Morgunblaðið - 12.03.1982, Page 3

Morgunblaðið - 12.03.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 3 Spurning um þátttöku okkar, skilji dómarar ekki íslensku - segir Stefán Jónsson um dóm á íslenskum bókmenntum í þýdingum vegna bókmenntaverdlauna Norðurlandaráðs — Ég tek undir það med Sverri Hermannssyni, ad þeir sem láta sig bókmenntir nokkuð varða eru þeirrar skoðunar að íslenskumælandi menn sitji í dómnefnd vegna bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs og menn gera sér jafn- framt Ijóst að það getur kostað einhverja fjármuni að kippa þessu í lag, sagði Stefán Jónsson alþingismaður er Mbl. spurði hann álits á því hvort íslendingar sætu við sama borð og aðrar Norðurlandaþjóðir varðandi mat bókmennta til verðlauna hjá Norðurlandaráði. Sverrir Hermannsson vakti og aðrir Norðurlandabúar þar sem máls á því í almennum umræðum á þingi Norðurlandaráðs í Hels- inki á dögunum, að íslenskir rit- höfundar sætu vart við sama borð dómnefndarmenn, aðrir en is- lenskir, yrðu að lesa íslensku bók- menntaverkin í þýðingum. — Sverrir flutti þarna góða ræðu og Heildaraflinn 93 þús. lestum minni en á sama tíma í fyrra HEILDARAFLI landsmanna fyrstu tvo mánuði ársins reyndist vera 99.398 lestir, en sömu mánauði í fyrra var aflinn 193.087 lestir, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands. Er afli fyrstu tvo mánuði þessa árs 93.699 lestum minni en í fyrra. Munar hér mestu um loðnuveiðina, sem var í fyrra 87.311 lestir, en aðeins 11.676 lestir fyrstu tvo mánuði þessa árs. I'á má einnig rekja minni afla til verkfalls sjómanna í janúarmanuði. Heildar þorskaflinn er 47.496 Togaraaflinn er nú 21.713 lestir, lestir fyrstu tvo mánuði þessa árs, en var 57.295 lestir sömu mánuði í fyrra. Bátaaflinn er nú 25.783 lest- ir á móti 31.590 lestum í fyrra. Góð þátttaka er í fyrirsætukeppninni „FYRSTU tvo dagana eftir að fréttin um keppnina birtist í Morgunblaðinu fengum við ábendingar um rúmlega þrjátíu stúlkur og síðan hafa okkur borist upplýsingar jafnt og þétt,“ sagði Katrín Pálsdóttir, ritstjóri tímarits- ins Líf, er Mbl. leitaði upplýsinga um þátttöku í keppn- inni „Ljósmyndafyrirsæta Líf“, en sigurvegari í þeirri keppni mun taka þátt í keppninni „Face of the 80’s“ sem haldin verður á vegum tískufyrirtækisins „Ford Models“ í Bandaríkjunum í sumar. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu er Líf umboðs- aðili fyrir þessa keppni hér á landi og að undanförnu hefur verið unnið úr þeim upplýsing- um sem borist hafa, en frestur til að senda upplýsingar og ábendingar um stúlkur í keppn- ina rennur út á mánudaginn, 15. marz n.k. Katrín Pálsdóttir sagði, að eftir þann tíma yrði hafist handa við myndatökur og síðan yrðu valdar úr þær stúlkur sem kepptu til úrslita. Ráðgert er að úrslitakeppnin verði í maí n.k. og mun fulltrúi frá „Ford Models“ sitja í dóm- nefndinni þar sem valin verður sú stúlka sem mun taka þátt í keppninni, „Face of the 80s“, sem haldin verður í Atlantic City í júlí. Líklegt er, að flestar þær stúlkur, sem taka þátt í keppn- inni komist á samning hjá sýn- ingarsamtökum í Bandaríkjun- um, auk þess sem há verðlaun eru í boði fyrir þær sem lenda í fyrstu sætunum. Mesti snjór á Ólafsvík síðan 1951 Olafsvík, 10. marz. Búast má við að þegar vind hreyfir verði hér erfiðleikar á veg- um meiri en þegar eru. Undan- farnar vikur hefur staðið til að af- henda og taka í notkun nýja skíða- lyftu Skíðamiðstöðvarinnar á Fróðárheiði en af því hefur ekki ennþá orðið, einkum vegna snjó- leysis á