Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981
61
„En ef Árni á með „steini" við mann þann hinn ágæta, sem hinar fornu
ritningar hans segja frá, öðrum mönnum fremur, þá get ég sagt honum hvert
hann á að horfa eftir núverandi bústöðum þess ágæta manns. Það er á bak
við altaristöfluna hennar Mary Long, langt inni í bakgrunninum, og horfðu
þangað Árni L. Jónsson, og láttu þér ekki við bregða þótt líf fari að færast í
myndina."
4. Það er rétt hjá Árna L.
Jónssyni, að grein Mary Long er
að mestu samansett úr viðtölum
við þekkta vísindamenn. En
„veldur hver á heldur" og hún
tengir saman í heild, og það er
mjög athyglisvert að hún gefur
þessa heild til kynna, meðal ann-
ars með því að birta þessa glæsi-
legu mynd af „altari himingeims-
ins“, ásamt þeim tilvísunum til
stjarnheimsins umhverfis okkur
og lífsins þar, sem margar eru í
grein hennar og öðrum í sama
blaði af Science Digest og öðrum
fyrirfarandi. Það eru þessi
straumhvörf í heimi vísindanna,
eða byrjun á straumhvörfum,
sem ég vildi vekja athygli á, og ég
er þakklátur Árna L. Jónssyni
fyrir að gera sitt til að örva þá
athygli. — En þegar hann fer að
leita, í Biblíunni sinni, að ein-
hverjum „steini" sem eigi að
koma til að bjarga mannkyninu
úr háska, þá get ég ekki fylgzt
með honum. Þá fer ég heldur upp
á gamla Lögberg og og gleð mig
við þá raunverulegu steina, sem
þar eru. En ef Árni á með „steini"
við mann þann hinn ágæta, sem
hinar fornu ritningar hans segja
frá, öðrum mönnum fremur, þá
get ég sagt honum hvert hann á
að horfa eftir núverandi bústöð-
um þess ágæta manns. Það er á
bak við altaristöfluna hennar
Mary Long, langt inni í bak-
grunninum, og horfðu þangað
Árni L. Jónsson, og láttu þér ekki
bregða þótt líf fari að færast í
myndina.
Að svo mæltu óska ég þér gleði-
legra jóla og góðra heilla á kom-
andi ári.“
Á að nota verknað sjúks
manns til að dæma okkur?
0975—6272 skrifar:
„Nú í vikunni varð ung stúlka
fyrir fólskulegri árás og mis-
þyrmingum frá hendi svokallaðs
síbrotamanns. Það er kannski
ekki nein frétt í sjálfu sér. Á
hverjum degi eiga sér hliðstæðir
atburðir stað, út um allan heim,
löglega og ólöglega. Ofbeldi er
ekki neitt nýtt fyrirbæri, heldur
kemur það manni á óvart hvern-
ig íslensk blöð eru farin að
bregðast við. Nákvæmar lýs-
ingar á atburðinum og kringum-
stæðum. Hver er ástæðan?
Varla er það þjónustan við al-
menning sem verið er að hugsa
um. Að flytja almenningi eins
hlutlausar fréttir af gangi mála
skapa ákveðnar skoðanir hjá al-
menningi, á málum er koma
þessu beint og óbeint við? Ég á
þar við þá umræðu er fangels-
ismál og mál þeim tengd hafa
hlotið nú í haust.
En samt finnst mér forystu-
grein Morgunblaðsins vera lík-
legri vettvangur til þessarar
skoðanamyndunar heldur en
fréttaflutningur. Og í framhald-
ið af því vil ég minnast lítillega
á forystugrein blaðsins í dag, 9.
desember. Þar er talað um
myrkviði frumskóga, eiturlyfja-
neytendur sem óargadýr,
hræðslu meðal almennings og
óákveðna refsidóma yfir ein-
staklingum. Ég ætla ekki að
fara hér að tjá mig um einhver
einstök atriði þessara mála,
heldur vil ég mótmæla því
hvernig á að fara að nota verkn-
að eins bilaðs einstaklings, til að
dæma okkur alla. Okkur er höf-
um lent út af „réttri" braut og
lent í fangelsi. Einnig vil ég
reyna að vekja og svara fáeinum
spurningum, er urðu til við
fréttir af umtöluðu óhæfuverki
og aðdragandanum að því.
Okkur sem höfuð orðið að um-
gangast þennan mann hér á
Litla-Hrauni, tilneyddir, kom
þessi atburður ekki svo mjög á
óvart. Hann var í fullu samræmi
við yfirlýsingar er hann hafði
gefið skömmu áður en hann
losnaði, og voru á vitorði flestra
hér innan hælisins, starfs-
manna jafnt sem fanga. Sjálf-
sagt hefur ekki verið tekið
meira mark á þeim en fyrri yfir-
lýsingum sama manns, og litið á
þetta sem eitt geðveikisþruglið í
viðbót. En annað kom á daginn.
