Morgunblaðið - 13.03.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
5
W ashingt^n-tímarit
tileinkað íslandi
TÍMARITIÐ Courier Diplomat-
ique hóf nýlega göngu sína í Wash-
ington DC. I>ad gerir heimsóknum
erlendra gesta til höfuðborgarinn-
ar skil, greinir frá starfi og sam-
kvæmishTi sendiráðsstarfsmanna
og kynnir eina þjóð ítarleg. Mars-
hefti tímaritsins er tileinkað ís-
landi.
Von er á Vigdísi Finnbogadótt-
ur forseta til Bandaríkjanna í
haust. Hún mun opna kynn-
ingarsýningar Norðurlandanna,
Scandinavia Today, formlega í
Washington. Rama Krishna, rit-
stjóri Courier Diplomatique,
ákvað þess vegna að gera Islandi
vegleg skil í tímaritinu. Hann
ferðaðist til íslands, kynntist
landi og þjóð og safnaði greinum
og auglýsingum.
Á forsíðu blaðsins er mynd af
Ástríði Andersen sendiherrafrú
íslands í Washington, Hans G.
Andersen, sendiherra, er kynntur
og myndir af heimili þeirra í
sendiherrabústaðnum eru birtar.
Mynd og stutt ávarp frá Vigdísi
Finnbogadóttur forseta afmarkar
þann hluta tímaritsins sem er til-
einkaður Islandi. Þar er að finna
greinar eftir Gylfa Þ. Gíslason,
Axel Vopnfjörð, Val Valsson og
fleiri.
Rama Krishna fer hlýjum orð-
Tónlistarfélagið:
Rudolf Kerer á ein-
leikstónleikum í dag
RUDOLF KERER, píanóleik-
arinn frægi, leikur á ein-
leikstónleikum í Austurbæj-
arbíói í dag, laugardag, á
vegum Tónlistarfélagsins.
Hefjast þeir klukkan 14.30.
Á efnisskránni eru fjögur verk:
Stef og 32 tilbrigði í c-moll og Són-
ata í f-moll opus 57 (Appassion-
ata) eftir Beethoven, Fantasía í
C-dúr opus 17 eftir Schumann og
Sónata nr. 3 í a-moll opus 28 eftir
Prokoffiev.
Rudolf Kerer hóf tiltölulega
seint að klífa tind stórsnillinga í
píanóleik og fór ekki að leika
reglulega á hljómleikum fyrr en
hann var kominn yfir þrítugt. En
hann náði á skömmum tíma slík-
um árangri að honum hefur verið
líkt við mestu snillinga Sovét-
manna, t.d. Richter og Gilels og
þykir túlkun hans á Beethoven,
Chopin og Prokoffiev vera einstök
í sinni röð, litrík, fáguð og sterk.
Áfram meirihluti Vöku
og Umbótasinna en
óljóst með samstarf
EINS OG KUNNUGT er af fréttum, var kosid til stúdenta- og háskólaráðs tslands
síðastliðinn fimmtudag. Úrslit kosninganna urðu þau, að Eélag vinstrimanna hlaut
7 menn kosna, þar af einn, sem bæði situr í háskóla- og stúdentaráði. Vaka hlaut
5 menn kjörna, þar af einn sem sæti á í báðum ráðunum og Umbótasinnar 3
menn. Vinstrimenn hlutu því einum manni fleira samtals en í fvrra, Vaka sama
fjölda og llmbótasinnar einum færri. Valdahlutfóll innan stúdentaráðs eru því
þannig, að vinstrimenn eiga 13 fulltrúa, Vaka 10 og Umbótasinnar. 7, en fyrir
þessar kosningar höfðu vinstrimenn 14 fulltrúa, Vaka 12 og llmbótasinnar 4. Til
skýringa skal þess getið að aðeins er kosinn helmingur fulltrúa í þessi ráð árlega.
Aður en framboð umbótasinna kom til voru valdahlutföllin þannig að vinstrimenn
höfðu 16 fulltrúa og Vaka 14. Til að varpa frekara Ijósi á úrslitin ræddi Mbl. við
fulltrúa fvlkinganna:
Kama Krishna ritstjóri.
um um tsland í stuttri grein.
Hann segist sjálfur sjaldan hafa
orðið jafn fljótt hrifinn af nokkru
landi eða þjóð og hann varð af
íslandi, og þó hefur hann ferðast
víða. Sendiráð íslands í Wash-
ington og utanríkisráðuneytið
munu fá eintök af blaðinu til
dreifingar, en það er enn sem
komið er aðeins selt áskrifendum.
