Morgunblaðið - 13.03.1982, Síða 27

Morgunblaðið - 13.03.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 27 PLEGEL PLEGEL þakstáliö meö skífuformi. Fæst í 5 plötustæröum. Rautt og svart. Stáliö er heitgalvaniseraö og lakkaö meö PVF 2 lökkun. Breidd 107,5 Lengdir 0,40 1,10 2,15 3,20 4,25 Plegel er fyrirliggjandi | Vinsamlegatt sendið myndaiista yfir Plegel. i ® lager Nafn .......................... I Heimilisfang .................. . --------------------------------- Plegel Pardus hf.P ssprýði Box 98, 230 Keflavík, sími 92-3380. Fimm bifreiðir í árekstri FJÖGUR börn voru flutt í slysadeild eftir harðan árekstur á Suðurlandsvegi, skammt fyrir austan Rauðavatn, laust eftir kl. 19 á miðvikudag. Meiðsli þeirra reyndust ekki alvarleg. Tildrög slyssins voru þau að vörubifreið var ekið aftan á fólks- bíl, en ökumaður hans hafði stöð- vað og hugðist beygja austur Al- mannadal. Skömmu síðar kom bif- reið og stöðvaði ökumaður hennar vegna árekstursins. Skipti þá engum togum en bif- reið lenti aftan á henni með þeim afleiðingum að hún kastaðist í veg fyrir vörubifreið á leið austur. Börnin voru í bifreiðinni sem kastaðist í veg fyrir vörubifreið- ina. Fimm bifreiðir urðu fyrir skemmdum, en hríðarmugga var þegar slysið átti sér stað og hálka á veginum. Föstuvaka í Hafnarfjarðarkirkju SUNNUDAGINN 14. mars verdur haldin fostuvaka í Hafnarfjarðar kirkju og hefst hún kl. 20.30. Öldutúnsskólakórinn syngur undir stjórn Egils Friðleifssonar, Gunnar Gunnarsson flautuleikari leikur einleik á flautu og Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn organista kirkjunnar, Páls Kr. Pálssonar. Ræðumaður Kristján Búason dósent. Megi sem flestir eiga góða stund í Hafnarfjarðarkirkju á föstu- vöku. Safnaðarstjém og sóknarprestur Tískusýningar í Magasín Fulltrúar Hjálparstofnunar kirkjunnar, ASÍ og kaþólsku kirkjunnar á íslandi. Rúmar 5 milljónir hafa safnast í Póllandssöfnun SL. FIMMTUDAG var haldin tískusýning í vöruhúsinu Magasín í Kópavogi, þar sem Módelsamtökin syndu og kynntu fatnað og aðrar vörur sem Magasín hefur á boðstólum. Verða slíkar tískusýningar haldnar í versluninni næstkomandi fimmtudaga. Auk tískusýninganna verða ýmsar uppákomur hverju sinni. I fréttatilkynningu frá Maga- sín segir m.a.: „Vöruhúsið Maga- sín í Kópavogi hóf starfsemi sína á síðasta ári. Póstverslun Maga- sins er fyrsta póstverslunin hér- lendis sem býður alhliða vörur. Vörulistum hefur verið dreift inn á flest heimili landsins á undanförnum misserum. Upp úr næstu mánaðamótum mun 64 síðna lista verða dreift ókeypis um allt land. I sambandi við póstverslunina hefur Magasín tekið í notkun System 34 tölvukerfi frá IBM til að einfalda og flýta fyrir af- greiðslu póstpantana. Flestar pantanir eru nú af- greiddar samdægurs frá fyrir- tækinu og geta viðskiptavinir pantað í gegn um síma. Eitt burðargjald er greitt fyrir hverja pöntun og skiptir þá ekki máli hvort hægt er að senda hana í heilu lagi eða með nokk- urra daga millibili (t.d. ef um- beðnar vörur eru uppseldar í bili).