Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Gunnar Snorrason — Eftir spá Þjóðhagsstofnunar var afkoma smásöluverzlunarinn- ar einhversstaðar í kring um núll- punktinn, misjafnt þó eftir verzl- unargreinum. Eg tel enga ástæðu til þess að rengja þessa niðurstöðu Þjóð- hagsstofnunar, en tölur úr ein- stökum fyrirtækjum fyrir árið 1981 hef ég ekki, þar sem að upp- gjöri fyrir árið er ekki enn lokið, sagði Gunnar Snorrason, formað- ur Kaupmannasamtaka íslands, i samtali við Mbl., er hann var spurður um stöðu smásöluverzlun- arinnar í dag í þéttbýli og dreif- býli. llppfærsla vörubirgda Landsbyggðarverzlunin á víða í miklum erfiðleikum umfram þá sem verzlanir hér á höfuðborg- arsvæðinu eiga í og valda því mörg atriði sem of langt væri upp að telja í stuttu viðtali. Eitt vil ég þó taka fram sem var mjög jákvætt fyrir smásöluna á sl. ári en það var að yfirvöld leyfðu að verzlanir færðu upp vörubirgð- ir sínar til raunvirðis þegar inn- kaup eru gerð. Hér var um eitt af baráttumál- um Kaupmannasamtakanna að ræða, sem hafði kostað mikið á liðnum árum, en náðist nú loks fram til sigurs. Annað vil ég einnig nefna sem er algjört grundvallaratriði fyrir viðskiptalífið, það er það að næg Afkoma smásölu- verzlunarinnar er mjög ná- lægt núllpunktinum — segir Gunnar Snorrason, formaður Kaupmanna- samtaka íslands, m.a. í viðtali við Morgunblaðið atvinna hefur verið sl. ár, þannig að fólk hefur haft peninga undir höndum í talsverðum mæli. Þá má benda á það að nægilegt vöruúrval er fyrir hendi og engar takmarkanir þar á, þetta er nú svona það jákvæða um smásölu- verzlunina í fljótu bragði frá sl. ári að segja. En það neikvæða er einnig fyrir hendi. Verðbólgan, sem var um 50% á sl. ári, kemur illa við allan rekstur og þá ekki sízt verzlun í smásölu. Líkja má þeim erfiðleik- um við það sem sparifjáreigendur eiga við að glíma með sparifé sitt. Sífelld hækkun á rekstrarkostnaði verzlananna. kemur einnig illa við afkomuna. Kædur ekki tekjum sínurn sjálf Verzlunin ræður ekki tekjum sínum sjálf. Hún verður að starfa samkvæmt óraunhæfum og úrelt- um verðlagsákvæðum og undir eftirliti Verðlagsskrifstofunnar. Kaupmannasamtök íslands hafa lengi barizt fyrir afnámi verðlagsákvæðanna, en lítið hefur áunnizt, þó hefur einstaka sinnum verið hægt að ná fram takmörkuð- um leiðréttingum og í framhaldi af því má spyrja hvernig ástandið væri ef Kaupmannasamtaka ís- lands nyti ekki við. Kaupmannasamtökin munu halda áfram að berjast fyrir frjálsræði í verðlagsmálum, í sam- ræmi við yfirlýsta stefnu sína. Núverandi verðlagsákvæði hafa ekki verið endurskoðuð síðan í apríl 1979, þrátt fyrir loforð yfir- valda um frekari endurskoðun þeirra síðar, með tilliti til afkomu verzlunarinnar. Þá vil ég mótmæla alveg sér- staklega þeim sérskatti sem nú- verandi ríkisstjórn setti á verzlun- ar- og skrifstofuhúsnæði. Hér er um hróplegt ranglæti að ræða, sem þessi ríkisstjórn endurtekur nú í þriðja sinn. Innborgunarskyldan Kaupmannasamtök íslands hafa mótmælt harðlega innborg- unarskyldu á innflutt húsgögn, sem núverandi ríkisstjórn setti á fyrir