Morgunblaðið - 12.12.1981, Side 10

Morgunblaðið - 12.12.1981, Side 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 Flugleidir hefja Gautaborgarflug á nýjan leik í vor FLUGLEIDIR munu á ný hefja flug til (iautaborgar í vor og er ákveðið, að frá og með sumaráætlun fljúgi þotur Flugleiða tvær ferðir í viku. Flogið verður á fimmtudögum og sunnudögum. — íslenzkt flug á sér langa sögu til Gautaborgar. Loftleiðir hófu þangað flug árið 1953 og héldu áfram Gautaborgarflugi til 1971. Flugfélag íslands hóf litlu síðar flug til Gautaborgar og eftir stofnun Flugleiða 1973 var fluginu haldið áfram þar til fyrir einu og hálfu ári, er félagið neyddist til samdráttar af ýmsu tagi. Gauta- borgarflugi var þá frestað um sinn, segir m.a. í frétt frá Flug- leiðum. Þá segir, að sem fyrr hefjist Gautaborgarflugið að nýju í byrj- un apríl nk. Mikill fjöldi íslend- inga býr í Suður-Svíþjóð og auð- veldar beint flug til Gautaborgar þeim samband við heimalandið. Ennfremur flýgur nú vaxandi fjöldi farþega frá Svíþjóð til ís- lands og þaðan áfram til Banda- ríkjanna með Norður-Atlants- hafsflugi félagsins. Endurupptaka flugs til Gautaborgar er því m.a. einn þátturinn í að undirbyggja og styrkja Norður-Atlantshafsflug Flugleiða. Allri starfsemi Flug- leiða í Svíþjóð er stjórnað frá Stokkhólmsskrifstofu félagsins, sem er að Humlegaardsgatan 6. Rækjusjómenn á ísa- firði og Bolungarvík: Samþykkja hugmyndir um kvótaskiptingu RÆKJUSJÓMENN á í.safirði og í Bolungarvík hafa orðið ásáttir um hugmyndir um kvótaskiptingu vegna rækjuveiða á ísafjarðardjúpi, sem hafnar eru fyrir nokkrum vikum. Eru hugmyndir þessar nú til um- sagnar í sjvarútvegsráðuneytinu, sem ákveður endanlega hugsanlega skiptingu. Ekki mun hafa náðst fullkomin samstaða meðal sjómanna um kvótann, eins og gerðist á sl. vetri, en 75% fundarmanna voru fylgj- andi henni og 25% andvígir. Mis- munur á hæsta kvóta og hinum lægsta er 15 tonn og er aflanum skipt á bátana eftir stærð þeirra. Halldór Lárusson, skipstjóri á Bjarti, í brúnni með Capo Verde-búanum sem kom með honum til íslands, Júlíó Eduardo Soares Goto. „Þeir eiga eftir að búa að þessu alla æyiu — segir Ilalldór Lárusson skipstjóri á Bjarti sem er nýkominn heim frá Grænhöfðaeyjum þar sem hann kenndi nýtísku fiskveiðar Aðfaranótt fjórða desember sl. sigldi inn að Hafskipsbryggju úti á Granda skipið Bjartur, en það hefur verið í eitt og hálft ár erlendis við eyjarnar ('apo Verde, eða Græn- höfðaeyjar. Eyjarnar eru 300 mílur vestur af Senegal í Afríku og 1000 mílur sunnan af Kanaríeyjum, en þar var Bjartur og áhöfn hans á vegum Þróunarstofnunar íslands í þeim tilgangi að kenna sjómennsku og nýjustu fiskveiðar, leita að mið- um fyrir innfædda og standa að rannsóknum á hafsvæðinu í kring- um eyjarnar. Það var í maí 1980, sem Bjartur hélt utan og átti hann í fyrstu að vera í 15 mánuði, en það dróst í 18 mánuði. Blaðamaður Mbl. hitti að máli skipstjórann á Bjarti, Halldór Lárusson, daginn eftir heimkom- una og spurði hann að því fyrst, hvort hann væri ekki feginn að vera kominn heim til íslands. „Ég er ekki alveg,“ sagði Hall- dór, „búinn að átta mig á því enn- þá að ég er kominn, og ég er til dæmis snarruglaður í krónunni íslensku. Er enn í þeirri gömlu. Nei, ég hef ekki verið svona lengi úti áður og var mest í fimm mán- uði áður, þá í Norðursjónum. Ég kunni ágætlega við mig á Capo Verde-eyjum, enda býr þar hreint indælisfólk og harðdug- legt, en því vantar bara tækifær- in til að nýta sér þau. 80 prósent af því sem þeir lifa á, er innflutt- ur varningur. Þarna búa um 350.000 manns en annað eins býr erlendis, mikið á Norðurlöndun- um, og þeir senda peninga heim til fólksins síns, sem eru afskap- lega vel þegnir og koma í góðar þarfir, því á eyjunum ríkir geysi- mikil fátækt. Þeir voru 14, Capo Verde-bú- arnir, sem voru um borð. Einn þeirra kom þó með Bjarti til ís- lands. Hann var vélstjóri allan tímann meðan á rannsóknum stóð og hann vonast til að komast í skóla eða í vinnu hérna á ís- landi. Hann heitir Júlío Eduardo Soares Goto.