Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 Hundrað ára minning Þorláks V. Bjarnar síðasta bóndans á Rauðará Eftir Gunnar M. Magnúss Hundrað ára minning Þorláks V. Bjarnar, sídasta bóndans á Rauðará. 1. Rauðará, — ævintýranafn vest- an hafs og austan. Árið 1875 fluttist átján ára gamall Austfirðingur, Jóhann Magnús Bjarnason, með foreldr- um sínum vestur um haf, til Kan- ada. Hann varð einn fremsti rit- höfundur Vestur-íslendinga. Að- alskáldverk hans gerðust í hinum mikla Rauðarárdal. Það eru sögur með ævintýrablæ um Islend- ingana vestra. Við minnumst nafnanna á skáldsögum hans: Vornætur á Elgsheiðum, Haust- kvöld við-hafið. — Á áratugunum eftir 1870 var upplausnarástand á Islandi. Mörg þúsund manns flutt- ust til Vesturheims, stundum tvö þúsund á ári. Fólk var að flýja harðræði, fátæktina, eldsumbrot og aðrar náttúruhamfarir, versl- unaránauð, ófrelsi og einokun. En vestra var fólki heitið gulli og grænum skógum. Það seldi eigur sínar, hélt til kaupstaðanna á ströndinni og beið útflyjenda- skipsins. En fyrir kom það, að fólkið beið vikur, jafnvel mánuði eftir útflytjendaskipinu. Það hafð- ist við í tjöldum, útihúsum og kof- um, allslaust, matarlítið og sjúkt, svo sem eitt sinn gerðist á Sauðár- króki. En aftur varð ekki snúið. Loks kom skipið og fólkinu var hrúgað um borð. Á leiðinni vestur féllu hinir umkomuminnstu í val- inn og var varpað í hafið bláa. Þegar til hafnar kom, var fólkinu ekið með hina fátæklegu búslóð sína inn á sléttur og óbyggðir Kanada. Þeir byggðu sér bjálka- kofa, en flestir karlmenn fóru í járnbrautavinnu sér til fram- dráttar, en konur og börn sátu við kertaljós og hlóð. Landnámssaga þessa fólks er um seigluna að lifa og tóra við erfiðar aðstæður. Is- lendingar söknuðu þessa fólks og þegar fregnir bárust um að land- inn hefði sigrað landnámsörðug- leikana var fögnuður á Fróni. Minnst er á þetta hér til sam- anburðar við það, að á þessum tímum var að hefjast aðdragandi að mesta jarðræktarævintýri á ís- landi. Það var á Rauðará við Kollafjörð. 2. Eyjafjörður kom oftast vor- grænn undan snjónum. Þar var víða gott undir bú og þar hefst aðdragandi að ævintýrinu. Séra Björn Halldórsson, hinn kunni klerkur og sálmaskáld, bjó í Laufási við Eyjafjörð. Hann var fæddur 1823. Kona hans var Sig- ríður Einarsdóttir frá Saltvík á Tjörnesi, fædd 1819. Þeirra börn vom Vilhjálmur, fæddur 1846, Svava, fædd 1854, og Þórhallur, fæddur 1855. Vilhjálmur ólst að mestu upp hjá afa sínum, séra Halldóri Bjarnasyni, prófasti á Sauðanesi. Sextán ára að aldri hóf hann smíðanám hjá Tryggva Gunnars- syni, timburmeistara á Hallgils- stöðum í Fnjóskadal. Að námi loknu, tók hann upp tvíþætt störf: stundaði smíðar á veturna, en hóf ræktunarstörf að vorinu og stjórnaði búi foreldra sinna að sumrinu. Þótti þá þegar sýnt, að hinn ungi prestssonur væri af- bragð annarra manna, þrekmikill, kappsamur til hvers konar starfa, logandi af fjöri, opinn fyrir fram- förum, góðgjarn og óádeilinn og lagði hverju góðu máli lið. Rúmlega tvítugur að aldri sigldi Vilhjálmur til Danmerkur, dvald- ist árlangt í Kaupmannahöfn og lagði stund á málaraiðn. Þegar heim kom, tók hann að stunda þess iðn til jafns við fyrri störf og málaði nokkrar kirkjur á Norður- landi, ein þeirra var Grímseyjar- kirkja. Árið 1872 gekk Vilhjálmur að eiga Sigríði Þorláksdóttur prests á Skútustöðum Jónssonar. Hún var fædd 1853. Nokkru síðar keypti séra Björn jörðina Kaupang í Eyjafirði og ungu hjónin fluttust þangað. Vilhjálmur hætti nú að mestu störfum út á við, en ein- beitti atorku sinni að búi sínu og heimili. Hann tók að byggja uþp á jörðinni, smíðaði allstórt timb- urhús og vönduð peningshús, stækkaði tún og hóf töðufall til muna. Kaupangur er talin góð jörð og ungi bóndinn færði út kvíarnar fneð ræktun og kom sér upp svo góðum fjárstofni, að