Morgunblaðið - 13.03.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
3
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Tek heilshugar und-
ir málflutning þeirra
— segir Halldór Asgrímsson
„ÉG TEK heilshugar undir málflutning þeirra og er þeim fyllilega sammála. Það
er náttúrlega afar slæmt að þeir sem eru að dæma bókmenntaverk skuli ekki
skilja það mál sem þau eru skrifuð á,“ sagði Halldór Asgrímsson formaður
íslenzku þingmannasendinefndarinnar á Norðurlandaráðsþingi, er Morgunblaðið
bar undir hann yfírlýsingar Stefáns Jónssonar og Eiðs Guðnasonar alþingismanna
í Mbl. í gær vegna mats á íslenzkum bókmenntum í þýðingum vegna bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
í viðtölum við Stefán Jónsson og
Eið Guðnason í Mbl. í gær kom fram
Ekki rétt að
forsetinn taki við
doktorstitli
í FRÖNSKU dagblaði í Rennes í
Frakklandi er frá því sagt 13.
febrúar að forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, verði gerð
að heiðursdoktor við háskólann í
Rennes, í maímánuði og muni þá
sjálf koma þangað og taka við
titlinum. Er tekið fram að þessi
heiður sé veittur vegna kannana
frú Vigdísar á Pierre Leti og
frönskum fiskimönnum við ís-
land.
Morgunblaðið bar þessa frétt
undir Vigdísi Finnbogadóttur,
sem sagði að slíkt hafi ekki
komið til af sinni hálfu, enda
sé hún ekki búin að láta frá sér
á prenti þær heimildir um
þetta efni, sem hún hafi í sín-
um fórum.
að þeir voru sammála Sverri Her-
mannssyni um, að þeir sem láta sig
bókmenntir nokkru varða séu þeirr-
ar skoðunar að íslenzkumælandi
menn eigi að sitja í dómnefnd vegna
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs. Þá bar Stefán Jónsson einnig
lof á málflutning Sverris á Norður-
landaráðsþinginu í Helsinki og sagði
Stefán einnig, að hér væri um að
ræða spurninguna um, hvort við
ættum að taka þátt í þessu. Halldór
Ásgrímsson sagðist í lokin vera al-
gjörlega sammála málflutningi
þeirra Stefáns og Eiðs hvað þetta
varðaði einnig.
L)ÓMm. Arnór.
Stórmót Bridgefélags Reykjavíkur og Flugieiða hófst í gærdag á Hótel Loftleiðum.
Borgarstjórinn í Reykjavík setti mótið en síðan hófst mótið. 36 pör, þar af 6 erlend, taka
þátt í tvímenningskeppni sem lýkur í dag, en á morgun hefst 6 sveita mót þar sem etja
kapp saman 6 sveitir, 3 erlendar og 3 íslenzkar.
Vinnuverndarárið verði ekki
einhliða áróðursherferð ASI
Adalfundur
V erzlunarbankans
AÐALFIINDUR Verslunarbankans
verður haldinn í dag að Hótel Sögu
og hefst hann kl. 2 e.h. Á fundinum
verður gerð grein fyrir starfsemi á
sl. ári og auk venjulegra aðalfund-
arstarfa verður tekin afstaða til út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa.
Hluthafar, sem ekki hafa enn
vitjað aðgöngumiða og atkvæða-
seðla geta fengið þá á fundarstað.
Vinnuveitendasamband ís-
lands hefur beint þeim til-
mælum til meðlima sinna, að
þeir vísi öllum málum er
tengjast „Vinnuverndarári
ASI“ til samstarfsnefndar
VSÍ um atvinnu-, umhverfis-
og öryggismál. í VSÍ-tíðind-
um er birt bréf sambandsins
þessa efnis og er þar vikið
„að einhliða áróðursherferð“
Alþýðusambands íslands
undir yfírskriftinni „Vinnu-
verndarár ASÍ“.
í fjárlagafrumvarpi fyrir árið
Vestfirðir:
Afli togaranna glæðist
— loðna gengin á miðin
AFLI TOGARA , sem eru að veiðum úti fyrir Vestfjörðum og vestanverðu
Norðurlandi hefur glæðst mikið á síðustu dögum, en afli á þessum slóðum
var lítill, sem enginn í febrúar. Sjómenn þakka batnandi afla að loðna er nú
gengin á miðin og fískurinn því farinn að þjappa sér saman, en síðustu vikur
hefur fiskurinn verið dreifður og á mikilli ferð í ætisleit.
