Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Skoðanakönnun um rektorskjör: Guðmundur Magnús- son hlaut flest atkvæði FÉLAG HÁSKÓLAKENNARA efndi nýlega til skoðanakönnunar meðal há- skólakennara og annarra háskólamenntaðra starfsmanna Háskóla íslands vegna væntanlegs rektorskjörs. Félagar eni um 300 og tóku 149 þátt f skoóanakönnuninni. Guðmundur K. Magnússon núverandi háskólarektor fékk flest atkvæði, 85 eða 57%, Sigurjón Björnsson hlaut 36 atkvæði eða 24,2% og Sigmundur Guðbjarnason hlaut 10 atkvæði eða 14,9%. Aðrir fengu færri atkvæði í fyrsta sæti, en auk þess voru framangreindir og aðrir sem at- kvæði fengu einnig tilnefndir í 2. og 3. sæti. Við rektorskjör árið 1979 fékk Guðmundur K. Magn- ússon 50,8% atkvæða og Sigurjón Björnsson 43,3%. Rektorskjörið fer fram 2. apríl næstkomandi og er háskólarektor aðeins réttkjör- inn að hann fái yfir 50% atkvæða. Fái enginn yfir 50% verður að kjósa á ný innan viku milli tveggja efstu manna. Atkvæði félaga í Fé- lagi háskólakennara vega % í rektorskjöri en vægi atkvæða stúdenta er 'h. Ekki er enn ljóst hvort þeir sem atkvæði hlutu í skoðanakönnuninni munu gefa kost á sér til að vera í kjöri, en kjörgengi hafa allir prófessorar. Sigurði RE gekk vel í fyrstu ferðinni með netin SIGURÐUR RE 4 kom úr sinni fyrstu veiðiferð, sem netabátur í fyrrinótt, en þá landaði skipið 20 tonnum í Njarðvíkum, sem fengust í netin við Jökul. Sigurður hélt til veiða á ný strax að lokinni löndun, og á skipið að landa aftur í Reykjavík í dag. Þórhallur Helgason fram- kvæmdastjóri hjá Isfelli h.f. sagði þegar Morgunblaðið ræddi við hann, að allur búnaður hefði reynst eins og bezt væri á kosið. Gengið hefði mjög vel að leggja netin aftur af skipinu og eins að draga þau aftur eftir því frá drátt- arskífunni, sem er miðskips. Þá reyndist skipið liggja mjög vel undir netunum, en fram til þessa hefur því verið haldið fram, að vonlaust væri að gera jafn stórt skip og Sigurð út til netaveiða. Skipstjóri á Sigurði er hin gam- alreynda aflakló Haraldur Ag- ústsson. © INNLENT Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, kemur til fundar 72 manna nefndarinnar í gær. Hvort kassinn, sem hann heldur á hefur að geyma kröfugerðina eða ekki skal ósagt látið. (Ljósm. Krúiján.) Fyrsti fundur um nýja samninga á mánudag: Viðræðurnar fari strax af stað, án óþarfa tafa — segir Ásmundur Stefánsson, en kröfugerð ASÍ er sú sama og í haust Gylfi Jónsson Skálholtsrektor SKÓLANEFNI) Skálholtsskóla réði i fundi í gær séra Gylfa Jónsson, Bjam- amesi, rektor Skálholtsskóla frá og með I. júní nk. Gylfi er 36 ára Akureyringur. Hann lauk kennaraprófi 1966 og guðfræðiprófi 1973, vígðist sama ár til Staðarfellsprestakalls í Þingeyj- arprófastdæmi, en síðustu ár hefur hann setið í Bjarnarnesi. Gylfi stundaði nám í Svíþjóð og starfaði þar um skeið sem sjúkrahúsprestur. Eiginkona séra Gylfa er Þorgerð- ur Sigurðardóttir frá Grenjaðar- stað, myndmenntakennari. Samtök um vestræna samvinnu: Björn Bjarnason formaður IIINN I. marz sl. héldu Samtök um vcstræna samvinnu aðalfund sinn. Guð- mundur H. Garðarsson, sem gegnt hef- ur formennsku undanfarin ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs. í hans stað var Björn Bjamason kjörinn formaður. Ný stjórn var kosin á fundinum, og hefur hún skipt með sér verkum. Stjórnin er þannig skipuð: formaður Björn Bjarnason, varaformaður Jón A. Ólafsson, ritari Kjartan Gunn- arsson, gjaldkeri Eiður Guðnason. Meðstjórnendur: Ásgeir Jóhannes- son, Hrólfur Halldórsson, Hörður Einarsson, Hörður Sigurgestsson, Jón Hákon Magnússon og Páll Heið- ar Jónsson. SAMNINGAVIÐRÆÐUR Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasam- bands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna hefjast á mánu- dag. Á fundi 72-manna nefndar ASÍ í gær var samþykkt að fara út í viðræðurnar á grundvelli þeirrar kröfugerðar, sem samþykkt var síðastliðið haust. Helztu atriði þeirrar kröfugerðar vora 13% kauphækkun á tveggja ára samningstíma, óskertar vísitölubætur og sérkröfur sem ýmist vora á sameig- inlegu borði verkalýðsfélaga eða á vettvangi einstakra félaga. í samningi þeim, sem undirritaður var í nóvember, er kveðið á um, að viðræður skuli teknar upp að nýju eigi síðar en 15. marz. Samningurinn fellur úr gildi 15. maí næstkomandi án uppsagnar. „Er samningarnir voru undir- ritaðir í haust var við það miðað af öllum aðilum, að nýr samningur yrði gerður fyrir þann tíma og það er áríðandi, að viðræðurnar fari strax af stað í alvöru og þar verði ekki neinar óþarfa tafir," sagði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, í gær. „Það var skýrt tekið fram af okkar hálfu í haust, að þó kröfugerðinni hefði verið ýtt til hliðar þá hefði hún ekki verið tek- in út af borðinu." Ásmundur var spurður hvort nýr vísitölugrunnur eða nýtt við- miðunarkerfi hefðu áhrif á samn- ingagerðina. Hann sagði, að stefnt væri að því að nýr vísitölugrunnur yrði tilbúinn fyrir vorið, en eftir væri að ákveða hvort viðmiðun við hann yrði tekin upp þá og hvernig hann yrði tengdur framfærsluvísi- tölu. „Það er augljóst, að við leggj- um áherzlu á óskerta vísitölu og að skerðingarákvæði Ólafslaga verði afnumin, en VSÍ er hins veg- ar uppi með kröfur um frekari skerðingu. í þeirri óðaverðbólgu, sem við búum við, er nánast ekk- ert, sem skiptir jafn miklu máli eins og að hafa traust vísitölukerfi og traust viðmiðun í vísitölukerfi er grundvöllur þess, að hægt sé að gera samninga til lengri tírna," sagði Ásmundur. Aðspurður um hvort niðurstöð- ur vinnumarkaðskönnunar Kaup- lagsnefndar á dögunum, t.d. um yfirborganir, myndu hafa áhrif á samningagerðina sagði Ásmund- ur: Niðurstöður þessarar könnun- ar ættu að gera samningagerð auðveldari. Varðandi yfirborganir sýna niðurstöðurnar, að vinnu- veitendur almennt fylgja ekki kröfu VSÍ um þessa lágu taxta, sem við búum við. Það eru býsna margir þeirra á því, að það sé eðli- legt og óhjákvæmilegt að borga fólki hærra kaup heldur en taxt- arnir segja til um. Það má því draga þá ályktun af þessum niður- stöðum, að það sé vilji vinnuveit- enda að töxtum sé breytt." D-listinn í Mos- fellssveit ákvedinn FJÖLMENNUR