Morgunblaðið - 19.09.1981, Síða 40

Morgunblaðið - 19.09.1981, Síða 40
Valur Aston Villa Eftir 11 daga 5 krónur eintakið LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 Maður 1‘aimst myrtur í íbúð sinni í Reykjavík Grcnimelur 24. Ilans bjó á 1. hæð hússins. - var ráðinn bani með lagvopni - banamaður hans ófundinn í gærkveldi MAÐUR fannst myrtur í íbúð sinni í Reykjavík laust fyrir klukkan 10 í tra'rmor>fun. Hinn myrti hét Hans Fritz Joachim Arnold Wiedbusch, 45 ára iramall. fæddur 10. ágúst 1930, on bjó að Grenimel 24 i Reykjavik. Hann var v-þýskur ríkisbortcari. en hafði verið búsettur hér á landi frá árinu 1970. Ilann vann við hlómaskreytinjíar í versluninni Blómavali. Samkvæmt upplýsinj;um Rannsóknarlógreglu ríkisins er bersýnilegt að honum hefur verið ráðinn bani með lagvopni og fannst það á vettvangi. Ilans Wiedhusch var líkið með mikla áverka, en það fannst í stofu íbúðarinnar. Hans Wiedbusch hafði búið hér á landi í tæp 11 ár, en hann fluttist hingað til lands í desember árið 1970. Hann hafði dvalið hér áður um tæplega tveggja ára skeið, frá árinu 1966 til 1968. Hann var einhleypur. Banamaður Þjóðverjans var enn ófundinn í gærkveldi en um- fangsmikil rannsókn fer fram á morðmálinu. Vinna á annan tug rannsóknarlögreglumanna að málinu. Rannsóknarlögregla ríkis- ins biður alla þá sem einhverjar upplýsingar geta veitt, að gefa sig fram hið fyrsta. Kristján Ragnarsson: Lögrgelunni barst vitneskja um atburð þennan á tíunda tímanum í gærmorgun, en kona sem búsett er í sama húsi og hinn látni bjó í, kom að líkinu. Vinnuveitandi Þjóðverjans hafði verið að grennslast fyrir um hann þá um morguninn. Síðast sást til Hans Wiedbusch á miðvikudagskvöld, en samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar, er talið að honum hafi verið ráðinn bani aðfaranótt fimmtudags. Samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér, heyrði kona í húsinu, að dyrabjöllu i íbúð hins látna var hringt um klukkan 23 á miðviku- dagskvöld. Voru þá dyrnar opnað- ar og síðan var tónlist leikin í íbúðinni. Ekki er álitið að mikil átök hafi átt sér stað í íbúð hins látna, þó Fiskverð þarf að hækka um 13% eigi að reka flotann á núlli - verði fiskverð samþykkt óbreytt þýðir það stöðvun flotans „STAÐA útgerðarinnar frá því 1 júní eftir síðustu fiskverðsákvörð- un hefur versnað um 4.5% af tekjum að meðaltali og nemur það um 90 milljónum króna og á það við háta og togara af minni og stærri gerð. Eins og staðan er núna. er að okkar mati halli á útgerðinni. sem nemur 7.6% af tekjum eða 156 milljónum króna. sé miðað við það að flotinn sé rekinn á núlli. Til að mæta þessum halla þarf fiskverð að hækka um 13%, en til að laga mismuninn. sem orðið hefur frá 1. júni. þarf það að ha'kka um 9%.“ sagði Kristján Ragnarsson. fram- kvæmdastjóri LÍÚ. er Morgunhlað- ið innti hann eftir þvi hve mikið útgerðarmenn teldu að fiskverð þyrfti að hækka 1. október. „Sú hallaaukning, sem orðið hefur frá því að fiskverð var ákveðið Grundarfjörður: 5 menn brutust inn í lögreglustöðina Peningaskáp, sjónvarpi og skjölum og dagbókum stolið BROTIST var inn í lögreglustöðina í Grundarfirði í fyrrinótt og var þar stolið peningaskáp. sjónvarpi, öllum daghókum og skjölum. Lögreglunni á Grundarfirði tókst fjótlega að hafa hendur i hári þjófanna. sem voru 5 talsins. en við yfirheyrslur i fyrrinótt og í gær kom í Ijós, að alls voru 9 mcnn viðriðnir málið. „Það var mikil ölvun hér í bænum í fyrrakvöld og meðal annars tókum við tvo menn grunaða um ölvun við akstur. Við þurftum að fara með blóðsýni til Olafsvíkur. Er við kom- um til baka um kl. 2.30 hafði innbrotið átt sér stað,“ sagði Sigurð- ur Einarsson, lögregluþjónn á