Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1982
??bcí v/ildir veréa útlo/&6slustjóri. Fylgstu
þét (ne^> fjoí huem'ig þetta. b'óm breið/r
sig út."
Ást er...
... að reyna að
skilja skapofsa
hennar.
TM Reo U S Pal Ofl -all riohts reserved
• 1982 loa Angeies Times Syndicate
Við gerðum góð kaup að sleppa
hreindýraskinninu og fá heldur
þetta kamelskinn!
Voff — voff, voff.
„Krummi kann ekki við að segja
það sem hann hugsar um þá á
sjónvarpinu ...“ segir í Tímanum í
gær, og ég leyfi mér að fullyrða að
knattspyrnuáhugamenn um land
allt hugsi ekki beint fallega til
sömu aðila, og þegi áreiðanlega
ekki yfir því eins og Krummi ger-
ir. Við höfum aðeins fengið að sjá
tvo leiki í beinni útsendingu til
þessa, frá heimsmeistarakeppn-
inni og ekki eru líkur á að þeir
verði fleiri.
Það sem hvað mesta gremju
vekur í sambandi við þetta mál er,
eftir því sem Tíminn segir frá í
gær, að sjónvarpinu hafi staðið til
boða að fá marga leiki í beinni
útsendingu, en ekki viljað þá.
Blaðið hefur eftir Pétri Guð-
finnssyni. framkvæmdastjóra
sjónvarpsins að þeim hafi verið
fullkunnugt um þennan mögu-
leika, en ekki stefnt á aðra leiki en
upphafsleikinn, úrslitaleikinn og
leik Belga og Pólverja, sem sýndur
var í fyrrakvöld. Skammast mað-
urinn sín ekkert fyrir að láta hafa
þetta eftir sér? Ekki trúi ég því að
sjónvarpsmenn haldi að áhuga-
Ekkert sjónvarpsefni hefur verið vinsella í júnímánuði, en beinar útsend-
ingar frá HM-keppninni í knattspyrnu, segir bréfritari. Á myndinni hér að
ofan sem er frá leik Rússa og Nýsjálendinga, má sjá hvar Sergey skorar
þriðja mark Rússa.
Sjónvarpið ætti að skammast
sín fyrir að senda ekki fleiri
leiki út beint frá HM-keppninni
menn um knattspyrnu hér á landi
séu ánægðir með frammistöðu
sjónvarpsins.
Þegar leikur var fyrst sýndur
beint í íslenska sjónvarpinu síð-
astliðinn vetur, sást vart hræða á
götum úti, slíkur var áhuginn.
Halda sjónvarpsmenn að áhuginn
hafi eitthvað minnkað? Ég er
hræddur um ekki.
Ekki er hægt að líkja því saman
að horfa á leiki í beinni útsend-
ingu og að sjá þá gamla og vita
nákvæmlega allt sem eftir á að
gerast. Jafnvel þó íþróttafrétta-
maður sjónvarps reyni að halda
spennunni í leikjunum með því að
lýsa þeim eins og hann hafi aldrei
heyrt úrslitin.
En hverjar eru ástæðurnar fyrir
lélegri þjónustu sjónvarpsins?
Eftir því sem Pétur segir í Tíman-
um er helst svo að skilja að of dýrt
sé að fá leikina. Hann segir að
hingað til hafi gengið mjög vel að
ná inn auglýsingum vegna þeirra,
„en ekki er víst að þær séu fundið
fé“.
Ef ég man rétt, kom það fram í
fjölmiðlum fyrir ieik Argentínu og
Belgíu, fyrsta leik HM, að auglýs-
ingastofur hefðu, hver á fætur
annarri, viljað ná í allan auglýs-
ingatímann með leikjunum. Þykir
mér heldur ólíklegt að áhugi
þeirra hafi minnkað á þessu. Vitað
er að mikill hluti þjóðarinnar sit-
ur sem fastur við sjónvarpstækin
á meðan á beinu útsendingunum
stendur, ekki aðeins alhörðustu
„fótboltafrík" heldur margir aðrir,
og hlýtur þessi auglýsingatími því
að vera einn sá albesti, sem hægt
er að fá í sjónvarpinu.
En íslenskir áhugamenn um
knattspyrnu verða að gera sér
þessa þjónustu sjónvarpsins að
góðu, og geta ekkert gert annað en
bölvað þó það gagni lítið.
Mikið lifandis skelfingar
ósköp og skelfing hefði verið
gaman að sjá leik Englands
og Vestur-Þýskalands beint í
gær...
Sjónvarpið ætti að skammast
sín fyrir að veita jafnlélega þjón-
ustu og raun ber vitni. Það er
óhætt að fullyrða, að á ekkert
annað efni, hefur verið horft jafn-
mikið á, og knattspyrnuleiki í
beinni útsendingu frá heimsmeist-
arakeppninni. Er það tilfellið, eins
og fram hefur komið í einum fjöl-
miðli hér á landi, að það séu að-
eins þrjú lönd í Evrópu sem ekki
fá beina útsendingu. Albania, lok-
aðasta land í heimi, Færeyjar og
ísland. Það er ekki leiðum að líkj-
ast. Furðuleg er sú afsökun sjón-
varpsins að ekki fáist tími í gervi-
hnetti. Það eru fjögur ár síðan
keppnin var ákveðin á Spáni. Hafa
þeir aldrei heyrt máltækið: „Ekki
er ráð nema í tíma sé tekið.“
Þ.S.
HÖGNI HREKKVlSI
„SAk.60(ZmHGUfUKJN STÓÐ OiA pAÐ BlL
Þessir hringdu . . .
Vil helst að
Valdimar veki
mig af blundi
B.B. hringdi og fór með tvo
kviðlinga fyrir Velvakanda. Annar
var saminn í tilefni þess að Valdi-
mar Örnólfsson var að hætta með
morgunleikfimina í útvarpinu.
„Knda Jh>U ég ckki par
íþróttirnar slundi,
vil helHl að Valdimar
veki mig af blundi."
Hin vísan var sett saman í tilefni
þess að Albert Guðmundsson varð
forseti borgarstjórnar:
„Hver gótur þcun vors feóra Fróns
fatfnar og verdur KlaAur.
Svona fór, að Sigurjón.s
saknar enginn maður.“
Neysla hita-
veituvatns
Á.S. hringdi og vildi koma fram
fyrirspurn til dr. Jóns Ó. Ragnars-
sonar. „Vinsamlegast segið mér
um neysiu hitaveituvatnsins. Ég
nota það yfirleitt í te og kaffi.
Teljið þér það skaðlegt?
Er nú ánægð
Kona að norðan hringdi og vildi
lýsa ánægju sinni yfir því að Pétur
og félagar væru nú aftur komnir í
morgunútvarpið. „Þetta er langt-
um léttara og skemmtilegra en
það var þegar Páll Heiðar var með
þáttinn. Ég hef ekkert á móti Páli,
en ég vil að hann fái eitthvað við
sitt hæfi, t.d. enskukennslu í sjón-