Morgunblaðið - 13.03.1982, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
45
IHPV- Ai
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Velvakandi
fyrir 30 árum
Ljósmyndir til sýnis
FARÐU í skóhlífarnar og
skjótztu upp í Listvinasal,
ef þú þarf að drepa tímann.
Þar hafa myndir milli 40 og
50 áhugamanna verið hengdar
á veggina og þar gefst sann-
arlega á að líta marga
skemmtilega mynd. Ekki svo
að skilja, að þær séu allar
óaðfinnanlegar, heldur er að-
alatriðið í samræmi við óskir
áhorfandans: Myndirnar eru
fjölbreytt skoðunarefni og
upp til hópa góðar. Engin
hætta á, að mönnum finnist
þær tilbreytingarlausar og
leiðinlegar.
Atkvæðagreiðsla
sýningargesta
SÝNINGARGESTIR fá
hver um sig einn atkvæða-
seðil, og geta þeir greitt
tveimur myndum atkvæði
sitt, þeim sem beztar eru að
þeirra viti. íslendingum þykir
alltaf gaman að atkvæða-
greiðslum og getraunum, svo
að þetta ætti að verða til að
auka nokkuð á vinsældir sýn-
ingarinnar. Verður fróðlegt
að sjá, hvernig fólk velur og
gerir upp á milli þeirra 130
mynda, sem eru á sýningunni.
Sérstök dómnefnd á að
velja aðrar tvær myndir til
verðlauna.
Snjór úflutningsvara
UM helgina var háð stökk-
keppni í svigi fyrir utan
Kaupmannahöfn. Snjórinn
var fluttur inn frá Noregi eins
og vanalega. Ekki liggja fyrir
fullnaðarreikningar um snjó-
verðið. Menn geta sér þess þó
til, að það hafi verið í hærra
lagi, því að mikill hörgull er í
snjó í Noregi um þessar
mundir. Kannski gætum við
boðið Dönum ódýrari snjó, og
unnið svo markaðinn af Norð-
mönnum.
Engar bætur fyrir
skemmd föt
”'17' ÆRI Velvakandi. Ég er
IV ein þeirra, sem sú
óheppi hefir hent, að föt min
hafa verið skemmd í efnalaug.
En föt mín voru að engu bætt
og eru þeir því miður fleiri,
sem hafa sömu sögu að segja.
Eru engin takmörk fyrir,
hvað bjóða má skiptavinum?
Mér finnst ekki minna megi
vera en menn fái þá flík
greidda, sem hefir verið
skemmd í efnalaug fyrir
handvömm eina.
Kona.“
Varðandi fvrirspurn um auglýsingamiða:
Svarið er
nei og aftur nei
Til Velvakanda.
Um það var spurt í Velvakanda
á dögunum, hvort leyfilegt væri
að líma upp auglýsingamiða m.a.
t biðskýlum SVR. Svarið er nei
og aftur nei, að því er biðskýlin
a.m.k. varðar.
Öðru hverju kemur fyrir að
þessi verknaður er framinn og að
sjálfsögðu án leyfis. Aðallega
hefur hér verið um að ræða
hvatningar eða tilkynningar um
fundahöld öfgahópa. Nú hefur
bæst í hópinn nýr aðili, Rauð-
sokkahreyfingin, sem gert hefur
sig seka um þennan verknað.
Skora ég á aðstandendur þessara
samtaka að láta nú hendur
standa fram úr ermum og
hreinsa þær slitrur, sem eftir
kunna að vera af auglýsingum
þeirra í biðskýlum SVR, og láta
þetta ekki henda sig aftur.
I leiðinni er þess að geta, að af
hreinsun af þessu tagi sem SVR
hefur orðið að sjá um, hlýst
óhjákvæmilega þó nokkur kostn-
aður, sem sækja verður í vasa
útsvarsgreiðenda í höfuðborg-
inni.
Með þökk fyrir birtinguna.
Eiríkur Ásgeirsson
Laun hjúkrunarfræðinga
og benzínafgreiðslumanna
geta ekki talist „svipuð“
Til Velvakanda.
Vegna stórfréttar og viðtala í
Morgunblaðinu nýlega um laun
nafngreindra hjúkrunarfræðinga
var skorað á Petrinu R. Bjart-
þeirra vera eitthvað á þessa leið:
„Öfund rak í eina sæng — Arn-
grím, Heimi og Pétur." Ætli það
sé ekki betri skýring á úrslitun-
um, heldur en rekja þau til af-
skipta Guðs. Eða var það Guð,
sem lét þrjá kjósendur gleyma
fylgiseðli með kjörseðli sinum og
kjörnefndina sjá ekkert fyrir
þröngsýni?
Nei, í öllum bænum, prestar
mínir, talið ekki við okkur eins
og þið reiknið með, að við beygj-
um okkur fyrir „sérsambandi
ykkar við guðdóminn". Við
þekkjum mannlegt eðli, alveg
eins og þið, og verið ekki að fela
það að baki guðfræðilegum form-
úlum.