Grundarfirði, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Mennirnir komust inn í lögreglu- stöðina með því að brjóta tvær rúður, aðra frekar stóra, hina litla. síðan tókst þeim að opna bakdyr hússins innanfrá. Þeir fóru strax út með peningaskápinn og sjónvarpið, en þar sem þeir áttu erfitt með að burðast með peningaskápinn sökum þyngsla, þá misstu þeir hann og það ofan á sjónvarpið þannig að saga þess varð ekki lengri. Ekki komust mennirnir þó lengra en 10—15 metra frá stöðinni með peningakassann, þá gáfust þeir upp og skildu hann eftir á götunni, óopnaðan, en í kassanum var töluverð fjárhæð. Þá tóku þeir öll skjöl og dagbækur, sem þeir fundu,“ sagði Sigurður. „Skjölunum brenndu þeir, en dag- bókunum hentu þeir í sjóinn. Ekki er mikill missir í skjölunum, þar sem hér var svo til eingöngu um afrit að ræða, en það er mikill missir í dagbókunum okkar." I fyrstu var haldið að aðeins þeir 5 menn sem fóru inn á lögreglustöðina væru viðriðnir málið en við yfir- heyrslur kom í Ijós að alls áttu 9 menn hlut að máli. Aö sögn Sigurðar hafa mennirnir gefið þá einu skýr- ingu á verknaðinum að hér hafi verið um skemmdarfýsn að ræða. Mennirnir níu hafa allir komið við sögu lögreglunnar í Grundarfirði. síðast, stafar af því að olía hefur hækkað í verði, veiðarfæri hafa hækkað í verði og viðhald hefur hækkað í verði vegna launahækkana frá 1. september. Þegar við erum með töluna 13%, erum við með sem samsvarar 2% verri afkomu en þjóðhagsstofnun hefur reiknað út, vegna þess að þar hefur verið tilfært og dregið úr ákveðnum kostnaðarlið- Heldur þú að þessi hækkun fáist? „Það er alveg ljóst að fiskvinnslan er ekki fær um að taka á sig svona mikla fiskverðshækkun og það er ekkert nýtt, að í verðbólgu eins og þeirri, sem hér hefur geisað, er það svo, að þegar kemur að okkar ákvörðunum, þá er eins og að gera þurfi einhverjar ráðstafanir okkur til hjálpar, sem er náttúrulega ekkert okkur til hjálpar. Heldur verður að endurmeta stöðu atvinnu- veganna með tilliti til þeirra kostn- aðarbreytinga, sem átt hafa sér stað. Þetta er þjóðfélagslegt vandamál en ekki vandamál okkar. Ef á að ákveöa fiskverð óbreytt, þá verður það aðeins til þess að flotinn stöðvast í enn ríkari mæli en þegar er orðið, en nú liggja að minnsta kosti þrír togarar við bryggju vegna rekstrar- örðugleika. Þannig að þetta er bara afleiðing þess sem orðið hefur og þess vegna verða stjórnvöld að huga að þessu máli, eigi atvinnulífið að snúast réttan snúning. Við getum hins vegar fagnað góðum aflabrögðum og ytri skilyrði hafa verið okkur hagstæð að öðru leyti en því að það er ákveðin fisktegund, sem er karfinn, sem hefur safnazt upp í verulegum birgð- um fyrir Rússland og við höfum áhyggjur af því, að á þeim 40 skrapdögum, sem eftir á að taka á þessu ári, verði um það að ræða að skipin liggi að einhverju marki vegna þess að frystihúsin verða ekki tilbúin til þess að taka á móti karfanum. Við munum því reyna að nýta okkur þessa skrapdaga til þess að sigla meö karfa til Þýzkalands i einhverjum mæli, en við vitum ekki ennþá hvort það tekst,“ sagði Krist- ján. Hluti kvik- myndarinnar „Gulls“ eyði- lagðurí framköllun Nokkur hluti bresku kvik- myndarinnar „Gull" mun hafa skemmst í framköllun erlendis. það er að segja nokkrir þættir sem teknir voru upp við Lang- jökul í ágústmánuði siðastliðn- um. við óblíöar aösta'öur. Má því búast við, að það verði að taka upp þennan hluta kvik- myndarinnar aftur og að öllum líkindum verður það gert í nóv- ember. Eins og menn muna, þá leikur hin þekkta leikkona Julie Christie aðalhlutverkið í kvik- myndinni og er þessi mynd fyrsta breska kvikmyndin í fullri lengd, sem unnin er eingöngu af konum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.