Morgunblaðið - 19.02.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1982
49
fclk í
fréttum
518 daga í haldi hjá Khomeini
+ Það er von hún brosi breitt hún Ursula.
Eftir 518 daga fjarveru var hún aftur sam-
einuð manni sínum, Andew Pyke. Hann er
breskur kaupsýslumaður, sem var hand-
tekinn í íran í ágústmánuði 1980 fyrir
ókunnar sakir, en eftir að keisaranum var
steypt þar í landi og Khomeini erkiklerkur
og siðfræði hans varð allsráðandi, er ekki
spurt að því hvort menn séu sýkn eða
sekir, þegar þeir eru handteknir og síðan
líflátnir. Andrew Pyke má því hrósa happi
yfir að sleppa lífs úr fangelsum Khomeinis
og væntanlega bregður hann sér ekki aft-
ur í viðskiptaferð til írans ...
/ Vatikaninu
+ Jéhann Páll II páfi fagnar hér Josef Glemp pólska erkibiskupn-
um, þar sem þeir hittust í Vatikaninu fyrir skömmu. Þetta er fyrsti
fundur þeirra, frá því herlög voru sett í heimalandi þeirra, Póllandi,
hinn 13. desember síðastliðinn ...
í Hvíta húsinu
+ Svo sem ítarlega hefur veriö greint frá í fréttum, þé björguöu
ítalskir lögreglumenn bandaríska hershöföingjanum, James Dozi-
er, frækilega úr höndum hryðjuverkamanna fyrir skömmu. Dozier
var í haldi hjé hryöjuverkamönnum Rauðu herdeildarinnar í heila
42 daga og voru menn orönir úrkula vonar um aö tækist aö bjarga
honum. En það tókst og hér sést Dozier é fundi með Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu ...
Margrét
prinsessa
í Houston
+ Breskt konungborið fólk
gerir víðreist. Hér sjáum
við Margréti prinsessu
spjalla við gesti á sýningu
einni í Houston í Banda-
ríkjunum, en Margrét
opnaði þar sýningu í lista-
höllinni á nokkrum mynd-
um Leonardo Da Vinci,
sem fengnar höföu verið
að láni úr Windsor-kast-
ala...
Skrifborð
170x80 Verö kr. 1.912,-
140x80 Verö kr. 1.701,-
Vélritunarborð
150x50 Verö kr. 1.381,-
100x50 Verö kr. 1.275,-
SKRIF^ÖFUmsœ^
Hallarmúla 2, sími 83211.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU