Morgunblaðið - 03.02.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.02.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1982 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Á vettvangi. Stjórnandi þátt- arins: Sigmar B. Hauksson. Samstarfsmaður: Arnþrúður Karlsdóttir. 20.00 Nútímatónlist. I'orkell Sig- urbjörnsson kynnir. 20.40 Bolla, bolla. 21.15 Einsöngur í útvarpssal. Frid- björn G. Jónsson syngur lög eft- ir Jón Laxdal, Jónas Frið- bergsson, Gunnar Thoroddscn, Eyþór Stefánsson, Sigvalda Kaldalóns og Karl O. Runólfs- son. Guðrún A. Kristinsdóttir leikur med á píanó. 21.30 Útvarpssagan: „Seiður og hélog“ eftir Ólaf Jóhann Sig- urdsson. Þorsteinn Gunnarsson leikari les (5). 22.00 Franki Valli, John Travolta o.fl. syngja og leika lög úr kvikmyndinni „Grease“. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 íþróttaþáttur Hermanns Gunnarssonar. 22.55 Kvöldtónleikar. „Constort- ium Classicum“-flokkurinn leikur. a. Tríó í a-moll op. 114 eftir Jo- hannes Brahms. b. Sextett eftir hans Pfitzner. (Hljóðritun frá útvarpinu í Bad- en-Baden.) 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKl'DAGIJR 3. febrúar 18.00 Barbapabbi Endursýndur þáttur. 18.05 Bleiki pardusinn Tíundi þáttur. Bandarískur teiknimyndaflokkur. l’ýðandi: Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.25 Furðuveröld Fjórði þáttur. Bjarndýr — Kon- ungur óbyggðanna. hýðandi: Óskar Ingimarsson. 1‘ulur: Kristján R. Kristjánsson. 18.45 Ljóðmál Fjórði þáttur Enskukennsla fyrir unglinga. 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Vaka í þcssum þætti verður fjallað um vamtanlega viðburði í tón- ILstarlífínu. Umsjón: Bergljót Jónsdóttir. Stjórn upptöku: Við- ar Víkingsson. 21.05 Fimm dagar í desember Annar þáttur. Sænskur fram- haldsmyndaflokkur í sex þátt- um um mannrán og hcrmdar- verkamenn. hýðandi: hrándur Thoroddsen. 21.45 Stiklur Endursýning Sjötti þáttur. Börn náttúrunnar. Endursýndur þáttur frá 25. des- ember. 22.45 Dagskrárlok Bolla, bolla kl. 20.40: Ungl- ingar og músík Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.40 er „Bolla, bolla“ — þáttur með léttblönduðu efni fyrir unglinga. Stjórn- endur eru Sólveig Hall- dórsdóttir og Kðvarð Ing- ólfsson. „Gestir vikunnar eru að þessu sinni Hildur Ei- ríksdóttir, sem sér um Lög unga fólksins og Páll Þorsteinsson. Við ætlum að reyna að etja þeim dá- lítið saman,“ sagði Sólveig, er Mbl. innti hana eftir efni þáttarins. „Við mun- um ræða við þau um störf þeirra hjá útvarpinu og einnig verður rætt um unglinga og músík, hvers konar tengiliður hún er meðal unglinga. Svo verður fluttur annar hluti framhaldssögunnar, sem byrjaði eftir áramót, — hún er samin af hlust- endum og höfum við fengið þó nokkuð af bréfum í sambandi við hana. Loks munum við fjalla dálítið um próf, við höfum rætt við nokkra krakka um tilgang prófa og munum fjalla um próf frá ýmsum sjónarhornum." Húsavík: Vel heppn- aðir tónleik- ar Tónlist- arskólans llúsavík, I. fehrúar. KENNARAR Tónlistarskólans á Húsavík efndu til tónleika í Húsavíkurkirkju í gær. Voru flytjendur þessir: Hólmfríður Benediktsdóttir, sem söng einsöng, Kristín Th. Gunnarsdóttir lék á fiðlu, David Roszoe lék á píanó og Ulrik Olason, skólastjóri Tón- listarskólans lék á orgel. Efn- isskráin var fjölbreytt og góð- ur rómur gerður að flutningi listafólksins. Fréttaritari Á dagskrá sjónvarps kl. 18.25 er fjórði þáttur „Furðuveraldar“ og er þar greint frá bjarndýrum og lífsháttum þeirra. Sjónvarp kl. 18.25: Bjarndýr — Kon- ungur óbyggðanna Á dagskrá sjónvarps kl. 18.25 er fjórði þáttur „Furðuveraldar" og nefnist hann „Bjarndýr — Konungur óbyggðanna". Þýð- andi er Oskar Ingimarsson og þulur Kristján R. Kristjánsson. I þættinum er fjallað um hinar fjölmörgu tegundir bjarndýra sem lifa víða um heim — allt frá heimskauti til hitabeltis. Sýndir eru lífshætt- ir bjarndýra og gerð grein fyrir þeirri hættu sem mönnum stafar af sumum tegundum. Þá er einnig greint frá tömdum bjarndýrum sem sýna listir sínar í þessum þætti. Sjávarútvegur og siglingar: Stiklað á atriðum er varða sjávarútveginn Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.30 er þátturinn „Sjávarútvegur og siglingar** í umsjón Ingólfs Arnar sonar. „I þættinum verður stiklað á nokkrum atriðum og má segja að þau séu sitt úr hverri áttinni. Öll þessi atriði tel ég áhugaverð fyrir þá sem láta sig einhverju varða málefni sjávarútvegsins,” sagði Ingólfur er Mbl. innti hann eftir efni þáttarins. „í máli mínu kemur m.a. fram að Norðmenn hófu veiðar í Barentshafi 12. janúar sl. og stefna þeir að 550 þús. tonna veiði. Þá kemur fram að Norðmenn veiddu rúml. 91 þús. tonn af loðnu á síðastliðnu sumri við Jan Mayen — og er það um 10 þús. tonnum meira en veiðikvóti þeirra leyfði en þenn- an afla veiddu þeir á einni viku. Með tilliti til þess að kolmunni er að verða mjög vinsæl fiskaf- urð til manneldis greini ég frá því að Færeyingar eru komnir í gang með stórframkvæmdir á þessu sviði. Þá verður fjallað um möguleika á stórframleiðslu í sambandi við fiskúrgang og bent á að í rækjuúrgangi, sem jafnvel er hent á hauga í þúsundum tonna, kunna að leynast miklir möguleikar fyrir okkur íslend- inga. Að lokum greini ég frá merkri tilraun sem gerð var fyrir mörgum árum um geymslu á fiski um borð í skipum og þar kunna einnig að leynast góðir möguleikar sem kæmu að gagni nú til dags. Ingólfur Arnarson A OLLUM HÆÐUM I TORGINU B4TN/4ÐUR Á AWA FJÖLSKYLDUN4 Austurstncti 10 sími: 27211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.