Morgunblaðið - 26.02.1982, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.02.1982, Qupperneq 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1982 Er nauðsynlegt að undirbúa elliárin? heppnir aö eiga einhver áhugamál eöa tómstundaiöju, sem krefst ekki líkamlegs erfiðis, ættu aö huga aö henni i tæka tíö, til aö geta eytt meiri tíma í þau. Að öör- um kosti gætu dagarnir oröiö lang- ir og ellin þungbær. Námsflokkar Reykjavíkur hafa hug á aö koma á námskeiöi fyrir fólk, sem komiö er á ellilífeyrisald- urinn, til að kynna fólki þær breyttu aöstæöur, sem framundan eru, þá ekki aöeins ytri aöstæöur, heldur einnig hvernig hinir breyttu lífshættir geti haft áhrif á innra líf. Sagöi Guörún Halldórsdóttir, skólastjóri Námsflokkanna, aö hún teldi aö yfirvöld ættu aö sjá til þess aö fólk sem komið er á elliárin hefði möguleika á léttum störfum eins lengi og þaö óskaði. Helena Halldórsdóttir, deildar- fulltrúi í tómstunda- og félagsmálastarfi aldraöra hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur, sagöi aö hún heföi oröiö vör viö í sínu starfi að sumt af því fólki, sem sækti tómstunda- og félagsmála- starf aldraðra, væri afar ánægt aö geta sinnt sínum hugöarefnum, sem þaö heföi ef til vill ekki haft tima til áöur vegna útivinnu. Kvað hún þaö mikilvægt aö fólk sem heföi ágæta heilsu kynnti sér hvaö væri í boöi á þessu sviöi, en hér væri um fjölbreytta og áhugaveröa tómstunda- og félagsstarfsemi aö ræöa. Rannveig Þórólfsdóttir, for- stöðukona Hrafnistu í Reykjavík, sagöi aö félags- og tómstunda- starf aldraðra væri afar jákvætt en hún heföi oröið vör viö aö sumu eldra fólki fyndist föndur ýmiss konar fremur tilgangslaust og þyrfti því aö koma á fjölbreyttari möguleikum fyrir fólk. Mætti þá nefna í því sambandi ýmis létt störf, þannig að fólki fyndist þaö hafa einhvern tilgang meö starfi sínu. Sagöi hún aö víöa erlendis heföi aldraö fólk slík atvinnutæki- færi. Er húsnæðið of stórt? Þriöji þátturinn, sem viömæl- endur okkar voru sammála um aö þarfnaöist íhugunar fyrir elliárin, eru húsnæöismálin. Friörik Einarsson kvaöst telja aö fólk sem býr í stóru húsnæöi, sem var nauösynlegt meöan börnin voru mörg á heimilinu, ætti aö minnka viö sig í tæka tíö. Þegar fólk væri orðið háaldraö ætti þaö miklu erfiöara meö aö breyta til um húsnæði, enda þótt þaö sjái fram á og viöurkenni aö slik breyt- ing sé aö öllu leyti æskileg og til hagræöis og kvaöst hann þekkja mörg dæmi um þetta. í niðurstöðum könnunar sinnar segir Þórhannes Axelsson aö þeg- ar tekjur minnki og getan til eigin umönnunar tekur aö þverra geti stórt húsnæöi oröið þungur fjár- hagslegur baggi og erfiöleikarnir viö aö halda eigiö heimili innan veggja þess oröiö miklir. Því megi telja eölilegt aö aldraöir reyni að minnka viö sig húsnæöi eftir því sem aldur færist yfir og tekjur fara minnkandi og hæfni tekur aö þverra. Segir hann ennfremur aö þaö hafi komið fram í viötölum, sem hann átti viö þá sem spuröir voru í könnuninni, aö ef þeir ættu kost á aö fá minna og hentugra húsnæöi á sinum heimastaö, myndi þaö ekki hika viö aö selja húseignina, sem þaö bjó i og kaupa húsnæöi sem hæfir betur núverandi hús- næöisþörf. Því væri þörf á aö skipuleggja