn gæfu til að
standa þétt við bakið á foringja
sínum. Það verður þjóðinni fyrir
beztu. Drenglyndi, heiðarleiki og
staðfesta Geirs Hallgrímssonar er
það sem hún þarfnast.
Borgari.
Þau mistök urðu í Velvakanda
sl. þriðjudag að farið var rangt
með nafn Þorkels Hjaltasonar er
skrifaði bréfið „Kommi í predik-
unarstól" og hann skrifaður
Hjartarson. Er Þorkell beðinn
afsökunar á þessum mistökum.
Satt að segja finnst mér Bítl-
arnir og The Rollers eiga
margt sameiginlegt, þessar
hljómsveitir voru báðar vin-
sælastar á meðan þeir spiluðu
þessi svokölluðu súkkulaðilög.
Síðar skiptu þær yfir í fágaðri
tónlist, nema að þannig fór
fyrir The Rollers að þeir
misstu niður heilmikið af vin-
sældum en svo fór ekki hjá
Bítlunum.
Hr. Flínkur segist meta The
Rollers meira en svo að hann
leggi þá að jöfnu við Bítlana?
En góði maður, þú þarft alls
ekki að skammast þín fyrir að
gera svo, þvert á móti. Bítlarn-
ir eru tvímælalaust einhver
vinsælasta hljómsveit sem
uppi hefur verið. Ef hr. Flínkur
eða einhver annar tekur sig til
og fer að mótmæla því finnst
mér harla ólíklegt að hægt
væri að rökstyðja þær mótbár-
ur. Að lokum vil ég láta í ljósi
þá frómu ósk mína að svona
fáránlegu skítkasti í Bítlana
verði hætt, hvort sem það er
hr. Flínkur eða einhverjir sem
að því standa. Þetta er ekki
annað en heimska.
Binna.
Þessir hringdu . . .
Tillitsleysi við
gangbrautir —
aukið löggæslu!
Vegfarandi hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: „Það gengur
alveg yfir mig hvernig öku-
mönnum helst uppi að koma fram
við okkur gangandi fólk í umferð-
inni. Mér skilst að um það séu
skýlaus ákvæði þess efnis í um-
ferðarlögum að ökumönnum beri
að nema staðar við gangbrautir ef
þeir sjá að gangandi fólk vill
komast yfir. I reyndinni er það
hins vegar alger undantekning ef
bílar nema staðar við gangbrautir
þegar maður ætlar yfir, og þarf
maður venjulega að bíða þar til lát
verður á umferðinni rétt eins og
ekki væri um neina merkta gang-
braut að ræða.
Fyrir utan nú það hversu ergj-
andi svona tillitsleysi er, þá skap-
ar þetta aukna slysahættu í um-
ferðinni. Fólk hefur ekki þá
reynslu af gangbrautum að það
leggi lykkju á leið sína til að fara
yfir götu á gangbraut og fer því
hiklaust yfir göturnar hvar sem
er. Mér finnst full ástæða til að
lögregluyfirvöld taki þetta mál til
athugunar og aðhafist eitthvað.
Það getur ekki verið neitt torveld-
ara að fylgjast með og sekta
ökumenn sem ekki sinna stöðvun-
arskyldu við gangbrautir en að
taka ökumenn fyrir of hraðan
akstur.“
Leyfum bjórinn
— bætum
drykkjusiði
Jónas hringdi og gerði bjórinn
að umtalsefni. „Eg er alfarið
ósammála því sem haldið er fram
í Velvakandabréfi er birtist sl.
miðvikudag, að drykkjuskapur
myndi aukast ef hér yrði leyft að
selja bjór. Hitt mun sanni nær að
drykkjusiðir (og þar með drykkju-
skapur) myndu breytast, og til
batnaðar að minni hyggju, ef
bjórinn yrði leyfður. Okkur ís-
lendingum er nefnilega þannig
varið að við viljum helst ekki sjá
annað en rótsterkt brennivín —
enda er eins og menn drekki ekki
til annars en að drekka sig fulla
hér á landi. Erlendis er þetta
öðruvísi því þar kunna menn sér
víðast hvar meira hóf.
En þetta ástand er ekki gott. Ég
hef oft velt því fyrir mér hvers
vegna ekki er reynt að beina
þjóðinni inn á farsælii leið í
vínneyslu. Það væri til dæmis
hægt með því að lækka eða fella
niður tolla á léttum vínum — og
leyfa bjór. Þetta finnst mér að við
ættum að taka til gaumgæfilegrar
athugunar — ég held að ef þessi
skipan kæmist á yrði gagnger
breyting á drykkjusiðum íslend-
inga með tímanum."
I&SKARNABÆR
*MwW Laugavegi 66 — Glæsibæ — Ausiurstræti ?/
v S»mi frá skiptibordi 8S055
Þennan
jakka og marga fleiri getur
þú fengið með
15°/c
0 afslætti
út þennan mánuö
VATNSÞETT
FRÁGANGSEFNI
UTANHÚSS
Thoro efnin hafa um árabil veriö notuð hér á Islandi meö góöum
árangri. Þau hafa staöist hinaerfiðu þolraun sem íslensk veðrátta
er og dugað vel, þar sem annað hefur brugðist.
THOROSEAL
vatnsþéttingaefni
Thoroseal er sementsefni sem fyllir og
lokar steininum og andar eins og steinn-
inn sem það er sett á. Thoroseal má
bera á rakan flöt. Thoroseal er vatns-
þétt, flagnar ekki og er til í mörgum
litum.
THOROSEAL
F.C. sökklaefni
Er vatnsþétt grunn- og sökklaefni.
Fyllir og lokar steypunni. Má bera á raka
fleti. Thoroseal F.C. verður harðara en
steypa og andar til jafns við steypuna.
Borið á með kústi.
THORO GÓLFEFNI
Er blandaö í yfirborð gólfsins um leið og það er pússað og margfaldar
slitþol góifsins. THORO gólfhersluefnin fást i litum. Leitið nánari
upplýsinga, það er þess virði að kynnast THOROefnunum nánar.
K steinprýði
Smiðshöfða 7. Gengið inn frá Stórhöfða. Simi 83340