Morgunblaðið - 13.03.1982, Síða 46

Morgunblaðið - 13.03.1982, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Souness lék einn leik með Tottenham gegn Keflavík á Laugardalsvellinum! FYRIRLIÐI Liverpool, Graeme Souness, sem almennt er talinn í hópi bestu knattspyrnumanna Evr ópu, lék einn leik með Tottenham fyrir nokkrum árum, merkilegt nokk, þar sem það er liðið sem Liv- erpool mætir í úrslitum deildarbik- arkeppninnar í knattspyrnu í dag. Souness hóf feril sinn hjá Totten- ham, en lék aðeins einn leik með aðalliði félagsins og íslenskir knattspyrnuáhorfendur ættu að muna eftir þeim leik. Hann var nefnilega hér norður frá, Evrópu- leikur gegn Keflavík og Souness tók stöðu Martin Peters sem þá var meiddur. Sami njósnari „fann" báða fyrirliðana sem mætast á Wembley í dag, Graeme Souness og Steve Perryman hjá Totten- ham. Það var Charlie Faulkner sem nú er „unglinganjósnari" hjá West Ham. Perryman er enn ung- ur að árum, en'hefur samt leikið meira en 500 deildarleiki fyrir Tottenham. Það gekk ekki eins vel hjá Souness, Faulkner kom auga á hann sem 15 ára svein í Edinborg og Souness var síðan í fjögur og hálft ár hjá félaginu áður en hann gekk loks til liðs við Middles- brough og síðan Liverpool. Þar komst hann fljótlega í lið og er nú ómissandi hiekkur í Liverpool lið- inu. Schuster verður með eftir allt saman! VESTUR-ÞÝSKI knattspyrnusniil- ingurinn ungi Bernd Schuster, hefur loks gert upp við sig, að hann vill vera með þýska liðinu í lokakeppni HM á Spáni í sumar, en á ýmsu hefur gengið í samskiptum Schust- ers annars vegar og þjálfarans, Paul Tvö heimsmet í lyftingum SOVÉSKI lyftingakappinn Anatoly Pisarenko setti nýlega tvö heimsmet í yfirþungavigt á móti í heimalandi sínu. Pisarenko byrjaði á því að setja heimsmet í snörun er hann reif upp 258 kg. Síðan jafnhattaði hann 197,5 og setti þar með heimsmet í samanlögðu, 455 kg. Sjálfur átti Pis- arenko gamla metið í samanlögðu, en það hljóðaði upp á 447,5 kg. • Bernd Schuster með sigurlaun vesturþýska landsliðsins eftir sigur inn í Evrópukeppni landsliða 1979. Þar lék Schuster geysilega stórt hlutverk í þýska liðinu og sannar lega á liðið meiri möguleika á HM í sumar ef það fær notið krafta hans. Breitners, Karl Heinz Rumenigge og Uli Stielike hins vegar. Hafa þessir aðilar allt að því atyrt hver annan og Schuster hefur oftar en einu sinni lýst því yfir að hann vilji ekkert hafa með að gera lið sem Paul Breitner og félagar ráði einir yfir. En Herman Neuberger, forseti þýska knattspyrnusambandsins gafst ekki upp, sérstaklega þegar Felix Magath varð fyrir slæmum meiðslum á dögunum. Var þá ljóst að vandamál voru að skjóta upp kollinum varðandi miðvallarlínu þýska liðsins. Stóðu bréfaskriftir yfir um tíma milli Neubergers og Schusters og enduðu þær fyrir skömmu með þeim hætti, að Schuster lýsti sig reiðubúinn í slaginn. Hann á reyndar við slæm meiðsl að stríða eins og er, en all- ar líkur eru á því að Schuster, sem leikur með Barcelona, verði orðinn góður þegar þar að kemur. • Þeir munu leiða lið aín saman I dag. Fyrirliði Tottenham Steve Perryman og fyrirliði Liverpool Graeme Souness. En hvor þeirra mun taka við deildar- bikarnum eftir leikinn er ekki gott að segja til um. Thompson tekur stöðu Hansens NÚ ER öruggt, að skoski lands- liðsmiðvörðurinn Alan Hansen hjá Liverpool getur ekki leikið með liði sínu gegn Tottenham í úrslitaleik