Morgunblaðið - 13.03.1982, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.03.1982, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Lítið sem ekkert hefur verid unnið við ný íþrótta- mannvirki í Reykjavík á ár- unum 1979, 1980 og 1981, eða í stjórnartíð vinstri meirihlutans, sagði Sveinn Björnsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og for- seti íþróttasambands Is- lands (ÍSÍ) í upphafi yfirlits- ræðu, er hann flutti í borgar stjórn Reykjavíkur 4. mars, um stöðu íþróttamála í höf- uðborginni nú við lok kjör tímabilsins. Sveinn Björnsson sagði, að á þeim tíma, sem Sjálfstæðisflokk- urinn fór með meirihluta í borgar- stjórn hafi verið unnið að íþrótta- málum með vaxandi krafti, en eft- ir að vinstri menn tóku við og mynduðu meirihluta sumarið 1978 hafi nánast ekkert verið gert við uppbyggingu íþróttamannvirkja. Öllum tillögum um nýtt átak á þessu sviði hefði vinstri meirihlut- inn stungið undir stól. Sveinn Björnsson rifjaði upp, að á fundi íþróttaráðs Reykjavíkur 13. febrúar 1979 hafi hann látið bóka eftir sér, að með þeirri fjár- hagsáætlun, sem þá lá fyrir, hafi verið brotið blað, því að ekki var veitt fé til annars en nauðsynlegs Undir forystu vinstri manna hafa framkvæmdir stöðvast Við sundlaug Vesturbæjar — Stefán Kristjánsson, íþróttafulltrúi Reykjavíkur (t.v.), og Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands íslands og varaborgarfulltrúi. Yfírlitsræða Sveins Björnssonar um íþróttamál Reykjavíkur viðhalds íþróttamannvirkja. I bókun þriggja fulltrúa vinstri flokkanna af þessu tilefni lýsa þeir sig „efnislega samþykka" bók- un Sveins og segja: „framlög til framkvæmda á sviði íþróttamála eru hreinlega felld niður.“ Sagði Sveinn Björnsson, að þessi bókun vinstri manna í Iþróttaráði frá því í ársbyrjun 1979 væri ágæt lýsing á ástandinu þá og síðan. Undir stjórn vinstri manna hafa engin ný íþróttamannvirki verið hönnuð í Reykjavík, sagði Sveinn. Hann minnti einnig á það, að íþróttanefnd ríkisins hefði ekki borist neinar umsóknir frá borg- aryfirvöldum á þessum tíma til að tTKKÍa þátttöku ríkisins í vænt- anlegum framkvæmdum. Rakti hann dæmi máli sínu til stuðn- ings, þegar hann gat annars vegar um framsýni sjálfstæðismanna og hins vegar aðgerðarleysi vinstri manna. Vék hann sérstaklega að kosningaloforði framsóknar- manna frá 1978 um að reist yrði yfirbyggt skautasvell fyrir austan Laugardalshöllina. Þrátt fyrir þær yfirlýsingar og oddaaðstöðu framsóknarmanna í borgarstjórn, hefði ekkert miðað á þessu sviði. Sveinn Björnsson minnti á það, að á árinu 1976 hefðu sjálfstæð- ismenn haft forgöngu um það, að hannað yrði laugarhús við Sund- laugar Reykjavíkur í Laugardal. Hefðu teikningar að því legið fyrir, þegar vinstri menn tóku við 1978, hins vegar hefðu þeir fyrst á árinu 1981 veitt fé til að hefja framkvæmdir. Taldi Sveinn, að með þvi að ráðast í smíði laugar- hússins væru vinstri menn fyrst og fremst að reyna að klóra í bakkann vegna þess fram- kvæmdaleysis, sem einkennt hefði þróun íþróttamála síðustu þrjú ár. Hins vegar sagði Sveinn það nú nokkurn veginn víst, „að núver- andi meirihluti borgarstjórnar mun ekki á kjörtímabilinu komast upp úr jörðinni hvað iþróttalega uppbyggingu varðar". Yfirlit yfir 1973—’81 Sveinn Björnsson gerði grein fyrir framkvæmdum á sviði íþróttamála frá 1973 og tók þar mið af framlögum á fjárlögum ríkisins, en hluti framkvæmdanna er greiddur úr ríkissjóði. Verður hér drepið á helstu atriðin í ræðu Sveins: 1973 var hafist handa um gerð Arbæjarvallar, sem lokið var nokkru’ síðar. Sömu sögu er að segja um skíðalyftur og skíða- mannvirki í Bláfjöllum. Þá var sótt um fé til annars áfanga Laug- ardalsframkvæmda, sem nú er lokið, og til að byggja við sundlaug Vesturbæjar. Síðar var sótt um að breyta gömlu búningsherbergjun- um við sundlaugina í gufuböð, en vinstri mönnum hefur ekki tekist að hrinda því verki í framkvæmd. 