nokkru. Lágmark væri þó að verðbætur kæmu á innborgunarféð, eins og Kaupmannasamtökin hafa farið fram á við stjórnvöld. Stjórnvöld hafa hinsvegar fallizt á að greiða almenna sparisjóðsvexti á inn- borgunarféð, og má segja að það sé betra en ekki, en þó er það ekki í samræmi við stefnu stjórnvalda í peningamálum almennt. Jöfnun álagningar — Mikið hefur verið ritað og rætt um nauðsyn á jöfnun álagningar, þá sérstaklega að hækka þurfi álagn- ingu á svokölluðum vísitöluvörum. Hvað telur þú vera eðlilega álagn- ingu á vísitöluvörum og telur þú, að jafnhliða jöfnun álagningar þurfi að koma hækkun á heildina litið? — Ef ekki verður um að ræða frjálsa álagningu, þá tel ég að álagningu í smásölu verði að haga þannig að hver vörutegund standi undir sér kostnaðarlega séð. Það er dýrast að verzla með vísitölu- vörurnar, og á þeim er minnsta álagningin. Landbúnaðarvörurnar t.d., sem undantekningarlaust eru frysti- og kælivörur, eru með mjög lága álagningu, og langt fyrir neðan það sem það kostar að selja þær. Það er óeðlilegt að hilluvörurnar beri uppi lága álagningu á vísi- töluvörunum, sem hverfaverzlan- irnar selja óneitanlega mest af. Þannig verður afkoma þeirra langt um lakari en annars væri. Allir eru sammála um það að hverfisverzlanir séu nauðsynlegar og veiti íbúunum ómetanlega þjónustu. Hvers vegna að refsa þeim á þennan hátt? Er ekki tími til kominn að við hættum vísitölu- leiknum þar sem alltaf ér haft rangt við. Hagnaður af smásöluverzlun? — “Er smásöluverzlunin rekin með hagnaði í dag? — Öll fyrirtæki ættu að vera rekin með hagnaði, smásöluverzl- anir líka, en því miður er það nú upp og ofan hvað hagnaðinn snertir. Ef litið er á heildina, þá tel ég að afkoma smásöluverzlun- arinnar sé mjög nálægt núllinu. Öllum fyrirtækum ætti að leyf- ast að ráða yfir nokkru fjármagni, þó ekki væri til annars en að þau gætu greitt mannsæmandi laun og skilað sköttum til þjóðfélagsins og borið þannig uppi sameiginlegan kostnað við samneyzluna ásamt einstaklingunum. Því miður er það nú svo að það er ekki alltaf hagnaður af því að reka smásölu- verzlun, margar þeirra berjast í bökkum, aðrar eru reknar með tapi. Um þetta ástand vitnar bezt hve margar smásöluverzlanir eru jafnan til sölu. En sem betur fer finnast verzlanir sem skila hagn- aði. Ef stefnan verður áfram sú sama, eða eins og hún hefur verið í tíð núverandi ríkisstjórnar: að skammta með verðlagshöftum álagningu sem er fyrir neðan verzlunarkostnað og að skattpína verzlunina með sérstökum skött- um á verzlunarhúsnæði, þá er það gefið að fyrirtækin gefast upp eitt af öðru. Langur vinnudagur — Margir minni kaupmcnn hafa kvartað yflr því, að vinnudagurinn sé óhóflega langur, hvað er þar helzt til úrbóta? — Það eru ekki bara kaupmenn með minni verzlanir sem vinnu- dagurinn er langur hjá, það á við um alla kaupmenn, þeir sem velja sér þessa atvinnugrein að lífs- starfi verða að gera sér það ljóst. Eg hefi verzlað í meira en 30 ár og þekki ekki styttri vinnuviku en 70—90 klukkustundir. Ef verzlun á að ganga, verður kaupmaðurinn að koma fyrst á morgnana og fara síðastur úr