Morgunblaðið - 12.03.1982, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.03.1982, Qupperneq 1
56 SÍÐUR 55. tbl. 69. árg. Guatemala: Fjölda- morð <>uatcmala lH>rg, II. mars. AF. VOPNAÐIR menn réðust sl. laugardag inn í tvö þorp í Quiche-héraði í Guatemala og drápu 200 manns, karla, kon- ur og börn, með því að skera fólkið á háls. Embættismaður í héraðinu flutti þessar fréttir í dag og sagði, að þær hefðu ekki borist fyrr vegna þess hve þorpin eru afskekkt. Talsmenn lögreglunnar kváð- ust í fyrstu ekkert vita um sannleiksgildi þessara frétta en sögðu seinna að þær væru „uppspuni“. Að sögn komust drápsmennirn- ir undan en fólk í nálægum þorp- um tók líkunum öllum eina gröf. Ekkert er vitað um hverjir hér voru að verki, öfgamenn til hægri eða vinstri, en í Guatemala hafa að undanförnu fallið 300 manns á mánuði hverjum í óöldinni í land- inu. Quiche-hérað er fjöllótt og erf- itt yfirferðar og fréttir þaðan ber- ast seint. Þar er vargöldin mest og engum manni fritt. FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. HIÐ ALSJÁANDI AUGA STÓRA BRÓÐUR — Þessi mynd var tekin nú nýlega og sýnir hvar pólskur herforingi fylgist með viðskiptum í ótiltekinni verslun í Varsjá. Hann er einn af mörgum, sem herstjórnin hefur skipað að hafa eftirlit með allri verslun í landinu til að tryggja, að allt fari fram eftir settum reglum. Ar-.im.mynd Pólska stjórnin æf út af „frelsisblöðrum“ Helmut Schmidt, kanslari VesturÞýskalands, Christoph Eschenbach, píanóleikari (t.v.), og Justus Frantz, píanóleik- ari (t.h.), sýna hreyknir fyrstu stóru plötuna, sem þeir gefa út í sameiningu. Á plötunni flytja þeir Konsert fyrir þrjú píanó eftir Mozart ásamt Fílharmoníuhljómsveit Lundúna og lék Schmidt á þriðja píanó við upptökuna. Platan mun verða sett á markað eftir 15. mars. AP-HÍmamynd. Varsjá, 11. mars. AP. HKRSTJÓKNIN í Póllandi fór í dag hamforum yfir þvim „hættulega og viðbjóðslega áróðri", sem borist hefði inn yfir landið í síðustu viku með fjöldamörgum marglitum blöðrum, sem sleppt var upp frá Borgundar hólmi. liaft er eftir heimildum, að um- fangsmikil leit hafi farið fram í út- hverfum Varsjár nú í vikunni og að lögregla og hermenn hafi verið á hött- unum eftir Zbigniew Bujak, einum af fáum frammámönnum Samstöðu, sem enn fara huldu höfði. Blöðrunum var eins og fyrr segir sleppt upp frá Borgundarhólmi í fyrri viku og stóð fyrir því hópur Frakka, sem kallar sig „Frelsisblöðr- ur fyrir Pólland". í þeim héngu litlir pakkar með dreifimiðum þar sem lýst er yfir stuðningi við frelsisbar- áttu Pólverja og þeim bent á ýmsar leiðir til að bregðast við kúguninni í landinu. í Póllandi hefur lítið verið sagt opinberlega um þetta tiltæki fyrr en í dag og þykir mörgum sem viðbrögðin séu með ólíkindum og í engu samræmi við atburðinn sjálf- an. Öll heistu dagblöð í Varsjá gera mikið veður út af þessu og kalla „grimmilega áróðursherferð", sem Samstöðumenn í Frakklandi hafi staðið fyrir. Einnig hafa verið borin fram „afar hörð“ mótmæli við Dani, þótt blöðrunum hafi reyndar verið sleppt upp í óþökk danskra yfir- valda. Fréttir fara af umfangsmikilli leit í úthverfum Varsjár í vikunni að Zbigniew Bujak, Samstöðuleiðtoga, sem enn hefur ekki fallið í hendur á lögreglunni. Ekki er talið, að leitin hafi borið árangur en einnig var leit- að þeirra, sem skutu á og drápu lög- regluforingja á götu í Varsjá fyrir nokkru. Til þessa hafa níu manns verið handteknir í sambandi við það mál og þ.