Morgunblaðið - 13.09.1981, Side 4

Morgunblaðið - 13.09.1981, Side 4
4 Víkingur Yrði stórkostlegt að skora hjá Pantelic - segir Lárus Guðmundsson, miðherji Víkings „Ég er hvergi smeykur við Frakkana. Þeir eru menn eins og við. Sjálfsagt er lið þeirra jafnara, fleiri snjallir leik- menn, en í raun og veru vitum við lítið við hverju skal búast, utan það að í liði Bordeaux eru heimsþekktir leikmenn. Ég vona að okkur takist að standa upp í hárinu á þeim og jafnvel vinna hér heima. Markmiðið er að standa sig,“ sagði miðherj- inn ungi, Lárus Guðmundsson. Lárusi Guðmundssyni hefur skotið upp á stjörnuhimin ís- lenzkrar knattspyrnu í sumar. Hann er nú annar markhæsti leikmaður 1. deildar og hefur verið að festa sig í sessi í íslenzka landsliðinu. Eldfljót- ur, leikinn og útsjónarsamur og íslenzkir varnarmenn hafa átt fullt í fangi með að hemja unga Víkingsmiðherjann. Hvaða þýðingu hefur það fyrir félag eins og Víking að leika í Evrópukeppni? „Það er ómetanlegt. Að vera í Evrópukeppni er rúsínan í pylsuendanum. Menn eru áhugasamari, þetta er upplyft- ing enda er það markmið allra íslenzkra liða að leika í Evrópukeppni. Leikmenn hljóta dýrmæta reynslu. Ég er staðráðinn í að standa mig; og ef heppnin er með, þá skora. Það yrði stórkostlegt að skora hjá heimsþekktum markverði á borð við Dragan Pantelic. Nú, þá er ekki síður mikils- vert í sambandi við Evrópu- keppni, að okkur gefst tækifæri til að ferðast, skoða heiminn. Raunar gerum við gott betur nú en fara til Frakklands. Eftir fyrri leikinn gegn Bordeaux hér í Reykjavík, þá höldum við í keppnis- og æfingaferðalag til Sovétríkjanna og leikum gegn sterkum sovéskum liðum. Það ARHARFLUG ... sjalfstætt og óháð fyrirtæ Á síðasta aðalfundi Arnarflugs, sem haldinn var 14. júlí varð sú breyting á hlutafjáreign í félaginu, að Flugleiðir h/f seldu starfsmannafélagi Arnarflugs hlutafé og létu þar með af meirihlutaeign sinni. í dag er því Arnarflug sjálfstætt og óháð fyrirtæki, sem stefnir að vaxandi hlutverki í samgöngumálum þjóðarinnar. Arnarflug gegnir, sem kunnugt er, mikilvægu, hlutverki í innlendu áætlunarflugi og stefnir nú markvisst að því að hasla sér völl á alþjóðlegum flugleiðum til að tryggja enn frekari fjölbreytni og öryggi í íslenzkum flugsamgöngum. Arnarflug er aðeins 5 ára, en stendur engu að síður á gömlum og grónum meiði, sem byggist á hinum gífurlegu kröfum, sem gerðar eru í flugöryggismálum. Allt starfsfólk fyrirtækisins er þrautþjálfað, með það markmið eitt að tryggja giftusamlegar ferðir flugvéla okkar og góða þjónustu við viðskiptavini. Fyrir 5 árum voru starfsmenn Arnarflugs 14 talsins, í dag eru þeir 90 og að störfum í Evrópu og Afríku auk íslands. Stjórn og starfsmenn Arnarflugs ætla ekki, að láta uppbygpingu starfseminnar verða á kostnað annarra aðila, sem að ferðamálum starfa. Þvert á móti viljum við góða samvinnu við alla sem með okkur vilja vinna, þannig að þjóðarhagsmunir verði ávallt í fyrirrúmi með sterkari og arðbærari samgöngum. ARNARFUJG HE VAXANDIAFL í ÍSLEHZKUM SAMGÖHGUM Lárus Guðmundsson, miðherji Víkings hefur hrellt varnarmenn 1 deildar i sumar. verður engin skemmtiför, að- eins liður í undirbúningi fyrir síðari leikinn í Frakklandi. Við erum staðráðnir í að standa okkur eins vel og kostur er.“ Þú hefur að sjálfsögðu aldrei leikið í Evrópukeppni, en manstu þegar Víkingur lék við Legia frá Póllandi fyrir níu árum? „Já, ég man það glögglega, það var sumarið sem við urðum Islandsmeistarar í 5. flokki. Við lékum við Þrótt til úrslita og unnum 1—0 og mér tókst að skora sigurmark leiksins. Síðar urðum við íslands- meistarar í 3. flokki. Það var valinn maður í hverju rúmi í því liði. Þar bar hæst Arnór Guðjohnsen, við spiluðum sam- an frammi og þekktum mjög vel hvors til annars. Arnór er ákaflega snjall og sterkur leik- maður, eldfljótur og mark- heppinn. Nú, þarna voru fleiri góðir leikmenn, strákar sem nú- eru í meistaraflokksliði Vík- ings, Heimir Karlsson, Aðal- steinn Aðalsteinsson, Gunnar Gunnarsson, Jóhann Þorvarð- arson og einnig Óskar Þor- steinsson en hann hefur tekið handknattleikinn fram yfir knattspyrnuna. Við vorum með stórkostleg- an þjálfara, Hafstein Tómas- son. Hann var með ferhyrn- ingsspilið langt á undan öllum, sama kerfi og rússnesku þjálf- ararnir Youri Ilitschev og Youri Sedov hafa notað. Vel- gengni okkar í 3. flokki var mikil, við urðum íslandsmeist- arar, Reykjavíkurmeistarar og haustmeistarar. Töpuðum að- eins einum leik það sumarið; það var í haustmótinu gegn Val en kom ekki að sök, þar sem við urðum að spila aukaúrslitaleik við Val og unnum þá örugglega. Við skoruðum 85 mörk og fengum aðeins á okkur 5.“ Hvað um Víking og framtíð- ina? „Við erum að byggja upp sterkt.lið hjá Víking; lið sem er blanda leikreyndra kappa og ungra upprennandi leikmanna. Ég held að Víkingur verði í toppbaráttu næstu árin og kvíði engu.“ Nú varst þú fyrir skömmu í Belgíu og æfðir nokkra daga með atvinnumannaliði. Stefnir þú í atvinnumennsku? „Já, ég hef hug á að komast í atvinnumennsku en ég flana ekki að neinu. Það er nógur tími og í vetur mun ég ljúka stúdentsprófi. Móttökur allar í Belgíu voru stórkostlegar og við lékum gegn Waterschei, sem er í 1. deild, og unnum 6—1 þó Hasselt sé í 2. deild. Mér gekk vel í þeim leik, þó ég hafi ekki skorað. En eins og er, þá á Víkingur hug minn allan og ég stefni að því, að leika eins vel fyrir Víking og kostur er.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.