1974 var veitt fé til að smíða vallarhús við Arbæjarvöll og síð- an ráðist í þá framkvæmd. Þar hefur íþróttafélagið Fylkir í Árbæ aðstöðu. Á árinu 1974 var einnig fengið leyfi fyrir vélfrystu skauta- svelli, sem enn er ekki til, eins og áður sagði. 1975 var samþykkt íþróttasvæði í Fossvogi og var því úthlutað til knattspyrnufélagsins Víkings; er unnið að ' framkvæmdum þar. Sama ár fékkst leyfi fyrir stóru íþróttasvæði í Seljahverfi — Suður-Mjódd. Var íþróttafélagi Reykjavíkur síðar afhentur hluti af því. Vinstri meirihlutinn hefur tafið fyrir framkvæmdum þar. Þetta ár var lagt UNI-Turf gólf- efni á hlaupabrautir innan húss í Laugardal. 1976 var samþykktur annar áfangi malarvallar í Breiðholti, hefur verið lokið við gerð hans. Þá var einnig samþykkt smíði laug- arhússins í Laugardal, sem áður er getið. Þetta ár fékkst einnig leyfi til að hefja framkvæmdir við þriðja áfanga Laugardalsvallar, þ.e.a.s til að setja gerviefni á hlaupabrautir, gera frjálsíþrótta- völl, byggja stúku, búa til grasvöll 140 x 140 m og smíða búnings- herbergi. I ársbyrjun 1978 hafði gerviefni verið lagt á hlaupa- brautir Laugardalsvallar og gras- flöt hafði verið gerð í Laugardal. Ekki hefur verið hafist handa við aðrar framkvæmdir né heldur gerð grasvallar í Árbæ, sem leyfi fékkst fyrir 1976. Þetta ár var heimilað að hefja annan áfanga Bláfjallaframkvæmda, að reisa skíðalyftu og lýsa brekkur, en lok- ið var við það 1978. Hins vegar er smíði þjónustumiðstöðvar enn ólókið. Þetta ár fékkst einnig leyfi til að kaupa júdódýnur og ýmis íþróttaáhöld. 1977 fékkst leyfi fyrir stóla- lyftunni í Bláfjölium, sem lokið var við á árinu 1978. Þetta ár var einnig staðfest heimild til að inn- rétta gufuböðin í sundlaug Vest- urbæjar. Framkvæmdir hafa þó enn ekki hafist. 1978 tóku vinstri menn við stjórn Reykjavíkurborgar. 1979 var aðeins sótt um fé til kaupa á íþróttatækjum. Um 1980 er sömu sögu að segja að því viðbættu að sótt var um heimild fyrir færan- legum áhorfendastæðum, sem enn hafa ekki verið keypt. 1981 var að- eins áhugi á að kaupa íþróttatæki og 1982 skyldu fleiri tæki keypt, skemma og troðari fyrir Bláfjöll. Sveinn Björnsson nefndi einnig tölur máli sínu til stuðnings. Eru tölurnar í gömlum krónum, færð- ar til verðlags í desember 1981. Fjárframlög til íþróttamannv- irkja í Reykjavík: 1973: 872.819.088 gkr. 1974: 574.221.279 gkr. 1975: 586.050.740 gkr. 1976: 388.349.033 gkr. 1977: 618.288.945 gkr. 1978: 305.348.212 gkr. 1979: 41.573.255 gkr. 1980: 10.505.806 gkr. Ekki liggja enn fyrir endanlegar tölur vegna ársins 1981 en þá var unnið við framkvæmdir vegna laugarhússins við í Laugardal. Viðgerðir og Bláfjöll Þá sagði Sveinn Björnsson: „Hér að framan hefur ekki verið gerð grein fyrir viðgerðarkostnaði á Sundhöllinni eða sundlaugunum í Laugardal, sem ekki er eðlilegt þegar talað er um framkvæmdafé, en þær hafa verið óheyrilega mikl- ar, og hafa borgarfulltrúar og frammámenn íþróttaráðs yfirleitt ekki viljað ræða þær. Það er óeðli- legt að láta vinna svona fram- kvæmdir í tímavinnu, eðlilegra hefði verið að bjóða svona mikið verk út. Um framkvæmdir í Bláfjöllum hefur hér ekki verið getið, fyrst og fremst vegna þess að sjö sveitar- félög standa að þessum fram- kvæmdum, þar á Reykjavíkurborg einn mann í sjö manna stjórn, og hlutur Reykjavíkur er ekki nema brot af heildarkostnaði, þótt hann sé þar stærstur." Til marks fjárframlög til fram- kvæmda í Bláfjöllum nefndi Sveinn Björnsson þessar tölur á verðlagi í desember 1981. 