Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
21
Sjötugur:
Kristinn Vilhjálmsson
fyrrv. framkvæmdastjóri
í dag' er Kristinn Vilhjálmsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Templarahallarinnar, sjötugur.
Hann er fæddur í Vetleifsholti í
Ásahreppi. Foreldrar hans voru
Vilhjálmur Hildibrandsson og
Ingibjörg Ólafsdóttir. Systkini
Kristins voru 6. 1919 fluttist hann
með foreldrum sínum til Reykja-
víkur. Hann hóf blikksmíðanám
og lauk því 1923. Sem blikksmiður
vann Kristinn til 1936. Síðan fór
hann til Kaupmannahafnar til að
sjá heiminn og dvaldi þar í tvö ár.
Þegar heim kom tók hann upp
blikksmíði að nýju og vann í Nýju
blikksmiðjunni til 1943. Bn þá
gerðist hann starfsmaður Hita-
veitu Reykjavíkur. 1944 tók Krist-
inn að sér umsjónarstarf í Guttó
og því starfi hélt hann áfram, þeg-
ar templarar fluttu starfsemi sína
á Fríkirkjuveg 11 og síðar í
Templarahöllina við Eiríksgötu.
1934 hafði Kristinn gengið í stúk-
una Freyju. En þar voru forystu-
menn Helgi Sveinsson bankastjóri
og Jón Árnason prentari og þessir
tveir menn urðu svo lærimeistarar
Kristins. Og Kristinn lá sannar-
lega ekki á liði sínu í félagsstarfi
bindindismanna. 1938 var hann
önnum kafinn við landnám templ-
ara að Jaðri, stuttu seinna stofn-
aði hann ungtemplarafélagið
Hrönn og ein af fyrstu minning-
unum, sem ég á um Kristin er,
þegar hann kom með Hrönn í
heimsókn til Keflavíkur. 1940 gift-
ist Kristinn Guðnýju Torfadóttur,
fósturdóttur Jóns Pálssonar
bankagjaldkera og konu hans,
Önnu Sigríðar Adólfsdóttur. Þau
eiga tvö börn: Önnu Sigríði, gifta í
Noregi, og Jón Pálsson Kristins-
son.
Ég minntist hér áður á ung-
templarahreyfinguna sem af-
sprengi Kristins og landnáms
templara á Jaðri, þar sem Krist-
inn var í forystu en ekki má
gleyma þætti hans í húsnæðismál-
um Templara. Um þau stóð um
árabil harðar deilur innan
bindindishreyfingarinnar, sem
lauk með algerum sigri Kristins
og skoðanabræðra hans. Má full-
yrða með rökum að Templarahöll-
in væri ekki það félagsheimili
templara sem hún er í dag, ef
stefna Kristins í húsnæðismálinu
hefði ekki orðið ofan á. Og enn í
dag er Kristinn í fullu fjöri. Hann
er að vísu ekki lengur fram-
kvæmdastjóri Templarahallarinn-
ar en hann er vakinn og sofinn að
starfa að hugsjónamálum sínum
meðal æskunnar. Á stórstúku-
þinginu í Hafnarfirði 1980 var
hann kosinn stórgæslumaður
Unglingareglunnar. Og þar hefur
hann sannarlega ekki slegið slöku
við. Eina stundina er hann fyrir
austan Fjall á barnastúkufundi,
aðra á Vestfjörðum í sömu erind-
um. Við Kristinn höfum unnið ná-
ið saman í mörg ár. Ég hefi fáum
kynnst sem eru tryggari, greið-
viknari og ötulli starfsmenn.
Kæru vinir, Kristinn og Guðný.
Ég og kona mín þökkum vináttu
ykkar á liðnum árum og óskum
ykkur langra lífdaga.
Hilmar Jónsson.
í kvæðinu góða um höfðingja
smiðjunnar segir Davíð Stefáns-
son frá Fagraskógi:
„llann (ignar þau lög .sem liTið
með logandi eldi reit.
Hann lærði af styrkleika stálsins
að standa við öll sín heit.“
Sú sögn lifir að hugmyndin að
þessu kvæði Davíðs skálds hafi
kviknað í smiðju Vilhjálms Hildi-
brandsson við Laufásveg í Reykja-
vík. Og víst er það að ég veit fáa
sem er jafnmikilvægt, jafnheilagt
mál, að standa við öll sín heit sem
syni Vilhjálms þessa smiðjuhöfð-
ingja, Kristni.
