Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 8

Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 Tölur Veiðimálastofnunar um laxveiði í fyrræ Laxá í Kjós mesta stang- veiðiáin, en meðalþyngdin lækkaði um 2,6 pund í heild MKSTA stangveiðiáin árið 1981 var Laxá í Kjós, en þar veiddust 1.550 laxar. Heildarlaxveiðin á síðasta ári varð 46.881 lax að þyngd samtals 163.419 kíló, sam- kvæmt upplýsingum Veiðimála- stofnunar. Þar er um 21% lakari veiði en maðaltal tíu síðustu ára þar á undan. Ef hins vegar er litið á tímabilið 1961—1980 verður veiðin 85 lakari en meðaltal þess- ara 20 ára. Árið 1981 varð 12. í röð beztu veiðiára hérlendis. í fyrra var meðalþyngd laxa mest úr Stóru-Laxá í Hreppum, 10,4 pund, en yfir heildina varð meðal- þyngdin aðeins 7 pund á móti 9,6 pundum árið 1980. í frétt frá Veiðimálastofnun segir meðal annars: Hlutur stangveiði í heildar- veiði var 59% eða svipað og 1980 sem var lægra hlutfall en um langt árabil. Netaveiðin var með tæplega 31% hlut úr heild- inni og hafbeitarstöðvarnar skiluðu rúmlega 10% í heild- arfjölda laxa, en endurheimta þeirra var mjög góð sumarið 1981. Að þessu sinni var meðal- þyngd á laxi 7 pund á móti 9,6 pundum 1980. Er þetta eðlilegt þar sem tiltölulega meira gekk nú í árnar af laxi, sem hafði verið eitt ár í sjó, 4—6 pund. Minna en að venju gekk af stærri laxi, 2ja ára og eldri. Er það í beinu framhaldi af smá- laxaskortinum 1980, en hvort tveggja voru gönguseiði sem héldu til sjávar úr ánum sumarið 1979. Stangaveiðin var býsna breytileg eftir ám, miðað við fyrri ár, veiði var tiltölulega best í ánum í Húnavatnssýslu og Dalasýslu. Lökust varð hún í ám á Norðurlandi eystra og á Austurlandi, en á fyrrgreinda svæðinu varð veiðin 40% minni en meðaltal 10 ára þar áður og á Austurlandi féll veiðin niður um 80% miðað við nefnt 10 ára tímabil. Lélegri veiði var yfir- leitt í ám með háan meðal- þunga á laxi af fyrrgreindum ástæðum, þó sumar árnar hafi þrátt fyrir þetta komið vel út hvað veiði snertir, eins og Víði- dalsá, Vatnsdalsá, og Blöndu- svæðið. Athyglisvert er hve ýmsar smærri ár gáfu góða veiði. Mesta stangaveiðiáin 1981 var Laxá í Kjós, ásamt Bugðu, en þar veiddust 1.550 laxar, á Blöndusvæðinu fengust 1.537 laxar, úr Laxá í Aðaldal komu á land 1.455 laxar, Laxá á Ásum var með 1.413 laxa, í Víðidalsá og Fitjaá fengust fengust 1.392 laxar, Þverá gaf 1.245 laxa, Miðfjarðará 1.213 laxa, í Norð- urá fengust 1.185 laxar, í Ell- iðaám veiddust 1.074 laxar og í Vatnsdalsá fengust 985 laxar. Á vatnasvæði Hvítár í Borg- arfirði veiddust alls 8.347 laxar sem er 42% lakari veiði en með- altal 10 ára þar á undan. Hlut- deild neta í veiðinni var 4.192 laxar eða 50% heildinn, sem er 37% minni veiði en meðaltal áranna 1971—1980. Á Öflusár- Hvítársvæðnu komu alls á land 9.845 laxar sem er 18% lakari veiði en meðaltal fyrrgreindra 10 ára. Hlutdeild netaveiði í heildarveiði var 85%, en hitt kom á stöngina. Netaveiði var góð í Þjórsá. Eins og áður kom fram, voru heimtur hjá hafbeitarstöðvun- um góðar sl. sumar. í þær gengu 4.625 laxar úr sjó. í Kollafjarðarstöðina gengu 3.139 laxar, í Lárósstöðina á Snæfellsnesi um 1.200 laxar og 286 laxar í stöðina í Botni í Súgandafirði. Árangur í hafbeit varð ákaf- lega athyglisverður hjá Lár- ósstöðinni í sambandi við til- raun, er byggði á því að göngu- seiði voru höfð í netakvíum og fóðruð áður en þeim var sleppt í sjó. Þannig fengust í sumar 800 laxar, sem sleppt hafði ver- ið með þessum hætti sumarið 1980. Seiðin voru frá Kolla- fjarðarstððinni og