Morgunblaðið - 13.03.1982, Page 26

Morgunblaðið - 13.03.1982, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Iðnaðarráðherra: Takmörk fyr- ir Blöndubið Ekkert nýtt, engar ákvarðanir, sögðu stjórnarandstæðingar um ræðu ráðherra „I>egar heildarmynd liggur fyrir af samningsstöðunni og afstöðu heima- manna (varðandi Blönduvirkjun) mun ráðuneytið leggja málið fyrir ríkis- stjómina og kynna jafnframt stöðuna fyrir alþingismönnum ...“ sagði Hjör leifur Guttormsson, iðnaðarráðherra á Alþingi sl. fimmtudag um mál Blönduvirkjunar, er hann mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um virkjunar framkvæmdir og orkunýtingu. Hann sagði viðleitni stjórnvalda til að ná samkomulagi um Blöndu sýna vilja þeirra, „en jafnljóst er að ákveðin takmörk eru fyrir því, hversu langt er hægt að ganga í þessu efni og hvaða áhættu er hægt að taka með tilliti til samstöðu hcima fyrir“. í stuttu máli: Rólur í þingsali? • Siggeir Björnsson (S), bóndi í Holti, hefur tekið sæti á Alþingi í fjarvistum Eggerts Haukdal vegna anna á öðrum vettvangi. • Guðmundur Vésteinsson (A) hefur mælt fyrir tillögu til þingsályktunar um könnun á brú yfir utanverðan Hvalfjörð. Jósep H. Þorgeirsson (S) hvatti sterklega til samþykktar á tillögunni og könnunar á framkvæmda- og kostnaðarþáttum. Ráðherra gerði kostnaðarlegan samanburð á þeim virkjunarkost- um, sem fælust í lagaheimildum frá fyrra ári., Stofnkostnaður væri áætlaður kr. 1,56 á hverja kWh/a í Blöndu, samkvæmt virkj- unarkosti I, en Fljótsdalsvirkjun væri 12% dýrari og Sultartangi 30% dýrari. Ráðherra sagði hreppsnefndir Torfalækjahrepps, Blönduóss- hrepps og Svínavatnshrepps vera að meirihluta samþykkar virkjun- arkosti I, sem hagkvæmni Blöndu- virkjunar kæmi fram í, afstaða Seyluhrepps og Lýtingsstaða- hrepps kæmi fram næstu daga, en Bólstaðahlíðarhreppur væri mál- inu andvígur. Hann vitnaði til eignarnámsheimilda í lögum nr. 60/1981, en sagði enga afstöðu hafa verið tekna í ríkisstjórn um að beita þeim heimildum. Hann tók og skýrt fram „að verði ekki ráðist í Blönduvirkjun, komi Fljótsdalsvirkjun í hennar stað“ og vitnaði til 6. liðar í þingsálykt- uninni þar um.“ Ráðherra fór mörgum orðum um margskonar kannanir á virkj- unarkostum og orkunýtingar- möguleikum og sagði „hagnýtingu orkulindanna á næstu árum og áratugum með stórbrotnustu við- fangsefnum, sem Alþingi hefur haft til meðferðar um langt árabil og varða miklu í efnahagslegu til- liti fyrir öryggi fólks um land allt svo og byggðaþróun". Viðbrögð við ræðu ráðherra • l'orvaldur Garðar Kristján.sson (S), sagði tíma til kominn að ráð- herra mælti fyrir þessari 3ja mán- aða tillögu, hinsvegar skuldaði hann Alþingi skýringu á seinlæti sínu í virkjunar- og orkunýt- ingarmálum, bæði fyrr og síðar. Hann gerði grein fyrir frumvarpi sjáifstæðismanna um næstu stór- virkjanir, frumvarpi um skipulag og stjórnun orkumála og tillögu um orkunýtingarstefnu. Gagn- rýndi hann að stjórnarliðar drægju fætur í þessum þýð- ingarmikla málaflokki í stað þess að leita samstarfs við stjórnar- andstöðu. Ræðu ÞGKr verða gerð nánar skil síðar. • Guðmundur G. Þórarinsson (F) talaði fyrst um viðkvæmar deilur í heimahéraði um Blönduvirkjun en vék síðan kvæði sínu í kross og taldi orkustefnu Sjálfstæðis- flokksins háskalega og til þess fallna að gera íslendinga að undir- þjóð. Hinsvegar bar hann lof á orkuráðherra og framlagða þings- ályktunarstefnu hans. • Kjartan Jóhannsson (A) sagði að í ræðu ráðherra og tillögu til þingsályktunar væri ekkert nýtt. Þar væri enn einu sinni tæpt á því sem allir vissu, en hinsvegar skorti þar það, sem eftir væri beð- ið: ákvarðanir um næsta virkjun- arkost og ekki síður um orkunýt- inguna, hvern veg þetta tvennt