Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 18
18 Víkingur Hvar semþú: um byggöir íslands eru Samvinnutrygglngamenn nálœgir. 5AMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA 3 SlMl 81411 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Áfram Víkingar: Þið eigið leikinn Knattspyrnufélagið Víkingur má muna tímana tvenna. í sögu þess hafa skipst á skin og skúrir, sigur og ósigur. Þetta er auðvitað ekkert einstakt um Víkinga. Allir eru ofurseldir þessu lögmáli. einstaklingar, félög og þjóðir. Lífið sjálft er hreyfing og breyting. Ekki er það gleðiefni, þeg- ar illa gengur, en f jarska ánægjulegt, þegar breytist til hatnaðar. Og það fer ekki á milli mála, að Vík- ingar lifa nú það skeið í sögu sinni. sem kalla má blómaskeið. Víkingar eru nu er sko auðvelt að kaupa í matinn" 5 gómsætir g::ða réttir beint í ofninn ■W'j^ HfepðMafS nfcrefflffiMhgTTr Bjarni Guðnason nú orðnir stórveldi í íþróttum á íslenzkan mælikvarða. Þeir eru nú íslandsmeistarar í hand- knattleik og hafa allt þetta keppnistímabil ým- ist verið með fingurgóma eða hönd á þeim bikar, sem veittur er því félagi, sem vinnur íslandsmót í knattspyrnu í meistara- flokki. Uppgangur félagsins líkar mér og öðrum Víkingum stórvel. Þetta snertir hjartastrengi okkar, sem lítum um öxl og sjáum fyrir okkur allar þær ángæjustundir, sem við urðum aðnjótandi á fyrri árum, og um leið allt baslið, sem bar oftast lítinn árangur, hvað varðaði söfn- un veglegra bikara. En það í sjálfu sér, er þrátt fyrir allt ekki aðal- atriðið, heldur sá félagskapur og félagsþroski, sem menn öðlast. Það er sælt að sigra, en hetjan verður til við ósigurinn. Til lengd- ar er best að fari saman sigur og ósigur. Og sú er reyndin, hvort sem mönnum líkar betur eða ver. Það eru nú hartnær þrír áratug- ir síðan ég stóð í eldlínunni með Víkingum — það var á árunum kringum 1950 — bæði í fótbolta og handbolta. Um skeið mátti heita, að virkir þáttakendur væru vart miklu fleiri en 20-30 manns, og það kom fyrir oftar en einu sinni, að við áttum í erfiðleikum með að fá í heilt lið. Við urðum jafnvel að sækja mann upp í stúku á gamla Melavellinum til að fylla tölu leikmanna. Var þá formúlan þessi: „Þú verður að bjarga okkur. Þú hefur að vísu lítið æft, en þú þarft í raun ekkert að gera. Þú stendur úti á kanti og við lánum þér skó.“ Þessu fylgdi mikið orðaskak, þrá- beiðnir og undanfærslur, en svo fór ávallt, að við höfðum sigur í þessum efnum. Enginn sannur Víkingur gat staðizt slíkar atrenn- ur þegar félagið hans átti í hlut. Og viti menn. Þarna stóð „viðauk- inn“ á kantinum. Tók gífurlega spretti á eftir boltanum og lét eins og hann ætti allan heiminn en skyndilega eftir ekki ýkja langan tíma, tók hann að hafa hægt um sig og horfði löngunaraugum upp í stúku. Hann var orðinn svo mátt- farinn að hann gat ekki einu sinni svarað hrópum félaga sinna, sem öskruðu eins og villidýr á hann, þegar honum var orðið um megn að hreyfa fæturna. „Þú ert nú meiri andskotans auminginn." Þannig er heimsins vanþakklæti. En þótt illa gengi á stundum, var Víkingum alltaf ljóst, að þeir áttu leikinn frá knattspyrnulegu sjónarmiði. Annars átti bölvaður dómarinn ákaflega oft sökina á því, hversu illa gekk. En það sem merkilegast var, við vorum alltaf tilbúnir í slaginn að nýju til að launa andstæðingunum lambið gráa. Aldrei bilbugur. Viljinn stálsleginn. Alltaf risið upp frá dauðum. Alltaf blessaðist þetta einhvern veginn, af því að þeir sem stóðu í þessu lögðu sig fram af svo miklum hjartans ákafa og hugar- ins eldmóði; að uppgjöf kom aldrei til greina. A þessum árum eignað- ist maður vini og félaga til lífstíðar, sem eru eins og rós í hversdagsgráma miðaldra manns. Að alast upp í góðu íþróttafélagi við hollar íþróttir að keppni og leik er sú fróma ósk, sem ég á til handa öllum unglingum. Ég tel að slík reynsla sé jafnmikils virði fyrir félagslegan þroska hvers einstaklings og sjálf skólagangan. Þetta tvennt fari saman, haldist í hendur og bæti hvort annað: Þá standa menn fyrir sínu í lífsbar- áttunni sér og öðrum til farnaðar. En nú til alvörunnar. Víkingar ganga nú innan skamms fram til orustu á leikvellinum við franskt félag frá Bordeaux í Evrópukeppni félagsliða. Þetta sýnir, að Víking- um miðar áfram. Allir gamlir Víkingar óska sínu félagi alls góðs bæði í þessari keppni sem og annarri. Vinni Víkingar ekki vaska stráka frá rauðvínsekrum Frakklands, þá munu þeir „eiga“ leikinn. Þetta er máttur og styrk- ur Víkingar: Þeir eiga alltaf leik- Bjarni Guðnason Allar matvörur: Kjöt, mjólk, fiskur, tóbak, öl, sælgæti, brauð og kökur frá 6 brauðgerðarhúsum Ávallt með sértilboð á völdum vörum Sendum heim Austurborg Störholti 16 - 23380

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.