Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 32

Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 32
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10-100 FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 Þingmenn spyrja: Knúði ráðherra fram kaupin á Iscargo? Frumsýning á Giselle í kvöld SÁ LISTVIÐBURÐUR verður í aðaldanshlutverk fara Helgi danshlutverkum sínum á æfingu kvöld í Þjóðleikhúsinu að frum- Tómasson, sem dansar á fyrstu fyrir skömmu, ásamt íslenska sýndur verður ballettinn Giselle sex sýningunum og Ásdís Magn- dansflokknum. í sviðsetningu Anton Dolin. Með úsdóttir og sjást þau hér í Rétti þeim hvorki kinnina né knékrýp á nokkurn hátt - segir Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra í tilefni af deilum hans og alþýðubandalagsráðherranna um Helguvík Káðstafanir Steingríms Her mannssonar á flugrekstrarleyfum, kaup Arnarflugs á tilteknum eignum Iscargo og samningar sölu- og kaup- aðila við ríkisbanka, Útvegsbanka Is- lands, komu til umræðna íSameinuðu Alþingi í gær, er Arni Gunnarsson (A) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í gær. íslcn/ka rfkið á 20% í Klugleiðum, sagði Arni, Flugleiðir 40% í Arnar flugi, svo kaup þess á tilteknum eign- um Iscargo fyrir 29 m.kr., mcð aðeins 1,9 m.kr. hlutafjáreign, kemur Alþingi við. Káðherra verður og að gera hrcint fyrir sínum dyrum varðandi hugsan- lega beitingu veitingarvalds á flug- rekstrarleyfum, til að koma þessum kaupum á og bjarga eigendum Is- cargo úr fjárhagsvanda, og tengsl ríkisbanka við málið eykur á upplýs- ingaskyldu. Steingrímur Hermannsson, sam- gönguráðherra, kvaðst engin áhrif hafa haft á viðskipti Arnarflugs og Iscargo, kaup þess fyrrnefnda eða sölu þess síðarnefnda, enda ættu Skaftafcllid: Búið að gera við bilunina „f MORGUN tókst að gera til bráðabirgða við drif í eldsneytis- dælu aðalvélar og Skaftafell siglir nú í vesturátt áleiðis til Bandaríkj- anna,“ sagði Ómar Jóhannsson, skrifstofustjóri skipadeildar Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga í samtali við Mbl í gær. Svo sem fram kom í Mbl., þá rak Skaftafellið stjórnlaust undan fárviðri að vestan í fimm sólarhringa djúpt út af hafinu milli íslands og Ameríku. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Skaftafellið heldur til næstu hafnar á Nýfundnalandi, eða hvort skipið fer til Gloucester í Massachusetts eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Jokulfellið lagði upp frá Reykja- vík á miðvikudagsmorgun með varahluti, en til þess hefur ekki komið, að þeirra þurfi með. hér sjálfstæðir rekstraraðilar í hlut. Hagkvæmni sölu eða kaupa væri viðkomenda að meta og bera ábyrgð á, ekki sitt. Flugrekstrar- leyfi væru þessum viðskiptum óvið- komandi. Albert Guðmundsson, alþingis- maður, sem jafnframt er formaður bankaráðs Utvegsbankans, sagði hag bankans betur tryggðan eftir þessi kaup en áður, enda fengi bankinn ný veð fyrir ábyrgðum sín- um með nýjum eigendum, en héldu og fyrri tryggingum. Arnarflug væri fyrirtæki sem sýnt hefði góðan rekstur liðin ár. Harðar umræður urðu um málið og sat samgönguráðherra undir getsökum um að hafa notað veit- ingarvald á flugrekstrarleyfum til að knýja fram kaup Arnarflugs á eignum Iscargo. Sjá nánar frétt á bls. 2 í Mbl. í dag og frásögn á þing- síðu um umræðurnar utan dag- skrár. Sjá: „Flugleiðir notaðar til að forða gjaldþroti?" á bls. 18 og „Flugleiðir óska eftir mati á eignum Iscargo" á bls. 2. „ÞAD HEFUR nú ekki snúið að mér sú hlið frá þeim nú nýlega að ég sé líklegur til að rétta þeim aðra kinn- ina eða knékrjúpa þeim á nokkurn hátt. Það er þeirra mál hvað þeir gera, m þessi framkvæmd er mjög í samræmi við það sem þeir héldu fram í sínum málflutningi áður. Þá var það stækkunin sem þeir fettu fingur út í, og þá töldu þeir flutning- inn á geymunum nauðsynlegan. Nú hefur þetta allt snúist við, en ég held mínu striki og sagði þeim það á rík- isstjórnarfundinum í morgun," sagði Ólafur Jóhannesson utanríkisráð- herra, er Mbl. spurði hann síðdegis í gær hvað farið hefði í milli hans og alþýðubandalagsráðherranna á rík- isstjórnarfundi í gærmorgun vegna Helguvíkurmálsins. Ólafur sagðist ekki myndu gefa neitt eftir í málinu, enda hefði hann þingsályktun Alþingis frá sl. vori á bak við sig, þar sem honum er persónulega falið að leysa þetta vandamál. Ólafur sagði einnig, að nú þegar væru fjórir aðilar, þrír innlendir og einn bandarískur, í vinnu við hönnun verksins og vænti hann þess að hægt yrði að hefja framkvæmdir í Helguvík í upphafi næsta árs. Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hann harmaði mjög hvernig utanríkisráðherra stæði að málinu og sagðist vonast til að lagfæring fengist fram. Hann sagðist vera á þeirri skoðun, eins og fyrr hefði komið fram, að geymarnir ættu að vera innan vallargirðingarinnar og bætti við, að sú væri einnig skoðun forstjóra Olíufélagsins og Sambands ísl. samvinnufélaga og því skyldi hann ekki í ráðherrum framsókn- ar að vinna gegn þeim tillögum. Aðspurður um hvort hann teldi þetta brottfararatriði fyrir Al- þýðubandalagið úr ríkisstjórn sagði hann: „Ég trui því ekki að utanríkisráðherra gangi það langt í málinu," en fékkst ekki til að svara spurningunni frekar. Aðrir þingmenn Alþýðubanda- lagsins sem Mbl. ræddi við í gær, t.d. Ólafur Ragnar Grímsson, tóku í sama streng og formaður flokks- ins hvað varðar staðsetningu geymanna innan vallargirðingar- innar, þ.e. að sú staðsetning sé hugmynd samvinnuhreyfingar- innar. Utanríkisráðherra var því spurður álits á þeirri staðhæfingu. Hann svaraði: Ég hef nú ekki séð neins staðar að samvinnuhreyf- ingin hafi látið neitt uppi um þetta mál. Hugmyndir þær sem forstjóri Olíufélagsins setti fram við utanríkisnefnd eru nú nær ársgamlar, en ég hef nú ekki orðið var við að SÍS setti neitt á oddinn í þessu efni.“ Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra var einnig spurður álits á máli þessu í gær, en hann svaraði nokkuð á aðra lund en sam- flokksmenn hans: „Ég er viss um það, að ef góð samráð eru höfð um málið er hægt að leysa það. Það er enginn ágreiningur um „prinsipp- ið“ að flytja þessa tanka. Aðaldeil- an er fyrst og fremst um það með hvaða hætti á að taka olíuna í land, eða koma henni fyrir í þess- um tönkum. Ég hef enga trú á að þetta staðsetningarvandamál sé nokkurt mál, aðalvandinn er þetta með hafnarmannvirkin, að það er verið að búa til nýjan hernaðar- lega mikilvægan punkt með þeim,“ sagði hann. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra vildi ekkert segja um málið, er Morgunblaðið spurði hann álits. Miimi innlán SPARIFJÁRAUKNING í bönkum var talsvert minni fyrstu tvo mán- uði þessa árs heldur en hún var á sama tímabili í fyrra. Innlána- þróunin er verulega lakari en í upphafi síðasta árs. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er talið, að óhagstæður jöfnuður milli inn- og útlána eigi sér eðli- legar ytri skýringar að hluta, en að að öðru leyti kalli þessi þróun á að fastar verði haldið í fé bank- anna. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra um afgreiðslu lánsfjáráætlunar: Botna ekkert í fjár- hags- og viðskiptanefnd Við stjórnum ekki þingmönnum - þeir stjórna sér sjálfir „ÉG HEFÐI nú helst viljað að þetta hefði verið afgreitt um mánaðamótin janúar, febrúar. Ég satt að segja botna ekkert í því af hverju fjárhags- og viðskiptanefnd hefur þurft að taka sér svona gríðarlega langan tíma til að ræða lánsfjáráætlunina", sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra, er Mbl. spurði hann af hverju lánsfjáráætlun fyrir árið 1982 væri ekki enn orðin að lögum, en upphaflega átti hún að afgreiðast um leið og fjárlög, en með samþykki stjórnarandstöðunnar var gefinn frestur til 28. janúar sl. með afgreiðslu hennar. Morgunblaðinu er kunnugt um, að vegna þess að lánsfjár- áætlunin er óafgreidd hefur ekki verið unnt að taka út hið stóra lán, upp á rúmar 720 millj. kr., sem fjármálaráðherra undirrit- aði nýverið í London fyrir hönd ríkissjóðs. Aðspurður um það svaraði ráðherrann: „Það hefur aldrei staðið til að taka það heim fyrr en lánsfjáráætlun væri af- greidd. Það er óhjákvæmilegt að lánsfjárlögin séu samþykkt áður en hægt er að taka þetta lán.“ Hann bætti því við að ríkissjóð- ur þyrfti ekki á þeim peningum að halda fyrr en lánsfjáráætlun væri afgreidd. — En er ekki hálfgert sleifar- lag af hálfu stjórnvalda að drífa lánsfjáráætlunina ekki í gegnum þingið? „Við stjórnum ekki þingmönn- um, þeir stjórna sér sjálfir og út af fyrir sig verður nú að viður- kennast að lánsfjáráætlunin hefur mjög oft verið seinna á ferðinni en þetta. Það stóð til að reyna að afgreiða málið úr nefndinni áður en þeir fóru á Norðurlandaráðsþingið en þá komu til afgreiðslugjald, lækkun launaskattsins og allt það, og menn gerðu miklar kröfur um fundahöld út af þessu og hinu. Þar kom einnig inn í raðsmíði skipa og fleira, sem menn þótt- ust þurfa að skoða svo gríðarlega nákvæmlega, svo þetta hefur dregist." Fjámálaráðherra var í lokin spurður, hvenær hann reiknaði með að máiið færi í gegnum þingið. Hann svaraði: „Þú verður að spyrja aðra en mig, fyrst og fremst nefndarmenn í fjárhags- og viðskiptanefnd, hvenær hún skili af sér.“ Ráðherrann tók fram, að formaður nefndarinnar væri Halldór Ásgrímsson, en hann er í leyfi frá þingstörfum, svo Mbl. tókst ekki að hafa upp á honum í gær vegna þessa máls.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.