Morgunblaðið - 19.02.1982, Blaðsíða 11
HVAB ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1982 43
Grímudansleikur
Styrktarfélag vangefinna heldur grímu-
dansleik fyrir þroskahefta í Tónabæ laugar-
daginn 20. febrúar kl. 20—23.30. Skemmtiat-
riöi. Góð verölaun veitt fyrir bestu buningana.
Aögangur ókeypis.
í Norræna húsinu
Bandaríski cellóleikarinn Warren Stewart
heldur hljómleika í Norræna húsinu þ. 24.
febrúar kl. 20.30. Hr. Stewart stundar nám
viö einleikaradeildina á „Det Kongelige
danske Musikkonservatorium" í Kauþmanna-
höfn, og vinnur þar með próf. Erling Blöndal
Bengtson. Hann er útskrifaöur frá „The
Eastman School of Music", og hefur lært meö
Paul Katz og Laurence Lesser. Hann hlaut
styrk frá The George C. Marshall Scholarship
til náms í Danmörku.
Warren Stewart mun kynna dagskrá fyrir
cellóeinleikara, sem inniheldur svítu nr. 5 í
c-moll eftir J.S. Bach, nýtt verk eftir Karlheinz
Stockhausen með titilinn In Freundschaft og
aöra svítu Benjamíns Britten.
Celló-útgáfan af verki Stockhausens, sem
upphaflega var skrifuö fyrir klarinettu, varö til
úr samvinnu Stewarts og tónskáldsins í janú-
ar 1981. Áframhaldandi samvinna þeirra hef-
ur skapaö nýtt verk, einnig upphaflega ætlaö
fyrir klarinettu, meö titilinn Amour, sem enn
hefur ekki verið flutt opinberlega.
Sólarkvöld
í Súlnasal
Skemmtikvöld Samvinnuferða/Landsýnar
hefjast aö nýju í Súlnasal Hótel Sögu næst-
komandi sunnudag og veröa á hverjum
sunnudegi fram á sumar.
Þetta fyrsta sólarkvöld ársins veröur
sumaráætlun Samvinnuferða/Landsýnar
kynnt með nýjum feröabæklingi og frumsýn-
ingu kynningarkvikmynda, skemmtiatriöi
veröa aö vanda og aö sjálfsögöu spilaö
ferðabingó.
Matargestir á Sólarkvöldum í vetur eru
sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti þar sem
vinningur er sólarlandaferö fyrir tvo að verö-
mæti 20.000 kr. Dregið verður á lokahátíðinni
7. maí.
Næstu sólarkvöld: 28. febrúar Grikk-
landskvöld. 7. mars Riminikvöld. 14. mars
Rútuferðakvöld. 21. mars Danmerkurkvöld.
28. mars Torontokvöld. 4. apríl Júgóslavíu-
kvöld.
Rúrí
í Nýlistasafninu
Föstudaginn 19. febrúar veröur opnuö sýn-
ing á verkum eftir Rúrí í húsakynnum Nýlista-
safnsins aö Vatnsstíg 3B, Reykjavík.
Þetta er fyrsta einkasýning Rúríar á Islandi,
en hún hefur áður haft þrjár einkasýningar
erlendis. Hún hefur auk þess tekið þátt í
fjölda samsýninga heima og erlendis og jafn-
framt flutt fjölda performansa (gerninga).
Verkin á þessari sýningu eru frá árunum
1979—1982, en hafa ekki verið sýnd fyrr á
Islandi. Öll verkin flokkast undir þrívíöa
myndlist, og eru flest þeirra unnin í gler, en
jafnframt sýnir hún eitt umhverfisverk (envir-
onment).
Sýningin stendur til 28. febrúar og er opin
virka daga kl. 16—22 en kl. 14—22 um helg-
ar.
Fjölskyldudagur
hjá KFUM og
KFUK
SUNNUDAGINN 21. febrúar veröur sérstak-
ur fjölskyldudagur í húsi KFUM og K viö
Holtaveg í Reykjavík. Húsiö verður opnaö kl.
14:30 og frá kl. 15 er gestum gefinn kostur á
veitingum. Félagar deilda er starfa og halda
fundi sína á Holtavegi eru velkomnir ásamt
foreldrum eöa öörum aöstandendum og
systkinum. Klukkan 17 verður siöan samvera
í umsjá barna og unglinga sem starfa á
staönum og er þar ýmislegt á dagskrá.
Útivistarferðir
Flúöir í kvöld kl. 20.00. Aö þessu sinni er
helgarferð Utivistar að Flúöum í
Hrunamannahreppi. Lagt veröur af stað frá
Umferöarmiðstööinni aö vestanverðu í kvöld
kl. 20.00. Eins og jafnan áöur veröur gist í
Skjólborg. Á laugardaginn veröur gengiö á
Miðfell og Galtafell en um kvöldiö veröur
kvöldvaka meö dansi og söng. Á heimleiðinni
á sunnudaginn verður gengiö á Vörðufell ef
veöur og aðrar aöstæöur leyfa. Örfá sæti eru
enn laus því plássiö er takmarkaö. Fararstjóri
Kristján M. Baldursson.