Menn voru lengi búnir að bíða um og Norðurlandi. Af þessum
eftir að loðna gengi á þessi mið, en
þeir sem Morgunblaðið ræddi við í
gær sögðu, að loðna væri nú í fiski
á stóru svæði úti fyrir Vestfjörð-
sökum hefur afli línubáta dottið
niður, en á hinn bóginn glæðst hjá
netabátum eins og togurunum.
VSÍ mótmælir öll-
um tilraunum stéttar
félaga og samtaka
þeirra til einhliða
áróðurs innan
veggja fyrirtækjanna
1982 eru veittar 250 þúsund krón-
ur til „vinnuverndarárs" og gerði
VSI kröfu um að fullt jafnvægi
væri í fjárveitingum hins opin-
bera til aðila vinnumarkaðarins.
Sjónarmiðum VSÍ var komið á
framfæri við Þröst Ólafsson,
fulltrúa ríkisstjórnarinnar í
svonefndri samráðsnefnd. Því
var heitið af nefnd þessari, að
þessi liður fjárlaga yrði auð-
kenndur „Vinnuverndarár, til að-
ila vinnumarkaðarins". Við af-
greiðslu fjárlaga var þó í engu
tekið tillit til þessa fyrirheits
fulltrúa ríkisstjórnarinnar og er
nú komið í ljós, að fræðsluher-
ferð undir yfirskriftinni „Vinnu-
verndarár ASÍ“ er kostuð af
þessari fjárveitingu segir í
fréttabréfi VSÍ.
í bréfi VSÍ segir orðrétt:
„Vinnuveitendasambandið hefur
jafnan lagt áherzlu á að vinna
beri að umbótum á sviði atvinnu-
umhverfis og öryggismála í sem
nánustu samstarfi allra hlutað-
eigandi aðila. Er það og í sam-
ræmi við þá meginstefnu, sem
lögin um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum byggja
á. I samræmi við þetta grund-
vallarsjónarmið telur Vinnuveit-
endasambandið að undir öllum
kringumstæðum beri að forðast
einhliða áróðursstarfsemi á þess-
um sviðum, þannig að sneitt
verði hjá ástæðulausum árekstr-
um og deilum um þessi málefni."
Fyrrnefnd samstarfsnefnd VSÍ
verður félagsmönnum sambands-
ins til aðstoðar og ráðuneytis um
allt það er lýtur að þessum mál-
um. Mælzt er til þess, að leitað
verði umsagnar nefndarinnar um
eftirfarandi: Allar beiðnir full-
trúa „vinnuverndarársins" um
kynningarfundi í fyrirtækjum.
Veggblöð, dreifirit og þess háttar
sem túlka einhliða afstöðu stétt-
arfélaga til atvinnuumhverfis-
og öryggismála, og ætluð eru til
dreifingar innan fyrirtækja og
loks hvers kyns einhliða mál-
flutning annan innan fyrirtækja
um atvinnuumhverfis- og örygg-
ismál.
Sultartangastífla:
Framleiðslusamvinnufélag
iðnaðarmanna með tvö
lægstu tilboðin í lokubúnað
tæplega 9 milljóna munur á hæsta og lægsta tilboði
Hrun loðnustofnsins:
Er ekkert einkamál sjó-
manna og útgerðarmanna
— segir Verkalýðsfélag Vestmannaeyja
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun:
Fundur haldinn í stjórn og trúnadarmannaráði Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja 11. mars ályktar eftirfarandi:
Fundurinn fagnar hugmynd-
um stjórnvalda um að bæta sjó-
mönnum tekjutap er þeir verða
fyrir vegna stöðvunar loðnu-
veiða, bendir jafnframt á að
hvergi hafi verið minnst á fjölda
verkamanna víðs vegar um land
sem óhjákvæmilega hljóta að
verða fyrir alvarlegu tekjutapi
vegna stöðvunar umræddra
veiða. Fundurinn vill því vekja
athygli yfirvalda og landsmanna
allra á þeim fjölda landverka-
fólks sem byggt hefur lífsaf-
komu sína mörg undanfarin ár á
vinnslu loðnuafla og bendir á að
hrun loðnustofnsins sé ekkert
einkamál loðnusjómanna og út-
gerðarmanna einna. Til dæmis
verða verkamenn í loðnubræðsl-
unum í Vestmannaeyjum fyrir
verulegu tekjutapi, þar sem
meginhluti árstekna þeirra er
fenginn þann tíma sem loðnu-
vertíð stendur yfir. En þá er
unnið á vöktum, í 10 til 12 vikur
að meðaltali.