eigi að tvinna saman landi og lýð til farsældar. Orkumöguleikarnir eru bezta tækifæri íslenzku þjóð- arinnar til að tryggja efnahaglegt qryggi og bætt lífskjör. Ákvörðunarleysisstefna iðnaðar- ráðherra er þjóðhættuleg og sú nei og núllstefna, sem stjórnarliðar boða sí og æ, fresta bættum lífs- kjörum. Þessi tillaga og þessi ræða, sem eru kópíur af margtuggnum bolla- leggingum, valda vonbrigðum, vegna þess sem í þær skortir: ákvarðanir og framkvæmdir! Frumvarp okkar fól í sér að hit- unarkostnaður yrði hvergi meiri í landinu en tvisvar og hálfum sinn- um meiri en hjá Hitaveitu Reykja- víkur. Ef hitunarkostnaður væri hvergi • Friðjón Þórðarson, dóms- málaráðherra, hefur mælt fyrir stjórnarfrumvarpi til breytinga á umferðarlögum, þess efnis, að dómsmálaráðherra geti með aug- lýsingu ákveðið fjárhæð eigin áhættu viðkomandi eigenda vegna tjóna af völdum skráningarskylds vélknúins ökutækis, að fengnum tillögum tryggingareftirlits. • Svavar Gestsson, heilbrigð- ismálaráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi um öryggisráðstafanir gegn jónandi geislum frá geisla- virkum efnum og geislatækjum. • Guðrún Helgadóttir (Abl) hefur borið fram fyrirspurnir til viðskiptamálaráðherra um bóka- safn Landsbankans og Seðlabank- ans að Einholti 4, Reykjavík: hvenær stofnað hafi verið, hvert hafi verið upphaflegt hlutverk þess, hver sé heildarkostnaður frá upphafi, hvort gefnar séu út ársskýrslur og ársreikningar, hve margir vinni við safnið, hver fari með yfirstjórn o.fl. • Halldór Blöndal (S) spurði landbúnaðarráðherra, hvað liði fjáröflun fyrir Bjargráðasjóð til að bæta bændum tjón vegna upp- skerubrests? Hvenær sé að vænta að bændur fái fyrirgreiðslu úr Bjargráðasjóði? hærri en þrefaldur sá kostnaður, sem er á svæði HR, kostaði það 133 m. kr. í niðurgreiðslur á ári. Ef HR fengi hínsvegar að hækka gjaldskrá um 30% færi þessi kostnaður í 64 m. kr. og ef HR fengi að hækka • Birgir ísl. Gunnarsson (S) og Friðrik Sophusson (S) spyrja fjár- málaráðherra: 1) Að hve miklu leyti er tollafgreiðslugjald lagt á aðföng iðnaðar, skv. reglugerð. 2) hvað er gert ráð fyrir að tollaf- greiðslugjald á aðföng iðnaðar gefi ríkissjóði mikið í tekjur á þessu ári? • Þorvaldur Garðar Kristjáns- son (S) spyr menntamálaráðherra, hverjar framkvæmdir séu fyrir- hugaðar 1982 til að koma á viðun- andi sjónvarpssambandi við sveitabæi og þéttbýli á Vestfjörð- um, en þar séu skilyrði mjög slæm. Ennfremur hvað líði upp- setningu FM-senda á Vestfjörð- um? • Tryggvi Gunnarsson (S) flutti nýlega stytztu þingræðu, sem lengi hefur heyrzt, í kjölfar ræðu Páls Péturssonar (F), sem Tryggva þótti fara fyrir ofan garð og neðan: „Nú fór í verra. Nú skildi ég ekkert." • Geir Gunnarsson (Abl), for- maður fjárveitinganefndar, sagði nýlega í þingræðu, „að ræðustóll- inn væri ólíklegasti vettvangurinn til að ná einhverju fram“ á AI- þingi, „þar eru þingflokkafundir og nefndafundir ... sá vettvangur gjaldskrá um 40% færi kostnaður- inn niður í 45 m. kr. Hér er ein- göngu miðað við íbúðarhúsnæði. Þorvaldur sagði orkujöfnunar- gjaldið ekki eitt á báti um gjald- heimtu, sem framkvæmd væri und- ir fölsku yfirskyni, þ.e. til jöfnunar á hitakostnaði, en síðan varið í ann- að. Launaskatturinn var t.d. Iagður á sem tekjupóstur fyrir hið al- menna húsnæðislánakerfi, en er nú alfarið ráðstafað fram hjá bygg- ingarsjóði og í ríkishítina. sem dugar bezt“. Þetta var ein- hverskonar áminning til hinna málglaðari þingmanna úr munni gamalreynds, en Geir hefur setið tvo áratugi á þingi. • Geir Gunnarsson hnykkti á gagnrýni sinni í garð orðskrúðs- manna og sagði: „Eg held að þegar metinn er árangur og gagn af verulegum hluta þeirra ræðu- halda, sem fram fara hér á Al- þingi, þá komizt maður að raun um, að í ótrúlega mörgum tilvik- um væri eins vænlegt að hengja rólu hér upp í loftið og lofa mönnum að róla sér þar í stað- inn!