Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 24

Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 Sameiginlegt prófkjör á Bolungarvík: Fjórir bæjarfiilltrúar af sjö gefa ekki kost á sér Bolungarvík, II. marz. FJOKIK ha-jarfulltrúar gcfa ekki kost á sér til endurkjörs við næstu bæjar stjórnarkosningar í Bolungarvík, en samtals eru bæjarfulltrúar þar sjö. Sameiginlegt prófkjör stjórnmála- flokkanna í Bolungarvík fer fram laugardaginn og sunnudaginn 13. og 14. marz næstkomandi. Kosið verður í fundarsal ráðhússins og allir sem náð hafa 18 ára aldri 14. marz hafa kosn- ingarétt. Listar ^tjórnmálaflokkanna vegna prófkjörsins hafa verið ákveðn- ir, og eru þeir svohljóðandi: Alþýðubandalagið (G-listi): Benedikt Guðmundsson, Egill Guðmundsson, Guðmundur Óli Kristinsson, Guðmundur H. Magn- ússon, Hálfdán Sveinbjörnsson, Hallgrímur Guðfinnsson, Kristinn H. Gunnarsson, Lára Jónsdóttir, Magnús Sigurjónsson, Margrét S. Hannesdóttir, Stefán Ingólfsson og Þóra Hansdóttir. Framsóknarflokkur (B-listi): Benedikt Kristjánsson, Bragi Björgmundsson, Elísabet A. Krist- jánsdóttir, Guðmundur H. Guð- mundsson, Gunnar Leósson, Krist- ján Friðþjófsson, Sveinn Bernódus- son og Örnólfur Guðmundsson. Jafnaðarmenn og óháðir (H-listi): Aðalsteinn Kristjánsson, Daði Guðmundsson, Ingibjörg Vagns- dóttir, Jón S. Asgeirsson, Jónmund- ur Kjartansson, Kristín Magnús- dóttir, Kristný Pálmadóttir, Selma Friðriksdóttir, Steindór Karvels- son, Sverrir Sigurðsson og Valdi- mar Lúðvík Gíslason. Sjálfstæði.sflokkur (D-listi): Björg Guðmundsdóttir, Björgvin Bjarnason, Einar Jónatansson, Eva Hjaltadóttir, Guðmundur Agnars- son, Gunnar Hallsson, Hreinn Egg- ertsson, Ingibjörg Sölvadóttir, Ólafur Kristjánsson, Sigurður B.J. Hjartarson, Víðir Benediktsson og Örn Jóhannsson. I bæjarstjórn Bolungarvíkur eiga sæti Ölafur Kristjánsson, Guð- mundur Bjarni Jónsson og Hálfdán Einarsson frá Sjálfstæðisflokki, Valdimar Lúðvík Gíslason, Kristín Magnúsdóttir og Hörður Snorrason af lista vinstri manna og óháðra, og Guðmundur Magnússon frá Fram- sóknarflokki. Meirihluta bæjar- stjórnar skipa fulltrúar Sjálfstæð- ismanna og fulltrúar vinstri manna og óháðra. Fjórir bæjarfulltrúar gefa ekki kost á sér til framboðs við næstu bæjarstjórnarkosningar; Guðmundur Bjarni Jónsson, Hálf- dán Einarsson, Guðmundur Magn- ússon og Hörður Snorrason. Gunnar Björg Guðmund.sdóttir húsmóðir Guðmundur Agnarsson framkvæmdastjóri Gunnar llallsson verslunarmaður Prófkjörslisti Sjálfstæðisflokksins Sigurður Bj. Hjartarson sjómaður Víðir Bcncdiktsson vélvirki Örn Jóhannsson verkstjóri llreinn FggerLsson verkstjóri Ingibjörg Sölvadóttir húsmóðir Olafur Kristjánsson forseti bæjarstjórnar Svar til Anders Hansens blaðamanns Eftir Matthías Eggertsson Laugardaginn 5. mars sl. birt- ist í Morgunblaðinu athugasemd Anders Hansens við opnu bréfi frá mér undirrituðum til hans. Þar endurprentar hann hluta úr bréfi mínu |>ar sem ég í fullri vinsemd og trausti á hann ráð- lagði honum að skyggnast dýpra í mál Gunnars Bjarnasonar þeg- ar hann var skólastjóri á Hól- um, en hann hafði áður gert eft- ir því sem dæmt varð af skrifum hans. I athugasemd sinni vísar hann þessari ráðleggingu minni „heim til föðurhúsanna“ og heldur sig í einu og öllu við bók Gunnars „Líkaböng hringir“ sem heimild um þau mál. Þessi viðbrögð. Anders Han- sens urðu mér vonbrigði og mér þykja þau ekki gæfuleg. I opnu bréfi mínu til Anders Hansens vitnaði ég í eftirfar- andi ummæli hans: „Hér skal ekki eytt miklu rúmi í að rekja efni Líkabangar, eða Hólamála sem hún segir frá. F]n í sem stystu máli rekur bók- in hvernig miklar hugmyndir ungs manns um uppbyggingu hins forna Hólastaðar verða að engu. Hvernig kerfisþrælar og stjórnmálalegir andstæðingar brugðu fæti fyrir hann, og hvernig þá, er hið raunverulega vald höfðu, skorti vilja og kjark til að standa við bakið á honum þegar mest á reið. Bókin Líkaböng hringir er frásögn af baráttu lítilmagnans við ofureflið, dæmisaga um hvernig menn geta orðið leik- soppur stjórnmálanna og stjórnmálamannanna hér á landi.