Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR13. MARZ 1982 11 Listasafn Einars Jónsson- ar opnað á ný LISTASAFN Kinars Jónssonar verð- ur opnað n.k. sunnudag, en safnið hefur verið lokað að undanfómu vegna viðgerða. Safnið er opið tvo daga í viku, sunnudaga og miðviku- daga frá kl. 13.30—16. Þá hefur sú breyting orðið á stjórnarnefnd safnsins, að Hörður Bjarnason, fyrrverandi húsa- meistari ríkisins, var kosinn for- maður í stað séra Jóns Auðuns, sem lést á sl. ári. Þá hefur herra Pétur Sigurgeirsson, biskupinn yf- ir íslandi, tekið sæti stjórninni. Aðrir, sem eiga sæti í stjórnar- nefnd safnsins eru dr. Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti ís- lands, dr. Armann Snævarr, hæstaréttardómari og Runólfur Þórarinsson, stjórnarráðsfulltrúi. Forstöðumaður safnsins er Ólafur Kvaran, listfræðingur. Útsölustaðir: Verzl. Manilla, Sudurlandsbraut 6, Verzl. Bústoð, Keflavík. Margir hættu að reykja á „reyklausa deginum“ (Ljósm. EBB) Ingibjörg Pétursdóttir veitingakona I Mensu, Jón Jóel Einarsson, leikari og skipuleggjandi Ijóðakvöldanna, og Sigurbjörn Einarsson, sem lék á harmon- iku er Ijóðakvöldin voru kynnt síðastliðinn þriðjudag. Mensa efnir til ljóða- kvölda á þriðjudögum Veitingastaðurinn Mensa við Lækjartorg hefur ákveðið að bjóða gestum sínum upp á Ijóðalestur komandi þriðjudagskvöld. Fyrsta Ijóðakvöldið á Mensu verður næst- komandi þriðjudag frá kl. 20.30—22.00. Leikararnir Hjalti Kögnvaldsson, Krlingur Gíslason, Kolbrún Halldórsdóttir og Jón Jóel Einarsson lesa Ijóð. Sá síðastnefndi, Jón Jóel, stjórnar þessum Ijóða- kvöldum í samvinnu við Ingibjörgu Pétursdóttur, veitingakonu á Men.su. Þau sögðu í samtali við Morgun- blaðið, að fyrsta ljóðakvöldið yrðu lesin ljóð eftir ýmsa höfunda, en er fram í sækir verða ljóðin valin af gestum staðarins. Listi verður látinn ganga á meðal þeirra og þeir beðnir að koma óskum sínum á framfæri. Á þennan hátt sögð- ust þau ætla að reyna að fá gesti staðarins til að móta þessi ljóða- kvöld. Á Mensu er boðið upp á marg- víslega rétti, en sérstök áherzla er lögð á bökur og á þriðjudagskvöld- um það sem eftir lifir vetrar ætti að vera hægt að njóta þeirra í menningarlegu umhverfi. „ÉG ER mjög ánægður með árang- urinn af „reyklausa deginum" þótt eflaust hefði ýmislegt mátt fara bet- ur, meðal annars hefði fræðslan utan höfuðborgarsvæðisins mátt vera meiri,“ sagði Þorvarður Örn: ólfsson framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags íslands. „Við hjá Reykingavarnanefnd könnuðum samdægurs, hvernig menn brugðust við þessu kalli okkar. Komumst við að raun um að víða voru samtök um að reykja ekki þennan dag. Tóku heilu vinnustaðirnir þátt í þessu með okkur og vil ég sérstaklega nefna kennara í grunnskólunum i þessu sambandi. Við vitum það einnig að nokkuð margir hættu að reykja frá og með „reyklausa deginum", en við höfum engar prósentutölur um fjöldann. Því miður höfum við ekkert fjárhagslegt bolmagn til að kanna þetta til hlítar, sem væri mjög æskilegt. Ég tel líka að dagurinn hafi aukið skilning á tóbaksreykingum, sem óæskilegri mengun. Rætt hefur verið um það hvort ekki sé nauðsynlegt að halda þessa daga þéttar, en 3 ár eru síðan síð- asti „reyklausi dagurinn“ var haldinn. Þessi dagur veitir mörg- um tækifæri til að reyna sig og öðrum til að slá þessu ekki á frest lengur. Ég var að flytja fyrirlestur um skaðsemi reykinga í gagnfræða- skólanum í Keflavík í dag. Þar komst ég að því mér til mikillar ánægju, að nær undantekningar- laust voru nemendur að hætta reykingum. Þetta finnst mér benda til þess að fræðslustarf í skólum gegni mikilvægu hlutverki þrátt fyrir raddir um annað," sagði Þorvarður Örnólfsson. Færeyskur rækjutogari fékk net í skrúfuna Patreksfirdi, 11. marz. FÆREYSKI rækjutogarinn Karina frá Klakksvík var dreginn inn til hafnar í Patreksfirði í dag af öðrum færeyskum togara, en Karina hafði fengið net í skrúfuna þar sem skipið var að veiðum skammt fyrir vestan miðlínu milli Vestfjarða og Græn- lands. Ásgeir Einarsson, kafari, losaði netið úr skrúfunni, en Ásgeir hef- ur komið upp ágætum búnaði hér og hefur það færst í vöxt að leitað hafi verið eftir þjónustu hans. Karina er 290 lesta skuttogari og var skipið komið með 90 tonn af rækju eftir um fjögurra daga veiði í afleitu veðri. Áð sögn skipverja, þá er skipið gert út 5—6 mánuði á ári og hafa skipverjar á milli 220—230 þúsund krónur í hlut. Fréttaritari /■> 1!) nflyn Hamraborg 3, Kópavogi, sími 42011 Gervasoni baðlínan glæsilega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.