Morgunblaðið - 13.03.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
13
Blaðamenn Þemavikunnar á fullri ferð að prenta Snáp, fréttablað um málefni Þorlákshafnar.
Bjarni Þorláksson kennari ásamt starfsfélaga sinum kemur blaðaútgáfunni af stað.
Söguhópurinn fyrir framan hluta af línuritum og kortum sem krakkarnir unnu varðandi sögu
Þorlákshafnar.
Þau eru að bera saman bækur sinar
vegna kortagerðar af Þorlákshafnarsvæðinu.
grös og blómplöntur en alls eru
um 400 tegundir í flóru Islands.
Tegundakönnunin var þó aðallega
gerð á Nesinu fyrir utan byggðina.
Þá var fjallað um möguleika í
ræktun, hrossabeit athuguð og í
sambandi við jarðfræðilegu hlið-
ina var fjallað um yfirborðið,
sandinn, klappirnar, hvort um
væri að ræða apalhraun eða hellu-
hraun, hvort það væri frá tíma
fyrir eða eftir ísöld, athugun á
jarðsprungum var gerð með tilliti
til hugsanlegs Suðurlandsjarðs-
kjálfta og þannig mætti lengi
telja. Fjallað var um landmótun,
hvernig landið hefur breytzt, af
völdum sjávar, árinnar og manns-
ins.
„Hugsum gott
til glóðarinnar ... “
„Starfið þessa viku sem við köll-
um þemaviku fór fram úr öllum
okkar vonum, bæði hvað snertir
krakkana og ekki síður okkur
kennarana," sagði Bjarni Eiríkur
Sigurðsson skólastjóri í samtali
við okkur um þemavikuna. „Það
eru 240 börn í skólanum á aldrin-
um 6—16 ára og eldri krakkarnir
sinntu á þessum tíma verkefnum
sem tengjast bæjarlífinu meira og
minna, en höfuðköflunum var síð-
an skipt í ýmis smærri verkefni.
Það var svo mikill áhugi í
krökkunum að þau vildu ekki einu
sinni taka kaffitíma og oft urðum
við hreinlega að reka þau heim í
mat frá starfi. Þetta starf hefur
gefið okkur geysilega gott tæki-
færi á að kynnast krökkunum og
fjöldi nemenda hefur komið okkur
mjög á óvart með vinnubrögðum
og áhuga. Krakkar sem hafa sum
verið mjög lítið áberandi í námi
hafa nú sýnt á sér allt aðra hlið og
þau hafa hreinlega blómstrað út
þegar hinn skapandi máttur
þeirra fær tækifæri til að gera
eitthvað, en það er engan veginn
hægt að vinna með þessu móti
nema til komi úrvals starfslið við
skólann og þar hafa kennararnir
lagzt á eitt, Bjarni Þorkelsson,
Kristján Friðgeirsson, Anna
Lúthersdóttir, Bergþóra Jónsdótt-
ir, Friðbjörg Jensdóttir, Guðrún
Sigurðardóttir, Dagbjartur
Sveinsson, Jón Sigurmundsson,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Lýsa Óskarsdóttir og Björg Sör-
ensen.
Það hefur einnig verið mjög
ánægjulegt hve krakkarnir hafa
fengið frábærar móttökur úti í bæ
þar sem þau bæði leituðu fanga og
fengu margvíslega aðstoð og við
erum mjög þakklát fólki fyrir þol-
inmæðina og hjálpsemina. Það
hefur verið þroskandi fyrir krakk-
ana að vinna á þennan hátt og
líklega einnig fyrir fólkið sem hef-
ur hjálpað til úti í bæ, en í tengsl-
um við gfoskumikið starf þessa
unga fólks hugsum við gott til
glóðarinnar varðandi áframhald
byggingar Grunnskólans. Nú eru
hér 11 bekkjardeildir en 7 stofur
og það er því þétt setinn bekkur-
inn. En framkvæmdanefnd skóla-
bygginga í Þorlákshöfn stefnir að
framhaldi Grunnskólabyggingar-
innar hér á næsta ári og veitir
ekki af.
En varðandi þessa þemaviku má
segja að hver einasta mínúta hafi
verið nýtt til hins ýtrasta, krakk-
arnir hafa sjálf haft frumkvæði
við skrásetningu fjölmargra
atriða, það hefur verið leitað í
gömlum bókum, rætt við fólk,
bæði leika og lærða, unnið í kort-
um, farið í efnisöflun til Hvera-
gerðis, Selfoss og Reykjavíkur,
farið á fundi og þannig mætti
halda áfram enn um sinn, en fyrst
og síðast hefur þetta starf skilað
mjög góðum árangri."
„Góður skóli fyrir
krakkana og okkur“
Bjarni Þorkelsson kennari
leiðbeindi hópnum sem fjallaði um
söguna. Hann sagði að börnin
hefðu sýnt mjög almennan áhuga,
en 12 nemendur fjölluðu um þau
atriði. „Þau unnu stanzlaust alla
daga frá kl. 8 til 4,“ sagði Bjarni,
„og það var erfitt að fá þau til að
hætta. Ef ég stakk upp á kaffi litu
þau á mig í forundran.
Þau unnu verkefnið fyrst og
fremst upp úr gömlum heimildum
sem voru til taks, skrifuðu upp út-
drætti úr ritgerðum og skiptu með
sér verkum. Það var margt sem
kom þeim á óvart í þessari vinnu
og þeim þótti spennandi að graf-
ast fyrir um vitneskju sem þau
þekktu ekki fyrir. Stærsti kostur-
inn við þetta fyrirkomulag var að
þau fundu sjálf það sem eftir var
leitaö og höfðu frumkvæðið sjálf,
en ég leiðbeindi þeim aðeins og
fann fyrir þau sitthvað sem þurfti
að nota. Það var til dæmis athygl-
isvert hvað þeim tókst vel að
teikna gömul hreppamörk Ölf-
ushrepps eftir lýsingu frá 1840, en
ég veit ekki til að það hafi verið
gert áður eftir þessari lýsingu.
Þetta starf var góður skóli, bæði
fyrir krakkana og okkur kennar-
ana, ekki síður okkur. Ankeri
hverrar byggðar er sagan og nú
eru þau mun fróðari um það úr
hvaða farvegi þau koma og á
hvaða grunni þau standa. Reynsla
okkar þessa viku gefur okkur til-
efni til bjartsýni á þessum vinnu-
brögðum á komandi árum og á
ugglaust eftir að verða árlegur
viðburður að minnsta kosti. Það
var einnig skemmtilegt að margir
krakkar sýndu af sér mikla rögg-
semi og það voru ótrúlega fá sem
ekki nutu sín eða nýttust í þessum
verkefnum."
Grein: Árni Johnsen
Myndir: Ragnar Axelsson
U’lJ'vfVVv
Þessir vasklegu ungu menn létu sig ekki muna um að reisa brúna yfir Ölfusárósa á einni viku og eins og sjá má eru þeir meira að segja búnir að flagga í tilefni framkvæmdahraðans, sem allir íbúar
nærliggjandi svæða eru ugglaust sammála um að sé til fyrirmyndar fyrir þá aðila í ríkisbúskapnum sem eiga að taka ákvörðun um raunverulega byggingu brúarinnar.