Sunnudag 21. febr. kl. 11.00. Hellisheiöi —
Hengladalir. Skíöaganga meö Þorieifi Guð-
mundssyni. Ef veður leyfir veröur komiö að
heita læknum í Innstadal og gefst fólki kostur
á aö baöa sig þar.
Sunnudag 21. febr. kl. 13.00. Álftanes. Létt
strandganga fyrir alla fjölskylduna meö Jóni I.
Bjarnasyni. Farið frá B.S.I. aö vestanveröu.
Frítt f. börn meö fullorðnum. Sjáumst.
Fjögur leikrit
hjá LR
í kvöld, föstudagskvöld, er leikritið Rommí
eftir D.L. Coburn á fjölunum í lönó. Sýningar
eru aö nálgast 130 og eru nú aöeins örfáar
sýningar eftir á þessu verki, sem þau Gísli
Halldórsson og Sigríöur Hagalín leika í. Ann-
að kvöld er svo sýning á Jóa Kjartans Ragn-
arssonar, sem nú hefur veriö sýndur nær 50
sinnum. Meö stærstu hlutverk í Jóa fara Jó-
hann Sigurðarson, Hanna María Karlsdóttir
og Siguróur Karlsson.
Á sunnudagskvöldiö er 9. sýning á Sölku
Völku eftir Halldór Laxness í leikgerö Stefáns
Baldurssonar og Þorsteins Gunnarssonar.
Þar fara með stærstu hlutverk Guðrún Gísla-
dóttir (Salka), Margrét Helga Jóhannsdóttir
(Sigurlína), Þorsteinn Gunnarsson (Steinþór)
og Jóhann Sigurðarson (Arnaldur).
Þá er að venju miðnætursýning í Austur-
bæjarbíoi annaö kvöld á revíunni Skornum
skömmtum eftir Jón Hjartarson og Þórarin
Eldjárn. Revían er nú breytt og endurbætt í
Ijósi nýlegra atburða þjóólifsins. Tólf leikarar
koma fram í sýningunni, meóal þeirra Gísli
Halldórsson, Gísli Rúnar Jónsson, Sigríöur
Hagalín, Helga Þ. Stephensen, Guömundur
Pálsson, Soffía Jakobsdóttir og Aöalsteinn
Bergdal.
Ferðafélag íslands
Skíðagönguferð
í Bláfjöll
Sunnudaginn 21. febrúar kl. 10.30 veröur
skíöagönguferó í Bláfjöll en þaö er eina svæöiö
sem hægt er aö treysta á meö nægan snjó.
Áætlaö var aö ganga frá Bláfjöllum á skíðum í
Grindaskörð, en hlýindin þessa viku eyöilögóu
þaö, en sú gönguleió veröur höfö í huga
seinna, ef snjór verður nægur. Kl. 13 á sunnu-
daginn verður gengió á Stóra-Meitil, sem er
liólega 500 m á hæö.
Miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20.30 veröur
kvöldvaka Feröafélagsins aö Hótel Heklu. Arn-
þór Garöarsson, prófessor, fjallar um lifríki Mý-
vatns i máli og myndum. Myndagetraun verður
að venju og verölaun veitt.
Þjóðleikhúsið:
Amadeus aftur
í gang
Sýningar á Amadeus eftir Peter Shaffer
hafa legiö niöri nú um nokkurt skeið, en hefj-
ast að nýju um þessa helgi. Sýningar eru í
kvöld (föstudag) og á sunnudagskvöld.
Aöeins ein sýning veröur um þessa helgi á
Húsi skáldsins eftir Halldór Laxness, i leik-
gerð Sveins Einarssonar, og veröur hún laug-
ardagskvöld kl. 20.00. — Hjalti Rögnvalds-
son, Briet Héðinsdóttir og Gunnar Eyjólfsson
leika.
Gosi eftir Collodi í leikbúningi Brynju
Benediktsdóttir veröur á fjölunum á laugar-
dag og sunnudag. Fólk er beöiö aö athuga aö
sýningin á sunnudag hefst fyrr en venja er,
eða kl. 14.00.
Og Kisuleikur eftir István Örkény á Litla
sviöinu er á dagskrá á sunnudagskvöldiö kl.
20.30.
Kvikmyndasýning
Germaníu:
Nýjar fréttir af
Rummungi
ræningja
Á laugardaginn kl. 5 efnir félagiö Germanía
til kvikmyndasýningar í Tjarnarbíói. Sýnd
veröur kvikmyndin „Neues vom Ráuber
Hotzenplotz", nýjar fréttir af Rummungi ræn-
ingja. Rummungur ræningi á sér aódáendur á
islandi eftir aö Helga Valtýsdóttir geröi hann
frægan meö lestri sínum í Morgunstund
barnanna fyrir rúmum áratug. Hér er á ferö-
inni fjölskyldumynd. Aögangur er ókeypis og
öllum heimill.
