Morgunblaðið - 23.06.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.06.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ1982 7 Regngallarnir eftirspuröu nýkomnir, kr. 278. Cax4Xo& karlmannafötin kr. 998 og 1098. cofinca karlmannafötin einhneppt og tvíhneppt. Terylinbuxur, fjölbreytt úrval. Gallabuxur, úlpur, margar geröir. Skyrtur, skyrtubolir og m. fl. á frábæru veröi. And res, Skólavörðustíg 22. BÁTAVÉLAR Viö bjóöum vandaöar pólskar bátavélar 95 og 165 sjó- hestöfl á ævintýralega lágu veröi. Sýningarvól á staönum. Leitiö nánari upplýsinga: VÉLASALAN H.F. Ánanaustum — sími 26122 Hverjar eru orsakir vandans? Öll útDutningsfram- ieiósla á fyrst og fremst við þann vanda að stríða, að tilkostnaðarhækkanir inn- anlands hafa farið langt fram úr söluverði erlendis. Einn höfuðþáttur vandans er því verðbólgan. Verð- bólgumarkið i stjórnar- sáttmála og munni ráð- herra hafa gufað upp og orðið að engu, enda engin samstaða á stjórnarheimil- inu um marktækar verð- bólguhömlur. Framsóknar- ráðherrar tala að vísu um nauðsyn aðgerða — en láta sitja við orðin tóm. Alþýðu- bandalagið ber hinsvegar olíu á verðbólgubálið. Hrun loðnustofns og samdráttur í þorskveiðum hafa síðan höggvið svo að undirstöðum sjávarútvegs, að til mjög alvarlegra tíð- inda kann að draga í ís- lenzku atvinnu- og efna- hagslífi, að öllu óbreyttu. Ekki bætir úr skák að stjórnarstefnan i skatta- málum, í gengisstýringu og raunar cinnig í verðmynd- un hefur þrengt svo að rekstrarstöðu atvinnuvega almennt að hún hefur aldrei verið tæpari — eða framleiðslan verr undir það búin að mæta kjara- kröfum. Stærð fiski- skipastólsins l*á hefur það og sárlega komið niður á útvegi og sjómönnum hver hringl- andi hefur ríkt á stjórnar- heimilinu varðandi stefnu- mörkun til samræmis milli stærðar fiskiskipastólsins og veiðiþols nytjafiska okkar. Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri, sem gjörþekkir þessi mál, sagði i sjónvarpsviðtali á dögun- um, að um 10—12% af rekstrartapi togaranna ætti beint rætur í því að OF mörg skip væru gerð út á OF lítinn afla. Engu að síð- Treysti þvi að ráðherrarnir sjai ^ f § |JÖ t, bóinn .» I»l. >1»»'". ** •“* ' ■ ir nóttamaður. góðt.. . ------------------------------- „» I k.W.kol n, nn « *« >» ' Undirstöðuatvinnu- vegur í hættu Talið er að togaraútgerð í landinu hafi veriö rekin meö 30—40% tapi frá því að veiðar hófust á ný eftir áramótin. — Nokkrir togar- ar, einkum á Suövesturlandi, komust ekki á veiðar, eftir verkfallsdagana, vegna fjár- hagserfiðleika. — Nálægt 800 manns í fisk- vinnslu eru nú atvinnulausir vegna stöövun- ar togaranna. — Staöa frystiiönaöarins er og neöan núllsins, rekstrarlega, eins og horfir. — Ríkisstjórnin, sem hlýtur að hafa séð hvert stefndi, hugsar ekki stærra en aö slá fyrir olíu til eins veiöitúrs. Hún svaf raun- ar vært á vandamálum þjóöfélagsins, er verkalýðsleiðtogar gengu á hennar fund vegna atvinnuleysis fiskverkunarfólks. ur hefur hver togarinn i kjölfar annars verið fluttur til landsins undanfarið — og sjávarútvegsráðherra sýnist skorta alla festu og ákveðni til að spyrna við fótum. Meðan líklegur há- marksafli er svo takmark- aður, sem fiskifræðilegar niðurstöður sýna, er það kolvitlaus stefna að auka sífellt fjölda úthalda, þann veg að minna og minna komi i hlut hvers skips, bæði útgerðar og sjó- manna. I>egar sýnt var að samdráttur yrði í vciðum var þessi skipakaupa- stefna, jafnvel á gömlum fleytum, enn vafasamari. að ekki sé fastara að orði kveðið. Fiskvinnslu- fólk at- vinnulaust llm 800 manns, einkum - konur, eru nú atvinnulaus- ir, vegna stöðvunar togar- anna og þar af leiðandi hráefnisskorts í frystihús- um. iH-tta nær enn ein- vörðungu til höfuðborg- arsvæðisins og Suðurnesja. Ljóst er hinsvegar að fjöl- margir togarar eru á síð- asta snúningi, vegna vax- andi fjárhagsvanda, og að þessi vandi getur teygt sig fyrr en síðar til flestra sjáv- arplássa, að öllu óbreyttu. Þannig kom það fram í blaðafréttum i gær, að óljóst væri, hvort Vest- mannaeyjatogarinn Breki, sem er aflahæsti togari landsins það sem af er ár- inu, komist til veiða á ný. Sjávarútvegsráðherra hefur skipað sérstaka nefnd til að kanna, hversu stór vandi togaranna er og hvað komi helzt til greina til að leysa vanda útgerðar- innar. I>essi nefndarskipan er góðra gjalda verð. Ilinsvegar er óafsakanlcgt að gripa þá fyrst til könn- unaraðgerða þegar allt er komið i óefni, þó löngu væri Ijóst, hvert stefndi. I>að leysir heldur engan vanda til frambúðar að lúta sífellt að bráðabirgða- reddingum, sem verið hafa ær og kýr þessarar ríkis- stjórnar, en taka aldrci á hinum raunverulega vanda. Sjávarplássin, sem mynda verðmætakeðju á strandlengjunni umhverfis landið, og verið hafa hornsteinar útflutnings- framleiðslu og gjaldeyris- tekna þjóðarinnar, standa nú frammi fyrir meira óör- yggi, atvinnulegu og efna- hagslegu, en barið hefur að dyrum um langan aldur. En sjávarútvegsráðherra telur tíma henta til Rúss- landsferðar. Við skulum bara vona að Rússarnir lúri ekki á gömlum togur- um í uppboðsstandi! BLAÐBURÐARFOLK ÓSKAST Austurbær Hverfisgata 4—62 Upplýsingar i sima 35408 T0LVUSK0LINN SUMARSKÓU FYRIR BÖRN 9—14 ÁRA í sumar veröur efnt til nokkurra tölvunámskeiöa fyrir börn. Hvert námskeiö stendur yfir í tvær vikur meö möguleikum á framhaldsnámskeiði í 2 vikur til viðbótar, þrisvar í viku. Viö kennsluna eru notaöar vandaöar einkatölvur frá ATARI meö litaskermi, 4ra rása hljóöi og háþróuöum teiknimöguleikum. Kennt verður eftirfarandi m.a.: • Hvernig tölvur vinna • Til hvers þær eru notaöar • Hvernig á aö fá þær til aö gera þaö sem notandinn vitl. Á kvöldin kl. 20.00—22.30 er kennslusalurinn notaður til æfinga og leikja fyrir nemendur. Framsýnir foreldrar láta börn sín læra á tölvu. Tölvunámskeiö eru bæöi skemmtileg og þroskandi og opna börnunum nýja möguleika i lífinu. Innritun í síma 25400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.