Fundurinn beinir því þeim
eindregnu áskorunum til stjórn-
valda að verði sú sjálfsagða
ákvörðun tekin að bæta mönnum
það tjón, sem þeir sannanlega
verða fyrir vegna þeirrar
ákvörðunar að stöðva loðnuveið-
ar, verði allir látnir sitja við
sama borð. Annað telur fundur-
inn óréttlátt.
TILBOI) í smídi og uppsetningu á lok-
um ásamt tilheyrandi búnaði fyrir
Sultartangastíflu voru opnuð hjá
Gvndsvirkjun í gær. Lægsta tilboðið
reyndist vera frá Framleiðslusam-
vinnufélagi iðnaðarmanna í samvinnu
við fínnskt fyrirtæki, að upphæð
7.883.300 krónur. Sami aðili átti einn-
ig næst lægsta tilboðið, 8.694.646
krónur. Hæsta tilboðið var frá Sumit-
omo ('orporation í Japan, 16.324.103
krónur. Kostnaðaráætlun ráðunauta
l.andsvirkjunar hljóðaði upp á
10.889.000 krónur.
Eftirfarandi 16 tilboð bárust í
verkið og eru upphæðir miðaðar við
gengi þann 12. þessa mánaðar:
Bjóðendur Tilboðsfjárhæð
í krónum (gengi 12. 03. ’82)
Framleiðslusamvinnufélag
iðnaöarmanna Kr. 7.883.300
Framleiðslusammvinnufélag
iðnaðarmanna Kr. 8.694.646
Vélsmiðjan Stál hf. Kr. 8.806.000
Landssmiðjan Kr. 9.337.200
Vevey SA, Sviss Kr. 9.741.857
Ganz Mávag, Ungverjalandi
Kr. 9.770.031
Stálsmiðjan hf. Kr. 9.929.682
Vélsmiðja Orms og
Víglundar sf. Kr. 10.170.132
Zschokke Wartman AG, Sviss
Kr. 10.599.340
Stálsmiðjan hf. Kr. 10.759.909
Newton Chambers Eng. Ltd.,
Englandi Kr. 11.207.827
Sorefame, Portugal Kr. 11.480.570
Gránges Hedlund, Svíþjóð
Kr. 13.461.772
Normi hf. Kr. 14.391.720
Glenfield & Kennedy Ltd.,
Skotlandi Kr. 14.901.233
Sumitomo Corporation,
Japan Kr. 16.324.103
Áætlun ráðunauta
Landsvirkjunar Kr. 10.889.000
Tilboðin verða nú könnuð nánar
með tilliti til útboðsgagna og borin
endanlega saman. Að því loknu mun
stjórn Landsvirkjunar taka afstöðu
til þeirra.
Vilja kaupa
hlutabréf
í Arnarflugi
LÖGFRÆÐINGUR í Reykjavík
hringdi í gær í hlutafjáreigendur í
Arnaflugi hf. og kvaðs vilja kaupa
hluti þeirra í félaginu. Kvaðst lög-
fræðingur þessi bæði vilja kaupa
sjálfur og eins fyrir umbjóðanda
sinn. Þegar hann var spurður, hver
umbjóðandinn væri, vildi lögfræð-
ingurinn ekki gefa það upp.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun einn þeirra aðila,
sem hringt var í hafa sagt lög-
fræðingnum, að hann myndi skýra
stjórnarformanni Arnarflugs frá
tilboðinu, en þá óskaði lögfræðing-
urinn sérstaklega eftir því að það
yrði ekki gert.
Einn stærsti hluthafi í Arnar-
flugi er Flugleiðir, sem eiga um
40% hlutafjár. Alls munu hlut-
hafar vera á milli 600 og 700 og
flestir með lága prósentu eignar-
aðildar.