Vilhjálmur járnsmiður Hildi-
brandsson bjó austur í Rangár-
þingi áður en hann fluttist til
Reykjavíkur og tók að blása í afl-
inn og hamra járnið heitt í smiðju
sinni. Þar austur frá var Kristinn
sonur hans, í heiminn borinn 13.
mars 1912. Ungur fluttist hann
með foreldrum sínum til höfuð-
borgarinnar og hefur átt heima
við Laufásveginn síðan. Hann leit-
Minnst ártíðar
Þorleifs á Háeyri
Þann 9. mars sl. voru 100 ár lið-
in síðan Þorleifur Kolbeinsson
kaupmaður á Stóru-Háeyri á Eyr-
arbakka andaðist 83 ára að aldri.
Af því tilefni minnast afkomendur
Þorleifs þessara tímamóta sunnu-
Þorleifur Kolbeinsson
daginn 14. mars með heimsókn til
Eyrarbakka og Stokkseyrar.
Á Eyrarbakka verður guðsþjón-
usta í kirkjunni kl. 2 eftir hádegi.
Séra Kolbeinn Þorleifsson messar.
Aðrir þátttakendur í messugjörð-
inni verða Jón Sveinbjörnsson
prófessor, Benedikt Jasonarson
kirkjuvörður og Helga Soffía
Konráðsdóttir guðfræðinemi.
Að lokinni kaffidrykkju á Eyr-
arbakka verður haldið í Stokks-
eyrarkirkjugarð, þar sem lagður
verður blómsveigur á leiði Þor-
leifs.
Þorleifur Kolbeinsson, sem var
afkomandi séra Þorleifs Skafta-
sonar í Múla í Aðaldal ólst upp í
mikilli fátækt á Stokkseyri, og eru
til heimildir fyrir því, að hann var
rekinn á vergang af húsbónda sín-
um þegar hann var 19 ára gamall.
Honum tókst með ráðdeild og
sparsemi að verða einn auðugasti
maður landsins og var hann fyrir
löngu orðinn að þjóðsögu um land
allt, er hann lést, og eru mörg
spakmæli hans fyrir löngu orðin
þjóðareign. Hann harmaði það
mjög, að hafa ekki átt kost á
skólagöngu í æsku. Þess vegna
gekkst hann fyrir því að stofnaður
yrði barnaskóli á Eyrarbakka
1852, og byggði hann fyrsta skóla-
húsið á Bakkanum, þar sem skól-
inn starfaði fyrstu 25 árin. Þetta
er elsti starfandi barnaskóli á
landinu. Árið 1861 stofnaði hann
gjafasjóð Þorleifs Kolbeinssonar,
sem skyldi styrkja unga og efni-
lega bændur í Stokkseyrarhreppi,
og var undirstaða sjóðsins hálf
Hæringstaðatorfan. Árið 1880 var
hann gerður að dannebrogsmanni,
og fór fram athöfn í Stokkseyr-
arkirkju af því tilefni.
Kolbeinn Þorleifsson
aði nefnilega ekki langt yfir
skammt með kvonbænir. Brúði
sína sótti hann í hús eitt við sömu
götu. Varð það honum happafeng-
ur. Tveggja barna varð þeim auðið
og eru þau, sem eðlilegt er, hið
besta fólk.
Ungur vígðist Kristinn Vil-
hjálmsson þeirri hugsjón sem síð-
an hefur mótað líf hans allt. Hann
gerðist virkur félagi í reglu góð-
templara og hefur nú í áratugi
unnið bindindishreyfingunni af
heilum hug. Honum verður tíð-
rætt um ýmsa gengna templara,
sem hann bast vináttuböndum, og
vitnar gjarnan í orð þeirra. Læri-
feður hans og meistarar voru ein-
kum Helgi Sveinsson, Jón Árna-
son og tengdafaðir hans, Jón Páls-
son bankaféhirðir. Veganestið,
sem þeir létu í té, hefur í engu
brugðist Kristni. Á tímum sýndar-
mennsku, hræðslugæða og dekurs
við aumingjaskap og óheiðarleika
kann fornum dygðum að virðast
ofaukið. Svo mun þó ekki í raun.
Þegar hismið er fokið veg allrar
veraldar vex upp af kjarnanum
nýr gróður. Þau sannindi eru
Kristni ljós. Þess vegna hrekst
hann ekki rótlaus fyrir votum
vindum tísku og tildurs.
