Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1982
Unglingareglu-
og stórstúkuþing
Hilmar Jónsson endurkjörinn stórtemplar
l'nglingaroglu- og Stórstúkuþing
var haldið dagana 10.—13. júní. A
Unglingaregluþinginu var kynnt
Cræðsluverkefni sem Unglingareglan
gefur út um ifengi og önnur vímu-
efni fyrir tíu ára nemendur í
grunnskólum landsins.
Nú er starfandi 31 barnastúka á
landinu með 2500 félögum. Stór-
gæslumaður Ilnglingareglunnar var
endurkjörinn Kristinn Vilhjálmsson,
en aðrir i stjórn eru: Sigrún
Oddsdóttir, Arnfinnur Arnfinnsson,
Árni Norðfjörð og Karl Helgason.
Á Stórstúkuþinginu kom fram
mikil ánægja með samstarf 35 fé-
laga og stofnana að áfengisvörn-
um, en þetta samstarf hefur verið
nefnt „Átak gegn áfengi og öðrum
fíkniefnum" og hófst árið 1980.
Menntamálaráðherra, Ingvar
Gíslason, þakkaði á þinginu Góð-
templarareglunni mikil og góð
störf í þágu uppeldis- og menning-
armála í landinu.
1984 verður Góðtemplarareglan
á Islandi hundrað ára og af því
tilefni verður haldin hér alþjóðleg
menningarráðstefna IOGT.
Á þinginu var Hilmar Jónsson
endurkjörinn stórtemplar, en aðr-
ir í framkvæmdanefnd eru: stór-
kanslari: séra Björn Jónsson; stór-
varatemplar: Bryndís Þórarins-
dóttir; stórritari: Sigurgeir Þor-
grímsson; stórgjaldkeri: Arn-
finnur Arnfinnsson; stórgæslu-
maður unglingastarfs: Kristinn
Vilhjálmsson; stórgæslumaður
ungmennastarfs: Guðlaugur Sig-
mundsson; stórkapelán: Guðbjörg
Sigvaldadóttir; stórgæslumaður
löggjafarstarfs: Olafur Jónsson;
stórfræðslustjóri: Björn Eiríks-
son; stórfregnritari: Árni Valur
Viggósson; og fyrrverandi stór-
templar: Sveinn Kristjánsson.
Meðal þeirra tillagna, sem sam-
þykktar voru, má nefna:
1. Stórstúkuþing 1982 vekur enn á
ný athygli á áskorun um áfeng-
ismál sem Alþjóðaheilbrigð-
isstofnun SÞ (WHO) beinir til
aðildarþjóðanna. Þar er bent á
nauðsyn þess að setja reglur er
dregið geti úr heildarneyslu
áfengis, svo sem að fækka
dreifingarstöðum áfengis og
halda áfengisverði háu, auk
þess að beita innflutningshöml-
um. Heitir þingið á stjórnvöld
að taka þessa ábendingu til
greina.
2. Þingið er mótfallið því að sífellt
skuli fjölgað áfengisútsölum og
vínveitingaleyfum.
3. Þingið leggur áherslu á að kom-
ið verði á skipulegri kennslu
fyrir væntanlega presta, lækna,
félagsráðgjafa og kennara í
æðri menntastofnunum sem
geri þá færa um að leiðbeina
öðrum um hættu af neyslu
vímuefna.
Norólenskir fulltrúar á Unglingaregluþingi.
4. Stórstúkuþingið leggur áherslu
á gildi bindindisstarfs meðal
barna og unglinga og vekur at-
hygli á að barnastúkur hafa
sérstöðu og eru einar um skipu-
lagt viðnám gegn tóbaks-
reykingum og vímuefnaneyslu
meðal barna. Væntir þingið
þess að almenningur muni á
næstu tímum vakna til liðsinnis
við bindindisstarfið meðal
barna og unglinga á ýmsan
hátt. Jafnframt því er áhersla
lögð á samræmt æskulýðsstarf
bindindishreyfingarinnar.
Nokkrir fulltrúar i llnglingaregluþingi.
Sigrún Oddsdóttir tekur vió verólaunum frá Kristni Vilhjálmssyni stórgæslu-
manni fyrir barnastúkuna Sióaemd í GaróL
Vió háboróió: Sr. Björn Jónsson frá Akranesi, Hilmar Jónsson frá Kefiavík
og Kristinn Vilhjálmsson frá Reykjavík.
Eí skal rasa
um ráð fram
Tilbreytingin og skemmtunin er
ólíkt meiri sé fjárhagurinn
traustur heima fyrir.
Pjónusta ráðgjafans í Útvegsbankanum stendur ö41um
viðskiptamönnum hans til boða;
og hún veitist þeim ókeypis.
Æ"'' w
Nánari upplýsingar á öllum afgreiðslustöðum bankans
ÚWEGSBANKINN
Einmitt bankinn fyrir þig.