Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 Gengisþróunin hefur ver ið okkur afaróhagstæð sagði Magnús Ágúst Magnússon, fjármálastjóri Hafskips „Því er ekki ad neita, að greiðslustaða fyrirtækisins hefur versnað nokkuð á þessu ári, eins og hjá öðrum íslenzkum fyrirtækjum," sagði Magnús Agúst Magnússon, fjármálastjóri Hafskips, á hluthafafundi félagsins, sem haldinn var 5. desember. CATERPILLAR SALA S. t=UÖNUSTA Caterpillar, Cat ogffleru skrásett vörumerki Höldum námskeið í meðferð CATERPILLAR bátavéla dagana 13.-15. ian. 1982. Vinsamlegast tilkynniö þátttöku sem fyrst. HEKIA HF Laugavegi 170-172 Sfmi 21240 0 e m 0 m 0 m 0 0 „Orsakir þessarar versnandi greiðslustöðu félagsins, er fyrst og fremst þróun verðlagsmála, við höfum ekki fengið eðlilegar hækk- anir, og þróun gengismála. Þróun gengismála hefur verið okkur afar óhagstæð. Útgjöldin eru að stór- um hluta reiknuð í dollurum, en tekjurnar eru að stærstum hluta í evrópskum gjaldmiðlum," sagði Magnús Ágúst ennfremur. Magnús Ágúst sagði, að inn- heimtuhlutfall félagsins hefði versnað nokkuð á þessu ári. Hann nefndi í því sambandi, að úti- standandi veltudagar væru nú 47, en hefðu verið 42 á sl. ári. Þá væru upphæðir í vanskilavíxlum nú mun hærri, en verið hefði. Það kom fram hjá Magnúsi Ág- ústi, að starfsmannafjöldi Haf- skips væri nú um 240. 36 starfs- menn eru á skrifstofu félagsins, 130 starfa við vöruafgreiðslu og störf henni tengd. Þá eru 75 manns í áhöfnum skipa félagsins. Hafskipsmenn vilja taka við vörunum fyrr enn nú Telja þannig mögulegt að koma kostnaðinum niður, án skaða fyrir skipafélagið Hafskipsmenn eru um þessar mundir að endurskoða allt umboðsmanna- kerfi sitt í Evrópu, og í því sambandi mun Björgúlfur Guðmundsson, annar framkvæmdastóra fyrirtækisins, hafa aðsetur í London og ferðast á milli staða næstu sex mánuðina. Björgólfur sagði á hluthafafundi Hafskips, sem haldinn var 5. desember, að eftir nokkurra vikna dvöl erlendis hefði hann strax komizt að þeirri niðurstöðu, að mjög margt mætti færa til betri vegar. [h]|h][h1|h]00000 Björgólfur sagði, að England hefði alla tíð komið hlutfallslega illa út í rekstri fyrirtækisins. Hann nefndi, að um svipaðan heildarinnflutning væri að ræða frá Englandi og Danmörku, en að- eins 5,4% af innkomu Hafskips er vegna flutninga frá Englandi, en hins vegar nærri 15% frá Dan- mörku. — „Við munum leggja mikla áherslu á að vinna okkur upp í Englandi og skýrsla um það mál mun liggja fyrir eftir áramót- in,“ sagði Björgólfur ennfremur. Það kom fram hjá Björgólfi, að einn þátturinn í endurskipulagn- er örlaga saga tveggja einstaklinga, en hún er ekki síður þjóðlífssaga, skrifuð til að sýna, hversu ríkur þáttur ástin var í lífi þjóðarinn- ar í fábreytni og fásinni fyrri tíma eða eins og segir á einum stað í bókinni: Hvert gat fólkið flúið í þennan tíma undan ástinni? Ekki í ferðalög, skemmtanir, aðra atvinnu né hugsjónir. Það bjó með ástinni og ÞJÓÐSAGA ÁSCiF.IR JAKORSSON moigunn hafði engin ráð til að eyða henni, ef hún var sár, stundum vildi það ekki eyða henni, þó hún væri sár, hún var það eina sem það átti. Ef hún á hinn bóginn var lukkuð, þá varð hún lífsfylling í baslinu og fyllti kotið unaði. Hinn sæli morgun, er ekki hefðbundin ástar- saga, hún er annað og meira. Verð kr. 197,60 ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510 Jólaplata Sjálfsbjargar, jólagjöf fjölskyldunnar. Fæst í öllum hljómplötuverslunum landsíns. ingu umboðsmannakerfis Haf- skips, væri að hafa íslenzka menn eða menn með staðgóða þekkingu á þörfum markaðarins hér heima, staðsetta í höfnum erlendis hjá umboðsmönnum fyrirtækisins. Fyrsti vísirinn að þessu er þegar kominn í Hamborg, þar sem Guð- mundur Ásgeirsson, fyrrverandi starfsmaður skrifstofu fyrirtækis- ins er staðsettur, og í New York er Baldvin Berndsen staðsettur. Björgólfur sagði mikinn árangur þegar kominn í ljós af starfi Bald- vins í New York. Björgólfur sagði eitt af for- gangsverkefnum sínum erlendis vera það, að athuga hvort félagið gæti komið fyrr inn í flutninga- keðjuna, þ.e. taka við vörunni fyrr. — „Við viljum meina það, að með því að taka við vörunni kannski strax hjá framleiðanda gætum við komið kostnaðinum niður, án þess að það kæmi beint niður á fyrir- tækinu, eins og það gerir í dag. Okkar menn gætu leitað hagstæð- ustu tilboða fyrir flutningana frá framleiðanda að skipshlið, en hingað til hafa það verið erlendir umboðsmenn, sem hafa séð um þá hluti og kannski ekki haft alltof mikinn áhuga fyrir að koma þeim upphæðum niður," sagði Björgólf- ur. Þá kom það fram í máli Björg- ólfs, að hann hefði að undanförnu verið að ræða við hafnaryfirvöld í Ipswich, en þangað sigla skip Haf- skips. Sá árangur hefði þegar náðst að tekizt hefði að koma kostnaði fyrirtækisins vegna hafnargjalda og fleira niður um liðlega 30 þúsund sterlingspund og væri það vonandi bara upphafið að hagkvæmari rekstri. ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU M GLYSING \ SIMINN KR: 2248«

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.