Morgunblaðið - 03.02.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.02.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1982 19 uppi um fjöll í leit að vikri. Guð- mundur Karl Pétursson, yfirlækn- ir á Akureyri, skar hann upp og tók úr honum 7 rif, í tveim aðgerð- um. En þar með var ekki öllu lok- ið. Hann fór til Noregs sumarið 1951 sér til lækninga. Var skorinn þar upp í sjúkrahúsi í Osló og þar var annað lungað fjarlægt. Eftir erfið veikindi þar ytra kom Sveinbjörn heim aftur og tók við fyrri störfum. En ekki var hans sjúkrasaga á enda. Árið 1964 veiktist hann enn á ný og þá kom- ur til kasta Snorra Hallgrímsson- ar prófessors, þess mæta manns. Hann skar burtu meinsemd í maga, sem tókst vonum framar. Þegar Guðlaug, tengdadóttir Sveinbjörns, hringdi til mín að kvöldi laugardagsins 23. janúar og tilkynnti mér að Sveinbjörn hefði veikst um nóttina og lægi nú á skurðarborði í Landakotsspítala, varð mér hverft við. Ég þóttist vita að alvara væri á ferð. Eftir tvo sólarhringa var hann allur. Nú fannst mér fokið í flest skjól. Heimili þeirra hjóna hafði um áratugi verið mér öruggt athvarf, ef eitthvað amaði að. Þar hafði ég einnig átt margar gleðistundir. Oft var ég þar daglegur gestur þegar þau áttu heima á Bárugötu 10, en þar var heimili þeirra fyrstu 10 árin í Reykjavík. Eg var þá til húsa að Sólvallagötu 12. Nú var þessu öllu lokið. Nokkru eftir andlát Sveinbjarnar talaði ég við konu, sem hefur þekkt hann frá því hann kom ungur maður frá Noregi. Ég spurði hana, er Sveinbjörn barst í tal, hvað henni hefði fundist mest áberandi í fari hans. Hún svaraði samstundis: Bara allt gott, ég hef aldrei kynnst betri manni. Undir þau orð vil ég taka, þegar leiðir skilja. Því eng- inn óskyldur hefur reynst mér og mínum nánustu betur en hann og fyrir það vil ég þakka. Sveinbjörn bar mikla umhyggju fyrir heimili sonar síns. Ekkert var ofgert fyrir hann og sonar- börnin. Hjá þeim var hugurinn til hinstu stundar. Þótt dagarnir væru oft erilsamir og hann gengi þreyttur til hvílu, er ég viss um að hann hefur aldrei látið hjá líða að biðja Guð að blessa allt sitt fólk. Um leið og ég sendi öllum ætt- ingjum hans innilegar samúð- arkveðjur, vona ég að góðar bænir hins látna heiðursmanns fylgi þeim í lengstu lög. I Guðs friði. Hulda Á. Stefánsdóttir í dag kveð ég Sveinbjörn Jóns- son, fyrrum forstjóra og til hinsta dags stjórnarformann Ofnasmiðj- unnar hf. Ég kveð hann með þeim trega sem ávallt fylgir þegar þeir sem yfir meðalmennskuna gnæfa, hverfa úr hópnum og skilja eftir sig skarð sem virðist svo ófyllan- legt við leiðarlok og við hugsum til alls þess sem hann hefði áorkað ef hann aðeins hefði mátt fylgja okkur nokkur spor enn, því þrátt fyrir árin, nær 86, var hugmynda- ríki og eldmóður brautryðjandans langt umfram flesta samtíðar- menn hans sem yngri voru að ár- um. Um leið og ég kveð Sveinbjörn, vil ég þakka þá gæfu að hafa feng- ið að ganga með honum síðasta spölinn og fá að kynnast stór- brotnum persónuleika hans og nema þá sögu af hans vörum sem nú verður að mestu að eilífu glöt- uð, sögu mikilla átaka, stórra sigra jafnt sem mikilla vonbrigða, en aldrei uppgjafar eða vonleysis, því Sveinbjörn var sú manngerð sem ekki lét bugast við mótlæti, heldur stæltist við hverja raun og var ávallt reiðubúinn til að vinna að hugmyndum sínum og hvergi banginn við fangbrögð svo ólíkra viðfangsefna, svo sem viðarheimtu úr Dumbshafi, beislun orku úr hrauni Heimaeyjar, vikurvinnslu á Snæfellsnesi, að ekki sé nefndur allur sá fjöldi verkefna sem hann vann að á sviði iðnaðarmála, og nú síðast draumurinn um nýtingu brotajárns í íslenskri stálbræðslu. Sveinbjörn Jónsson var löngu landskunnur maður, ekki eins og margir aðrir, fyrir hávaða á Sjá nánar bls. 22 NORDMENDE nordíDende FEBRÚAR-TILBOÐ frá kr.2000. — út og eftir- mánuðum Stærö Veró 14“ 8.280 20“ 11.900 22“ 12.500 27“ 14.500 Lágmarks Stgr. útborgun 7.866 2.000 11.300 2.500 11.875 3.000 13.775 3.500 stöðvar á litasjónvörp eru öll útbúin meö System kalt 3-kælikerfinu, sem eykur endinguna verulega. eru engin venjuleg tæki. Verslið í sérverslun með litasjón- vörp og hljómtæki. SKIPHOLTI 19 SIMI 29800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.