búð- inni á kvöldin. Hann má helzt aldrei fara frá, aldrei verða veik- ur, hann verður svo að segja að vaka yfir fyrirtækinu dag og nótt. Lái svo hver sem vill kaup- manninum að vilja hafa ákveðnar reglur um opnunartima verzlana. Þeir, sem halda að hægt sé að stofna verzlun og að kaupmaður- inn geti leikið sér í „forstjóraleik" og þurfi einungis að tæma pen- ingakassann að kvöldi, fara villir vegar og fyrirtæki þeirra fara fljótt á hausinn. Starfsadstöðumunur — Telur þú vera mikinn starfs- aðstöðumun hjá stórmörkuðum og hinsvegar „kaupmanninum á horn- inu“? — Allt eru þetta nú kaupmenn, þeir reka aðeins mismunandi stór- ar verzlanir. Sé um hverfisverzlun að ræða, er reksturinn miklum mun tilkostnaðarmeiri. Hverfis- verzlun veitir miklu meiri þjón- ustu en stórmarkaður. Þar er fólk í lánsviðskiptum ef svo ber undir og vörurnar eru sendar heim eftir símapöntunum. Auk þessa af- greiða hverfisverzlanirnar vör- urnar „yfir búðarborðið" og það hvað lítið sem um er að ræða. Þannig má segja að starfsað- stöðumunur sé mikill hjá stórm- örkuðum og „kaupmanninum á horninu“. í þessu samhengi vil ég láta koma fram að frú Sigríður Haralds, neytendafulltrúi Verð- lagsstofnunar, gat þess nýverið i útvarpserindi, að samkvæmt könnun, sem fram fór í Svíþjóð, er hagstæðara að verzla í hverfis- verzlunum en stórmörkuðum þeg- ar öll kurl koma til grafar, s.s. vegalengdir. „Kaupmadurinn á horninu“ — Hverja telur þú vera framtíð kaupmannsins á horninu? — Ef þú átt við litlar verzlanir í gömlum bæjarhverfum, þá segir það sig sjálft að þegar fólki fækk- ar í hverfunum verður verzlunar- umsetningin minni og það stuðlar að því að verzlunum fækkar. Þetta sama skeður í nágranna- löndum okkar og er ekkert nema eðlileg afleiðing af búsetuþróun hverrar borgar. Þetta sama verður einnig upp á teningnum varðandi skólana. í nýbyggðum hverfum eru þeir margsetnir meðan börnin eru heima, en þegar „fuglinn er flog- inn úr hreiðrinu" eru þessir sömu skólar hálftómir. Annars hef ég trú á því að alltaf verði þörf fyrir „kaupmanninn á horninu" og tel ég að slíkar verzl- anir verða alltaf til og gegni sínu hlutverki í hinum ýmsu borgar- hverfum um ókomna framtíð, sem betur fer. Kí — VSÍ — Kaupmannasamtökin eni um þessar mundir að ganga inn í Vinnu- veitendasamband íslands og Kjara- ráð verzlunarinnar að hætta. Hvaða hag hafa kaupmenn af þessum breytingum? — Kjararáð verzlunarinnar hafa bráðabirgðaaðild að Vinnu- veitendasambandi íslands gegn ákveðinni greiðslu. Þegar lögum VSÍ var breytt í þá átt að öll aðild- arfélög þess skildu greiða ákveð- inn hundraðshluta af launa- greiðslum fyrirtækjanna í árgjald til VSÍ fannst Kaupmannasam- tökum íslands viturlegra að aðild- arfélög Kjararáðs verzlunarinnar tækju sjálf afstöðu til þess hvort þau gengju beint í VSÍ hvert um sig eða ekki. Nú hefur Verzlunar- ráð Islands gert samning við VSÍ um inngöngu ráðsins sem einstakt fyrirtæki. Með þessum samningi afsalar VI sér samningsrétti í kjaramálum. 1. VÍ afsalar sér samningsrétti um kaup og kjör, þannig að t.d.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.