Morgunblaðið - 13.09.1981, Page 2

Morgunblaðið - 13.09.1981, Page 2
Diðrik Ólafsson, fyrirliði Víkings: 2 Víkingur „Áhorfendur geta skipt sköpum“ Diðrik Ólafsson, markvörðurinn snjalli bægir hættunni frá. „Við eÍRum góða möguleika hér heima gegn Bordeaux. jafn- vel til sigurs. Áhorfendur geta skipt sköpum á lciknum; það virkar eins og vitaminsprauta ef vel er stutt við bakið á okkur. Stuðningsmenn Vikings hafa ver- ið hreint út sagt stórkostlegir i sumar og stutt dyggilega við hakið á okkur. Það heíur verið ómetanlegt,” sagði Diðrik Ólafs- son, fyrirliði Víkings, í spjalli við blaðamann. Diðrik þarf vart að kynna fyrir áhangendum Víkings. Hann hóf að leika með meistaraflokki árið 1967 og síðan hefur hann staðið í eldlínunni. Einn traustasti mark- vörður 1. deildar. Hann man tímana tvenna; kom inn í liðið þegar Víkingur var í 2. deild, erfiðleikaárin þegar Víkingur rokkaði milli 1. og 2. deildar. Síðustu árin hefur Víkingur stöð- ugt verið að styrkjast og í sumar hefur liðið lengst af leitt 1. deild. Margra mál er að Diðrik hafi aldrei verið betri. Hann varð fyrir því óláni að meiða sig í leik gegn Breiðabliki en lék að nýju í markinu í Eyjum og Víkingur vann sigur. Diðrik er einn þriggja leik- manna í Víkingsliðinu í dag, sem lék Evrópuleikina gegn Legia frá Varsjá 1972. Hinir voru Magnús Þorvaldsson og Jóhannes Bárðar- son. „Við náðum mjög góðum leik gegn Legia í Reykjavík en urðum að sætta okkur við 0—2 tap. Það rigndi hreint rosalega í Varsjá þegar við lékum þar. Völlurinn var eitt drullusvað og ég er þess fullviss, að Baldur Jónsson hefði aldrei leyft að leikið yrði við slíkar aðstæður. Ég man að Pólverjarnir voru með helmingi lengri takka en við, enda ekki vanþörf á í drull- unni. Þeir áttu því mun betur með að fóta sig og unnu stórt, 9—0, og þrátt fyrir mörkin níu sögðu menn að ég hefði verið bezti maður liðsins! Leikirnir gegn Legia urðu til þess að þjappa mönnum betur saman. Það voru margir góðir leikmenn í Víkingi á þessum árum, Guðgeir Leifsson, Eiríkur Þorsteinsson og Páll Björgvins- son, Jón Ólafsson, Hafliði Péturs- son, svo ég nefni aðeins nokkra. Þrátt fyrir þetta gekk okkur ákaflega erfiðlega að festa okkur í sessi. Ég held fyrst og fremst vegna þess, að menn hugsuðu bara um að hanga í 1. deild; markið var aldrei sett hærra. Nú hins vegar stefna menn á toppinn og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Þátttaka í Evrópukeppni er liður í að lyfta Víkingi hærra. Þetta er mikil reynsla fyrir ungu strákana, þjappar mönnum saman. Þá er ferðin til Sovétríkjanna ákaflega spennandi; ég held að aldrei hafi nokkurt íslenzkt lið undirbúið sig jafn vel undir Evrópukeppni og við gerum nú. Ég tel raunar, að svona ferð væri kjörin fyrir lands- liðið og leikmönnum gæfist kostur á að kynnast hver öðrum betur og ná betur saman á leikvellinum." Nú er Víkingur orðinn íþrótta- legt stórveldi en hvað um aðstöðu, hefur hún breytzt mikið? „Aðstaðan hefur gjörbreytzt til batnaðar, við erum nú með þokka- lega góðan grasvöll og vistlegt félagsheimili. Ég tel að stjórnir Víkings á undanförnum árum hafi verið góðar og að nú höfum við mjög góða stjórn. Þá höfum við frábæran þjálfara, Youri Sedov. Hann hefur oft sýnt það í sumar, að hann kann sitt fag. Ég nefni leikinn í Eyjum sem dæmi. Hann lagði upp taktík, þar sem gert var ráð fyrir að Jóhannes og Ómar tækju þá Sigurlás og Kára úr umferð og við spiluðum með þrjá haffsenta. Þetta átti að gefa bakvörðunum meira svigrúm til að styðja við bakið á sókninni. Allir