Morgunblaðið - 23.06.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1982
Samið við lækna
utan sjúkrahúsa
NÝR kjara-samningur við sérfræð-
inga í Læknafélagi Reykjavikur,
sem vínna utan sjúkrahúsa, hefir
verið undirritaður og var hann
kynntur á fundi með læknum sl.
föstudag. Var samningurinn sjálfur
samþykktur en bókunum hafnað. í
gærkvöld var haldinn nýr fundur þar
sem fjallað var á ný um bókanir.
Meðal efnis hins nýja samnings
eru 6% og 3,25%. launahækkanir,
sem aðrir starfshópar hafa þegar
fengið, en samningur sérfræð-
inganna hefur verið laus í 3 ár. Þá
er breytt fyrirkomulagi á greiðsl-
um fyrir aðgerðir og greitt sér-
staklega fyrir viðtöl.
Elín Pálsdóttir Flygering
framkv.stj. jafnréttisráðs
RÁÐIÐ hefur verið í
framkvæmdastjóratöðu Jafnrétt-
isráðs og varð Elín Pálsdóttir
Flygenring einróma fyrir valinu í
það starf.
Elín lauk námi í lögfræði í vor
við Háskóla íslands og fjallaði
lokaritgerð hennar um jafnrétt-
islögin. Tiu umsækjendur voru
um starfið, þar af fjórir karlar,
einn umsækjandi dró umsókn
sína til baka.
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla:
Jóhannes Arnason
skipaður sýslumaður
HINN 16. júní sl. skipaði forseti
íslands Jóhannes Árnason sýslu-
mann til að vera sýslumaður
Snæfellsness-og Hnappadalssýslu
frá 15. ágúst 1982 að telja.
Umsækjendur um embættið
auk Jóhannesar voru Barði Þór-
hallsson, bæjarfógeti, Finnbogi
H. Alexandersson, dómara-
fulltrúi, Guðmundur Kristjáns-
son, aðalfulltrúi, Jón E. Ragn-
arsson, hrl., Pétur Kr. Hafstein,
stjórnarráðsfulltrúi, Ríkharður
Másson, dómarafulltrúi og Sig-
mundur Böðvarsson, hdl.
(FrétUtilkynning)
Þrennt
slasaðist
GEYSIHARÐUR árekstur varð í
llllartúnsbrekkunni í Mosfells-
sveit laust eftir klukkan 15 í gær-
dag. Stór vörubifreið og Cortina-
bifreið skullu saman við gamla
veginn upp að Álafossi. Þrennt var
flutt í sjúkrahús alvarlega slasað.
Cortina-bifreiðin gjöreyði-
lagðist. Toppur bifreiðarinnar
bókstaflega flettist af og bifreið-
in er sem flak eftir áreksturinn.
Tildrög slyssins voru þau, að
ökumaður sorpbifreiðar hugðist
beygja af Vesturlandsvegi og
suöur gamla Álafossveginn. I
kjölfar hans kom stór vörubif-
reið og náði ökumaður ekki að
stöðva bifreiðina, þannig að
hann sveigði yfir á öfugan veg-
arhelming og lenti á Cortina-
bifreiðinni, sem var á leið frá
Reykjavík. Áreksturinn varð
geysiharður.
Þrennt var í fólksbifreiðinni.
Ökumaðurinn, kona, skarst mik-
ið í andliti og handleggsbrotnaði
og þriggja ára barn skarst mikið
í andliti. Maður sem sat í fram-
sæti slapp ótrúlega vel. Ökumað-
ur vörubifreiðarinn slapp
ómeiddur.
Flugstöðvarnefndin klofnaði
Ekki bjartsýnn á að framkvæmdirnar fái samþykki ríkis-
stjórnar, segir Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra
þýðubandalagsmenn eru andvígir
fjárveitingunni. Það hefur alltaf
komið fram.“
Jóhannes Árnason
NEFND sú, sem falið var að kanna
nánar tillögur að hönnun nýrrar
flugstöðvarbyggingar á Keflavíkur-
flugvelli, hefur lokið störfum og skil-
að skýrslu til utanríkisráðherra. í
nefndinni, sem skipuð var einum
fulltrúa frá Framsóknarflokki, öðr-
um frá Alþýðubandalagi og þeim
þriðja frá sjálfstæðismönnum í ríkis-
stjórn, áttu sæti Jóhann Einvarðsson
alþingismaður sem var formaður,
Edgar Guðmundsson verkfræðingur
og Ólafur Ragnar Grimsson alþing-
ismaður. Nefndin klofnaði í af-
greiðslu sinni að sögn utanríkisráð-
herra, Ólafs Jóhannessonar. Meiri-
hlutinn Jóhann Einvarösson og
Edgar Guðmundsson leggja til að
framkvæmdir verði hafnar eftir
þeim tillögum sem fyrir liggja, en
Ólafur Ragnar Grímsson vill láta
hanna bygginguna upp á nýtt.
Utanríkisráðherra hefur lagt
niðurstöður skýrslunnar fyrir rík-
isstjórnina. Mbl. spurði hann í
D- og H-listamenn í
Sandgerði skipta með
sér oddvitaembættinu
D- OG H-listamenn í Sandgerði,
en H-listinn er listi frjálslyndra,
hafa komið sér saman um oddvita-
kjör, ráðningu sveitarstjóra og
nefndakosningar, að öðru leyti var
enginn meirihluti myndaður og er
þetta sama form og viðhaft var um
síðustu kosningar, að sögn frétta-
ritara Mbl. í Sandgerði, Jóns H.