fundur í Sjálfstæðisfélagi Mosfellinga samþykkti hinn 11. marz framboðslista Sjálfstæðis- flokksins, IHistann, við sveitarstjórnakosningarnar. Halldór Ásgrímsson formaður fjárhags- og viðskiptanefndar: Lítill skilningur hjá ráðherrum Eins og þeir líti á afgreiðslu Alþingis sem einhver formsatriði „ÞAÐ HAFA ýmsar breytingar, medal annars frá fjármálaráðherra, komið til og orðið til þess að seinka afgreiðslu fjárhags- og viðskipta- nefndar á málinu. — Annars er mér illa við að tala við ráðherra í blöðum. Mér finnst lítill skilningur hjá ráð- herram almennt á því, að það tekur tíma að koma málum áfram í þing- inu. Það er eins og sumir þeirra líti á það eins og eitthvert formsatriði að afgreiða mál á Alþingi. — Ég vil sem sagt benda þeim á að ræða við þing- menn á Alþingi, en láta vera að senda þeim kveðjur í gegnum fjöl- miðla,“ sagði Halldór Asgrímsson formaður fjárhags- og viðskipta- nefndar neðri deildar Alþingis í tii- efni af yfirlýsingum Ragnars Arn- alds fjármálaráðherra í Mbl. í gær, en þar segist fjármálaráðherra ekk- ert botna í fjárhags- og viðskipta- nefnd að vera ekki búin að afgreiða lánsfjár og fjárfestingaráætlun fyrir árið 1982. Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Matthías Á. Mathiesen alþm., sem er einn af fulltrúum stjórnarandstöðunnar i fjár- hags— og viðskiptanefnd. Hann sagði í þessu tilefni: „Það hefur ekki staðið á nefndarmönnum að afgreiða lánsfjárlög í þinginu og ég veit, að formaður nefndarinnar hefur gert ítrekaðar tilraunir til að afla nefndinni þeirra gagna sem þarf til að unnt sé að afgreiða málið, þar á meðal uppgjör lánsfj- áráætlunar fyrir árið 1981". Matthías sagði siðan: „Mér finnst að fjármálaráðherra ætti að ýta a þá embættismenn sína sem því starfi eiga að sinna í stað þess að vera að skattyrðast út í þing- menn.“ Halldór Ásgrímsson sagði einn- ig aðspurður, að hann vissi ekki hvenær málið yrði afgreitt. Það færi eftir því hvenær nefndin gæti komið því frá sér. Mbl. er kunnugt um að í gær var boðaður „mjög áríðandi" fundur í fjárhags- og viðskiptanefnd, fundartími kl. 9 á mánudagsmorgun, fundarefni: lánsfjár- og fjárveitingaáætlun. Tillaga uppstillingarnefndar var samþykkt með þorra at- kvæða. D-listinn í Mosfellssveit verður svohljóðandi: I. Magnús Sigsteinsson, búfræði- ráðunautur, Blikastöðum. 2. Helga Richter, kennari, Arkarholti 18. 3. Bernharð Linn, forstöðu- maður, Merkjateigi 5. 4. Hilmar Sigurðsson, viðskipta- fræðingur, Ásholti 3. 5. Jón M. Guðmundsson, bóndi, Suður-Reykjum. 6. Auður Ragnarsdóttir, meinatæknir, Fellsási 5. 7. Sigríður Jóna Friðriksdóttir, skrifstofumaður, Lækjartúni 9. 8. Óskar Kjartansson, gull- smiður, Stórateigi 26. 9. Guðmundur Davíðsson, vél- smiður, Bjargartanga 9. 10. Auður Eiríksdóttir, húsmóðir, Laugabóli 2. II. Þengill Oddsson, heilsugæzlu- læknir, Reykjalundi. 12. Margrét Ólafsdóttir, húsmóðir, Arkarholti 4. 13. Gunnlaugur Jóhannsson, framkvæmdastjóri, Lækjartúni 5. 14. Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, Reykjahlíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.