Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 Gsettu ab! Ein baunin hreyfíst." : ... aö fara meö : honum í veiÖitúr. TM Reg. U.S P«t OTf — alí rlgfits rwerved • 1979 Lo» Anoe*es Tlm«s Svndtcate ' Nei. maAurinn minn drekkur ekki meira í daj? a.m.k.! Með morgunkaffinu I>ú ættir að sýna honum jjott fordæmi ojí sjálfur hætta aö reykja! HÖGNI HREKKVlSI „ J'CM,. /<ómoo . . Sjúkrahúsmál á Suðurnesjum: Spítalinn á Vogastapa fyrsta sjúkrahúsið Kcflavik 5. sept. Til Velvakanda. Fyrr á þessari öld tíðkaðist í Keflavík að sjúklinjíum, sem þurftu á læknishjálp að halda, væri komið fyrir á einkaheimil- um, þar sem líknandi hendur voru nálæjít. En sjúkrahús kom ekki í Keflavík fyrr en 1954. Marta Valjíerður Jónsdóttir drepur t.d. á í nóvemberblaði Kaxa 1958 (bls. 131), að marj;ir hafi leitað til ívars Ásnríms- sonar skósmiðs oj; konu hans, Sólveigar Brynjólfsdóttur, sem bjuggu í Vinaminni við Aðal- j;ötu. Þar virtist nóg rúm — og hjartarúm ekki síður. Eftir að ívar hafði bætt við hús sitt einni hæð, þótti sjálfsagt að koma þangað sjúklingum, sem þurftu á stöðugri læknishjálp að halda. Á árunum 1910—12 kom fram hugmynd um sérstakt sjúkra- skýli í Keflavík. Ólafur Sigur- jónsson frá Litla-Hólmi í Leiru (f. Keflavík 1902) segir mér, að helsti talsmaður þeirrar hug- myndar hafi verið Ágúst Jóns- son hreppstjóri Keflavíkur- hrepps. Er það mjög trúlegt, þar eð Ágúst var bæði vinur manna og dýra. En hann fékkst nokkuð við smáskammta- lækningar með góðum árangri. (Faxi, júní 1963.) Þegar Ágúst hóf máls á þessu, voru íbúar í Keflavík tæplega 300. Hugmyndin um sérstakt sjúkraskýli í Keflavík kemur fyrst fram, að því er best verður séð, í sýslufundargerð Gullbringusýslu árið 1916. Á aðalfundi sýslunefndar þann 12. apríl það ár, leggur Ágúst fram beiðni frá þáverandi héraðs- lækni í Keflavík, Þorgrími Þórðarsyni, um 300 kr. styrk frá sýslunefnd, til að ráða aðstoð- arlækni. Enda var þá fólki farið að fjölga að mun, bæði í Kefla- vík og læknishéraðinu. Sýslu- nefnd vísaði þessari beiðni Þorgríms frá, á þeim forsend- um, að landssjóður ætti að kosta embætti aðstoðarlækna í sýslum landsins, lögum sam-- kvæmt. í sambandi við þessa beiðni, ræddi Ágúst Jónsson nauðsyn þess, að keypt yrði hús í Kefla- vík og það gert að sjúkraskýli. En þar eð sýslunefnd þótti málið ekki nægilega undirbúið var því vísað frá. (Sbr. prentaða fundargerð sýslunefndar 1916 og fundarbók nefndarinnar í Þjóðskjalasafni.) Einhvern tíma eftir þetta, líklega eftir 1920, var stofnað í Keflavík málfundafélag, sem m.a. safnaði fé í svokallaðan sjúkraskýlissjóð. Sá sjóður nam tæplega 19.000 krónum árið 1944, þegar hafin var bygging núverandi sjúkrahúss í Kefla- vík. Málfundafélagið sjálft var þá hætt störfum. En sjóðurinn var í vörslu Kristins Jónssonar á Náströnd. (Sbr. febrúarblað F'axa 1943.) Skúli Magnússon Á árunum 1936—37 var stofn- að í Sandgerði sjúkraskýli á vegum Rauða krossins. Þar var rúm fyrir fjóra sjúklinga. Hvat- inn að þeirri starfsemi var hin mikla útgerð aðkomubáta, eink- um á vetrarvertíðum. (Lækna- tal II, bls. 428). Árið 1940 reistu Bretar sjúkrahús á austanverðum Vogastapa, í skjóli fyrir norðanveðrum. Var sá spítali í slakka skammt frá þjóðvegin- um (ekki langt frá hinu svokall- aða „S—i“, þar sem vegurinn beygði upp á Stapann). Þetta var braggabygging á einni hæð. I lok stríðsins var húsið brennt með öllum áhöldum (?), enda fór þá herliðið af landi brott. Af þessu fyrsta sjúkrahúsi á Suðurnesjum fara litlar sögur. Ekki er vitað hvort íslendingar áttu þar aðgang. Ef einhver á ljósmynd af þessu hersjúkra- húsi, eða lumar á annarri vitn- eskju um hús þetta og rekstur þess, þætti mér vænt um að fá vitneskju um það. Skúli Magnússon Kirkjan í Stóralaugardal 75 ára: „Hvað skal höndin ein og ein nema allir leggi saman“ Iloiðraði Velvakandi. Jón (iuðmundsson frá Stóra- Laugardal skrifar: Þegar ég kem til messugerðar í sambandi við ættarmótið í Stóra-Laugardalskirkju 19. júlí síðastliðinn, hafði ég af ein- hverjum óskiljanlegum ástæð- um ekki heyrt um að búið væri að nýja kirkjuna upp að innan, svo prýðilega sem að raun bar vitni. Gat ég því við messugjörð- ina óundirbúinn ekkert sagt, sem að ég hefði þó þurft að geta gert. Eftir 70 ára aldur kirkjunnar fara henni að berast veglegar jyafir. Til dæmis var hún máluð utan.henni gefin mjög svo fagur skírnar fontur, prestskrúði, sem Séð heim að Stóra-Laugardal. að ég kann nú ekki nafn á, og nýtt orgel, sem er stórhöfðing- leg gjöf í stað orgels sem var orðið mjög gamalt og fleiri jyafir sem að ekki verða taldar hér upp. Allt ofanskráð hefur kirkjuna vantað miðað við önn- ur kirkjuhús. Nú 1981, 75 ára að aldri, tel ég að kirkjunni hafi verið gefin mjög svo vegleg afmælisjyöf, hið stórmannlega framtak með málningu á kirkjunni að innan, sem hlýtur að hafa verið geysi- leg vinna og hefði kostað stórfé ef sú vinna hefði verið keypt. Gleðilegt er til þess að hugsa að miðaldra og yngri kynslóð kirkjusafnaðar Tálknfirðinga hefur staðið að þessu með góð- hug til kirkju sinnar, og um leið borgað upp í gamla skuld eldri kirkjustaðar með þessu frábæra framtaki sínu. Ekki er mér kunnugt um hver hefur átt frumkvaíði að framtaki þessu en hvað skal höndin ein og ein nema að allir ieggi saman. Að endingu þessara hugleið- inga minna skulu þessu mjög svo framtaksama fólki færðar hugheilar þakkir fyrir hönd hins iátna kirkjuvinar og áður eig- anda kirkjunnar, Guðm. Jóns- sonar fyrrum bónda í Stóra- Laugardal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.