Morgunblaðið - 12.03.1982, Page 31

Morgunblaðið - 12.03.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 3 1 Urslitaleikur Liverpool og Tottenham í deildarbikarkeppninni Tvö af mestu knattspyrnu- stórveldum Evrópu mæt- ast á Wembley á morgun Á ÍSLANDI er bedid með mikilli eftirvæntingu eftir úrslitaleik Liverpool og Tottenham í ensku deildarbikarkeppninni í knattspyrnu. Það er ekki einungis vegna þess að þar eru á ferðinni tvö af bestu liðum Bretlandseyja (og örugglega Evrópu), heldur ekki síður vegna þess að í fyrsta skipti verður sýnt hérlendis beint frá íþróttaviðburði. En liðin eru sem fyrr segir í hópi þeirra bestu, Liverpool keppir til sigurs á þremur vígstöðvum, í 1. deild, deildarbikar og Evrópukeppni meistaraliða. Tottenham er með enn fleiri járn í eldinum, liðið berst til sigurs í deild, deildarbikar, FA-bikar og í Evrópukeppni bikarhafa. Bsði þykja liðin líkleg til sigurs hvar sem þau koma. Tottenham með sitt sterkasta lið Gengi Liverpool hefur verið dálítið óstöðugt að undanförnu, Tottenham hefur hins vegar burstað alla síðustu mánuðina og hefur einu gilt hvað viðkomandi félög hafa heitið. En í vikunni léku bæði ( 1. deildar keppninni og sýndu að þau eru bæði í fjórða gír, Tottenham gersigraði hið illsigranlega lið Brighton á útivelli, 3—1, og Liverpool burstaði Stoke, 5—1 á Victoria Ground í Stoke. Tottenham slapp með alla sína bestu menn óskrámaða frá Brighton, en ein breyting verður þó líklega gerð þar sem Ricardo Villa mun taka stöðu Mike Hazzard. Liverpool varð hins vegar fyrir því áfalli, að Alan Hansen meiddist illa á hné og síðustu fréttir hermdu að hann myndi ekki ná sér tímanlega til að geta leikið. Stöðu hans tekur fyrirliðinn fyrrverandi Phil Thompson, sem leikið hefur með varaliðinu síðustu vikurnar. Tottenham mikid bikarlið Tottenham er gamalfrægt félag, stofnað 1882, atvinnuknattspyrnufé- lag frá 1895 og hlutafélag frá 1898. Heimavöllur liðsins frá 1898 hefur verið White Hart Lane í Lundúnum. Liðið hefur þrátt fyrir frægð sína aðeins unniö ensku meistaratignina tvisvar, árið 1950—51 og 1960—61. Tottenham er hins vegar forhert bikarlið og hefur til dæmis unnið FA-bikarinn eftirsótta sex sinnum, 1901, 1921, 1961, 1962, 1967 og 1981. Árið 1961 vann liðið auk þess 1. deildina, því tvöfalt, en aðeins tvö lið hafa unnið það afrek frá upphafi, Tottenham og nágranninn og erki- fjandinn Arsenal. Deildarbikar- keppnin er ekki eins gömul og rót- gróin keppni. Engu að síður hefur Tottenham tvívegis borið þar sigur úr býtum, árin 1971 og 1973. Liver- pool vann keppnina í fyrra og hefur því titil að verja. En Tottenham- veldið hefur teygt arma sína víðar, liðið sigraði í Evrópukeppni bikar- hafa 1962—63, UEFA-keppninni 1971—72, auk þess sem liðið hafnaði í 2. sæti þeirrar keppni tvö næstu keppnistímabil. Liverpool mikid stórveldi Liverpool er ekki minna stórveldi en Tottenham og margir myndu segja félagið mun meira veldi ef nokkuð. Liðið hefur unnið Eng- landsmeistaratitilinn 11 sinnum, síðast 1978—79. Félagið var stofnað 1892, atvinnufélag frá 1892 og hluta- félag frá 1892. Ef við rennum yfir afrekaskrá Liverpool, þá lítur hún svona út: Englandsmeistari: 1900— 01, 1905-06, 1921-22, 1922-23, 1946-47, 1963-64, 1965-66, 1972-73, 1975-76, 1976-77 og 1978—79. FA-bikarmeistari: 1965 og 1974. Deildarbikarmeistari 1981. Evrópukeppni meistaraliöa: 1976-77, 1977-78 og 1980-81. UEFA-bikarmeistari 1972—73 og 1975—76. Stórbikarmeistarar 1977. Fyrir utan alla þessa titla eru ótalin þau skipti sem félagið hefur hafnað í öðru sætinu í hinum ýmsu keppn- um, sex sinnum hefur Liverpool til dæmis hafnað í því sæti í 1. deild og fjórum sinnum sigrað í 2. deild. Valinn maður í hverju rúmi Bæði liðin eru skipuð einvalaliði eins og sjá má af hinum líklegu liðs- uppstillingum sem birtar eru hér á síðunni. Varnarleikur beggja liða er traustur ef á heildina er litið þó ekki séu sérstök stórnöfn þar á ferðinni. Miðvallarflokkar