„Eru hinir dauðu
virkilega dánir?“
Bengt Lillas, finnskur fyrirlesari, flytur fyrir-
lestur á sunnudaginn kl. 17.00 í Aðventkirkj-
unni sem hann nefnir „Eru hinir dauöu virki-
lega dánir?" Fjallar hann eins og nafniö
bendir til um líf eftir dauóann. Allir eru vel-
komnir.
„Landmanna-
leitir“ á Hellu
i Hellubíói á Hellu verður á föstudags-
kvöldiö kl. 21.00 sýnd myndin „Landmanna-
leitir" eftir Guölaug Tryggva Karlsson. Hefur
kvikmyndin undanfariö veriö höfð til sýninga
i félagsheimilum á Suóurlandi.
Húsgagnasýningu
lýkur
Á sunnudagskvöldió nk. lýkur húsgagna-
sýningu Dananna Rud Thygesens og Jonny
Sörensens á Kjarvalsstööum. Húsgögn þess-
ara tveggja húsgagnaarkítekta hafa veriö
sýnd á sérsýningum um víöa veröld. sýningin
er opin frá 14.00 til 22.00 og er aógangur
ókeypis.
Alþýðuleikhúsið:
Don Kíkóti og
Sankó Pansa
Alþýóuleikhúsiö i Hafnarbíói sýnir á föstu-
dagskvöldiö „Elskaðu mig" kl. 20.30. „Illur
fengur" er á laugardaginn kl. 20.30 og
„Súrmjólk með sultu“, ævintýri í alvöru verö-
ur sýnt á sunnudaginn kl. 15.00. Þá verður
„Elskaöu mig" sýnt aftur á sunnudaginn kl.
20.30. Æfingar standa nú yfir í Alþýðuleikhús-
inu á harmþrungnum gamanleik sem segir frá
ferðalögum þeirra kumpána Don Kíkóta og
Sankó Pansa og baráttunni við vindmyllurn-
ar.
Sýningu Guörúnar
Auðunsdóttur
lýkur
í Langbrók lýkur sýningu Guörúnar Auö-
unsdóttur á tauþrykki laugardaginn kl. 18.00.
Veggmynda-
sýningu lýkur
á Kjarvalsstöðum
Nú um helgina lýkur sýningu Gunnsteins
Gíslasonar á veggmyndum á Kjarvalsstööum,
en þar sýnir hann 20 myndir unnar i múrristu.
Leikbrúðuland
Á sunnudaginn 21. febr. kl. 15.00 verða
v/ndir leikbrúóuþættirnir „Hátíð dýranna" og
„Eggið Ijans Kiwi" aö Fríkirkjuvegi 11. Sala
hefst kl. \3 á sunnudag.
„Solaris“ í MÍR“
Sunnudaginn kl. 16.00 verður sýnd myndin
„Solaris" eftir Andrei Tarkovskí, en hún er frá
árinu 1972. Myndin er byggö á einni af
vísindaskáldsögum Pólverjans Stanislavs
Lem, en aöalleikendurnir eru: Donatas Ban-
ionis, Natalja Bondartsjúk, Anatolí Solonitsyn
og Júri Javert. Taliö i myndinni er á ensku.
„Betra líf
í bænum“
„Betra líf í bænum" nefnist kynning sem
umhverfismálanefnd Sjálfstæöisflokksins
gengst fyrir í Valhöll, og hefst kl. 14.00. Svip-
uö kynning var á ári fatlaöra. i vestursal Val-
hallar kynnir fjöldi félaga og samtaka sem
tengjast umhverfismálum starfsemi sína í
sýningarbásum en í austursal eru flutt stutt
erindi frá kl. 15.00. í kjallarasal veröa sýndar
myndir og kvikmyndir frá félögunum. Kaffi-
veitingar veröa á staönum og allir eru vel-
komnir.
Febrúarmót
Samhygðar
Sunnudaginn 21.02. nk. veröa svonefnd
Febrúarmót Samhygöar haldin á þremur
stööum í Reykjavík og hefjast þau kl. 20.30.
Mótin veröa haldin á eftirtöldum stööum: í
fundarsal Starfsmannafél. Sóknar að Freyju-
g. 27, í fundarsal Flugleiöastarfsmanna aö
Síöumúla 11 og í fundarsal Meistarasam-
bands byggingarm., Skipholti 70.
Á dagskrá er bæði gaman og alvara og má
þar nefna kynningu á Samhygö, leikþætti,
upplestur, Ijóö- og tónlist, kaffi o.fl. Öllum er
heimil þátttaka, lika börnum.
Megináhersla i starfi Samhygðar er lögö á
aö bæta samskipti og tengsl fólks og mun
veröa fjallaö um þaö á mótunum hvernig
vinna megi skipulega aö því.
Garðaleikhúsið
sýnir „Kallinn
í kassanum“
i Tónabæ nk. sunnudagskvöld kl. 20.30. Með
helstu hlutverk fara Magnús Ólafsson, Aðal-
steinn Bergdal, Sigurveig Jónsdóttir, Guðrún
Þórðardóttir og Valdimar Lárusson. Leikstjóri
er Saga Jónsdóttir. Miöapantanir allan sólar-
hringinn í síma Garóaleikhússins í Garóabæ.