Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.12.1981, Blaðsíða 11
. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 43 um okkar, heldur en þeim sem stóru þjóðirnar nota til hjálpar eyjarskeggjum. Þar er víst allt svo laust í reipunum, þar skapast engin persónuleg tengsl og öllu er tekið sem ölmusu. Með okkur geta þeir séð, að þeir geta gert allt þetta sjálfir og að þeir geta bjargast." Þú hefur ekki lent í neinum erfiðleikum? „Nei, ég held mér sé óhætt að segja, að engir erfiðleikar hafi verið það miklir að taki að nefna þá. það var ekki nema með smá- vægilegar vélarbilanir, því eins og ég sagði áðan, þá eru smávægi- legar biianir á íslenskan mæli- kvarða rosalegar hörmungar þarna úti. Svo er mikill vatns- skortur á eyjunum og stundum komumst við ekki frá bryggju vegna þess að okkur vantaði vatn í túrinn. Á Sao Vincente er allt neyzluvatn eimað. Það, sem kannski helst háði okkur, var að við kunnum ekki portúgölsku og ég held, að það sé nauðsynlegt að þeir sem fara í svona túra, læri eitthvað hrafl í viðkomandi máli. En þarna var indælt fólk og gam- an að skipta við það.“ Hvernig er veiðum þeirra hátt- að? „Þær eru þríþættar. í fyrsta lagi eiga þeir þrjá stóra túnfisk- veiðibáta, sem eru raunar orðnir 18 ára gamlir. Þá átti í fyrstu að * nota sem nótaveiðibáta, en það tókst ekki að veiða í þá með nót, vegna þess að þeir voru ekki hannaðir til þessháttar veiða. Innfæddir veiða því á þessum bátum túnfisk á stengur fjóra mánuði ársins. Þá raða sér 18 menn á lunningu og þeir hafa veitt allt upp í 30 tonn á sólar- hring af túnfiski. I öðru lagi eru þeir með minni báta, 15 metra langa eða svo, og nota þá til nótaveiða á mjög frumstæðan hátt. Til dæmis er snurpað á höndum, það er, hringnótinni lokað með handafli. Á þá báta veiða þeir aðallega smáfisk sem er notaður í lifandi beitu af túnfiskveiðimönnunum, en það sem umfram er, fer á markað. Þessar veiðar fara fram upp við landsteinana. í þriðja og síðasta lagi róa þeir út á opnum árabátum, með seglbúnaði að vísu. Bátarnir eru eins og litlar íslenskar gráslepputrillur að stærð eða minni, en á þessum bátum sækja þeir 15 til 20 mílur út og fiska á færi. En veiðin er ekki mikil. Hjá 17 svona bátum var aflinn eftir einn góðan dag ekki meiri en 250 kíló samtals." Værir þú til í að fara i svona langan túr aftur, ef þér byðist það? „Ja, hvers vegna ekki? Þá væri ég betur undir það búinn en ég var áður. Nei, ég veit ekki hvað tekur við hjá mér núna,“ sagði Halldór Lárusson, skipstjóri á Bjarti, að lokum. „Krakkar mínir komióþiósæl,, Jólasveinninn er loksins mættur á staðinn eftir erfiða ferð af fjöllum. Og hann leikur á alls oddi í Blómavali um helgina. Sveinki verður í jólatréskóginum og sýnir krökkunum jólaskreytingamar og jóla- skrautið. Pað er meira að segja hægt að fá hann til að velja með sér jólatréð. Komið við í Blómaval, heilsið upp á Sveinka og skoðið mesta úrval landsins af trjám og jólaskreytingum. Qdýr jóla-pq mjársferó til hanaríeqja “‘“tsís OPIÐ í DAG LAUGARDAG KL. 10-16 Eigum óráöstafaö um 20 sætum af 150 sem flugvélin tekur. Þrjár íbúöir, tvær smáíbúöir, 3 herbergi á fjögurra stjörnu hóteli. Beint jólaflug í sólina. ~ Fluqferöir_____________________ AirtourIcéfai0 Miöbæjarmarkaöinum, 2. hæö, Aöalstræti 9. Sími 10661.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.