Júlíussonar.
Samkomulag varð um að þess-
ir tveir listar skiptu með sér
oddvitaembættinu. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur hann fyrri
hluta kjörtímabilsins eða til 1.
júní 1984 og er það Jón J. Júlí-
usson, sem verður oddviti, en
hann var efsti maður á lista
Sjálfstæðismanna í kosningun-
um. Elsa Kristjónsdóttir verður
oddviti seinna kjörtímabilið, en
hún var oddviti allt síðasta kjör-
tímabil. Sveitarstjóri var endur-
ráðinn Jón K. Ólafsson og stóðu
K-listamenn í Sandgerði einnig
að kjöri hans, en K-listinn sam-
anstendur af alþýðuflokks-
mönnum, svo sveitarstjórinn
var einróma kjörinn til þessa
starfs.
Oddur Andrésson
gær hvað honum fyndist sjálfum
um málið. Hann svaraði: „Ég fellst
á tillögur meirihlutans. Ef farið
verður eftir þeim verður hægt að
hefja framkvæmdir i sumar, en
fjárveiting til verksins frá Banda-
ríkjunum fellur niður 1. október,
sé hún ekki nýtt fyrir þann tíma.“
Þá sagði Ólafur að samkvæmt
stjórnarsáttmálanum yrðu þó allir
ráðherrarnir að samþykkja fram-
kvæmdirnar áður en þær gætu
hafist. Aðspurður sagðist hann
ekki alltof bjartsýnn á að sú sam-
þykkt næðist.
Ólafur var einnig spurður
hvernig Ólafur Ragnar Grímsson
vildi að staðið yrði að málum.
„Hann telur byggingarformið
sjálft óhentugt. Það kemur ekki
fram að hann sé í sjálfu sér and-
vígur byggingu flugstöðvar á þess-
um stað. Hann vill láta hanna
hana upp á nýtt, svo hann er út af
fyrir sig ekki á móti henni." Að-
spurður sagði Ólafur að ekki
kæmu fram nein mótmæli í
skýrslunni gegn fjárveitingum
Bandaríkjanna, enda ekki verið
hlutverk nefndarinnar að fjalla
um þá hlið málsins. Hann sagði
síðan: „En það er vitað mál að al-
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar sem eiga að birtast í sunnudagsblaöi, þurfa
framvegis aö berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 á
föstudögum.
Oddur Andrésson á
Neðra-Hálsi látinn
ODDUR Andrésson bóndi að
Neðra-Hálsi í Kjós og fyrrum vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi er látinn.
Oddur fæddist hinn 24. nóvember
1912 að Bæ í Kjós, sonur hjónanna
Andrésar Ólafssonar bónda og
hreppstjóra og Ólafar Gestsdóttur.
Oddur kvæntist Elínu Gests-
dóttur frá Gemlufalli í Dýrafirði
árið 1947 og bjuggu þau alla tíð að
Neðra-Hálsi. I sveit sinni tók
Oddur mikinn þátt í félagsmálum
og hafði hann sérstakan áhuga á
söngmálum. Var hann til dæmis
bæði organleikari og söngstjóri í
sinni sókn.
Oddur var varaþingmaður
Reyknesinga á árunum 1964 til
1968 og aftur 1970 og 1971. Á þess-
um árum sat Oddur nokkrum
sinnum á þingi.
Lifnaryfir
Norðurá
HELDUR virðist vera að lifna yfir
vciðinni í Norðurá í Borgarfirði,
en fyrir hádegið í gær veiddust 17
laxar og 10 í fyrradag.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk við ána í gær,
kom stór laxaganga í ána á mánu-
dag og glæddist veiðin þá strax.
Eru menn nú bjartsýnir á fram-
haldið og eru öll skilyrði hin
ákjósanlegustu við ána, vatnið
hlýtt og veður gott, þó ekki sé sól-
skin talið eftirsóknarvert veiðiveð-
ur af ýmsum veiðimönnum.
Þó veiðin sé að glæðast í
Norðurá, er ekki sömu sögu að
segja um Elliðaárnar. Þar er
hún með dræmasta móti og
höfðu í gær aðeins veiðst 17 lax-
ar í ánni, en þess ber að geta að
Elliðaárnar hafa stundum verið
seinar til, samkvæmt heimildum
Mbl. Um 60 laxar höfðu farið í
gegnum teljarann í gær. Vatnið
í ánni er mjög hlýtt, 14 gráður,
og er árbotninn víða þakinn
slýteppi þykku. Til samanburðar
má geta þess að á sama tíma í
fyrra höfðu 238 laxar gengið í
gegnum teljarann og þá höfðu
63 laxar veiðst, og þótti lélegt.
Veiðar í Grímsá hófust þann
20. júní sl. og gengur veiði frem-
ur illa. Á hádegi í gær höfðu
veiðst þar 9 laxar og sá stærsti
vó 12 pund. Samkvæmt upplýs-
ingum, sem Mbl. fékk í veiðihús-
inu við ána, hefur lítið sést af
fiski í ánni, en menn vona að úr
rætist.
— ój