“ Leiðrétting: Spurning- armerki féll niður Sú leiða villa varð við setningu fyrirsagnar á þingsíðu að spurn- ingarmerki féll niður í fyrirsögn þann veg að spurningu mátti skilja sem staðhæfingu. Rétt átti fyrirsögnin að vera þannig: Árni Gunnarsson: Flugleyfi notað til að forða gjaldþroti? Gagnrýni Árna Gunnarsson- ar (A), sem fyrirsögnin höfðar til, var í fyrirspurnaformi, ekki staðhæfingar, þó hann og fleiri þingmenn teldu líkur benda til afskipta samgönguráðherra af viðskiptum Arnarflugs og Is- cargo. í frétt á baksíðu Mbl. um sama efni í gær, er vísað til frásagnar af umræðum á Al- þingi á þingsíðu. í þeirri vísun hefur greinarheiti á þingsíðu einnig misritast, stendur: Flugleiðir í stað flugleyfi. Þetta leiðréttist hér með. Islenzkt-írskt félag stofnað ÁHUGAMENN um frland og írska menningu hafa unnið að því að und- irbúa stofnun félags sem hefði það að markmiði að greiða fyrir sam- skiptum íra og íslendinga og efla áhuga á írskri sögu, menningu og lífsháttum. Undirbúningsnefnd, sem til þess var kosin, boðar til fundar sunnu- daginn 14. mars kl. 17 í Sóknar- salnum, Freyjugötu 27. Þar verður tekin endanleg ákvörðun um stofnun félagsins. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á slíku félagi. Þar verður flutt stutt erindi og höfð uppi einhver söngvamál. (Kréttatilkynning.) FUJ í Reykjavík: Kristinn H. Grét- arsson kjör- inn formaður Á AÐALFUNDI Félags ungra jafn- aðarmanna í Reykjavík 8. marz sl. var kosin ný stjórn fyrir félagið. Formaður var kjörinn Kristinn H. Grétarsson, en aðrir í stjórn voru kjörnir: Björn Valdimarsson, Guð- rún Helga Sigurðardóttir, Gylfi Þ. Gíslason, Kari Birgisson, Sigurður Guðmundsson og Viðar Scheving. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Að- alfundur Félags ungra jafnaðar- manna í Reykjavík, haldinn 8. mars 1982, fagnar framkomnu lagafrumvarpi Guðmundar Vé- steinssonar um lækkun kosninga- aldurs í 18 ár. Félagið skorar á þingmenn að gera allt, sem í þeirra valdi stend- ur, til að frumvarp þetta nái fram að ganga." Bann við afturvirkni skatta: Réttaröryggi á sviði skattamála ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðisflokks, Matthías Á. Mathiesen, Geir Hall- grímsson og Halldór Blöndal, flytja frumvarp til stjórnskipunar- laga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins, þess efnis, að „hvorki megi setja íþyngjandi reglur um skatta á tekjur eða eignir liðins árs né afturvirkar og íþyngjandi reglur um breytta eða nýja skattstofna". Með þessari breytingu skal stefnt að því að auka réttaröryggi á sviði skattamála og setja sem gleggstar skorður gegn því, að afturvirk og íþyngjandi ákvæði séu sett um skatta á tekjur og eignir. Flutningsmenn segja, að slík afturvirkni, sem dæmi séu til um, geti valdið skattþegum, bæði einstaklingum og fyrir- tækjum, verulegum erfiðleikum, ekki sízt þegar gerðar hafa verið ráðstafanir um fjármál í rétt- mætu trausti þess, að skattlagn- ing á tekjur og eignir verði í samræmi við þágildandi löggjöf. Gölluð og ófullkomin lög: Skattar undir fölsku yfirskyni — sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson í umræðu um framkvæmd orkumálakafla stjórnarsáttmálans benti Þorvaldur G. Kristjánsson (S) á, að lögin um jöfnun hitunarkostnaðar væru mjög gölluð og ófullkomin, enda var því heitið við lokaafgreiðslu þeirra í þinginu, að þau skyldu þegar í stað endurskoðuð með hliðsjón af frumvarpi til laga sem ég og meðflutningsmenn úr öllum þingflokkum fluttum á sinni tíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.