ensku deildarbikarkeppninnar í dag. Hansen meiddist frekar illa á hné í deildarleik gegn Stoke á þriðju- dagskvöidið. Þá þegar var ólíklegt talið að hann myndi ná sér tíman- lega og nú hefur það orðið raunin. Phil Thompson tekur stöðu hans, en Thompson hafði verið fyrirliði hjá Liverpool uns hann meiddist fyrir tveimur mánuðum og missti þar með stöðu sína í liðinu. Karl Þóróarson: Bjartsýnn á að Laval vinni sér sæti í UEFA-keppninni ÉG VAR ÚTI í garði að slá blettinn, það er allt orðið fagurgrænt hér, sagði knattspyrnumadurinn Karl Þórðarson, er Mbl. spjallaði við hann í gærdag. Eins og kunnugt er, leikur Karl með franska liðinu Laval og hefur gert það mjög gott. Karl er fastur maður í byrjunarliðinu og hefur leikið alla leiki liðsins á keppnistímabilinu að tveimur undanskildum, en þá var hann meidd- ur. Laval er nú í sjötta sæti í 1. deildinni frönsku og er komið í 16 liða úrslit í bikarkeppninni. Karl hefur skorað fjögur mörk f deildarkeppninni og tvö í bikarkeppninni. En hann leikur stöðu hægri útherja. • Karl Þórðarson (í miðið), voifar til áhorfenda ásamt tveimur félögum sínum hjá Laval. • Karl Þórðarson — Mér líkar alveg sérstaklega vel hér í Laval. Þetta er allt annað líf heldur en í Belgíu. Og það er alveg öruggt að þangað fer ég ekki aftur. Ég er að vísu aðeins lánaður til Laval í eitt ár, svo ég veit ekki hvað tekur við í vor, en vonandi tekst mér að komast á áframhakl- andi samning hér hjá Laval, sagði Karl. Karl sagði, að áhugi á knatt- spyrnu í Frakklandi væri gífur- lega mikill. Það væru allt að 11 til 15 þúsund áhorfendur á heima- leikjum Laval. Mikið væri skrifað í blöðin og sjónvarpið sýndi mikið af knattspyrnu. Að sögn Karls, er nú ákveðið að sýnt verði beint frá 52 leikjum í heimsmeistarakeppn- inni í knattspyrnu. — Knattspyrnan hér er mjög hröð og létt. Leikmenn hafa mikla knatttækni og eru liprir. Liðin leika mikið stífan sóknarleik. Við hjá Laval leikum 4-3-3-leikkerfi á heimavelli, en á útivelli leikum við yfirleitt 4-4-2. Þjálfari Laval hef- ur verið með liðið í 15 ár. Það er ábyggilega einsdæmi. Okkur var ekki spáð miklum frama þegar tímabilið hófst, en þetta hefur allt gengið vonum framar og það hefur vakið mikla athygli hversu vel þetta litla félag hefur staðið sig. Hér er mikið um ferðalög og því á félagið litla flugvél sem tekur 17 manns og það eru mikil þægindi i því að fljúga á milli í stað þess að vera í löngum rútuferðum. Við æf- um svona að meðaltali aðeins einu sinni á dag. Allar æfingar eru með boltum og því skemmtilegar. Hér er gott að búa, okkur gengur vel að ná frönskunni, svo það er ekki hægt annað en vera ánægður, sagði Karl, sem var mjög bjart- sýnn á að lið hans myndi vinna Montpellier um helgina í deildinni og ná sér í tvö stig til viðbótar. Þá sagði Karl, að lið sitt væri svo gott sem öruggt í 8-liða úrslit í bikar- keppninni. Það væri búið að vinna útileikinn 3—1, en leikið væri heima og heiman. Þá var Karl bjartsýnn á að Laval tækist að tryggja sér Evrópusæti. Og yrði það þá í fyrsta skipti sem liðið næði svo góðum árangri. — ÞR. • Liö Laval. Karl er krjúpandi, annar fré vinstri. Liöiö er nú ( sjötta sæti frönsku 1. deildarinnar og é góða möguleika é því aö vinna sér UEFA-sætí. Aö sögn Karls eru þrjú liö éberandi sterkust í frönsku deildinni, St. Etienne, Bordeaux og Monaco.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.