S orði var haft. Vilhjálmur var fjörmaður og lagði oft saman nótt með degi, einkum við vorverk og heyannir. Á þeim árum sló hann dagsláttuna á rúmum sex klukkustundum, og þótti ekki heiglum hent að leika það eftir honum. Hann komst brátt í röð fremstu og gildustu bænda við Eyjafjörð og hlotnaðist sú viðurkenning að fá verðlaun úr heiðurssjóði Kristjáns konungs IX. En mitt í þessum blóma skeði sá atburður að hjónin í Kaupangi seldu eigur sínar og fluttust úr héraðinu. í stað þess að berast með straumnum til Vesturheims, héldu þau með fjórum börnum sínum suður að Kollafirði og sett- ust þar að á Rauðará, örreytiskoti austan Reykjavíkur. Börn þeirra voru Þóra, Halldór, Laufey og Þorlákur. 3. Rauðará var fornt býli, en hvorki stórt né nytjagott. Reykja- vík varð snemma stórbýli og bend- ir allt til þess, að á 10. öld hafi hún verið eitt af stærstu höfuðbólum landsins. I lýsingu Árna Magnússonar og Páls Vídalíns í jarðabók frá árinu 1703 segir að á Rauðará hafi verið fimm kýr, ein kvíga veturgömul, sex ær, fimm sauðir veturgamlir, tvö lömb og eitt hross. Engjar voru engar, en torfrista, stunga og móskurður nægjanlegur í heimalandi. Fjörugrasatekja lít- il. Rekavon lítil. Hrognkelsafjara lítil mjög. Skelfiskafjara næstum engin. Murukjarna, bjöllur og þess konar má finna, ef vill. Heimræði er árið um kring, en langræði mik- ið. Kvaðir eru þó ýmsar og á þess- ari litlu og kostarýru jörð: Manns- lán um vertíð, dagslættir tveir til Viðeyjar. Hríshestar tveir heim til Bessastaða. Hestlán einn dag til að flytja Viðeyjar-eldiviðartorf af þerrivelli til skips. Skipaferðir, þegar Bessastaðamenn kalla. Hey- hestur einn til fálkanna, síðan þeir sigldu í Hólminn. Og þó var ekki allt upptalið. Það var vorið 1893 að Vil- hjálmur Bjarnarson keypti þessa jörð af Schierbeck landlækni fyrir 4500 krónur. Vilhjálmur var þá 47 ára að aldri og Sigríður, kona hans, stóð á fertugu. Jörðinni fylgdi landsvæði, um 30 dagsláttur alls, en mestur hluti þess var óræktaður, nema túnið, sem í bestu nýtingu gaf af sér eitt hundrað hesta eða tæplega það. Kringum túnskikann voru mýra- drög og fúafen, en annars staðar blásinn melur eða klapparholt. Lítið steinhús var á Rauðará, þegar Vilhjálmur og Sigríður sett- ust þar að. Bakvið það var gamall bær og fornfálegur. Goshóll var norðan við túnið, þar var grásteinsnáma. Þar sat löngum Magnús steinsmiður og klauf grjót í legsteina. Fyrir neð-. an Goshól var Gvendarbrunnur. Þar var grjótruðningur, er líktist dys. Ágætt drykkjarvatn spratt þar upp. Mótak átti Rauðará aust- ur í mýri, þar sem nú er Nóatún. Af hlaðinu sá stök og smá býli í átt til bæjarins. Leiðin ofan úr sveitum til Reykjavíkur lá talsvert sunnar, en annar vegur frá bæn- um lá með sjónum inn að Rauðará og Laugarnesi. Þessi stígur fyrir ofan fjöruna var kallaður ástar- brautin. Þar var fáförult „inn á Hlemm". En Hlemmur var brúin á Rauðarárlæknum, þar sem hann fellur til sjávar. Þessi lækur átti upptök sín í dýjadrögum inn við Kringlumýri. Þar seytluðu vætl- urnar 1 vesturátt. Og í drögunum norðan öskjuhlíðar sameinuðust þær öðrum vætlum og mynduðu svolítinn læk, þegar dró niður í Norðurmýrina. Þaðan hallaði svo til fjarðarins. Þar heitir nú Hlemmtorg. 4. Greinarhöfundur hefur áður skrifað um Rauðarárævintýrið. Verður hér birt orðrétt lýsing úr þeim skrifum: „Bóndinn á Rauðará varð þess brátt áskynja, að hér þurfti víða höndum til að taka. Hann var kominn í nýtt landnám, stóð í þýfðu túni, sem teygði skækla út í óræktina, og þegar til kom, var jörðin ekki nema smáskák, miðað við það land, sem hann hafði áður fórnað kröftum sínum. Hann greip torfristuljáinn hverju sinni, er tóm gafst til, og tók að slétta þúfurnar í túninu. Linnti hann ekki, fyrr en túnið var orðið slétt til allra átta, svo langt sem það náði. Þá tók hann að færa