íbúöarhúsnæöi og hverfi meö þennan hóp fólks í huga en skipulag nýrra íbúöar- hverfa heföi fram til þessa aö mestu miöast viö þarfir barna- fjölskyldna og hönnun íbúöarhús- næöis sömuleiöis. Sagöi hann að svo lengi sem ekki væri tekiö tillit til þarfa aldraöra í þessu sambandi á markvissan og skipulegan hátt af hálfu hins opinbera væri lítil von til þess aö aldraöir gætu sjálfir bætt úr sínum húsnæöisvandamálum, sem í mörgum tilfellum fælust í því að þeir byggju í of stóru og óhent- ugu húsnæöi. Rannveig Þórólfsdóttir sagði í þessu sambandi aö þó aö æskilegt væri að fólk minnkaði viö sig hús- næöi þar eöa þaö heföi hvorki getu né fjármagn til aö sjá um stórt húsnæði, þá skildi hún vel aö oft reyndist erfitt aö fara í minna hús- næði, sem skeröir jafnvel mögu- leika til aö hafa þá hluti hjá sér, sem fólki eru hjartfólgnir og þaö hefur lifaö innan um í áraraöir. Því væri nauösynlegt aö setja þessa hluti niöur fyrir sér i tima og hag- ræöa þeim þannig að fólki líkaöi. Að venja sig við að fara á dvalar- heimili aldraðra Dvalarheimili aldraöra gegna því hlutverki í nútímaþjóöfélagi aö leysa úr húsnæðisþörfum aldraöra sem af ýmsum ástæöum geta ekki lengur búiö inni á einkaheimilum. En er hægt aö undirbúa sig undir vist á slíkum heimilum? Friörik Einarsson kvaöst telja, aö þeir, sem sæju fram á aö þurfa aö dvelja á stofnun í ellinni — eru ef til vill einstæöingar, sem fáa eöa enga eiga aö, sem búast mætti viö aö geti annast þá i ellinni — ættu aö fá tækifæri til aö dvelja stuttan tima í einu á slíku heimili. Þegar fólk væri orðið gamalt hrysi því oft hugur viö miklum breytingum. Sagöist hann stundum segja bæöi í gamni og alvöru, aö þegar fólk er komið yfir sextugt færi vel á þvi aö þaö dveldist árlega ekki sjaldnar en eina viku eða hálfan mánuö á slíku heimili, til aö kynnast vistinni. Sagöi hann aö fólk mætti trúa því aö fyrsta vikan eöa svo væri oft erfiöust, en eftir þaö færi flestum aö líöa vel og kunna bærilega viö Námsflokkar Reykjavíkur - hafa hug á að koma á námskeiði fyrir fólk, sem komið er á ellilífeyrisaldur til að kynna þær breyttu aðstæður, sem framundan eru. sig og færu að meta þaö góöa at- læti, sem veitt er á velflestum slík- um heimilum. Rannveig Þórólfsdóttir sló á sömu strengi og sagöi, aö fólk, sem byggi i nágrenni dvalarheimila aldraöra og vænti þess aö fara á slík heimili, ættu aö geta fengiö aö kynnast þeim áöur en til vistunar kæmi. Sagöi hún jafnframt, aö þróunin í dvalarheimilismálum aldraðra ætti aö vera sú, aö heim- Söfnun fyrstadagsumslaga Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson Fyrir rúmu ári eöa 31. janúar 1981 birti ég i frímerkjaþætti hug- leiöingu um þaö, hvers viröi frí- merki eru. Ég vék þá aö þvi svari, sem ég hef oft veitt, þegar ég er spurður um verömæti frimerkja, aö þau séu aldrei meira viröi en fyrir þau er hægt aö fá hverju sinni. Sannleikurinn er líka sá, aö í aug- um margra eru frímerki fyrst og fremst peningaleg verðmæti, og því miöur víkur sjálf söfnunar- gleðin oft fyrir þessu verömæta- mati meöal safnara. í þessu sam- bandi ræddi ég um ýmsar skoöan- ir um þetta atriði. Verður hér að | vísa aö mestu til greinar minnar, en hún var síöar endurprentuö í Grúski, tímariti L.