leikmenn snerust öndverðir gegn þessari taktík Youri og við vildum breyta en hann sló í borðið og sagði að svona skyldum við leika. Það kom á daginn, að þetta var hárrétt hjá Youri, taktíkin heppnaðist fullkomlega og það þrátt fyrir að við misstum Heimi Karlsson útaf. Youri vann leikinn taktískt og leikmenn fylgdu eftir með góðri baráttu." Ertu ánægður með frammistöðu Víkings í sumar? „Já, vegna þess að fyrst í vor átti ég ekki von á að okkur tækist að komast alla leið á toppinn. En eftir að leikirnir fóru að spilast, þá varð ég bjartsýnn á framhald- ið. Þá sýndu einstakir leikmenn miklar framfarir; ég nefni sér- staklega Ómar Torfason, sem hef- ur sýnt hreint undraverðar fram- farir. Við náðum hinum góða árangri í fyrri umferðinni á sterkri liðsheild. Hvað sjálfan mig varðar, þá var ég ánægður með mína frammi- stöðu þar til ég meiddist gegn Breiðabliki. Ég átti jafngóða leiki, datt aldrei niður á lágt plan. Síðan varð ég fyrir því óláni að meiðast og allt fór úrskeiðis. En með samstöðu hefur okkur tekizt að rétta hlut okkar á nýjan leik. Ungu sttákarnir hafa sýnt stöð- ugar framfarir og þeir hafa nú íengið talsverða reynslu. Því held ég að framtíðin sé björt fyrir Víking og þátttaka í móti á borð við UEFÁ-keppnina rennir stoð- um undir það. Ég held að Vík- ingsliðið eigi eftir að styrkjast verulega og þá á ég við að liðið nái jafnari leikjum. Að liðið detti ekki niður á plan meðalmennskunnar eins og hefur viljað brenna við.“ Að lokum Diðrik, hvenær gekkstu í Víking? „Það var nú ekki fyrr en í 4. flokki. Ég byrjaði nefnilega í Þrótti. Helgi Þorvaldsson bjó í næsta nágrenni við mig og plataði mig yfir í Þrótt. En ég fékk aldrei að spila í marki, þótti svo lítill, og auðvitað þýddi ekkert að setja einhvern smápatta í markið. Hann varð að ná upp undir slá. En ég fór á mína fyrstu æfingu hjá Víkingi í 4. flokki; fékk að vera í marki og hef verið það síðan og kunnað vel við mig. Áð vísu hefur mig langað í fremstu víglínu síðustu árin en ætli ég endi ekki ferilinn í markinu." Youri Sedov, þjálfari Vikings: Víkingur getur sigrað Bordeaux „AUÐVITAÐ er erfitt að segja til um möguleika Víkings gegn Bordeaux en ég get sagt þér hvernig menn eru stemmdir; strákarnir munu berjast af krafti, sjálfs sín vegna, vegna áhorfenda og til að ná góðum úrslitum. Við vitum að i liði Bordeaux eru heimsþekktir leikmenn en í knattspyrnu getur allt gerst. Ef lukkan verður með okkur, þá getur Víkingur náð sigri,” sagði Youri Sedov, hinn geðugi þjálfari Víkings. Youri þarf vart að kynna fyrir áhangendum Víkings. Hann er sovéskur, tók við af landa sínum Youri Ilitchev. Youri Sedov var einn kunnasti leikmaður Sovét- ríkjanna hér á árum áður og hann hefur verið í fremstu röð sovéskra þjálfara; þjálfað lið í 1. deild auk þess að hafa þjálfað sovéska landsliðið ásamt landa sínum Simenon. Það var því ljóst, að Víkingar fengu hæfan þjálfara þegar Youri kom til félagsins í fyrravor. „Hver svo sem úrslitin verða, þá er ljóst að ieikmenn Víkings munu læra af leikjunum við Bordeaux. Það er lærdómsríkt að leika gegn sterkum liðum, sér- staklega í móti sem UEFA- keppninni. Leikmönnum gefst kostur á að átta sig á sínum sterku hliðum, hvað þeir geta og jafnframt að sjá veikleika sína í skýrara ljósi. Þá er þátttaka í Evrópukeppni mikilvæg til að lyfta Víking upp, íþróttalega og félagslega. Skapa þann grundvöll til að gera félag- ið ennþá sterkara." Ertu ánægður með frammi- stöðu Víkings í sumar? „Ég var ánægður með leik liðsins í fyrri umferð mótsins, það er 10 fyrstu leikjunum. I síðari umferðinni hins vegar höfum við tapað mörgum leikj- um, fengið á okkur mörg mörk. Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með varnarmenn okkar, svo og markverði. En á það ber einnig að líta, að liðin í 1. deild hafa öll leikið betur í síðari umferðinni en hinni fyrri." Hvað um framtíðina? „Ég vonast til að þjálfa Víking næsta sumar og við verðum að finna nýjar leiðir til að bæta getu liðsins og leikmanna; lyfta Víking upp á hærra plan knattspyrnulega séð til hagsbóta fyrir íslenzka knattspyrnu og auðvitað Víking. Ég vonast til að góðir leik- menn gangi til liðs við okkur. Við þörfnumst nokkurra sterkra leikmanna; allir vilja fá góða leikmenn til liðs við sig, hvort heldur er á meginlandi Evrópu eða Islandi og Víkingur er engin undantekning.“ Hvað hefur þér fundizt um íslenzka knattspyrnu í sumar? „íslenzk knattspyrna hefur tekið framförum í sumar. Valur hefur að vísu hrapað getulega séð miðað við í fyrra þegar félagið varð íslandsmeistari. En önnur lið hafa tekið framförum, Breiðablik, Fram, Vestmanna- eyjar, Akranes, KA og auðvitað Víkingur. Þessi lið hafa á köflum leikið skínandi vel. Virkilega góð knattspyrna hefur verið á boð- stólum í mörgum leikjum, hröð og spennandi knattspyrna. Þessi lið hafa lyft íslenzkri knatt- spyrnu upp á hærra stig.“ Nú hefur þú lagt fyrir nokkurs konar námsskrá fyrir þjálfun yngri flokkanna og hefur þjálfað 2. flokk. Ertu ánægður með starf þitt á þeim vettvangi? „Já, ég er ánægður, þó árangur hafi ef til vill ekki verið eins og vonazt var til; en árangurinn á eftir að skila sér. Ég er ánægður með hve strákarnir í 2. flokki hafa lagt sig fram. Úrslitin hafa ekki verið til að hrópa húrra fyrir en á það verður að líta, að Youri Sedov, hinn sovéski þjálf- ari Víkings. við erum að breyta grundvallar- atriðum. Strákarnir hafa öðlazt betri skilning á leiknum, lögð hefur verið áherzla á að gefa knöttinn frá sér á réttu augna- bliki, að verjast og taka upp réttar stöður, og tækniæfingar hafa skipað veglegan sess. Auð- vitað verður hlutunum ekki gjör- bylt á einu ári en strákarnir hafa lagt hart að sér og ég á von á því, að 2 til 3 þeirra verði í meistaraflokkshópnum næsta ár. Það eru nokkrir efnilegir ieikmenn í 2. og 3. flokki og þeir munu á næstu árum taka upp merki Víkings. Ég lagði fram æfingaáætlun í vor og þjálfarar Víkings í yngri flokkunum hafa fylgt mínum hugmyndum í þjálfun sinni. Árangurinn verður ekki metinn af úrslitum og þó Víkingur hafi nú átt aðeins einn flokk í úrslitakeppni yngri flokkanna, þá hef ég ekki áhyggjur af því; ég er sannfærður um að árang- urinn mun skila sér í fyllingu tímans. Hitt er svo, að auðvitað má gera betur og við verðum að gera betur. Víkingar verða ávallt að gera ýtrustu kröfur til sjálfs sín og aldrei má slaka á.“ Nú er meðalaðsókn í sumar mest á leikjum Víkings. Ertu ánægður með stuðning áhang- enda Víkings? „Já, eins og þú sagðir þá hefur Víkingur mestu aðsóknina í sumar. Áhangendur Víkings hafa stutt vel við bakið á strák- unum. Ég er ákaflega ánægður með þann stuðning og það sýnir, að starf okkar er metið að verðleikum." Hvað um dvöl þína hér á landi? „Þetta hefur verið góður tími, ég kann vel við íslendinga, þeir eru heiðarlegir og áreiðanlegir og þá kann ég vel við veðurfarið hjá ykkur. Það á vel við mig,“ sagði Youri Sedov. Evrópublad Víkings Útgefandi: Umsjón: Hallur Hallsson, Knattspyrnudeild Víkings Ágúst Ingi Jónsson, Sigtryggur Sigtryggsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.