Morgunblaðið - 13.03.1982, Side 1

Morgunblaðið - 13.03.1982, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 56. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nýtt spænskt Dutningaskip í júmfrúarferð undir íslenzkum samningi. Myndin var tekin á strandstað við Counenoole- unnið var við viðgerð á vél. Sjá „Hrakti vélarvana upp í fána og flaggi strandaði í fyrrinótt við strendur írlands og er flóa í gærmorgun, en þá var skipið byrjað að liðast í sundur. hamra írlandsstrandar" á bls. 25 og „Reiknum með nýju skipið talið ónýtt. Fimmtán manna spænsk áhöfn var á skip- Tíu vindstig voru þegar skipið rak stjórnlaust upp, á meðan systurskipi Rangár í staðinn" á baksíðu. Ljósm. MbL — ap. inu sem Hafskip hafði samið um til siglinga á kaupleigu- Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Francois Mitterrand Frakklandsforseti ræðast við í skrifstofu Bandaríkjaforseta í Hvfta húsinu í Washington í gær, í upphafi viðræðufundar þeirra, þar sem búist var við hvassyrtum fyrirlestri Reagans vegna vopnasölu Frakka til Nicaragua og stuðnings þeirra við skæruliða í El Salvador. símamynd-AP. Reagan hvassyrtur á fundi með Mitterrand Washington, 12. marz. AP. FORSETAR Bandaríkjanna og Frakklands, Ronald Reagan og Francois Mitterrand, ræddust við í Hvíta húsinu í þrjár klukkustundir í dag, þar sem Reagan var hvassyrtur í garð Frakka vegna vopnasölu þeirra til Nicaragua og stuðning þeirra við skæruliða í El Salvador. „Það er svívirðilegt, að einn bandamanna okkar, Frakkar, skuli styðja starfsemi skæruliða í E1 Salvador, það gera þeir með vopnasölu sinni til Nicaragua," sagði háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu. „Mitterrand mun hafa betri skilning á okkar af- Vaxandi fylgi íhaldsflokks l/ondon, 12. marz. AP. ÍHALDSFLOKKURINN brezki hefur aukið fylgi sitt meðal brezkra kjósenda, og skotist upp fyrir Verkamannaflokkinn og kosningabanda- lag Jafnaðarflokksins og Frjálslynda flokksins í vinsældum, samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var fyrir blaðið Daily Star. Stjórnmálaskýrendur telja auknar vinsældir íhaldsflokksins megi rekja til ánægju almennings með fjárlagafrumvarp ríkis- stjórnar Margrétar Thatcher, sem lagt var fram í síðustu viku. Samkvæmt könnuninni nýtur íhaldsflokkurinn fylgis 37% kjós- enda, en það er sjö prósent fylgis- aukning miðað við sambærilega könnun fyrir mánuði. Fylgi Verkamannaflokksins stendur í stað í 33%, en kosningabandalag- ið hefur tapað fjórum prósentum og nýtur nú fylgis 27% kjósenda. I skoðanakönnun sömu stofn- unar í október hafði kosninga- bandalagið fylgi rúmlega 40% kjósenda. Aðeins tvær vikur eru í mikilvægar aukakosningar í Glasgow, þar sem bandalagið vonast til að fá sinn fyrsta þing- mann kjörinn. Jafnframt þessu jókst persónu- fylgi Thatcher úr 30% í 36%, og Michael Foot leiðtogi Verka- mannaflokksins naut fylgis 23% kjósenda, bætti við sig 5%. íhaldsflokkurinn varð fyrir áfalli í dag, er hertoginn af Dev- onskíri, einn ríkasti maður Stóra Bretlands, sagði sig úr flokknum og gekk í Jafnaðarflokkinn. Her- toginn hefur gegnt ráðherraemb- ætti fyrir íhaldsflokkinn og hann er náskyldur Harold MacMillan fyrrum forsætisráðherra. Alls hafa 35 lávarðar gengið til liðs við Jafnaðarflokkinn frá stofnun hans fyrir ári. stöðu til stefnu Frakka í málefn- um rómönsku Ameríku eftir við- ræðurnar," bætti hann við. Frakkar samþykktu nýverið að selja Sandinistum vopn að upp- hæð 20 milljónir dollara, Banda- ríkjastjórn til mikillar gremju, en það er fullvíst talið í Banda- ríkjunum, að Sandinistar hafi lagt skæruliðum í E1 Salvador lið. Þá hafa Frakkar lagt Mexíkó- mönnum lið og hvatt til þess að vinstrimenn í E1 Salvador hljóti viðurkenningu sem stjórnmála- afl. Ennfremur hefur það valdið örðugleikum í samskiptum Bandaríkjamanna og Frakka, að þeir síðarnefndu eru byrjaðir vopnasölu til Líbýu á nýjan leik, á sama tíma og Bandaríkjamenn hafa hætt olíukaupum frá Líbýu og takmarkað öll viðskipti við Líbýumenn. Hins vegar ríkir mikil ánægja í Washington með nýafstaðna ísraelsför Mitterrands, sem bandarískir embættismenn segja að sýni skynsamari afstöðu í deilumálunum fyrir botni Mið- jarðarhafs, en fyrirrennari hans á forsetastóli sýndi. Bandaríkin vilja 290 breytingar Sameinudu þjódunum, 12. marz. AP. BANDARÍKJAMENN lögðu í dag fram 290 breytingartillögur við þann kafla hafréttarsáttmála er fjallar um vinnslu málma af hafsbotni, á fjórða degi hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hefur yfir með hléum í níu ár. í tillögum Bandaríkjamanna er gert ráð fyrir því að einkafyrirtæki sem hyggjast vinna málma af hafs- botni uppfylli ströng fjármálaskil- yrði. Einnig miðar ein breytingin að því að tryggja að nokkur stór- veldi eigi ætíð fulltrúa í 35 þjóða nefnd, sem á að fylgjast með og stjórna vinnslu málma af hafs- botni. Búist er við að New York fundun- um ljúki 30. apríl. Samningar um nýjan hafréttarsáttmála voru á lokastigi í fyrra þegar stjórn Reag- ans forseta fór fram á frest til að marka stefnu sína í hafréttarmál- um og tilkynnti að hún vildi gera ýmsar breytingar á drögunum, sem fyrir lágu, ýmsum þróunarlöndum til mikillar gremju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.