Í.F. Ég benti á og vil endurtaka hér, að seljendur frímerkja og frí- merkjasafna veröa oft að sætta sig viö um 30—40% af skrásettu lista- verði, og þaö gengur mörgum illa aö skilja. Er þaö svo sem vonlegt, þegar oft er horft á himinháar uþp- hæöir listanna. Sannleikurinn er og vissulega sá, aö aldur og ásig- komulag frímerkja og frímerkja- efnis (og þar á ég viö frímerki á heilum umslögum eöa á bréfsnyfs- um og eins margs konar stimpla) hefur áhrif til hækkunar og lækk- unar. Hér verða þeir „innvígðu" í fræöunum aö skera úr, og þá eiga þeir „óvígöu" á stundum bágt meö aö skilja og telja sig e.t.v. hlunn- farna, og því miöur getur þaö kom- iö fyrir hér sem annars staðar. Fyrrnefnda grein mína endaöi ég á þeirri spurningu, hvort þaö borgaði sig að fjárfesta í frímerkj- um eöa ööru frímerkjaefni. Lofaöi ég hugleiðingum frá mór um þaö síðar, en því miöur hefur ekkert oröið úr efndum fyrr en nú. í þess- um og næsta þætti langar mig aö minnast á svokölluö fyrstadags- umslög, sem nefnd eru F.D.C. á ensku (þ.e. First Day Cover), enda held ég margir líti svo á, aö þar sé um aö ræöa mikla gróöalind og örugga fjárfestingu. En er svo í raun og veru? Ég er ekki einn um aö hafa velt þeirri spurningu fyrir mér, því aö ég hef séö ýmislegt skrifaö um söfnun fyrstadagsum- slaga í erlend frímerkjarit. Og svör- in hafa yfirleitt veriö neikvæö, þeg- ar allt er skoöað ofan í kjölinn. Ekki eru mér tiitækar heimildir um þaö. Iwenær frímerkjasafnarar fóru fyrst að líma frímerki á umslög og láta stimpla þau sama dag og þau komu út. Þaö er einmitt þessi aöferð, sem kölluö er fyrsta- dagsstimplun og hefur oröiö geysi- vinsæl á siöustu áratugum meöal safnara. Um leiö hefur hún veriö drjúg tekjulind póststjórna um all- an heim fyrir þjónustu i lágmarki. Hér á landi var eitthvaö um út- gáfudagsstimplun í sambandi viö Alþingishátiöarfrímerkin 1930, og skráir Facit-listinn sænski verö á þess konar umslögum. Meira mun samt hafa verið um notkun sór- stimpils á hátíðinni, svo sem kunn- ugt er. Ekki veröur séö, aö Gull- fossfrímerkin 1931—32 hafi veriö stimpluö á útgáfudegi. Samkv. Facit hefst svo skráning fyrsta- dagsumslaga 1934 með flugfrí- merkjunum 1. september þ.á. og hefur haldizt óslitiö síöan. Svo sem meöfylgjandi mynd sýnir, var þetta líka gert, þegar svokölluö Hjálpar- merki komu út 28. apríl 1933, þó aö það hafi ekki enn komiö fram í listum. Þess vegna er engan veg- inn fyrir það aö synja, aö elnhverjir hafi látiö stimpla Gullfossmerkin viö útkomu þeirra 15. desember 1931 og svo 30. maí 1932. Slík umslög gætu skotiö upp kollinum, hvenær sem er, t.d. úr dánarbúi gamals safnara. Ekki hef ég samt trú á, aö þau séu mörg til. Framan af var fyrstadagsstimpl- un ekki mjög almenn hér á landi, en mér er sjálfum minnisstætt, aö hún var allmikil áriö 1937, er merki Kristjáns X. og minningarörk komu út á 25 ára ríkisstjórnarafmæli konungs 15. maí. Sföan hef óg fylgzt meö þessum stimplunum og séö, hvernig áhugi á fyrstadags- umslögum hefur vaxiö ár frá ári fram á þennan dag. Um leiö og söfnun fyrstadags- umslaga hefur aukizt, hefur ásókn í eldri umslög vaxið og þá auðvitaö

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.