Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 12

Morgunblaðið - 12.03.1982, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 Margrét Thatcher handleikur fótbolta. Um 50 enskir knatt- spyrnumenn eru tekjuhærri en hún, þrátt fyrir gífurlega fjárhags- öróugleika knattspyrnufélaganna. 50 fótbolta- menn tekju- hærri en for- sætisráðherra Ixindon, II. marz. ENSK knattspyrnufélög eiga við gífurlega fjárhagsörðugleika aó stríóa og minnir ástandið helzt á kreppuna miklu. Talið er að tap- rekstur atvinnuknattspyrnufélag- anna nemi samtals um fimm milljörðum króna og hafa þessar upplýsingar ekki aðeins valdið fjármálamönnum áhyggjum, heldur einnig stjórnmála- mönnum. Nú hafa brezkir bank- ar m.a. tekið til alvarlegrar at- hugunar að stöðva lánafyrir greiðslu til knattspyrnufélag- anna, eða a.m.k. takmarka hana verulega. A sama tíma og fjárhagserf- iðleikar félaganna komust í há- mæli, var skýrt frá því að knattspyrnumennirnir hefðu meiri tekjur en nokkru sinni, laun þeirra og bónusgreiðslur væru svimháar, auk þess sem það færðist í aukana að þeir fengju „greitt undir borðið", en í því sambandi hafa tölur eins og eitt þúsund sterlingspund á viku verið nefndar, sem jafn- gildir rúmum 18 þúsund krón- um. Samkvæmt upplýsingum sambands þess sem hefur um- sjón með deildakeppninni, The Football League, hafa a.m.k. 50 leikmenn í 1. deildinni ensku 1.200 punda grunnlaun á viku, eða sem svarar 21 þúsund krón- um. Það munu vera helmingi hærri laun en Margrét Thatch- er forsætisráðherra hefur, og eru þá undanskildar bónus- greiðslur og undirborðsgreiðsl- ur til knattspyrnumannanna. „Þessir erfiðleikar eru að mestu leyti stjórnendum félag- anna að kenna,“ sagði ónafn- greindur stjórnandi eins knatt- spyrnufélagsins í viðtali við BBC. Hann sagði þá þurfa að gera hreint heima fyrir áður en æir leituðu á náðir annarra með aðstoð. Á sama tíma og tekjur knattspyrnumannanna væru hækkaðar úr hófi fram og nýir leikmenn keyptir fyrir ofurpeninga, fækkaði áhorfend- um á áhorfendapöllunum. Reagan rædir við Sómalíuforseta Washington, 11. marz. AP. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti átti í dag viðræður við Mohamed Siad Barre Sómalíuforseta, aðeins einum degi eftir að Bandaríkjastjórn Times bjargað I/ondon, 11. marz. AP. RUPERT Murdoch, útgefandi Times og Sunday Times, sagði í dag, að þar sem náðst hefði samkomulag um fækkun starfsmanna á blöðunum við stéttarfélög þeirra, hefði hann hætt við áform sín um lokun blaðanna. „Það er mér sönn ánægja að skýra frá því að Times hefur verið bjargað frá lokun,“ sagði Murdoch. „Hvort Times hefur verið bjargað um aldur og ævi verður tíminn að leiða í ljós,“ sagði hann. Murdoch sagði samkomulag hafa náðst um niðurskurð 360 starfa nú þegar, og segja þyrfti upp um 1.000 starfsmönnum til viðbótar á næstu sex mánuðum. Samtals vinna 2.600 manns hjá Times í dag. tilkynnti að hætt yrði öllum olíu- viðskiptum við Líbýu, eitt helzta fjandríki Sómalíu. Háttsettur embættismaður sagði að forsetarnir hefðu m.a. rætt sín á milli framferði Khadaf- ys Líbýuleiðtoga, en fullyrt er, að stjórn Khadafys hafi m.a. kostað áróðursherferð gegn Sómalíu, sem verið hefur í gangi í Bandaríkjun- um að undanförnu. Embættismaðurinn sagði að Khadafy hefði lýst því yfir við opinbert tækifæri, að það sé tak- mark Líbýumanna að koma stjórn Barre frá í Sómalíu, og hafi þessi mál borið