Vegna þessa bréfs var haft sam-
band við Heimi Steinsson og sagði
hann af því tilefni:
„Ég sat aldrei neinn fund með
þeim mönnum, sem að framan
eru nefndir. Þessi fundarhistoría
er einfaldlega ekki sönn.
Hvað varðar sjálft kjarna-
atriðið, þá bar ég ekki á borð í
þessu viðtali annað en almennt
kirkjulegt viðhorf. Kirkjan hefur
alltaf haldið fast við þá trú, að
henni sé endanlega stjórnað af
Guði. Engum er ljósara en okkur,
þessum svokölluðu þjónum kirkj-
unnar, að verkfærin, sem Guð
notar, eru ekki upp á marga
fiska, en höldum fast við það upp
til hópa, að það sé Guð, sem not-
ar þessi verkfæri. Án þessarar
grundvallarafstöðu dettur botn-
inn úr sjálfsvitund kirkjunnar og
skilningi hennar á hlutverki sínu
og stöðu í heiminum.
Að endingu vil ég segja að
ofangreindar hugmyndir um til-
högun embættaveitinga virðast
fremur lýsa persónuþroska
bréfritarans en málsatvikum."
Lagt af stað úr Kjarnaskógi.
Akureyri:
Skátar gengu á skíð-
um til Húsavíkur
Akureyri, 8. mars.
í TILEFNI skíðatrimm-dagsins í
gær létu nokkrir akureyrskir skátar
sig ekki muna um að ganga til Húsa-
víkur með hvatningarávarp skíða-
trimmncfndar Akureyrar til Húsvík-
inga.
Tveir nefndarmenn, Hermann
Sigtryggsson og Jón Sæmundsson,
gengu fyrst einn hring á skíða-
göngubrautinni í Kjarnaskógi, en
drógu síðan upp ávarpsskjalið og
fengu skátunum, sem geystust af
stað áleiðis til Húsavíkur. Þá var
klukkan 10 að morgni laugardags.
Stinningsgola var af suðvestri
og færi hart, en kapparnir létu
það ekki á sig fá. Þeir gengu á
laugardag austur að Stórutjama-
skóla og gistu þar, en í gær var
síðan haldið áfram og gengið alla
leið, að nokkru leyti í boðgöngu, en
tveir skátar gengu þó á skíðunum
alla vegalengdina, tæplega 100
km. Sv. P.
'flhugamcnn um iþróttir oy útioitt á
flhurfyri srnáa fiúsoihinyum brttu
tnmm-horfi|ur oy hoctja )>a oa obro
lanbsmmn til ab nstuniia holia útioist
oy lihamsírfinflar
Til ai'i Irgflja nhrrslu ó flilúi útioistar
og ifiróttn rr horb|o hrssi bobsmb mrb
shibaflöngumönnum fró fíhurryn til
fiúsaoihur d tnmmbrai 5hibasambanbs
Jslanbs 1982.
— öób ifirátt rr flulli brtri —
Shibatrimmnrfnb flhurryror
I M I I 1 I I I I
55, KÖPÁVOGI — SÍMI:45123
Þar er fólkiö flest og fjöriö mest
Opið í kvöld
frá kl. 20—03
Logi Dýrfjörð veröur í diskótekinu og
sér um að allir skelli sér í dansinn.
Matur veröur framreiddur frá kl. 20. Boröapantanir í síma
45123 frá kl. 1—5.
Snyrtilegur klæönaöur.
marz, hjúkrunarkonu, Stykkis-
hólmi, að upplýsa hvaða laun hún
hefði sem benzínafgreiðslumaður.
Tilefnið var það, að í viðtalinu
voru laun hennar fyrir 75% starf
við benzínafgreiðslu talin svipuð
(Mbl. sagði meiri) en laun fyrir
100% starf við hjúkrun.
Skorað var á Petrínu hér í Yel-
vakanda að „upplýsa nákvæmlega,
hvert kaupið er, þ.e. dagvinnukaup,
eftirvinna, vaktaálag og annað".
Það voru vonbrigði að sjá svar
Petrínu, þar sem ekki var minnzt
á kaup heldur bara endurtekið, að
laun fyrir hlutastarf við benzín-
afgreiðslu og fuilt starf við hjúkr-
un væru „svipuð“.
Samkvæmt launatöflu BSRB
eru laun hjúkrunarfræðings eftir
5 ár kr. 8.460.00 á mánuði fyrir
dagvinnu. Samkvæmt Dagsbrún-
artaxta fær benzínafgreiðslumað-
ur með 5 ára starfsaldur í 75%
starfi kr. 4.867.00 í dagvinnukaup
á mánuði. Þetta geta að sjálfsögðu
ekki talizt „svipuð" laun og því er
Petrína vinsamlegast beðin að
svara því sem um var spurt og
viðtal hennar i Morgunblaðinu
gefur tilefni til. Hvað hefurðu í
kaup? (Dagv., yfirv., vaktaálag.)
Opinber starfsmaður
Ath.:
Nk. föstudag er Vestmann-
eyingakvöld.
Allir Vestmanneyingar sérstaklega velkomnir.
Lundi og fl. gómsætir réttir á borðum. °if
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
U í.LYSINí, \.
SIMINN KK:
22480