Morgunblaðið - 12.03.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.03.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 7 Borðstofuhúsgögn frá BAHUS í mjög háum gæðaflokki. veröiðótrúlegahagstætt Smiðjuvegi 6 - Sími 44544 RAM TOUGH B—250 — 1982 SENDIBÍLAR Við getum nú boöið þessa frábæru Dodge B—250 sendibíla á ótrúlega hagstæöu veröi: Af útbúnaði má nefna: 6 cyl. vól vökvastýri sjálfskiptingu rennihurð á hliö aflbremsur styrktur undirvagn diskabremsur aö framan buröargeta 1,5 tonn Dodge er eitthvert þekktasta nafn í heimi í sendi- og atvinnu- bílum. Dodge hefur áratuga langa reynslu á íslandi. Beriö sam- an verð og gæöi viö aörar tegundir og þiö komist aö raun um aö enginn leikur á Dodge L þeim efnum. Dodge B—250 er smíöaður til aö endast. Verd kr. 233.352 miöaö við gengi pr. 08.03. 1982. Hafið samband strax í dag. @ Wfökull hff. Ármúla 36 - 84366 Tíföldun erlendra skulda 1970 Þjóöviljinn birti á dögunum háværan húrraleiðara vegna frammi- stööu Ragnars Arnalds, fjármálaráöherra, í erlendri skuldasöfnun, sem þannig er samiö um, að hún er afborgunarlaus fyrstu árin, svo öruggt sé, að vandanum sé velt yfir á eftirkomendur núverandi ríkisstjórnar. Rembist Þjóöviljaritstjórinn eins og rjúpa viö staur í þeirri viöleitni aö láta þessa skuldasöfnun gufa upp í tölfræðilegum sjónhverfingum. Því er viö hæfi aö birta hér súlurit úr stefnuriti Verzlunarráðs íslands er sýnir þróun erlendra lána allar götur síðan 1969. Skuldaskriðiö í tíö fjármálaráðherra Alþýöubandalagsins slær öll met, enda hafa erlendar lántökur ekki veriö í neinu samræmi viö innlenda fjárfestingu; rekstur fyrirtækja, stofnana og innlend neyzla hefur veriö greidd meö erlendum lánum í tíö núverandi ríkisstjórnar og sett hagkerfiö í alvarlega kreppu. síðan „Landsverzl- un“ í inn- flutningi? Svavar Gestsson, félags- málarádherra <>$» formadur Alþýöuhandalagsins, sagdi m.a. í nýlegri þingræðu: „Hæstvirtur fjármála- ráðherra hefur farið þess á leit við Innkaupastofnun ríkisins, að hún kanni þetta mál alveg sérstaklega (innskot: þ.e. aðild ríkisins að innflutningsverzlun) og sú könnun hefur verið í gangi nú um nokkra hríð og við teljum að með þessu móti mætti jafnvel veita innflutningsverzluninni hér verulegt aðhald og tryggja það, að vöruinnflutningur á stórum og þýðingarmiklum neyzluvörum hér í landinu, að hann verði hagkvæmari en verið hefur. I»að er al- veg greinilegt að sam- keppnin, þó að hér væru 2 þús. heildsalar eða 20 þús., hún dugir ekki í þessum efnum, hún dugir ekki þessi margrómaða frjálsa samkeppni, því að reynslan sýnir, að innflutningsverzl- unin á íslandi er baggi á þjóðarbúinu, er einhver dýrasti þátturinn í íslenzka þjóðarbúinu og þess vegna teljum við, að það væri skynsamlegt og nauðsyn- legt, að stuðla að því, að fá fram samanburð við hina svokölluðu frjálsu innflutn- ingsverzlun með opinber um innkaupum á stórum flokkum, vöruflokkum." Hér er formaður Alþýðu- bandalagsins greinilcga að boða ríkisumsv if í innflutn- ingsverzlun, væntanlega nýtt bákn fyrir flokksgæð- inga, á a-evrópska vísu. bingmenn gengu í skrokk á Tómasi Árnasyni, við- skiptaráðherra, og kröfðust svara um, hvort þessi yfir lýsing félagsmálaráðherra og „könnun" fjármála- ráðherra, væri stefnumót- andi fyrir ríkisstjórnina í heild. Svarið var á þagn- armáli. Vonandi á hér ekki við máltækið: „l»ögn er sama og samþykki." Eða ætlar Eramsóknarflokkur inn að standa að þjóðnýt- ingu innfliitningsdeildar og skipadeildar SIS? Að skatt- Icggja vanda fólks og byggdarlaga! Hér verður drepið á örfá skattaatriði — af mörgum — þar sem ríkisvaldið kemur til skjalanna, þegar vanda ber að höndum, eða utanaðkomandi aðstæður þyngja lífsbaráttu fólks, ekki til