Morgunblaðið - 12.12.1981, Side 28

Morgunblaðið - 12.12.1981, Side 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 „Ég skaI elda qoba. þríréttaba mál- tíéi rne&cxr\ d naesto. OuCilúsii^Qatima siendurT ást er... ... að taka upp á sjónband eftirlœtis- þáttinn hennar á meban hún er í saumaklúbbi. I TM Rac U.S. Pat. Otf.-all rlghts resarwd | c 1961L0S *rm«l«s Timas Syndicate Jæja. I>ú hefur enn einu sinni vökvað leynilögguna nkkar! Ég verð að skila þessum páfagauki aftur því hann skrækir sífellt: Því ekki að fá sér einn gráan! HÖGNI HREKKVÍSI Í71TÍ1 {i y \ l \f Altari himingeimsins: Hugsun Mary Long sú sem ég sagði Þorstcinn Guðjónsson skrifar: „Arni L. Jónsson segir í grein sinni í Velvakanda 9. des. („Meira um „Altari himingeimsins““), að í grein í Science Digest (Vísinda- legt úrval) nóv. 1981 sem ég hafði sagt frá nokkrum dögum áður, leggi Mary Long ekkert til um „altari himingeimsins" (1), — að mynd sú af slíku altari, sem ég vona að Velvakandi geti birt (þó að hún njóti sín varla til fulls nema sem litmynd) sé ekki eftir Mary Long sjálfa (2), né heldur sé í greininni talað um forneskju- legar og trénaðar trúarhugmynd- ir (3). Ennfremur segir hann að greinin sé að mestu saman sett úr viðtölum við sérfræðinga, og skil ég það þannig hjá honum að hann telji að höfundurinn leggi lítið eða ekkert til mála sjálf (4). Þessi atriði hefur hann til marks um það að í grein minni sé „hallað réttu máli“ og að ég hafi haft eft- ir Mary Long „ýmislegt sem hún hefur aldrei sagt“. — Þessum at- riðum hans vil ég svara þannig: 1. og 2. Myndin eftir Jeffrey Schrier er heilsíðumynd við hlið fyrirsagnar og upphafsgreinar Mary Long og er þannig hluti af greininni sjálfri. Undir henni (til hliðar) stendur: ALHEIMURINN. Stjörnufræðin hefur gert jarðmiðju- hugarfarið að engu. Efnissprenging- in mikla (fyrir um 15 milljörðum ára) hefur blásið mönnum í brjóst geimrænni útgáfu af sköpunarsög- unni.“ Altaristafla þessi er sem- sagt nefnd Alheimurinn. Það verður því varla sagt að ég hafi farið langt frá hugsuninni í máli og boðskap Mary Long, þegar ég nefndi altari himingeimsins. 3. I undirfyrirsögn greinarinn- ar, sem væntanlega er samin af sama höfundi og greinin í heild, segir: „Trúarbrögð framtíðarinn- ar munu verða eins ólík hug- myndakerfum fortíðarinnar (ekki „nútíma trúarhugmyndum" eins og A.L.J. segir) og geimskutlan er ólík örkinni hans Nóa.“ Betur verður varla gefið til kynna, að ýmsar trúarhugmyndir séu trén- aðar orðnar, en að kenna þær við timbrið í Örkinni. Ég held mig því við það að hugsun Mary Long hafi verið sú sem ég sagði. Hitt er rétt, að ég hnýtti við aukasetn- ingunni um uxana, sem ekki eru heimspekingar — þar átti ég við þessa sem ætla að stíga upp úr moldinni í Fossvogi og á Korp- úlfsstöðum á dómsdegi. Meira um „Altari himingeimsins“ Arai L Jómmm skrifar: „Þorsteinn Guðjónsson er með smápistil I Velvakanda fOstudag- inn 4. des. undir fyrirsOgninni „Altari himingeimsins*. og segir hann þar frá grein sem hann hef- ur „lesið* i tímaritinu „Science Digest* (nóvemberhefti). Grein þessi heitir „Vision of a new faith* eða trú 1 sjónmáli* og er eftir Mary Long. Ég vil leyfa mér að gera nokkr- ar athugasemdir vió þessi skrif Þorsteins. bvi að hann hallar miði aðhæfa trúarbrögðin nýjustu Uekni og vfsindum, skuli hafa komist að þeirri niðurstððu, að uppkastið að trú framtiðarinnar gæti komið úr fortiðinni. (A model of religion of the future may