“ Frá tískusýningunni sL fimmtudag. Ljó.sm. Emilía FORRÁÐAMENN þriggja aðila, Hjálparstofnunar kirkjunnar, Al- þýðusambands íslands og kaþólsku kirkjunnar á fslandi, sem staðið ha- fa að hinni svonefndu Póllands- söfnun, efndu til blaðamannafundar í gær. Tilgangurinn var að greina frá árangri söfnunarinnar. I*ar kom m.a. fram að föstudaginn 26. febrúar síðastliðinn hafl fyrsta vörusending- in frá íslandi verið afhent í Póllandi. Áður hefðu verið fest kaup á 24 tonnum hjálpargagna, sem send hafl verið í janúar til borgarinnar Plock í Póllandi. Auk þess séu nú vörur sendar reglulega til Bialystok, Krak- ow og Walbrzych. Forsaga þessarar söfnunar er sú að fyrir þremur mánuðum komust þessir þrír aðilar að samkomulagi um að efna til fjársöfnunar til Póllands og þróunarlanda. Að sögn Hilmars Baldurssonar frá Hjálparstofnun kirkjunnar hefðu nú 6 milljónir safnast. 4 milljóna hefði verið aflað með frjálsum framlögum, Alþingi hefði lagt fram 1 milljón og meta mætti þær gjafir sem borist hefðu í formi vara og niðurfellingar gjalda á 1 milljón kr. Skipting fjárins var þannig að 5,1 milljón rennur til Póllands, en 900 þúsundum var varið til þróunarverkefna í Súdan og Kenya. Upphaflega var ætlunin að verkalýðssamtökin Samstaða önn- uðust dreifingu þeirra hjálpar- gagna sem bærust til Póllands, en þegar herlög voru sett, var ákveðið að leita til annarra aðila í Póllandi til að taka að sér dreifinguna. Því varð að ráði að tekið var upp sam- starf við Hjálparstofnun kirkj- unnar í Noregi, sem hefur m.a. samvinnu við pólska samkirkju- ráðið. Frá Islandi eru vörurnar fluttar gjaldfrítt með íslenskum skipum til Noregs og Svíþjóðar. Þar er þeim blandað saman við norskar vörur í því skyni að fá sem mesta fjölbreytni, þaðan sjá Pólverjar um að koma þeim áleiðis til Pól- Tekið á móti vönisendingu ( Pól- landi. lands. Pólska samkirkjuráðið ann- ast dreifingu varanna þar. Er þeim bæði dreift til fjölskyldna og á stofnanir s.s. barnaheimili, munaðarleysingjaheimili og sjúkrahús. Á vegum þeirra aðila sem að söfnuninni standa fóru þeir séra Bjarni Friðriksson, Jóhannes Sig- geirsson og Ögmundur Jónasson til Póllands til að fylgja eftir fyrstu vörusendingunni. Ögmund- ur sagði að þeir hefðu viljað fá örugga vissu um að réttir aðilar veittu vörunum viðtöku. I því sam- bandi hefðu þeir kannað hvort pólska samkirkjuráðið hefði séð til þess að þessum hjálpargögnum væri úthlutað á sanngjarnan hátt. Ennfremur hefðu þeir reynt að kynna sér þátt pólskra yfirvalda í þessum sendingum. En þær sögu- sagnir hafa verið á kreiki að í sumum tilfellum hefðu hjálpar- sendingar verið yfirteknar af pólska ríkinu. Þremenningarnir komust að þeirri niðurstöðu að pólska samkirkjuráðið gerði sitt besta til að þeir sem þurfa mesta á aðstoð að halda njóti góðs af hjálpargögnunum. Einnig sagði Jóhannes Siggeirsson að fátt benti til þess að eitthvað væri hæft í þeim staðhæfingum að pólsk yfir- völd kæmust yfir þessar send- ingar. Það kom fram hjá Ögmundi og Jóhannesi að mikill skortur væri nú á matvælum, hjúkrunargögn- um og hreinlætisvörum í Póllandi. Ekki virtist hörgull á fatnaði fyrir fullorðna, en hins vegar á fatnaði fyrir börn og unglinga. Að sögn fulltrúa söfnunaraðila hefði verið lögð á það megin- áhersla að nota söfnunarféð til kaupa á íslenskum vörum. Því hefðu íslenskar sjávarafurðir skipað veglegan sess í þessari vörusendingu. Þess má geta að ætlunin er að halda hjálparstarfseminni áfram þar sem búast má við að ástandið fari versnandi í Póllandi a.m.k. fram í maí-júní.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.