á góma í viðræðunum. Samskipti Sómala og Banda- ríkjamanna hafa farið batnandi frá því árið 1977 er Sómalir vísuðu sovézkum herráðgjöfum úr landi. í hitteðfyrra opnuðu Sómalir hafnir sínar við Adenflóa og Indlandshaf bandarískum herskipum. Þá hafa Bandaríkjamenn unnið að flug- vallabótum í landinu og sam- göngubótum, auk þess sem Sómal- ir hafa síðustu ár þegið hernaðar- aðstoð og efnahagsaðstoð frá Bandaríkjamönnum. Á síðastliðnu ári nam taprekstur Times 15 milljónum sterlings- punda, og sagði Murdoch mikinn umframstarfskraft eina megin orsökina fyrir þessu mikla tapi. Hefur Murdoch sagt að starfs- mönnum blaðsins þyrfti að fækka í um eitt þúsund, ef grundvöllur ætti að vera fyrir rekstri þess. Friðarhreyfing á næstu grösum í Bandaríkjunum „Blóð eins múslims er engin fórn fyrir gyðinga eða Bandaríkjamenn,“ hrópaði Kahled El-Islambouly er fréttamenn gengu inn í réttarsalinn í Kairó á laugardag. Khaled er ásakaður fyrir morðið á Anwar Sadat, forseta Egyptalands. Washington, 11. mars, frá Önnu Bjarnadóttur fréttaritara Mbl. UMRÆÐA og andstaða gegn kjarnorkuvopnum hefur aukist í Bandaríkjun- um á síðustu mánuðum. Mikill meiri hluti bæjarfunda í Vermont og New Hampshire hefur samþykkt tillögur um stöðvun framleiðslu kjarnorkuvopna og þing sex annarra ríkja hafa samþykkt svipaðar tillögur. Á fimmtudag lögðu síðan 17 öldungadeildarþingmenn og 122 fulltrúadeildarþingmenn úr báðum flokkum til í bandaríska þinginu að Bandaríkin og Sovétríkin sam- þykktu að hætta kjarnorkuvopnaframleiðslu og skæru síðan verulega niður vígbúnað sinn. Dozier til starfa á nýjan leik Verona, 11. marz. AP. BANDARÍSKI hershöfðinginn James Dozier, sem var rænt frá heimili sínu í Veróna á Ítalíu í desember sl., kom á ný til starfa í bækistöðvum NATO í borginni í gær. Hann sagði við kom- una að nú væri runnin upp sú stund, sem hann og kona hans hefðu vonast eftir og beðið til Guðs að rynni upp, allan þann tíma, sem hann var í haldi. Dozier gaf þó í skyn, að hann myndi einungis gegna störfum í Ver ona í nokkra mánuði enn. Dozier sagðist vonast til að hann og fjöl- skylda hans fengju á næstunni frið fyrir fjölmiðlum og yrðu ekki jafn- mikið í sviðsljósinu og verið hefði. SEM LIDUR í upprætingu spillingar í Sovétríkjunum hefur opinbert mál- gagn í landinu krafist þoss að látið verði til skarar skríða gegn svarta- markaðsbraski með hundaskinns- húfur. Eftir því sem blaðið Sovet- skaya Rossiya segir hafa margir hagnast verulega á þessari iðju, sem er í senn ólögleg og hættuleg. Edward Kennedy, demókrati frá Massachusetts, og Mark 0. Hat- field frá Oregon lögðu tillöguna fram í öldungadeildinni. Hatfield rifjaði upp aðkomuna í Hiroshima í ágúst 1945 á blaðamannafundi og sagði að nú hefði jafnvirði milljón slíkra sprengja verið framleiddar. „Við erum fær um að gjöreyða öllu mannkyninu," sagði hann á fund- inum sem fjöldi trúarleiðtoga og leiðtogar annarra hópa sóttu. Hat- field sagði að nú væri rétti tíminn til að semja við Sovétmenn því þeir byggju yfir „svipuðum kjarn- orkuvopnafjölda" og Bandaríkja- menn. Alexander Haig utanríkisráð- herra gagnrýndi tillöguna þegar og sagði að hún myndi stofna ör- yggi landsins í hættu og spilla fyrir stefnu Ronald Reagans for- seta að fækka kjarnorkuvopnum um allan heim. „Þetta er ekki að- eins slæm stefna í öryggismálum," sagði Haig „heldur einnig með til- liti til takmörkunar