“ Þessa tilvitnun lét ég mér nægja en í áframhaldinu segir Anders Hansen enn frekar frá áliti sínu á því hvernig frásögn Gunnars getur hugsanlega opnað augu einhverra á því hvernig ekki á að standa að mál- um. Sjálfsagt er að veita stjórn- málamönnum, flokkum og mál- gögnum þeirra aðhald og halda uppi gagnrýni á það sem miður fer, en þeir sem það gera verða að hafa kunnugleika á því sem þeir fjalla um. Eg held því fram að það hafi Anders Hansen ekki í þetta sinn. Gerir hann sér einnig grein fyrir að ívitnuð ummæii hér að framan eru hnefahögg í andlit Ingólfs Jónssonar, fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Hlutverk þeirra sem starfa við að uppfræða almenning er að leggja mat á heimildir. Und- an þeim réttindum og þeirri kvöð getur enginn blaðamaður sem vill láta taka sig alvarlega, vikist. Frásagnir manna af at- burðum og málum sem þeir eru sjálfir þátttakendur í hafa löng- um þótt tvíeggja heimildir. Það er mannlegt að menn bæti held- ur hlut sinn en hitt þegar þeir segja sjálfir frá. Ég veit að um þetta eru ýmsir Sjálfstæðis- menn mér sammála. Ég lái Gunnari Bjarnasyni út af fyrir sig ekki að segja söguna frá sjónarhóli sínum, en ég get ekki setið þegjandi undir því þegar hann reynir að réttlæta mistök sín með því að niðra látnum mönnum. Þegar Anders Hansen gerir að skoðunum sínum hina lituðu frásögn Gunnars í bók- inni „Líkaböng hringir", þá taldi ég mér rétt og skylt að benda honum á að kynna sér sjálfur málin betur. Ég taldi og tel eöli- legra að hann geri það sjálfur, en ekki t.d. að ég geri það frá sjónarhóli mínum, til þess að persónuleg afstaða mín hafi ekki áhrif á skoðanamyndun hans. Ég vek athygli á að ég nefndi hvergi og ætlaðist ekki til að hann skrifaði um það sem hann yrði þá áskynja. Þessari ráðleggingu minni svarar hann þannig: „Hvatningu þeirri er Matthías beinir til mín um að ég kynni mér Hólamál betur en ég hef gert, vil ég í fullri vinsemd vísa heim til föðurhúsanna." Ég læt lesendur um að meta þetta svar. Matthías Eggertsson Rússar geta ekki fylgst með ferðum bandarískra kafbáta Wa.shing(on,3.marz. Al*. SOVÉZKI flotinn getur enn ekki fylgst með ferðum banda- rískra kafbáta, þrátt fyrir ítar legar tilraunir þeirra til að komast að því hvernig megi „hlusta“ kafbáta uppi, að sögn háttsetts embættismanns í handaríska varnarmála- ráðuneytinu. „Það er meiri háttar veikleiki hjá annars öflugum sjóher Sov- étmanna, að hann getur ekki leitað uppi kafbáta á úthöfunum. Þótt Sovétmenn hafi verið að þróa upp kafbátavarnir sínar, virðast þeir langt á eftir Banda- ríkjamönnum á sviði kafbáta- leitar, “ sagði Richard D. Delau- er ráðuneytisstjóri í skýrslu til bandaríska þingsins. Af skýrslunni má ráða, að Rússum stafaði mikil hætta af kafbátum. Kafbátarnir hefðu tíð og tíma til að skjóta eldflaugum á sovézk skotmörk áður en þeir fengju vörnum við komið, og einnig stafaði sovézkum herskip- um mikil hætta af kafbátunum, meðan þau gætu ekki fylgst með ferðum þeirra. Bandaríkjamenn hafa lengi þóst hafa mikið forskot á Rússa á sviði kafbátavarna, og talið er að það muni lengi halda aftur af Rússum að grípa til kjarnorku- vopnaárásar meðan þeir ekki geta fylgst með ferðum banda- rískra kafbáta, sem gætu hefnt árásar. Delauer hélt því fram, að Rússar væru skammt á veg komnir í því að hljóðdeyfa kaf- báta sína. Þeir tækju hraða fram yfir hávaða, en af þessum sökum er tiltölulega auðvelt að fylgjast með ferðum sovézkra kafbáta með þar til gerðum hlustunar- tækjum. Nýjustu kjarnorkukafbátar Rússa, Alfa-bátarnir, eru til dæmis hraðskreiðari en allir aðrir kafbátar heims og kafa dýpra en aðrir. En þótt þeir geti siglt með 40 sjómílna hraða, þá eru þeir hávaðasamari en aðrir sovézkir kafbátar, og því auð- veldari bráð bandarískrar kafbátaleita. Frá því var skýrt í Washing- ton í gær, að Rússar hefðu tekið nýjan kafbát af Alfa-gerð í notk- un á Norðurslóðum, en þar voru þrír þessara kafbáta fyrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.