Glaður er Kristinn jafnan og
reifur. Hann er skýrt dæmi um
það að heilbrigt fólk þarf ekki að
rugla skynfæri sín með eitri eða
spilla þeim persónueigindum, sem
hefja menn yfir skynlausar skepn-
ur, til að skemmta sjálfum sér og
öðrum. Og hann hvikar hvergi í
þeirri baráttu fyrir fögru mann-
lífi, friði og bræðralagi allsgáðra
manna, sem háð er gegn þeim
skuggalýð er samviskudaufur
makar krókinn á sölu áfengis og
annarra vímuefna.
Tengdafaðir Kristins Vil-
hjálmssonar ritaði sögu séra Egg-
erts Sigfússonar í Vogsósum, þess
sérkennilega gáfumanns, og
bjargaði með því frá eilífri
gleymsku mörgu snjallyrði þessa
mæta klerks. Séra Eggert skipti
mönnum í tvo flokka, lóma og
skúma. Voru skúmarnir fleiri, að
minnsta kosti í Selvogsþingum, en
lómarnir betri. — Ekki er mér
grunlaust að Kristinn hafi svipað-
an hátt á, enda ómyrkur í máli og
dómharður um siðferðisbresti og
skaphafnarheimsku þeirra sem
þræla af eigin hvötum á galeiðu
áfengisauðvaldsins. — Og þar get-
ur hann trútt um talað. Hann hef-
ur í tæpa hálfa öld verið vakinn og
sofinn í störfm að hugsjónamál-
um. Meðan flestir jafnaldrar hans
hömuðust dag og nótt við að hnoða
„hinn þétta leir“ og búa sér og sín-
um kalkaðar steinsteypugrafir fór
orka Kristins Vilhjálmssonar í að
reisa Jaðar á Heiðmörk þar sem
verða skyldi í framtíðinni útivist-
arparadis bindindismanna. Síðan
reis Templarahöllin við Eiríks-
götu og átti hann ósmáan hlut í
því að öðrum ólöstuðum.
Sjötugur er Kristinn enn auðug-
ur að hugsjónum og stórhuga
framtíðarsýnum. Moldvörpuand-
inn nærsýni, sem ekki sér utan
eigið gagn og skarar ætíð eld að
sinni köku, hefur aldrei komist
upp með moðreyk í hugarheimi
Kristins Vilhjálmssonar. Þess
vegna er hann enn ungur þótt
sjötugur sé. Þess vegna hefði séra
Éggert í Vogsósum vafalítið tekið
hann í lómatölu ef þeir hefðu hist
og kynnst. Þess vegna er gott að
eiga hann að vini.
Við hjónin sendum Kristni
Vilhjálmssyni og fjölskyldu hans
hugheilar árnaðaróskir, ásamt
þökk fyrir vináttu og einstaka
góðvild í okkar garð frá því fund-
um bar fyrst saman vorkvöld eitt
á því Herrans ári 1955.
Olafur Haukur Árnason
Þrjú prestaköll auglýst
BISKUP íslands hefur ný-
verið auglýst þrjú prestaköll
laus til umsóknar og er um-
sóknarfrestur fram til páska.
1. Bólstaðarhlíð í Húnavatnspró-
fastsdæmi. Þar þjónar nú sem
settur prestur sr. Ólafur Hall-
grímsson en hann var vígður til
prestakallsins sl. sumar.
2. Möðruvellir í Hörgárdal í Eyja-
fjarðarprófastdæmi. Sr. Þórhall-
ur Höskuldsson sem þar hefur
þjónað um alllangt skeið, hefur
verið kjörinn prestur á Akur-
eyri og tekið við því embætti.
3. Staður í Súgandafirði í ísafjarð-
arprófastsdæmi. Þangað vígðist
sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson
í september sl. og hefur þjónað
þar síðan sem settur prestur.
Þá hafa öll prestaköll sem þjón-
að er af settum prestum eða njóta
nágrannaþjónustu, verið auglýst
laus til umsóknar. Sem kunnugt er
voru allmörg prestaköll auglýst
laus til umsóknar í byrjun þessa
árs, er umsóknarfrestur um þau
útrunninn.
Fara kosningar þar fram á
næstu vikum.
Skylt er að auglýsa öll þau
prestaköll laus til umsóknar einu
sinni á ári sem ekki er þjónað af
presti sem skipun hefur hlotið til
embættisins.
MIKIÐ UR VAL
af vegghúsgögnum úr furu, tekk, bæsaðri eik og hnotu
Opið í dag frá 10—5.
Langholtsvegi 111.
Símar 37010 — 37144.