1973: 156.687.442 gkr.; 1974: 142.301.038 gkr.; 1975: 92.175.886 gkr.; 1976: 98.144.534 gkr.; 1977: 199.216.345 gkr.; 1978: 366.847.898 gkr.; 1979: 223.173.026 gkr. 1980: 198.499.718 gkr. Tölur fyrir 1981 liggja ekki fyrir. Framkvæmdir við Bláfjöll eru einu framkvæmdirnar, sem Reykjavíkurborg hefur lagt fjár- magn til á kjörtímabilinu af þeim framkvæmdum, er íþróttaráð þarf að samþykkja. íþróttaráð Reykja- víkur hefur að öðru leyti ekkert með Bláfjallaframkvæmdir að gera. Skíðaferðalög skólabarna Undir lok ræðu sinnar minnti Sveinn Björnsson á tillögu, sem hann lagði fram á fundi íþrótta- ráðs Reykjavíkur 8. september 1981 um að hnekkt yrði þeirri ákvörðun fræðsluráðs Reykjavík- ur að skera niður styrki til skíða- ferða skólabarna og unglinga í Reykjavík. Lagði Sveinn til, að haldið yrði áfram að veita þennan litla styrk til vinsælasta tóm- stundagamans barna og unglinga í borginni. En í könnun, sem unnin var af fræðsluráði og æskulýðs- ráði borgarinnar kom fram, að skíðaiðkun er langvinsælasta tómstundaiðja ungs fólks á aldrin- um 10 til 15 ára. Tilefni þessarar tillögu Sveins Björnssonar í íþróttaráði var sam- þykkt, sem gerð var 12. júní 1981 á fundi borgarstjóra með bæjar- tft stjórum á höfuðborgarsvæðinu. í þeirri samþykkt segir, að frá hausti 1981 muni sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ekki greiða neinn kostnað af skíðaferðalögum nemenda grunnskóla. Taldi Sveinn þessa samþykkt koma sér mjög illa bæði fyrir skólanemendur og skíðafélögin, sem reka skíðaskála til gistingar. Síðan vísaði Sveinn til umræðna um þetta mál í borgarstjórn 15. september 1981 og orða Kristjáns Benediktssonar, formanns fræðsluráðs og borgarfulltrúa framsóknarmanna, á þeim fundi, en samþykktinni frá 12. júní var vísað til umsagnar fræðsluráðs. Samþykkti ráðið 20. júlí, að veitt- ur skyldi ferðastyrkur, sem næmi 15,36 krónum á hvern nemenda til skíðaferðar. Færði Kristján þau rök fyrir afstöðu sinni, að skólarn- ir hefðu ekki bolmagn til að greiða laun þeim kennurum, sem þurfa að fara með skólabörnum í tveggja daga skíðaferðir. Þess vegna yrðu börnin ekki látin gista í skálum skíðafélaganna heldur öllum stefnt í dagsferðir á Blá- fjallasvæðinu. Taldi Sveinn Björnsson, að í afstöðu sveitarfé- laganna og fræðsluráðs fælist til- raun til að minnka fjárhagslegan halla á kostnaði við skíðaaðstöð- una í Bláfjöllum, en samtímis væri vegið að íþróttafélögunum, sem reka skíðaskála í nágrenni höfuðborgarinnar. Auk þess væri styrkurinn, sem fræðsluráð taldi hæfilegan svo lítill, að hann nægði tæplega til dagsferðar á skíði. I lok yfirlitsræðu sinnar í borg- arstjórn 4. mars sl. minnti Sveinn Björnsson á, að 1980 hefði hann flutt tillögu um það í íþróttaráði Reykjavíkur, að reglulegar áætl- unarferðir skólabarna og unglinga í skíðalönd Reykvíkinga verði styrktar, bæði í miðri viku og eftir skólatíma og um helgar. Hafi íþróttaráð samþykkt hana sam- hljóða fyrir 1981 og síðar fyrir 1982. Hins vegar hefði borgarráð aldrei afgreitt þessar tillögur. Sagðist Sveinn ekki vita ástæðuna fyrir því, en líklega væri samhengi á milli áhugaleysis borgarráðs og tillagna um að draga úr skiðaiðk- un skólabarna og unglinga. .* t

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.