höfðu öll verið merkt með svonefndum örmerkjum. Endurheimta úr þessari sleppingu er orðin um 11% og ekki öll kurl komin til grafar. Leikendur og leikstjóri Skilmannahreppur: Frumsýning á Karlinum í kassanum LEIKFLOKKURINN sunnan Skarðsheiðar, frumsýnir Karlinn í kassanum eftir Arnold og Bach, í Fannahlíð, Skilmannahreppi, föstudaginn 12. mars, þ.e. í kvöld. Leikstjóri er Auður Jónsdóttir. Leikendur eru 12, og með hlutverk fara Jón Sigurðsson, María Sigur- jónsdóttir, Guðbjörg Greipsdóttir, Þorvaldur Valgarðsson, Guðjón Friðjónsson, Lára Ottesen, Kristín Sigfúsdóttir, Óskar Þorgeirsson, Þorsteinn Vilhjálmsson, Einar Jó- hannesson, Ásta Björk Magnús- dóttir og Sigurrós Sigurjónsdóttir. Þetta er 9 verkefni Leikflokksins. Næsta sýning er sunnudaginn 14. mars. 3ja herb. íbúðir Stór vinaleg risíbúð á 3. hæö við Grettisgötu. 80 fm. Verð 650 þús. Hófgerði 75 fm kjallaraíbúð. Stór lóð. Nýjar eldhúsinnrétt- ingar. Verð 550 þús. Hraunbær 75 fm. Verð 670 þús. Stór íbúð í Hafnarfiröi. Verö 750 þús. Langabrekka nýleg 90 fm ibúö á 3. hæð. Mosgerði lítil 3ja herb. risíbúö í tvíbýli. Verð 580 þús. Hlíðarvegur 75 fm sérhæð. Stór garður. Veit í suður. Út- sýni. 4ra herb. íbúðir Klapparstígur 115 fm hæð. Þarfnast endurnýjunar. Hægt að skipta í 2 íbúðir. Teikning á skrifstofunni. Verð 750 þús. Kleppsvegur góö íbúö í blokk. Baldursgata parhús á tveimur hæöum. Góð lóð. Verð 600 þús. Vitastígur skemmtileg risíbúð, 2 stofur, svefnherb. og 2 barna- herb. Litlar svalir. Sér hiti. Verð 700 þús. Vesturberg 110 fm góö íbúö á 2. hæð. Suðursvalir. Gamli bærinn góö ibúö meö stórum svölum. Ný standsett. Verð 830 þús. Seljavegur 2 stofur, 2 svefn- herb. Fallegar nýjar innrétt- ingar. Verð 800 þús. Óskast í skiptum 3ja herb. íbúð viö Furugrund fyrir 2ja herb. íbúð á sama stað. 3ja herb. íbúð í vesturbæ. I skiptum fyrir 2ja herb. jaröhæö við Flyðrugranda. Hraunbær 3ja herb. í skiptum fyrir 2ja herb. Þórsgata 29 80 fm íbúö í byggingu. Bílskýli. Skilast tilb. undir tréverk. Verð 830 þús. Útb. samkomulags- atriði. Teikningar á skrifstof- unni. Sameign fullbúin. Frágengið að utan. Erum með kaup- endur að: 2ja herb. íbúð, nýrri eða ný- legri. Gjarnan í blokk. íbúð með 2—3 svefnherb. og stofu. Má vera á byggingarstigi eða þarfnast lagfæringar. Helst sérhæð í Kóp. með bílskúr. Góð útb. 4—5 herb. íbúö eða litlu húsl til endurnýjunar. Góð útborgun. SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS LOf.M JOH ÞOROARSON HDL Til sölu og sýnis um helgina: 4ra herb. Endaíbúö í vesturborginni um 100 fm. 4ra herb. úrvalsíbúð viö Safamýri. Eins og ný. 3ja herb. íbúð viö Hraunbæ um 70 fm. 5 herb. íbúð við Stigahlíö. Ris fylgir. Raðhús við Lyngbrekku. í skiptum f. einbýlishús. Raðhús við Lyngbrekku. í skiptum f. einbylish. Þurfum að útvega m.a.: 3ja—4ra herb. íbúð í Háaleitishverfi og nágr. 3ja—4ra herb. íbúð í Árbæjarhverfi, Fossvogi eða nágr. (skipti möguleg á sérhæð með bílskúr). 4ra—5 herb. hæð í Hlíðum m/bílskúr eða bílskúrsréttindi. Skipti mögu- leg á 4ra herb. sérhæð í Hlíðunum. Helst í Kópavogi Þurfum að útvega sérhæð meö 3 svefnherb. og einbýlishús með 4 svefnherb. í báöum tilfellum skiptamöguleiki á stærri eignum. Ennfemur óskast í Kópavogi Einbýlishús á góðum stað. Skipti möguleg á 3ja—4ra herb. sér efri hæð á úrvalsstað með bílskúr. Veitum ráögjöf og AlMENNA leiðbeíningar viðskiptavinum okkar eins og jafnan áður. FASIEIGHtSM AN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU h AIGLVSINGA- UÍVflVV FU< 7 22480

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.