come from the past.) Lítil er trú þin, kona! Þorsteinn segir i pistli sínum. orðrétt „Hugmyndin um alUri hfmingeimsins er of góð til þess að segja ekki frá henni. Vandinn er aðeins sá, hvar á að byrja “ ÞetU er líka skáldskapur hjá lAltari [himin- f geimsins? .1 linunUsu Jcwnca I ««|- I Vi«ind.l«ft úrv«l>, m I ">>«« «o»l lim.ru. n4v«n ■ wrti. »r frrm «flir M«ry I I ». áulur «i*i.,k. I minni f«cn««r1 «llwiim I « |wir byB). K«n.ir Mn J » 'oriuwkiuUnm « UM-i n tnj.rhufmyndum. wm 1 I ilpuK >•' «rm luttur torWáiuf m„ Iminnir á þr.ulir Afengi skal í Breidhylt- inga nauðuga viljuga Bolla-bolla: Vel gerður unglinga- þáttur Grímsi skrifar: „Velvakandi. Þegar ég hlustaði á útvarpið á miðvikudagskvöldið síðasta, vakti athygli mína unglinga- þátturinn „Bolla-bolla“. Hann kom eins og frelsandi engill, með skemmtilega músík, mitt á milli tveggja níðþungra sin- fóníuþátta. Mér finnst þessi unglingaþáttur vel úr garði gerður og eiga stjórnendur þakkir skilið. Þátturinn byggðist ekki á eintómum kjaftagangi þeirra, eins og of oft vill brenna við. Má ég biðja um meira af svona hressilegheitum. Slíkir þættir lífga mann við í þessum erfiða heimi.“ Vínsölu- húsa- menning? Broddvei trónar í Breiðholtinu. Bráðum er von á Áfenginu; situr þá fólk við sumbl og skál. Bruna nú allir breiða veginn — borgarstjórnin er afar fegin: þetta eru hennar menntamál. 10.12. Á.H. Kristinn Vilhjilmsson skrifar: „Þá hefur það verið gert lýðum ljóst að bygginganefnd Reykjavíkur hefur leyft Áfengisversluninni að reisa sölubúð í Breiðholtshverfi. — Að sjálfsögðu eru bygginganefndir til margra hluta nytsamlegar en að fela þeim umsjón með dælustöðvum hins löghelgaða vímuefnis íslend- inga er frumlegra og snjallara en svo að nokkrum hefði dottið það í hug öðrum en borgarstjórn Reykjavíkur. Snillingunum þar hefur tekist að fjölga þeim sérstæðu og bráðnauð- synlegu menningarstofnunum, sem kallast vínsöluhús, um 100% á ör- fáum árum. Síðasta afrekið var að leyfa opnun „Breiða vegarins" með átta börum. Hvað varðar snillinga um hinn mjóa veg? Enda linnir ekki bar-smíðum í borgarstjórn. En ekki skal láta þar við sitja. Breiðhyltingar skulu fá sína áfeng- issölubúð hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þessi blettur, þar sem sam- an eru komin á einum stað fleiri börn og unglingar en annars staðar á landi voru, skal ekki missa af tvö- faldri blessun áfengisauðvaldsins. Auðvitað kemur borgarstjórn Reykjavíkur ekkert við að nágrann- ar okkar á Seltjarnarnesi höfnuðu fyrir skemmstu í almennri atkvæða- greiðslu þjónustu ÁTVR meö geysi- miklum atkvæðamun. Breiðhylting- ar fá sjálfir ekki að ráða neinu um þetta mál. Það gæti farið svo að þeir höfnuðu forsjá bygginganefndar og sjálfrar borgarstjórnar. Þess vegna er öruggast að láta bygginganefnd ráða. Hver var annars að tala um valddreifingu? Og auðvitað varast borgarstjórn að leita álits áfengisvarnanefndar sem á þó lögum samkvæmt að vera henni til ráðuneytis um mál af þessu tagi. Það gæti nefnilega verið að nefnd sú hefði einhverja nasasjón af tilmælum Alþjóðaheilbrigismála- stofnunarinnar varðandi dreifingu áfengis. Borgarstjórn og dómsmála- ráðuneyti hafa nefnilega um árabil stefnt í þveröfuga átt við þá leið sem þessi stofnun Sameinuðu þjóðanna vísar. En að sjálfsögðu vita snill- ingar og atkvæðasmalar betur en al- þjóðlegar sérfræðistofnanir. Og svo náttúrulega bygginganefnd."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.