fjallinu. Nú er hins vegar svo komið að sagt er að enn geti þurft að fresta þessu, því skíða- ég styð þessi sjónarmið heils hug- ar, sagði Stefán Jónsson. — Við megum ekki láta frændum okkar haldast það uppi að fara með okkur eins og einhverja annars flokks þjóð. En ef menn þurfa hér að horfa í kostnað er spurning hvort þessi verðlaun falla bara ekki niður, að minnsta kosti hvað aðild okkar varðar, og þá tel ég að þessi verðlaun missi verulega gildi sitt. Ég tel að þetta eigi að fara rétta boðleið og eigi að komast á dagskrá í menningarmálanefnd- inni, en hér er auðvitað spurning um það hverja áherslu við viljum leggja á bókmenntir og gildi þeirra yfirleitt. Eiður Guðnason formaður menningarmálanefndarinnar var einnig spurður álits á þessari skoðun sem Sverrir Hermannsson kynnti í ræðu sinni: — Vissulega væri það æskileg skipan mála að geta hrint því í framkvæmd að ís- lensku bókmenntaverkin fengju meðhöndlun af íslenskumælandi mönnum í dómnefnd. Ef til vill verður það eitthvað erfitt í fram- kvæmd og gæti orðið erfitt að finna rétta menn í það hlutverk. Þýðing, hversu góð sem hún er, verður aldrei annað eða meira en þýðing og það hlýtur að vera eðli- legast að fjalla um bókmennta- verkin á frummálunum. Fulltrúar Samtaka íbúðaeigenda við Gnoðarvog afhenda Guðrúnu Jónsdótt- ur mótmælayfirlýsinguna. Frá vinstri til hægri: Njáll Sigurðsson, Arni B. Eiríksson, Halldór Þórðarson og Guðrún Jónsdóttir. Ljósm. Mbi.: kax. íbúðaeigendur við Gnoðarvog afhenda mótmælayfirlýsingu EIGENDUR íbúða við Gnoðarvog í Reykjavfk gengu á fund Guðrúnar Jónsdóttur forstöðumanns borgarskipulags í gær í því skyni að afhenda henni mótmælaskjal vegna fyrirhugaðr- ar byggingar íbúðarhúsa á Sogamýrarsvæði. en var 25.705 lestir í fyrra. Heildarbotnfiskaflinn er nú 84.294 lestir, en var orðinn rétt rúmnar 100 þúsund lestir í fyrra. 'O INNLENT Tildrög þessara mótmælaað- gerða eru þau að 11. jan. síðast- liðinn auglýsti borgarstjórn til- lögu um breytingu á aðalskipu- lagi Reykjavíkur frá 1967, varð- andi breytta landnotkun á svæði því sem áður var skipulagt sem útivistarsvæði sunnan Gnoðar- vogs og norðan Miklubrautar. Eru íbúðaeigendur mjög óánægð- ir með þessa tillögu og krefjast að þessi breyting komi ekki til framkvæmda. Ákváðu þeir því að stofna formleg samtök íbúðaeig- enda við Gnoðarvog til að standa vörð um hagsmuni sína. í mótmælaskjali þessu segir m.a. að íbúðaeigendur við Gnoð- arvog vilji ekki gera „þétting- una“ í Sogamýrinni að flokks- pólitísku deilumáli heldur telji þeir, að hér sé um að ræða lýðræðislegt baráttumál borgar- anna og persónulegt hagsmuna- mál hvers og eins. Þess vegna hafa þeir, allir hvar í flokki sem þeir standa, ákveðið að samein- ast sem einn maður í afstöðu sinni og kröfugerð fyrir dómstól- um ef til kemur. VORLINAN ’82 er komin UNDANFARNA þrjá daga hefur gengið hér á með snjóéljum og hefur kyngt niður miklum snjó. Heyrði ég í dag sagt eftir Þorgils Þorgilssyni i Hrísum, sem er landskunnur fyrir veð- urdagbækur sínar, að jafnfallinn snjór væri um 40 sm og hefði ekki legið þykkari jafnfallinn snjór á jörðu hér síðan 1951. Iyftan sé komin á kaf í snjó. Það kann þó að vera eitthvað orðum aukið. í gærmorgun sást tófa á stjákli á götu hér ofarlega í þorpinu og er það næsta fátítt. Verið er að ryðja götur í dag. Sjómenn hafa fengið hægviðri síðan á helgi og er sæmi- legur afli þessa dagana, algengt 8—10 lestir eftir nóttina. Helgi W&KARNABÆR " og umboðsmenn um land

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.