“ Hvernig reyndist báturinn til þessara rannsókna og veiða? „Þessi bátur er ekki heppilegur fyrir þessar veiðar. Það er fyrst og fremst vegna þess að í honum er aðeins bráðabirgðaútbúnaður fyrir trollveiðar, en það kom fljótlega í ljós, að togveiðar gáfu einmitt bestu raunina. Svo er Bjartur ekki gerður fyrir heitt loftslag og vélarrúmið var oft eins og bakarofn. Bjartur er byggður fyrir kaldara loftslag. Kælibúnaðurinn var ekki nógu góður fyrir þessa breiddargráðu. 8 báturinn er líka orðinn gam- all, 16 ára, og allt viðhald þarna niðri frá rosalega lélegt og illmö- gulegt að fá þar nokkra varahluti. I þeim efnum gengu hlutirnir ekki fyrir sig með íslenskum hraða. Þar var ailt miklu rólegra. Það, sem maður gæti gert við bát- inn hér á landi í helgarfríinu sí- nu, tók mánuð að gera á Capo Verde-eyjum. Ég hugsa að það hefði verið heppilegra að vera með nýjan bát í þessu, sem örugg- ara væri með að gengi slysalaust í langan tíma og bát sem væri með fullkominn togveiðiútbúnað. Það kom innfæddum á óvart hvað gat fiskast í trollið." Varð þeim þessi innsýn í fisk- veiðar eins og þær gerast bestar mikið til gagns? „Já, ég held, að þeir sem voru með okkur á skipinu allan tím- ann, eigi eftir að búa að þessum lærdómi alla sína ævi. En tíminn sem fór í þetta, þó manni finnist hann kannski núna vera langur, hefði eflaust mátt vera mun lengri. Helmingi lengri eða meira, því maður er svo lengi að koma sér inn í þann hugsunar- hátt sem þarna ríkir og kerfi. Ég held það sé stefnt að því, eftir sem ég best veit, að lengja tím- ann.“ Geturðu sagt í örstuttu máli hvernig svona þróunaraðstoð fer fram? „Báturinn þarf að byrja á því að koma sér fyrir, við vorum á Sao Vincente-eyju. Þá þarf að ráða mannskap um borð, en það er gert í samráði við ríkisfyrir- tæki á Capo Verde-eyjum. Svo er farið út að veiða og reyna fyrir sér með veiðarnar. Kenna á tæki og þó maður lenti kannski á góðri fiskislóð, þá var maður ekki þar allan tímann og fyllti bátinn, það var ekki málið að græða peninga. Það var frekar reynt að fara sem viðast og rannsaka sem mest. Um borð voru þrír reyndir sjómenn, af fraktskipum að vísu, og tveir sem höfðu verið á sjóvinnunám- skeiði um skeið í Portúgal. Hinir voru nemar frá 16 til 23 ára ald- urs. Þessir menn fara nú á eyj- arnar og miðla þeim fróðleik sem þeir söfnuðu um borð í Bjarti." Er miklu áorkað, heldur þú, með svona tegund af þróunar- aðstoð? „Mér skilst, að þeir sjái miklu meiri árangur af þessum aðferð- Halldór ásamt nokkrum Capo Verde-búum sem voru með honum á Bjarti í eitt og hálft ár. PETUR *ÐTt=;l OSKABOK HESTAMANNA1AR Bókin ,,Að temja'' eftir Pétur Behrenser ætluð öllum þeim er með hesta fara. Pétur fjallar á greinargóðan hátt um samskipti manns og hests, alla þætti tamninga og bendir á margt til bóta Bókin ,,Að temja" er mjög vönduð og ríkulega skreytt myndum Að undirbúningi bókarinnar vann með höfundi Jón P. Þórðarson tamningamaður. Einar Höskuldsson á Mosfelli skrifar inngangsorð ,,Að temja'' er tvímælalaust bók hestamanna í ár, ungra sem aldinna, og allra þeirra sem vilja umgangast og meðhöndla ung hross af alúð ,,Að temja'' fæst í bókabúðum um land allt. Hægt er að panta hana hjá _ skrifstofu Eiðfaxa í síma 91-25860 og verður hún þá send um hæl ^- _____ _____í-.jísSs.'*'15 Pósthólf 887. Simar 25860 BC*'*6 .«.iQaíöay- og 85111 Reykjavik. \ - ^aQ, - nýbók ITEIÐFAXI FRÁ EIÐFAXA .. Grásleppuhrognaframleid- endur í Stykkishólmi: Oskirnar um veiðistöðvun misráðnar Stykkishólmi 3. desembcr. í GÆRKVÖLDI komu grásleppu- hrognaframleiðendur í Stykkishólmi allir saman á fund hér til að ræða um hagsmunamál sín. A fundinum kom fram hörð gagnrýni á stjórn og fram- kvæmdastjóra grásleppuhrogna- samtakanna. Fundurinn taldi, að umræður eða óskir um veiðistöðvun á síð- asta sumri hefðu verið misráðnar. Þá taldi fundurinn, að bygging stórrar kæliskemmu í Reykjavík væri vafasöm og lagasetning í því sambandi nú á Alþingi þyrfti lengri undirbúning og því ekki tímabær. FrétUriUri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.