beggja félaga eru geysisterkir. Tottenham teflir án efa fram leiknari einstaklingum á þeirri vígstöð, fáir eru þeim Ardiles, Hoddle og Villa og/eða Hazzard fremri í þeim efnum. En Tottenham leikur 4-3-3 gegn 4-4-2 hjá Liver- pool. Styrkur Liverpool á miðjunni felst í fjöldanum og ótrúlegum dugnaði hvers og eins leikmanns. í þeim efnum er til dæmis Sammy Lee engum líkur. En McDermott, Whelan og Souness eru auk þess frábærir leikmenn bæði hvað dugn- að og leikni varðar. Loks má geta þess að bæði lið skora feikn af mörkum. Tottenham gekk fremur ilia við þá iðju framan af vetri, en það hefur heldur betur rofað til og þeir Crookes og Archibald hafa skorað mikið að undanförnu. Og ef þeir bregðast hafa Hazzard og Falco ekki látið á sér standa. Liverpool teflir hins vegar fram næst mark- hæsta leikmanni Bretlandseyja, Ian Rush, sem skorað hefur 23 mörk í vetur. Leikmenn Tottenham verða að hafa góðar gætur á honum, svo og félaga hans Ken Dalglish sem aldrei má líta af. Þá er það styrkur hjá Liverpool hvað miðvallarleik- mennirnir eru duglegir að fylgja sókninni, skapa sér færi og skora. Þá má loks geta þess, að einn er sá leikmaður á vellinum sem hefur meiri ástæðu en flestir aðrir til að hlakka til leiksins. Það er Ray Clemence, markvörður Tottenham. Hann er lykilmaður hjá Tottenham, en síðustu tíu árin stóð hann í marki Liverpool og gerði þar garðinn heimsfrægan. Samantekt —gg • Leikmenn Liverpool, Graeme Souness, Alan Hansen og Kenny Dalglish, með góðgerðarskjöldinn, ein af mörgum sigurlaunum sem félagið hefur hreppt síðustu árin. Geysilegur áhugi fyrir fyrstu beinu útsendingunni ÞAÐ verður Brian Moore, hinn kunni breski íþróttafréttamaður sem mun lýsa úrslitaleiknum milli Liver pool og Tottenham fyrir íslenskum sjónvarpsáhorfendum á morgun. Moore er þulur ITV-sjónvarpsstöðv- arinnar og er fslendingum að góðu Stjörnuhlaup FH ÞKIflJA stjörnuhlaup FH verður haldið á laugardaginn og hefst það klukkan 14.00 við Lækjarskólann í Ilafnarfirði. Keppt verður í fimm flokkum, karlaflokki, kvennaflokki, flokki 13—16 ára sveina, telpna 14 ára og yngri og stráka 12 ára og yngri. kunnur, að minnsta kosti þeim sem horfa reglulega á ensku knattspyrn- una á laugardögum. Þurfti RUV að semja sérstaklega um lýsingu, þí í upprunalega samningunum var að- eins kveðið á um leikinn og hljóð á vellinum. Hátíðin mun hefjast í sjónvarp- inu klukkan 14.30 og mun Bjarni Fel. þá sýna valda kafla úr leikj- um Liverpool og Tottenham, bæði gömlum og nýjum. Klukkan 14.55 hefst síðan beint sjónvarp frá Wembley. Geysilegur áhugi virðist vera fyrir dagskráratriði þessu, heilu félagasamtökin ætla að horfa á leikinn saman og þegar er búið að flýta 1. deildarleik HK og KR sem leika átti að Varmá klukkan 14.00 á morgun. Hann hefst þess í stað klukkan 13.20. Heyrst hefur að til standi að flýta einnig öðrum leikj- um eða fresta þeim, fari þeir fram á útsendingartíma. íslandsmótið í judó SEINNI hluti íslandsmótsins í júdó verður sunnudaginn 14. mars í íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst kl. 14. Þá verður keppt í opnum (lokki karla og einnig í kvennaflokki og í flokkum unglinga 15—17 ára. Liðin sem leika Þannig verður lið Liver- pool líklega skipað á morgun: Markvörður: Bruce Grobbelaar Varnarmenn: Phil Neal Alan Kennedy Phil Thompson Mark Lawrenson Miðvallarleikmenn: Ronnie Whelan Graeme Souness Sammy Lee Terry McDermott Framherjar: Ken Dalglish lan Rush Varamenn: DaveJohnson Cralg Johnston Þannig verður lið Totten- ham líklega skipað á morgun: Markvörður: Ray Clemence Varnarmenn: Chris Houghton Paul Miller Graham Roberts Steve Perryman Miðvallarleikmenn: Osvaldo Ardiles Ricardo Villa Glenn Hoddle Framherjar: Steve Archibald Garth Crookes Tony Galvin Varamenn: John Lacy Marc Falco Mike Hazzard • Argentínumennirnir frábæru, Ricardo Villa og Osvaldo Ardiles, lyk- ilmenn Tottenham.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.