vígbúnaðar." Hann sagði að tillagan myndi ekki hvetja Sovétmenn til að skera niður vígbúnað sinn og ef fram- leiðslu yrði hætt nú myndu þeir standa mun betur að vígi í Evrópu Sala hatta úr hundaskinni hefur aukist verulega á undanförnum árum þar sem ekki hefur verið hægt að sinna eftirspurn eftir venjulegum skinnhúfum. Verða einkum flækingshundar eða hund- ar, sem stolið hefur verið, fyrir barðinu á þessari nýju iðngrein. Verð á hefðbundnum loðhúfum hefur hækkað gífurlega. Kostar eða hafa 6 kjarnorkuvopn gegn hverju einu í Vestur-Evrópu. Bæjarfundirnir sem hafa sam- þykkt tillögur um stöðvun kjarn- orkuvopnaframleiðslu fjalla yfir- thailensku stjórninni fullyrðir, að Sovétmenn séu að hefjast handa um byggingu mikillar flotastöðvar í Kam- bódíu og einnig, að hergagnasend- ingar þeirra til kommúnistaríkjanna þriggja í SuðausturAsíu séu nú sem nemur sex milljónum dollara á degi hverjum. Haft er eftir Prasong Soonsiri, formanni þjóðaröryggisráðsins í Thailandi, að Sovétmenn hafi byrj- að á byggingu flotastöðvarinnar í borginni Ream í Suðvestur-Kam- bódíu fyrir nokkrum mánuðum. Einnig hafi þeir að undanförnu haft aðstöðu í Kompong Som auk tveggja hafna í Víetnam, Danang og Cam Ranh. Soonsiri sagði, að hernaðarað- t.d. húfa úr kanínuskinni 35 doll- ara en húfa gerð úr minki er seld á 840 dollara. Til glöggvunar má geta þess að það eru nærri ferföld mánaðarlaun verkamanns í Sov- étríkjunum. Verð á húfum úr hundaskinni er nú um 280 dollar- ar. leitt aðeins um bæjarmál. Stuðn- ingurinn sem tillögurnar hafa fengið þykir benda til þess að al- menningur sé farinn að hugsa al- varlega um hættuna sem stafar af vígbúnaðarkapphlaupinu. Ekki þykir ósennilegt að friðarhreyfing fari af stað hér með vorinu eins og í Evrópu í fyrra og þykir mörgum ráðlegt að stjórn Reagans geri ljósa grein fyrir stefnu sinni og hefji samningaviðræður við Sov- étmenn um vígbúnaðartakmark- anir eins fljótt og unnt er. stoð Rússa við Víetnama, Kambód- íu og Laos væri nú um sex milljónir dollara á dag og að auki hefðu þeir fjölgað hernaðarsérfræðingum sín- um í Víetnam úr 5000 í 8000 á síð- asta ári. „Moskva er nú að treysta tökin á Víetnömum og vinnur að því að losna við nokkra leiðtoga þeirra, sem ekki eru taldir nógu auðsveipir," sagði Soonsiri. Stuðlar að frelsi með fiðluleik lUmborg, 11. marz. AP. WANDA Wilkomirska, fyrrum eig- inkona Mieczyslaw Rakowski vara- forsætisráðherra Póllands, segir í viðtali við þýzkt vikublað í dag, að hún ætli að setjast að í Vestur Þýzkalandi, og nota tónlistarhæfi- leika sína i þágu frelsisbaráttunnar í heimalandi sínu. Wilkomirska segist þó ekki ætla að gerast þýzkur ríkisborg- ari, heldur búa í V-Þýzkalandi, sem Pólverji án ríkisfangs. Hún reyndist ófáanleg til að ræða um ástandið í Póllandi. Hún ákvað fyrir skemmstu að snúa ekki til Póllands úr tón- leikaferðalagi um » Vestur- Evrópu, en Wilkomirska er kunnur fiðluleikari á alþjóða- mælikvarða. Fyrrum eiginmaður hennar er einn valdamesti maður í pólska kommúnistaflokknum og hafði mikilvægu hlutverki að gegna í samningaviðræðum Sam- stöðu og yfirvalda í fyrra. Loðhúfa kostar ferföld mánaðarlaun verkamanns Ráðist gegn framleidendum loðhúfa úr hundaskinni í Sovétríkjunum Moskvu, 11. mars. AP. Rússar koma upp flotastöð í Kambódíu Bangkok, Thailandi, 11. mars. AP. HÁTTSETTUR embættismaður í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.