Kudolf Kerer
„Við Vöku-menn erum ánægðir
með þessi úrslit, við höldum okkar
striki frá því í fyrra og fáum nær
40% greiddra atkvæða til háskóla-
ráðs, sem er óvenju mikið og sýnir að
stúdentar treysta okkur betur en
Umbótasinnum fyrir háskólaráðs-
manninum. Við Vöku-menn lögðum
áherzlu á það í kosningabaráttunni,
að við legðum verk okkar og störf að
hagsmunamálum stúdenta þetta síð-
asta ár undir dóm stúdenta nú og ég
held að stúdentar hafi kunnað að
meta þau og dómur þeirra verið
jákvæður og sýni vilja stúdenta til
að halda áfram því uppbyggingar-
starfi, sem hafið var í fyrra. Við telj-
um það rétt að um áframhaldandi
samstarf núverandi meirihluta verði
að ræða, því við teldum það sorglegt
ef hagsmunamál stúdenta yrðu að
bráð hinni úrræðalausu stefnu
vinstrimanna," sagði Sigurbjörn
Magnússon, einn af oddvitum Vöku.
„Vinstrimenn eru ótvíræðir sigur-
vegarar þessara kosninga og því er-
um við og vorum ánægðir. Það er
rétt að undirstrika, að þegar úrslit
þessara kosninga eru túlkuð, er eini
raunhæfi samanburðurinn siðustu
kosningar til stúdenta- og háskóla-
ráðs. Þannig hefur fylgi vinstri-
manna aukizt hlutfallslega, við höf-
um bætt við okkur einum manni,
fáum nú 7 en síðast 6. Við lítum því á
þessa niðurstöðu sem stuðning við
stefnu og störf okkar síðasta ár.
Hins vegar eru úrslitin skellur fyrir
Umbótasinna. Þar sem nokkur mis-
skilnings hefur gætt í fréttaflutningi
af þessum kosningum er rétt að und-
irstrika, að kjörtímabil stúdentaráðs
er 2 ár. í ráðinu sitja 30 fulltrúar en
aðeins er kosið um helming árlega.
Þar sem Umbótasinnar buðu fyrst
fram á síðasta ári ganga engir þeirra
úr stúdentaráði núna og fulltrúar nú
í þessum kosningum teljast því að-
eins viðbót við þá, sem áður voru.
Þetta virðist hins vegar hafa ruglað
suma fréttaskýrendur. Að lokum vil
ég aðeins undirstrika ánægju okkar
vinstrimanna með kosningarnar,
sem við teljum ótvírætt traustsyfir-
lýsingu við starf okkar," sagði Stef-
án Jóhann Stefánsson, einn af
oddvitum vinstrimanna.
„Við Umbótasinnar erum ánægðir
með úrslitin, við bætum við okkur 3
mönnum í stúdentaráð, förum úr 4
upp í 7. Ég held að ekki sé hægt að
tala um sigur neinnar fylkingar,
vinstrimennirnir fengu minna en ég
bjóst við. Það sem nú tekur við, tel
ég vera að vinstrimönnum hafi verið
fengið það hlutverk, að leiða ein-
hverjar þreyfingar um samstarf á
næstu dögum og stend í þeirri mein-
ingu að þeim hafi verið veitt umboð
til þess að stjórna næsta ár og með
því hverfum við aftur til þeirra
stöðnunar, sem ríkt hefur áður en
Umbótasinnar komu til sögunnar.
Umbótasinnar eru enn ekki farnir að
ræða um það hvað nú taki við, en við
erum þó óhressir með það að við
skulum ekki hafa haldið sama at-
kvæðamagni og í fyrra og mér finnst
að með því hafi stúdentar verið að
hafna áframhaldandi umbótum,"
sagði Finnur Ingólfsson, formaður
stúdentaráðs og forystumaður Um-
bótasinna.
ástina
FÁLKIN N
HLJÓMPLÖTUDEILD
Suöurlandsbraut 8. Sími 84670.
Laugavegi 24. Sími 18670.
Austurveri. Sími 33360.
FÆST í HLJÓMPLÖTUVERZLUNUM UM LAND ALLT.
Tráumereien
Tónar um
RICHARD
CLAYDERMAN í NÝJU LJÓSI