á m. kaþólskur prestur. Bretar ákveða kaup á Trident-kafbátum London, 11. marH. AP. BKESKI varnarmálaráðherrann, John Nott, tilkynnti í dag, að stjórnin hefði ákveðið að kaupa af Bandaríkja- mönnum fjóra kjarnorkukafbáta af Trident-gerð. Aætlað kaupverð er 7,5 milljarðar enskra punda og skal greiða það á 15 árum. Þessi ákvörðun kemur ekki á óvart en hún er mjög umdeild í Bretlandi. „Ríkisstjórnin er þess fullviss, að aðeins Trident-kafbátarnir geta tryggt nægan kjarnorkuvopnastyrk Breta fram til aldamóta og lengur," sagði Nott þegar hann flutt Neðri deildinni tíðindin. Trident-kafbát- arnir eru fullkomnustu tæki sinnar tegundar, afar hljóðlátir, búnir 16 flugskeytum hver og hvert flug- skeyti með 14 kjarnaodda. Kostnað- inum við þá, 7,5 milljörðum punda, verður dreift á 15 ár en gagnrýn- endur kaupanna segja, aö hann muni aldrei verða minni en 10 milljarðar punda. Verkamannaflokkurinn er and- vígur þessum kaupum og berst enda fyrir einhliða kjarnorkuvopnaaf- vopnun í Bretlandi og hinn nýi jafnaðarmannaflokkur telur allt of mikinn kostnað samfara þeim. Talsmaður Verkamannaflokksins í varnarmálum, John Silkin, sagði í dag, að ef flokkur hans kæmist til valda yrði þessum kaupum rift. Samtök, sem berjast fyrir einhliða kjarnorkuvopnaafvopnun í Bret- landi, kröfðust þess í dag, að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar eru einu þjóðir Atlants- hafsbandalagsins, sem hafa sjálf- stæðan kjarnorkuvopnaherafla. Tíðindalaus dómsdagur Loh Angclcs, 11. mars. AP. HEIMUR stendur og ekki varð þess vart að sólin brygði vana sínum í gær, miðvikudaginn 10. mars, þótt reikistjörnurnar væru allar staddar sömu megin sólarinnar. Spádómurinn gekk sem sagt ekki eftir en að undanförnu hafa margir vart mátt vatni halda af ótta við komandi dómsdag. Heimsendisóttinn hefur hvað bundinn við símann alla daga. mest bitnað á bandarískum stjörnufræðingum, sem að und- anförnu hafa varla getað stund- að starf sitt fyrir upphringing- um og kvabbinu í óttaslegnu fólki, og var haft eftir einum þeirra í dag, að hann hlakkaði til þess tíma þegar hann gæti aftur farið að virða fyrir sér hásal himnanna í stað þess að vera Undirrótin að múgsefjuninni er bókin „Ahrif Júpiters", sem kom út árið 1974 en þar er þessi sérkennilega staða stjarnanna talin afar varhugaverð. Annar höfunda hennar hefur reyndar gefið út yfirlýsingu þar sem hann dregur kenningu sína til baka en það virtist engin áhrif hafa. Vaxtalækkun fagnað í Bretlandi liondon, 11. marn. AP. ÞRÍR helstu bankar í Bretlandi lækkuðu í dag vexti sína um hálft prósent, í 13%, og gætti þess þegar á verðbréfamarkaðnum í Lundúnum, þar sem hlutabréf 30 fremstu iðnfyr- irtækjanna hækkuðu um sjö stig. Seðlabankinn í Svíþjóð lækkaði einn- ig í dag vexti þar í landi úr 11 f 10% og hefur því almennt verið fagnað. Vaxtalækkun bresku bankanna, Barclays-, Midland- og Lloyds- banka, mun koma atvinnuvegunum mjög til góða og gera lánsfjár- útvegun ódýrari. Þetta er sjötta vaxtalækkun þessara banka og annarra á fimm mánuðum og kem- ur nú í kjölfar þess, að fjárhags- áætlun breska ríkisins var lögð fram sl. þriðjudag en þar er kveðið á um vaxtalækkanir. Einn af frammámönnum Barclays-banka sagði, að útlit væru fyrir áfram- haidandi vaxtalækkun, sem væru góðar fréttir fyrir atvinnuvegina og alla þjóðina. I Svíþjóð voru vextir lækkaðir um eitt prósent, í 10%, og hafa stjórnmálaleiðtogar fagnað því einróma. Vextir hafa einnig verið lækkaðir í sumum öðrum Evrópu- löndum síðustu daga og stafar það allt af vaxtalækkun í Bandaríkjun- um en talið er, að sú þróun muni halda áfram á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.