Sigrún S. Bjarnar túnið út, eftir því sem föng voru á, vakti upp grjót og sléttaði yfir, en hlóð vallarfarið úr hnullungunum. Hann sótti mold langar leiðir í hjólbörum og myndaði jarðveg, þar sem þunnt var á klöppunum. Og forarfen ræsti hann fram og fyllti upp. Hann sýndi að hann var jarðræktarmaður, svo að þess voru fá dæmi, vann sem ungur væri og var sífellt með ný verkefni á prjónunum. Þannig stækkaði túnið ár frá ári, en jafnframt fann hann nauð- syn þess að fá meira olnbogarúm. Þar í kring var landinu skipt í stykki, sem ýmsir embættismenn í Reykjavík áttu. Þar austur af Rauðará var Hagastykki, síðan Jónsjenssonarstykki, og enn aust- ar var jarðarskikinn Fúlatjörn. Schierbeck landlæknir átti Rauðará, svo sem fyrr er sagt frá, Jón Jensson yfirdómari átti vit- anlega Jónsjenssonarstykkið, og Halldór Danielsson átti Fúlutjörn. Svo komu aðrir menningar- frömuðir og menntamenn til að fala þessi stykki. Þannig var það til dæmis með lögfræðinginn Ein- ar Benediktsson skáld. Hann lang- aði til að eignast Fúlutjörn og bað bæjarfógetann að selja sér skik- ann. Þetta ætlaði bæjarfógetinn að gera. Þegar samningarnir um þetta voru tilbúnir, svo að ekki var eftir annað en að skrifa undir, seg- ir Einar: - Þetta er eiginlega afleitt nafn, það verður að slá af verði á jörð með svona Ijótu nafni. Halldór Danielsson þykktist við af þessari athugasemd, og mælti: - Jæja, þá skulum við láta það vera aiýskrifa undir. Og þar við sat. Þetta atvik varð til þess, að Halldór bæjarfógeti bauð Vil- hjálmi á Rauðará Fúlutjörn til kaups. Vilhjálmur hugsaði sig ekki lengi um og festi samstundis kaup á jarðarpartinum. Börnum Vilhjálms fór líkt og Einari Benediktssyni. Þeim þótti nafnið óviðfeldið og tóku að kalla þennan nýja landauka Lækjar- bakka. En Vilhjáimur var á öðru máli. - Mér þykir nú eins vænt um að kalla það Fúlutjörn, sagði hann, - því að einmitt fyrir nafnið fékk ég landið. Þorlákur V. Bjarnar Bóndinn á Rauðará lét ekki þar við sitja með jarðarkaupin. Áll- mikið erfðafestuland festi hann sér til viðbótar og fékk sér það mælt út hjá bæjarstjórn. Þar að auki keypti hann slægnaland upp við Elliðavatn, og færði nýræktina út jafnt og þétt.“ 5. Vilhjálmur bóndi átti því láni að fagna, að öll fjölskylda hans var honum samhent við búskap- inn. Þó ber einkum að nefna Þor- lák, son hans. Hann hafði frá unga aldri fyrir norðan verið þátttak- andi í búskapnum á Kaldbak og var rúmlega tvítugur að aldri, þegar fjölskyldan fluttist að Rauð- ará. Upp úr aldamótunum voru börnin komin á manndómsár og héldu sínar leiðir út í lífið. Þóra, sem var elst barnanna, fluttist norður og giftist Stefáni Jónssyni á Munkaþverá í Eyjafirði, Halldór fór utan og lærði búfræði, varð síðar skólastjóri á Hvanneyri. Hann var kvæntur Svövu Þór- hallsdóttur, frændkonu sinni, Laufey giftist Guðmundi Finn- bogasyni, landsbókaverði, og Þor- lákur kvæntist eftir lát föður síns, árið 1919, og gekk að eiga Sigrúnu Sigurðardóttur frá Flóagafli í Árnessýslu. Þorlákur var hinn efnilegasti maður, skýr og greinagóður, hneigður til rannsókna og áhuga- samur við ræktunar- og önnur búnaðarmál. Hann vann með föð- ur sínum að öllum framkvæmdum og tók snemma að skrifa hjá sér athuganir um líf húsdýranna og draga þar af lærdóma um búnað- inn. Hann leitaðist við að finna á hvern hátt væri hagkvæmast að nytja bústofninn. Birti hann skýrslur um þetta í Búnaðarrit- inu. Upp úr aldamótunum sendi Vilhjálmur Þorlák son sinn í land- búnaðarskóla í Danmörku. Þegar Þorlákur kom heim að námi loknu, tók hann við bústjórn á Rauðará. Haft var eftir Vil- hjálmi, að sá námskostnaður hefði komið inn á einu ári. - Kýrnar bættu því meira við sig, sem betur var kunnað með þær að fara, sagði hann. Búskapur þeirra feðga á Rauð- Kauðará

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.