Þessi einstaklingur hefur líka
fengið sinn skammt af fangels-
um ef svo má að orði komast.
Hann hefur verið meirihluta
ævi sinnar inni á stofnunum
hvers konar, verið sviptur
sjálfræði og þar með yfirlýstur
af samfélaginu óábyrgur gerða
sinna. Birtist yfirlýsing frá
Tómasi Helgasyni yfirlækni í
blöðum um hann, þar sem segir
að hann sé of vitlaus til að vera
á Kleppi, en ekki nógu vitlaus
fyrir Kópavogshæli, svo að eini
staðurinn fyrir hann sé fangelsi.
Ég nenni ekki hér að fara að
gagnrýna yfirlýsingu af þessu
tagi, en mér finnst hún sýna
vanmátt okkar og úrræðaleysi
er einstaklingar sem þessi sjúki
afbrotamaður eiga í hlut.
Fangelsi þar sem sakhæfir
menn eru að afplána sína refs-
ingu, eru engir geymslustaðir
fyrir menn sjúka á geði. Og er
það bæði föngum og þeim sjálf-
um til mikilla óþæginda.
Ef á að fara að nota afbrot
umrædds einstaklings sem ein-
hvern grundvöll fyrir umræðum
um fangelsi og refsingu brot-
legra einstaklinga innan samfé-
lagsins, þá er ég hræddur um að
við förum afturábak frekar en
áfram og það er það sem reynt
hefur verið að forðast undanfar-
in ár.“
Þessir hringdu . . .
Skrýtin
landafræði
Balli hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Ég heyrði það tvívegis í
morgunfréttum útvarpsins í dag (10.
des.), að sagt var frá pólsku skipi
sem strandað hafði við Kaupmanna-
höfn. Sagt var að tveir breskir drátt-
arbátar hefðu komið skipinu til að-
stoðar og þyrlur, sem flytja mundu
farþeganna til Hebridge-eyja.
Eitthvað finnst mér nú þetta skrýtin
landafræði.
Forkostulegt ráðs-
lag hjá Útvarpinu
Svanur Karlsson hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Um sl. mán-
aðamót hætti Utvarpið að flytja
skipafréttir, þar sem sagt er í stuttu
máli frá ferðum íslenskra skipa um
heiminn, með upplýsingum um það,
hvar þau eru stödd þá stundina og á
hvaða leið þau eru. Svona hefur
þetta verið í áratugi. Ég verð að
segja það, að ég er alveg undrandi
yfir að hafa hvergi séð eða heyrt
gerða athugasemd við þessa ráða-
breytni Útvarpsins. Þetta kom víst
lítillega til tals á þingi Farmanna-
og fiskimannasambandsins, en hefur
eftir því sem ég best veit ekki náð
inn í fjölmiðla. Ég hef heyrt að
fréttastofan hafi beðið útvarpsráö
að losa sig við þennan böggul, en
með tilliti til þess að: 1) 5—600 fjöl-
skyldur eiga sína á sjónum og hafa
þarna fengið fréttir af þeim; 2)
fréttastofan hefur sáralítið þurft að
hafa fyrir þessum dagskrárlið, þar
sem skipafélögin hafa sent þeim all-
ar upplýsingar; 3) tímann sem þess-
um dagskrárlið var ætlaður (kl.
16—16.15) milli frétta og veður-
frétta, virðist ekki eiga að nota fyrir
nauðsynlegra efni — þá finnst mér
þetta forkostulegt ráðslag hjá Út-
varpinu. Ég legg til að þessu verði
þegar í stað breytt í fyrra horf.
Heimilistæki hf. hafa til sölu
jólaseríur frá kr. 145_
og eilífðarjólatré frá kr. 290“
Það hefur aldrei verið fjölbreyttara úrval af jólaljósaseríum
hjá Heimilistækjum hf., einfaldar, skrautlegar, fallegar.
Jólatré úr varanlegum gerfiefnum, sem endast heila eilífð
- 50cm, 130cm, 150cm, 170cm og 180cm.
Tré - ljós - gjafir fyrir alla fjölskylduna
Komið, skoðið, kaupið.
Heimilistæki hf.
Sætúni - Hafnarstræti
Svínahamborgarhryggir m/beini
Svínahamborgarlæri
London lamb
Lambahamborgarhryggir
Úrbeinaöir hangiframpartar
Úrbeinaö hangilæri
Okkar Almennt
verö: verö:
149.00 172.50
98.50 109.50
84.50 101.40
68.50 88.60
79.50 102.40
117.00 143.00
Allt
lambakjöt
á gamla verðinu
KJOTMIÐSTÖÐIN Laugalaek 2. s. 86511
Opið til kl. 6 í dag.