að hjálpa eða létta undir, hcldur til að skatt- leggja vandamálin!: • 1) Mörg sveitarfélög verja fjallháum fjárhæðum í snjóruðning til að halda opnu vegakerfi í þéttbýli, enda víða snjóþungt í landi okkar. I»essi snjóruðningur er oft unninn með véla- kosti sem sveitarfélögin koma sér upp dýrum dóm- um — og greiða af há inn flutningsgjöld til ríkissjóðs. Síðan kemur ríkissjóður og leggur 2.T 2% söluskatt á snjómoksturskostnaðinn! I»að er dálagleg rúsína í pylsucnda erftdra kringum- stæðna. • 2) Elutningskostnaður, sem leggst ofan á vöru frá uppskipunarhöfn að strjálbýllsverzlun, veldur mun hærra vöruverði og þyngri framfærslukostnaði þeirra, er við þurfa að búa. iH'tta getur samúðarfullt ríklsvald að sjálfsögðu ekki horft upp á á tímum samfélagslegrar hjálpar og jöfnunar. I»essvegna bætir það 23' yýj söluskatti ofan á flutningskostnaðinn, enda eru kosningar kjarabarátta og allt það. • 3) l'pp úr áramótum fann rikisstjórn þjóðráð í niðurtalningu verðlags í landinu: 1% tollvörugjald, þ.e. nýjan verðþyngjandi skatt, sem gegnir ryksugu- hlutverki fyrir ríkissjóð í heimilispeningum fólks. En ekki nóg með það. I»ennan skatt þurfti að skattleggja: Söluskattur var settur ofan á herleg- heitin, enda eru kosningar kjarabarátta og samningar löngu komnir í gildi, eða hvað? • 4) Og ekki má gleyma himnasendingunni, marg- foldun olíuvcrðs á heims- markaði á liðnum árum. I»á var nú gaman að búa við prósentuálagningu rík- isskatta ofan á kostnaðar verðið, og gera ríkissjóði viðbótarskatttekjur úr þessum utanaðkomandi vanda. Og nú var það ekki bara blcssaður söluskattur inn sem „taldi niður" sölu- verðið, heldur fleiri slíkir, enda fer hátt í 60% benzín- verðs í ríkisskatta. Matthías Bjarnason, alþingismaður: Byggdaþróun í Árneshreþpi Matthías Kjarnason (S) mælti ný- verið fyrir tillögu til þingsályktunar, sem hann flytur ásamt öðrum Vest- fjarðaþingntönnum, um aðgerðir til að tryggja eðlilega byggðaþróun í Arneshreppi í Strandasýslu. Tillagan felur m.a. í sér að ríkisstjórnin láti framkvæma undirbúning og hönnun hafnarframkvæmda í Árneshreppi í Strandasýslu og gera kostnaðaráætl- un um þessar framkvæmdir og til- lögu til fjáröflunar til að standa und- ir þeim. Verði stefnt að því að fram- kvæmdir geti hafizt vorið 1983. I»etta verði fyrstu aðgerðir til að treysta og efla byggð í þessum nyrzta hreppi Strandasýslu. A fjórða tug þessarar aldar var reist síldarverksmiðja í Djúpuvík og nokkru síðar á Eyri í Ingólfs- firði. I kjölfarið kom blómaskeið í þessum hreppi. Þessar atvinnu- greinar hrundu þegar kom fram á fimmta áratuginn með afdrifarík- um afleiðingum fyrir byggðarlag- ið, sem komu fram í fækkun ibúa úr tæplega 500 manns í 175. Matthías Bjarnason Flutningsmenn telja langbrýn- asta verkefnið í Árneshreppi að efna til hafnarframkvæmda í Norðurfirði, þannig að íbúar stað- arins geti búið við lík skilyrði um samgöngur á sjó og sjósókn og önnur hliðstæð byggðarlög. Minna þeir á afdrif hreppanna norðan Árneshrepps í Strandasýslu þegar byggð lagðist niður í Sléttu- og Grunnavíkurhreppum í Norður- Isafjarðarsýslu. Matthías rakti ítarlega í fram- sögu framvindu í byggðaþróun í Árneshreppi, orsakir og afleið- ingar, og áréttaði nauðsyn þess að treysta byggð á þessum slóðum. Hann sagði aðliggjandi vegi niðurgrafna og lokast snemma haust hvert og vegasamband kæmist ekki á fyrr en að vori, jafnvel ekki fyrr en fram á sumar kemur. Vegakerfi innan hreppsins sé hinsvegar gott. Svo lítil byggð rísi ekki undir eigin hafnargerð, kostnaðarlega, og með hliðsjón af kringumstæðum og samhengi byggðar á þessu svæði sé ríkinu skylt að grípa inn í byggðaþróun- ina með jákvæðum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.